Mannmergð í miðbæ.

Það hefur verið nóg að gera hjá mér við að vökva í dag.  Slöngur út um allt.  Og er enn að. 

Það er ekki bara sól, heldur líka mjög heitt í veðri.  Svo að bæjarlífið tekur kipp og allstaðar er fullt af fólki.

IMG_5924

Veðrið kl. 7 í morgun.  Lofar góðu.

IMG_5929

Bátar í höfninni og stelpurnar mínar að gróðursetja blóm við Pollgötuna.  Þar á að vera fínt í sumar.

IMG_5933

Þetta er stjórnsýsluhúsið okkar, lögreglustöðvar meginn.  Lengra til hægti er hótel Ísafjörður.

IMG_5936

Smá ský úti við Snæfjallaströndina.

IMG_5942

Fyrir utan Langa Manga var fjör.  Notalegt að sitja í sólinni.

Þetta er hún Íris óbeisluð sem er að uppvarta.

IMG_5944

Já það er margt um manninn þegar veðrið er gott.

IMG_5951

Það var ekki bara setið fyrir utan Langa Manga, heldur líka Gamla bakaríið, þar geta menn fengið dýrindis kökur og kaffi að dönskum sið frá frú Ruth Tryggvason, heiðursborgara Ísafjarðar og hennar fólki.

IMG_5954

En menn geta líka setið fyrir utan Edinborgarveitingastaðinn hjá henni Helgu Völu bloggara með meiru.  Hún lenti aldeilis í því í morgun, en hún og stelpurnar hennar sem eru í vinnu hjá mér, óku fram á bílslys, þar sem maður hafði velt bílnum sínum.  Ekki skemmtileg uppákoma verð ég að segja.

IMG_5960

Sumir sitja bara á tröppum, þetta eru tröppur Alþýðuhússins, en fólk situr gjarnan á tröppum bæjarins, til dæmis Landsbankatröppunum, tröppum Gamla Apóteksins og fyrir framan búðina Þrist er nýr staður til að sitja á, eftir að þar voru gerðar tröppur.

IMG_5953

Þessir myndarlegu ungu tölvufræðingar voru á vappi í góða veðrinu, og ég smellti af þeim mynd, sá þriðji hljóp í felur hehehe...

En ég er að fara að taka saman slöngurnar.  Smjúts... Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 26.6.2007 kl. 17:41

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Heheheh Sara mín.  Ég gleymdi nokkrum setustöðum, fín aðstaða við nýju N-stöðina, bekkurinn við kirkjuna, bekkurinn við Alþýðusambandið, og bekkurinn pollgötumegin við hótelið.  Og svo auðvitað á Austurvelli.  Nóg pláss til að sitja og hygge sig.  Takk stelpur mínar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.6.2007 kl. 18:01

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Dýrð og dásemd...ég man svo vel eftir bekkjunum sem voru umm fyrir utan Bókhlöðuna og víða

Solla Guðjóns, 26.6.2007 kl. 20:49

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já og við hornið á Austurveginum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.6.2007 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 2022152

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband