Gamalt og nýtt á Ísafirði.

Ég skrapp í bæinn núna áðan.  Og datt í hug, vegna þess hvað margir hafa haft samband af brottfluttum ísfirðingum, sem hafa þakkað fyrir myndirnar, að smella af nokkrum svona í bænum, um leið og ég stússaðist svolítið, svona á föstudegi.  Hér er ágætis veður hlýtt, og þess vegna er svolítið moskulegt úti.

IMG_0284

Fuglarnir á pollinum, voru í rólegheitum að synda, og við og við stungu þeir sér eftir æti.  Friðsælir og ró og friður allt um kring.

IMG_0285

Eins og sjá má, speglast húsin og fjöllin í pollinum alltaf þegar lognið er, og það er oft.

IMG_0287

Sólin kemst ekki lengra upp á himininn en þetta á þessum tíma.

IMG_0288

En það er friðsæld við Skutulsfjörðinn.

IMG_0289

En sólin bankaði samt á dyrnar.  Er einhver heima, sagði hún blíðlega, ég er farinn en kem aftur í endaðan janúar.  Þá getið þið bakað vöflur eða pönnsur með rjóma og sultu, og glaðst yfir mér.

IMG_0290

Þetta er götumynd sem sum ykkar hafa ekki séð.  Því hér er svo margt nýtt á ferðinni.

IMG_0291

En þessa mynd ættu flestir að kannast við.  Reyndar stóð gamla apótekið á lóðinni þar sem Landsbankinn stendur nú, en var fært, þegar bankinn var byggður.  Í gamla apótekinu er kaffi og menningarmiðstöð fyrir unglinga.  Rauða húsið á endanum er svo húsnæði ASÍ og verkalýðsfélagsins Baldurs.

IMG_0293

Þarna er bókhlaðan, turninn, málarablokkinn og sést upp á Silfurtorgið.

IMG_0294

Þessi mynd er gamalkunnug, nema að pósthúsið er ekki lengur pósthús, byggingin fyrir neðan það, er ekki lengur benzínstöð heldur Innrömmun og gallerí og svo framvegis. Hehehehe...

Jæja þetta er nú bara svona til gamans fyrir þá sem búa annarsstaðar og hugsa stundum heim til sín. Smáskrepp á vetrardegi sem þó er hlýr, eða kring um 8°held ég alveg örugglega.  En eitthvað svo gamalkunnugt samt. Heart

Og takk fyrir allar kveðjurnar sem ég fæ núna eiginlega nokkrar á hverjum degi.  Ég er dálitið hissa, en samt afskaplega ánægð með að vita að þessi síða mín skiptir einhverja einhverju máli.  Þá er ég ekki að þessum skemmtilega leik mínum til einskis. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Síðan þín skiptir mig og marga aðra heljarmiklu máli

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.11.2007 kl. 16:44

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jenný mín, ég þrýfst alveg rosalega vel í þessu umhverfi.  Góðir félagar hér sem er gaman að spjalla við, lesa hvað þeir eru að hugsa og hvað liggur á hjarta.  Mannleg samskipti eins og þau gerast fallegust og best.  Að mínu mati.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2007 kl. 17:27

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já Ásthildur mín síðan þín skiptir máli ég gæti ekki verið án hennar eða þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.11.2007 kl. 17:34

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elsku Katla mín, hvað getur maður sagt.   nema knús og takk. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2007 kl. 17:40

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hæ Axel, ertu skyldur skólabróður mínum honum Ásgeiri Överby ? Velkominn á síðuna mína.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2007 kl. 22:58

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég kom nú við í sumar með mína famelíu, allt var nú frekar kunnuglegt, þó að eyrin væri aðeins útvíkkaðri & komin meiri byggð inn í dal en áður, & skíðasvæðið farið annað.

Fyrir mér er náttúrlega alltaf mesti missirinn af Odda sem að var rifinn fyrir líklega rúmum þremur áratugum síðan.  Ég er það gamall að muna eftir því húsi ættfeðra minna & ná að sakna minna heimsókna & veru þar.

En alltaf jafn fallegt þarna & ég kenni úngum mínum í ferðum þarna um sínar rætur.

Takk fyrir myndirnar.

S.

Steingrímur Helgason, 10.11.2007 kl. 02:28

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég man líka eftir Odda Steingrímur.  Hann var rifinn þegar Íshúsfélagið var stækkað held ég.  Þar átti Lára Rafns pínóleikari heima,  hún er skólasystir bróður míns. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2007 kl. 11:54

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Guðbjargar ég man vel eftir henni.  Gaman að heyra í svona brottfluttum ísfirðingum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2007 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023311

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband