Jólagjafalistinn hans afa.

Hulda bloggvinkona mín skoraði á mig að setja saman nýjan óskalista yfir jólagjafirnar hennar ömmu.

Þar sem ekki er hægt að endurtaka leikinn, þá datt mér í hug að gera óskalistann hans afa.

Svo hér kemur hann:

 

Bréf frá Ömmu.

 

Ágætu ættingjar mínir, þar sem nú líður að jólum einn ganginn enn, og þið brugðust svo vel við í fyrra, þá datt mér í hug að gefa ykkur smáhint fyrir þessi jólin líka.

 

Eins og þig vitið þá kemur hann afi ykkar ekkert nálægt því að kaupa inn jólagjafirnar.  En samt sem áður  er það alltaf hann sem fær bestu og skynsamlegustu gjafirnar.  Hlýja sokka, nýja peysu, góða vetrarúlpu og svo framvegis. 

Það er bara ég sem fæ stytturnar og myndirnar.  Af hverju þetta stafar veit ég ekki.  En ætli þetta sé ekki það sem blessaðir feministarnir eru alltaf að reyna að segja.  Ekki veit ég. 

En fyrst ég er nú byrjuð á annað borð, þá langar mig að minnast á nokkur atriði með hann afa ykkar.

 

Úlpan sem þið gáfuð honum í fyrra var heldur stór.  Ég skil vel að þið, sem eruð sífellt með börnin fyrir augunum, sem stækka og stækka, haldið að hann afi ykkar verði að fá úlpu svolítið við vöxt, svo hann geti notað hana lengur.  Málið er bara að hann afi ykkar rýrnar heldur en ekki.  Hann er sumsé hættur að stækka, og farinn að minnka.  Þetta mynduð þið örugglega sjá, ef þið kæmuð í heimsókn einhverntíma. 

Þá er betra bara að gefa honum fleiri pör af ullarsokkum, því hann er orðinn svo fótkaldur þetta skar.

Nú eða almennilega kuldaskó eða mannbrodda.

Hann vill nefnilega týna sokkaleistunum af sér.  Hvurnin það er hægt er mér hulinn ráðgáta.  Hann getur týnt þeim svo gjörsamlega að þeir sjást ekki meir.  Ég er reyndar að finna þá á ólíklegustu stöðum.

Fann einu sinni par inn í örbylgjuofninum.  Hann sagði mér að hann hefði ætlað að hita þá aðeins. Þeir höfðu þá verið þar í mánuð, vegna þess að við notum örbylgjuofninn svo lítið.

Þetta með íslensku lopapeysuna er auðvitað rosalega sætt, en gætið að, það þarf að handþvo svona peysur, og ekki gerir afi ykkar það.  Það er ég sem þarf að þvo flykkið, vinda það og leggja til þerris.  Þetta er bara heljar djobb, ef ég á að vera hreinskilin.  Þó það sé auðvitað voða sæt gjöf og allt það.  Þá megið þið nú aðeins spá í afleiðingarnar. 

Ef ykkur skyldi láta ykkur detta í hug að gefa honum nærbrækur, þá dugar ekkert minna en föðurlandið.  Ég vil ekki sjá hann þvælast um á stuttbrók með sína krækóttu köldu fætur um stofuna á kveldin. Fyrir utan að bibbinn vill lafa niður fyrir skálmarnar og vekur von um eitthvað sem ekki er hægt.

 Hann vill sum sé helst vera á nærbrókinni.  Ég hef því fjarlægt allar stuttar nærbuxur af svæðinu.  Hann vill ekki vera í neinum af þessum mörgu frottésloppum sem ég á svo mikið af.  Og ekki vill hann vera í náttfötum. En naríurnar þurfa að vera vel þæfðar, svo ég geti sett þær í þurrkarann. 

Það getur stundum verið svolítið erfitt með karlinn, því hann heldur að hann sé einhver Don Juan, þó það sé eins langt frá raunveruleikanum og Mata Hari og María Mey. 

En sum sé, þessi jólin, verð ég heima, og vonast til að eitthvert ykkar nenni að kíkja við, það er eiginlega betra en einhver jólagjöf eða kort.  Sérstaklega í ljósi þess að þið búið flest hér í nágrenninu. 

