5.6.2007 | 18:54
Megi allir góðir vættir vera með ykkur, styrkja og styðja.
Enn ein hetjan fallin í valinn. Það er alltaf sorglegt þegar ungt fólk í blóma lífsins hverfur héðan úr okkar heimi. Við skulum samt muna að þau verða áfram til, í annari veröld. Veröld ljóss og kærleika. Þar sem þeim líður vel, og þar sem er tekið á móti þeim af ástúð og umhyggju, og þeim hjálpað að aðlagast nýrri veröld. Það er líka ákveðin lausn þegar erfið veikindi hafa varað lengi. Þá er það lausn að fá að yfirgefa táradalinn og hefja sig til flugs til frelsisins. Lausn sem við ef til vill ekki skilum alveg. En samt einhversstaðar innst inni vitum við að þannig er það. Eins og nokkurskonar Nangiala.
Ég þekkti ekki Guðbjörtu Lóu persónulega, en ég þekki ágætlega föður hennar þann mæta mann, og gróðrarhetju. Ég vil votta fjölskyldunni mínar innilegustu samúðarkveðjur. Og senda þeim ljós og kærleika. Við skulum alltaf muna að sá sem héðan hverfur fer ekki langt, og að við munum að lokum sameinast þeim sem við elskum.
Megi allir góðir vættir vaka með fjölskyldunni og vera styrkur og stoð á erfiðum tíma. Það var fallegt að heyra að það er núna bænastund í kirkjunni vegna þessarar ungu stúlku, sem var hrifinn héðan allt of fljótt.
bb.is | 05.06.2007 | 11:25Guðbjört Lóa látin
Látin er í Reykjavík, Guðbjört Lóa Sæmundardóttir, tvítug stúlka frá Læk Dýrafirði, sem barist hefur við krabbamein í um fjögur ár. Fjölmargir hafa fylgst með hetjulegri baráttu Guðbjartar Lóu á bloggsíðu hennar og er óhætt að segja að skrif hennar hafi verið mörgum innblástur þar sem þau einkenndust ætíð af jákvæðni þrátt fyrir alvarleg veikindi hennar. Þar hefur verið birt eftirfarandi tilkynning: Hún Guðbjört Lóa, Blómarósin okkar lést síðdegis í gær 4. júní í rúmi sínu hér á Lindargötunni um klukkan 16. Við höfðum öll átt þrjá yndislega daga heima í Lyngholti. Fórum þangað á miðvikudaginn var og komum til baka á sunnudagskvöld. Það var mjög ánægjulegt að geta uppfyllt þessa ósk Lóu og notið frábærs veðurs í rólegheitum heima með fuglasöng við herbergisgluggann.
Við þökkum öllum innilega fyrir þann stuðning sem þið hafið veitt okkur með ýmsu móti. Sá stuðningur gaf Lóu mikið og styrkti okkur öll í þessari erfiðu baráttu.
Þess má geta að Guðbjört Lóa varð í þriðja sæti í valinu um Vestfirðing ársins 2006.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 4
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 2022156
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ég á ekki orð... innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar
Saumakonan, 5.6.2007 kl. 19:05
Þetta er hræðilegt ... Ég mun kveikja á kertum og biða fyrir henni og fjölskyldunni ég votta fjölskyldunni samúð mína.
Kristín Katla Árnadóttir, 5.6.2007 kl. 19:37
Mínar dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Mikið skelfing getur þessi sjúkdómur, krabbameinið, verið grimmur við allt þetta unga fólk sem manni finnst svo sjálfsagt að eigi lífið framundan.
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 21:41
Algjör tragedía þegar ungar manneskjur eru að falla frá. Ég fæ kökk í hálsinn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.6.2007 kl. 22:29
Þegar ungt fólk fellur frá í blóma lífsins finnst manni einhvern veginn að breyta megi áherslum í þá veru að huga meira að fólki og minna að efni þegar kemur að rekstri hins opinbera.
Ég votta aðstandendum samúð mína.
Haukur Nikulásson, 5.6.2007 kl. 23:40
Þakka elskuleg fyrir hönd aðstandenda. Vona að þau lesi þessi skrif því það er gott að finna samhug fólks, þegar maður er brotinn og særður. Þið eruð manneskjur sem gefa fólkinu sem á um sárt að binda kærleika og samhug. Munið allta að það skiptir miklu máli.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.6.2007 kl. 00:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.