1.11.2007 | 11:50
Íslensk fyndni - í tilefni biblíuþýðingarinnar.
Hér eru nokkrar sögur svona til gamans, þær eru úr bók sem Ólafur Ragnarsson og Axel Ammendrup tóku saman ýmsar íslenskar skopsögur, undir nafninu "Krydd í tilveruna" bókinn er myndskreytt af Árna Elvari.
Þetta er svona í boði umræðna um biblíuþýðingar og fleira, þær eru barns síns tíma, og ef til vill kominn tími til að færa þær í nútíma horf.... eða þannig.
Við prestkosningar í fríkirkjusöfnuðinum í Reykjavík báru stuðningsmenn sr. Emils það út, að einn eða fleiri skyggnir menn hefðu séð fríkirkjuprestana sr. Ólaf Ólafsson og sr. Árna Sigurðsson í kirkjunni við messugerð hjá sr. Emil, og hafi þeir dáðst að því, hve vel hann tónaði. Þegar sr. Bjarni Jónsson heyrði þessa sögu, varð honum að orði. "Ójá, ekki hafa þeir nú mikið við að vera hinu megin". Í Guðmundarsögu Arasonar er sagt frá því, hvernig heilagur andi birtist bóndanum í Viðvík í Skagafirði. Guðmundur var þar prestur einn vetur, nokkru áður en hann varð biskup, en bóndinn í Viðvík hét Már Finnsson. Segir svo í sögunni: "Þat var eitt sinn um vetrinn at Más, at Guðmundr prestr var í kirkju úti at bæn sinni, ok kemr Már bóndi gangandi til kirkju. En er hann kom í kirkju, þá sá hann at fugl lítill fló upp af öxl Guðmundi presti í loft ok hvarf honum þá. Hann þóttist eigi vita, hvat fugls þat var, því at hann var óvanr at sjá heilagan anda". Hvítasunnusöfnuðurinn var eitt sinn að láta skíra gamlan heiðarlegan mann. Þeir, sem skírðir eru, verða að sjá heilagan anda í dúfulíki, áður en þeim er hleypt upp úr skírnarlauginni. Gamla manninum gekk illa að sjá heilagan anda. Að lokum segir hann þó, um leið og hann kemur upp úr lauginni með andköfum: "Nú held á að ég hafi séð hann skjótast". Skagfirðingur einn, Jón að nafni, var kallaður dagbók, vegna þes að han ritaði dagbækur, frá því hann var á æskuárum. Kvongaður var Jón, en bjó lengst af í húsmennsku. Þegar þessi saga gerðist, var hann í húsmennsku á Hellulandi. Vetur einn fór Jón með konu sinni í heimsókn að Vatnskoti, sem er skammt frá Hellulandi. Frost var og hvasst veður, er Jón fór af stað, og hvessti því meira er nær dró Vatnskoti. Þegar þau hjónin áttu skammt ófarið að bænum, fauk kona Jóns fram af svellbunka og sá hann hana ekki meir. Sjálfur var hann með broddstaf, og komst heim að bænuum, hitti húsmóðurina og var boðið inn. Þegar hann var sestur segir húsmóðirin; "Það er naumast að þú velur þér veðrið, Jón minn. Hvernig líður konunni þinni?" "Hún var nú á leiðinni hingað með mér, en hún fauk fram af svellbunkanum hérna fyrri utan", svaraði Jón.
"Og hvað er þetta maður ! Reyndirðu ekki að bjarga henni? Spurði húsmóðirin. "Mér finnst nú satt að segja, að í svona veðri hafi hver nóg með sig,", segir þá Jón. Nemendur í gagnfræðaskóla voru látnir gera ritgerð um Hallgrím Pétursson. Kafli úr ritgerð eins nemandans hljóðaði svo: "Hallgrímur fór ungur til Kaupmannahafnar. Þar kynntist hann konu, sem hann giftist síðar. Hún var kölluð Grasa-Gudda.
Í þorpi einu var kirkjugarðurinn allfjarri húsum og mannvirkjum þorpsins. Maður nokkur var eitt sinn einsamall að taka gröf í kirkjugarðinum. Loks var gröfin orðin svo djúp, að hann komst ekki upp úr henni. Drukkinn maður, sem hafði slangrað inn í kirkjugarðin, kom að gröfinni. Grafarinn verður alls hugar feginn, þegar hann sér manninn og segir; "Það var gott, að þú komst. Mér er að verða svo kalt" "Það er von, því það hefur gleymst að moka ofan á þig", svaraði hinn. Jón Ósmann, hið kunna hraustmenni, var einu sinni að ferja fólk yfir Héraðsvatnaós á dragferju. Ókyrrð var á ósnum, og var frú ein, fín í klæðaburði og feitlagin mjög, hrædd við að fara upp í ferjuna. Ósmann þrýfur þá til hennar, snarar henni upp í og segir; Sr. Jón Stefánsson var prestur að Vallanesi um og eftir aldamótin 1800. Hann var af Eydalaætt, gáfaður og hagmæltur, eins og hann átti kyn til, og fyndinn í tilsvörum. Á efri árum varð hann feitur mjög. Kaupmannsfrú spurði hann eitt sinn, hvernig hann færi að því að eiga börn svona feitur. "Það væri hægra að sýna yður það en segja" svaraði Jón prestur. Í ráðherratíð Hannesar Hafsteins hélt fræg dönsk söngkona, sem hér Oda Nielsen, söngskemmtanir í Reykjavík. Gríðarmikil aðsókn var að þeim. Þorkell Þorláksson var þá skrifstofumaður í stjórnarráðinu. Daginn eftir eina söngskemmtunina kemur Hannes inn á skrifstofu Þorkels og segir: "Fórstu á Odu í gær, Þorkell ?" "Já, standandi ". svaraði Þorkell. Sonur manns, sem átti stóra bifreiðastöð, var í gagnfræðaskóla. Hann átti einu sinni að svara því skriflega á prófi í skólanum, hvað kosningaréttur væri. Hann svaraði því þannig: "Kosningaréttur er það, að vera ekið í bíl á kjörstað, og verða svo að fara gangandi heim". Og þá hló Marbendill. þessar tvær síðustu myndir eru teknar af Halldóri vini mínum Sveinbjarnarsyni ljósmyndara á BB. |
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jenný Anna Baldursdóttir, 1.11.2007 kl. 13:14
Fyndið Ásthildur mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 1.11.2007 kl. 13:46
Takk fyrir þetta...mér finnst nú alveg ógurlega gaman að presta og guðfræðibröndurum...hahaha...kannski ekki skrýtið!!
Sunna Dóra Möller, 1.11.2007 kl. 20:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.