3.9.2007 | 09:05
Lítið er ungs manns gaman. Og pælingar um níu ellefu.
Dóttir mín þurfti að bregða sér suður með eldri dóttursína hana Hönnu Sól. Ég er með litla krílið hér hjá mér. Hún er nýbúin að vera lasin þessi elska, en er orðin hress sem betur fer. Það er erfitt með þessi litlu þegar þau eru óvær og ónóg sjálfum sér og maður veit eiginlega ekki hvað á að gera.
Sigurjón Dagur stóri frændi var í heimsókn í gær, hann kemur nær daglega hingað til afa og ömmu.
Það er rosalega gaman núna að setja upp sólgleraugu og pósa svo fyrir ömmu.
Flottur.
Nafna mín þarf auðvita líka að prófa.
Já það þarf oft ekki mikið til að hafa ofan af fyrir þessum krílum. Bara að hafa nærveru og vera með þeim heilt í gegn. Þá eru þau ánægð.
Það var fallegt veður í gær. En maður skynjar að haustið er komið. Það er í skilningarvitunum. Þó getur september verið góður mánuður, hann er það oftast. Enda er þetta mánuðurinn minn.
Ég er fædd þann 11. september. Það er búið að gera úr afmælisdeginum mínum eitthvað sem mér finnst ekki þægilegt. Ég held að dagurinn hafi verið valin til hryðjuverka, vegna stöðu hans í talnalandi. Í Ameríku skrifa þeir nefnilega mánuðin á undan, þannig að þeir skrifa 9/11. eða eins og neyðarlínan er hjá þeim nine one one. Það var því reiknað út með köldu blóði, og gert grín í leiðinni að hjálparstarfi þegar þessi dagur var valinn til að myrða rúmlega 4000 þúsund manns. Hverjir svo sem stóðu að þeim hryllingi. Ég held að það sé engan veginn ljóst hverjir þar voru að verki, og útiloka ekki kanana sjálfa til þeirra verka. Því öll þeirra framkoma í málinu hefur verið með þeim hætti að spurningar hafa vaknað um allan hinn siðmenntaða heim um hvað eiginlega gerðist þennan hræðilega dag fyrir 6 árum.
Var verið að skapa sér ástæðu til að ráðast inn í annað land ? Var verið að búa sér til óvin, vegna dvínandi vinsælda. Ég veit það ekki, en ég get ómögulega kastað því alveg frá mér að stjórnvöld í BNA hafi það í sér að fremja svona ódæði, til að treysta sig í sessi.
Einu sinni voru Bandaríkja menn hetjur í mínum augum, verndarar heimsins, en það er langt síðan augu mín opnuðust fyrir því að þeir eru síst betri en aðrir. Enginn þjóð hefur komist með tærnar þar sem þeir hafa hælana í voðaverkum, eins og árásirnar á Hiroshima og Nagasaki. Ekki veit ég um þjóð sem hefur vogað sér að standa fyrir innrás í fullvalda ríki með þeim hætti sem þeir stjóðu að innrásinni í Írak, með lygum og fölskum ásökunum, heimatilbúnum, til að ná í olíuauð landsins.
Nei ráðamenn í BNA eru ekki trausts verðir. Og sér í lagi ekki eftir að núverandi forseti komst til valda, sumir segja með svikum og prettum. Og það versta er að þeir ráða alltof miklu í heiminum. Þeir eru með puttana allstaðar, til að koma þeim til valda sem eru þeim þóknanlegir.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 2023206
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Í seinni heimstyrjöldinni þótti það í meira lagi vítavert (eins og allt stríð sé ekki vítavert!) þegar japanir réðust á Pearl Harbor án þess að stríðsyfirlýsing hefði komið frá þeim áður. En hvað gera Bandaríkjamenn sjálfir í dag?