Elskulegu barnabörn sem allt viljið fyrir okkur gera, og eruð svo elskuleg og yndæl

ef þið nú í raun og veru viljið kerlingunni vel, þá væri við hæfi að þið bara gæfuð gamla brýninu honum afa ykkar stóran skammt af Viagra. InLove

Og ekki segja pabba og mömmu frá þessu.  Whistling

post-3976-1102533937


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Skemmtileg færsla mín ljúfust ég veit ekki hvað ég á að segja þakka þér fyrir færsluna sem þú sendir þú veist með telpuna mína þú veist hvað ég er að meina

Kristín Katla Árnadóttir, 1.11.2007 kl. 22:24

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

He he góður, gamalt fólk er bara í gömlum umbúðum, innihaldið er alltaf hresst og kátt.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.11.2007 kl. 22:34

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm Kristín mín ég veit

Hehehehe já Ásdís mín, það er alveg rétt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.11.2007 kl. 22:41

4 Smámynd: kidda

hhmm, áður en ég var búin að lesa alla færsluna var ég farin að rifja upp hvað afi og amma fengu í jólagjafir og einnig mamma og pabbi. Og reyndar við hjónin líka sérstaklega í afmælisgjafir.

Merkilegt hvað kvenkynið fær oft eitthvað fyrir heimilið en karlpeningurinn frekar eitthvað fyrir þá.

En heimsóknir eru betri gjafir en einhverju sem pakkað er inn

kidda, 1.11.2007 kl. 23:18

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það var einmitt þetta sem ég átti við

Takk fyrir kærlega það eru nokkrir svona "afar" á ellóinu hjá mér

Nú þarf ég að fara í samkeppni við þig með listan "hvað á að gefa þeim sem á allt"........nema þú verðir á undan

Kv Hulda bloggvinkona

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 1.11.2007 kl. 23:19

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Knús og kossar, frábær hugmynd, ætli ég semji ekki svona bréf fyrir jólin. Haha

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.11.2007 kl. 01:34

7 identicon

Dásamlegt hjá þér. 

Vildi samt segja þér frá "bibba" sem vekur vonir hjá ömmum...

Ég þekki "tengdamömmu" sem fór með unga tengdadóttir í búðina einn góðan dag.  Var að versla nærbuxur á karlana sína, syni og eiginmann.  Tengdadóttirin var óttalega saklaus og óreynd.  Kallar ekki kerla yfir nokkra rekka... komdu hérna "tengdadóttir"... heldur þú að það sé nægjanlegt "punghald" í þessum brókum.

Það þarf ekki að fjölyrða um það að tengdadóttirin sökk ofan í gólfið... eldroðnaði og vildi helst ekki þurfa að líta framan í heiminn aftur. 

Unnur (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 02:16

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha Unnur frábær saga.  Get svo sem alveg ímyndað mér hvernig tengdadótturinn leið

Tek áskoruninni Hulda

Jóna það jafnast ekkert á við knús og kærleika.   Ég er viss um að mörgu  gömlu fólki þætti langvænst um ef einhver kæmi bara í heimsókn og gæfi svo sem eins og klukkutíma eða tvo a sínu lífi í spjall, og knús. 

Jamm Jenný mín, nú þarf að setjast við skriptir  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2007 kl. 09:07

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

hahaha yndisleg lesning

Huld S. Ringsted, 2.11.2007 kl. 11:07

10 Smámynd: Laufey B Waage

Frábær pistill. Vonandi lesa hann sem flestir og stinga í framhaldinu Viagra í jólapakkann til afa.

Laufey B Waage, 2.11.2007 kl. 11:09

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Huld mín. 

Já Laufey hehehe.. það er örugglega góð gjöf fyrir afana. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2007 kl. 11:28

12 Smámynd: kidda

Til að gæta jafnréttis þarf þá ekki að bæta einhverju í pakkann til ömmu

kidda, 2.11.2007 kl. 11:50

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Trúðu mér enginn nýtur jafn góðs af þessu og einmitt hún

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2007 kl. 12:25

14 Smámynd: kidda

Það er rétt, það er að segja ef afi gamli er ekki orðinn gleyminn og gleymi stundum hver er hin eina sanna

kidda, 2.11.2007 kl. 12:30

15 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 .. sniðugur afi..!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.11.2007 kl. 12:31

16 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Úps..ætlaði að segja sniðug  amma hehe..  ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.11.2007 kl. 14:02

17 identicon

Dásamlegt bréf þetta

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 15:17

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já lýst vel á dekurpakkann Beta mín

Einmitt Ólafía mín það er alltaf hættan á að afi gleymi sér

Sniðug amma þetta jám það má eiginlega segja það.  hehehehe..

Anna mín, stundum þarf maður aðeins að lyfta sér upp úr myrkrinu

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2007 kl. 15:59

19 Smámynd: Steingrímur Helgason

Snilldarsaga, venkvennsli...

S.

Steingrímur Helgason, 2.11.2007 kl. 20:00

20 Smámynd: Solla Guðjóns

 Þú ert algert yndi

Solla Guðjóns, 4.11.2007 kl. 00:06

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott að vera venkvennsli  Þú ert frábær með þín flottu orðatiltæki.

Sömuleiði Ollasak mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.11.2007 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023311

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband