10.11.2007 | 19:44
Sól i fjörbrotum og bær við ystahaf.
Já þessi dagur var fallegur að venju. Úlfur er að æfa Tai Cwan Do eða hvað þetta heitir. Amma taktu mynd sagði hann í gær, þegar hann hafði fengið aurana fyrir búningnum.
Stoltur drengur.
Smá sýnikennsla fyrir ömmu í þessari ágætu íþrótt hverri ég kann ekki nafnið á.
Svona á að gera.
Þetta er alvarlegt mál sko.
Veit ekki hvort ég er að setja þetta inn í réttri röð.
Hér kemur hróp.
Og manni er kennt að bera virðingu fyrir andstæðingnum, nokkuð sem margir mættu tileinka sér.
En sum sé það var fallegur dagur í dag.
Sólin náði aðeins að lyfta sér yfir lægstu fjöllinn í nokkrar mínútur.
Úr því varð mikið sjónarspil.
Eins og sjá má.
Kubbinn með sínar álfaborgir og búðir ljómar.
En við ákváðum að fara í sund í Bolungarvík í dag. Við förum venjulega í sund á Suðureyri, þar sem aðstaðan er mjög fín að mínu mati, en vatnsrennibrautinn heillaði unga manninn, svo það var haldið áleiðis til Bolungarvíkur.
Litirnir yfir fjöllunum voru einhvernveginn lillableikir.
Ég hef alltaf dáðst að Bolvíkingum, þeir eru afar duglegir og sterkir eins og fjöllinn í kring um þá.
En líka þykir mér vænt um þá, fyrir að vera nágrannar okkar út við ysta haf.
Hér lúrir bærinn undir fjöllunum, bolafjall þar hæst.
Hér ökum við inn í plássið. Þetta eru eini bærinn hér vestra sem er með götuljós. Og hér er margt á uppleið, duglegur bæjarstjóri og félagar hans í bæjarstjórninni hafa lyft grettistaki í málefnum bæjarins og er það vel.
Sundhöllinn er bara hin glæsilegasta og rennibrautinn er æðisleg segir stubburinn. Heitupottarnir eru notalegir, og það er flott að horfa upp á fjöllinn allt í kring.
Það er farið að rökkva í bænum.
Við komum auðvitað við í sjoppunni og fáum okkur ís, hvað annað áður en haldið er á Óshlíðina.
Það er komið rökkur þegar við komum heim. Og nú er búið að kveikja upp í grillinu og þeir afgarnir eru að steikja kjöt. Notalegt laugardagskvöld í faðmi litlu fjölskyldunnar.
Eigum við ekki að gera aftur eins og síðast, sagði Úlfurinn, fá okkur te og hunang saman í kvöld og rabba saman.
Eina sem skyggði á gleðina var að fjölskyldan mín frá El Salvador kom með bréf frá apparatinu um að þau uppfylltu ekki skilyrði til að verða íslenskir ríkisborgarar. En þau gætu beint ósk sinni til Alþingis, það var reyndar sá prosess sem Össur var búin að segja mér að gæti komið upp. Svo ég er róleg yfir því. Við sjáum hvað setur.
En sem sagt notalegur dagur, og notalegt kvöld í vændum.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 2022152
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Strákurinn flottur og efnilegur í nýja búningnum
Huld S. Ringsted, 10.11.2007 kl. 20:15
Takk hann er svo innilega glaður með þetta allt saman, þessi elska.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2007 kl. 21:01
Yndislegur dagur við yzta haf. Indæll drengur að æfa flotta íþrótt.
Hrönn Sigurðardóttir, 10.11.2007 kl. 21:49
Strákurinn er flottur það er gott að æfa svona flotta íþrótt þú mátt vera stolt af honum.
Kristín Katla Árnadóttir, 10.11.2007 kl. 22:45
Skemmtilegar myndir að venju. strákurinn flottur. Nú ertu komin með varðhund....
Halla Rut , 10.11.2007 kl. 23:01
Austurlenskar bardagaíþróttir eru ákaflega hollar fyrir líkama og sál, kenna mjög nauðsynlegan sjálfsaga til að farnast vel í lífinu. Mér líst vel á strákinn þinn.
Fallegar vetrarmyndir, það verð ég að segja, þó ég sé nú meira sumarblóm en frostrós í eðli mínu.
Greta Björg Úlfsdóttir, 10.11.2007 kl. 23:08
Ég hitti þennan unga mann í gærkveldi fyrir utan Sund"höllina" og var hann einhvað slæmur af smá verkjum. Spurði ég hann hvort það væri ekki allt í lagi og hann svaraði mér því að 90kg maður hefði lent á honum í tæ kvodó byltu einhverri. Sagði svo að þetta væri ekkert mál, þetta myndi lagast og fljótlega ætlaði hann í beltapróf!
Mjög ákveðinn og skýr strákur að tala við, og minnti hann mig á föður sinn :)
Ágúst Atlason (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 00:01
Ágúst hann er ennþá að tala um þennan 90kg. mann og að sér væri svo illt ír********* En hann er alveg í loftinu út af þessu öllu.
Varðhund Rut mín Jamm örugglega
Jamm Katla mín, ég er stolt elskuleg
Hrönn æj já hann er yndislegur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.11.2007 kl. 02:12
Æðislegar myndir, hann ömmudrengurinn er stór, myndarlegur, og tekur sig vel út í búningnum, kannski að hann eigi eftir að kenna þér nokkra takta í sportinu???? Ég man eftir að fara til Bolungarvíkur í sund sem krakki, og var það alltaf þvílíkt stuð. Það er svo gaman fyrir mig að skoða þessar fallegu myndir af Vestfjörðunum, sem þú ert svo dugleg að hafa á blogginu þínu, þúsund þakkir enn og aftur fyrir það Svo vildi ég líka þakka þér fyrir hlýleg og stuðningsfulla kvittun á blogginu mínu, þú ert alveg yndisleg, takk fyrir að vera þú Njóttu helgarinnar í faðmi notalegrar fjölskyldu þinnar og farðu vel með þig
Bertha Sigmundsdóttir, 11.11.2007 kl. 02:53
Eins gott að maður hegði sér eins og maður ef maður kíkir í kúluna í framtíðinni. Hæææaaaah!
Jón Steinar Ragnarsson, 11.11.2007 kl. 04:52
Sá er vígalegur, með nýju hárgreiðsluna. Segi eins og Jón Steinar, best að hegða sér
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2007 kl. 09:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.