Mig langar að benda þér á að horfa á myndina "Lords of War" með Nicolas Cage í aðlhlutverki, ef þú hefur ekki þegar séð hana. Hún fjallar um uppgang alþjóðlegs vopnasölubaróns og ítök hans meðal ráðamanna. Það er hrollvekjandi sýn sem myndin gefur manni af þessum veruleika vopnasalanna, sem því miður allt bendir til að sé hinn sanni raunveruleiki í þessu efni.
Greta Björg Úlfsdóttir, 3.9.2007 kl. 09:14
Ég er svo sammála þessari analýsu þinni varðandi þ. 11. og því sem á eftir kemur.
Varðandi börn og sólgleraugu: ARG krúttkast upp á 10 á Richter.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.9.2007 kl. 09:38
Fallegar myndir börnin er mikið krútt. Hafðu það gott í dag.
Kristín Katla Árnadóttir, 3.9.2007 kl. 10:41
Takk fyrir upplýsingarnar Gréta. Ég er ekki viss um að mig langi að sjá slíka mynd. Hrollurinn er til staðar samt sem áður. En það er rétt sem þú segir með Pearl Harbour. Nema að það er talað um það í ýmsum kreðsum að sú árás hafi líka verið gerð af Bandaríkjamönnum til að fá ástæðu til að ráðast á Japan, með fyrrgreindum afleiðingum. Þá langaði svo mikið til að gera tilraunir með geislavopnin sín.
Þetta staðhæfði austurríkismaður sem ég ræddi við. Hann var rannróknarblaðamaður í 10 ár, og hætti þegar honum var ljóst hvernig almenningur var mataður á fréttum, sem voru reyndar matreiddar ofan í okkur af örfáum aðilum. Hann snérist í að fara að hjálpa fólki sem lent hefur illa í fjölmiðlamálum, svo sem eins og læknum og allskonar fólki sem hefur reynt að segja sannleikann en verið þaggaðir niður, af því að vitneskja þeirra ekki æskileg.
Já Jenný þau eru sko krútt þessi tvö.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.9.2007 kl. 10:41
Takk sömuleiðis Kristín Katla mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.9.2007 kl. 10:46
En mikið er hann falllegur rauðhærði krullukollurinn og litla Cesilin.
Solla Guðjóns, 3.9.2007 kl. 20:41
Ég er ekki frá því Ásthildur að þú hafir hitt naglann á höfuðið í sambandi við hryðjuverkin þann ellefta Sept. Ég vona þó að Bandaríkin hafi ekki staðið fyrir þessu sjálf, en hvað veit maður svosem. Maður heyrir og les það sem mörgum fréttamönnum er sagt að skrifa eða tala um, og oft er það ekki 100% sannleikurinn, þannig að því miður er oft erfitt að nálgast sannleikann, hvar sem maður er í heiminum í nútímanum. Svoleiðis er græðgin farin að fara með lönd, og mennina sem stjórna þeim. Ég er í biðstöðu ásamt mörgum öðrum hér í Bandaríkjunum þangað til að núverandi forseti hætti störfum, vonin er sú að nýr forseti muni geta breytt ástandinu og áliti annara þjóða á Bandaríkjunum, við verðum bara að bíða og sjá. Margt er skrítið í heiminum í dag, en ég trúi að heimurinn fari að batna, allaveganna vona ég það...
Til hamingju með uppkomandi afmæli, og gaman að lesa þessar pælingar hjá þér...
Bertha Sigmundsdóttir, 4.9.2007 kl. 08:24
Ég vona með þér að heimurinn verði betir Bertha mín. Og ég segi eins og þú, ég vona að þeir hafi ekki staðið að þessu sjálfir. Og ekki heldur látið þetta koma yfir, til að fá ástæðu til innrásar. Það er einhvernveginn svo hrollvekjandi. En ég er alveg viss um að næsti forseti verður öðruvísi. Ég er viss um að menn hafa lært af þessari reynslu.
Takk fyrir góðar óskir og takk fyrir að svara hér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2007 kl. 08:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.