Morgunverður í El CID.

Í gær var sunnudagur, þá hvíla mexícóar sig eins og flestir.  Þeir fara á ströndina með fjölskyldunni og hafa það gott.  Þeir eru fjölskylduvænir, glaðir og fallegt fólk.  Kurteisir og elskulegir.  Þ.a.a.s. venjulega fólkið, ríkisbubbarnir ganga frekar um með höfuðin hnykkt aftur og sjá ekki neinn.  Enda eru þeir girtir af í hverfum með tveggja metra háar girðingar í kring.  Og verði við hliðin.  

Eitt slíkt hverfi er EL CID, sannarlega flott og mikilvægt hverfi, þar er hótel og skipahafnir, 0nnur fyrir stóru lystiskipin frá Kanada og annara landa og svo auðvita ríku karlanna hér.  Hin er fyrir venjulega fólkið sem á báta og skútur.  

Þjónustan er allstaðar mjög góð og lipur hvar sem maður fer.  Fólkið er mikið með bnörnin sín með sér hvar sem það fer á skemmtanir eða út að borða.  

Við fórum sem sagt í morgunmat í EL CID, ég var ekki með myndavélina svo Kristín tók nokkrar myndir fyrir mig. 

6-16237558_10154183260552927_815005193_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér wést yfir stóru höfnina í EL CID.  Þessir tveir ná vel saman. Mágarnir.

7-16244562_10154183262852927_995210878_o

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bíðum eftir matnum og hér er ljúf tónlist leikin fyrir gesti. 

1-16215886_10154183261167927_513361815_n-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má sjá út yfir höfnina.  Engar smá flottur skipafloti.

3-16244883_10154183262692927_220456763_o-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við bíðum eftir þjónustunni, við erum í morgunmat á hótelinu sem er afar flott.

 

2-16215722_10154183261267927_110063015_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessar skutlur eru til að aka gesti hótelsins til og frá, hér eru líka leigubílar með svona byggingarlagi, en þeir eru bara tveggja sæta og kallast Pulmonia.  

Við fórum svo í ökutúr um borgina og komum á skemmtilegan Mecíkóskan veitingastað niður við ströndina. 

1-16237155_10154183257147927_1745442999_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi geitungur hélt að hann gæti drukkið úr rauðvínsglasinu, en ég varð að bjarga honum frá druknun í staðinn.  kiss Held að hann hafi verið blindfullur allann daginn. 

2-16216058_10154183257272927_1297510254_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér blasir ströndin við.  

4-16244540_10154183259077927_590829360_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru svo mesíkósku fjölskyldurnar að skemmta sér, með músikk og dansi.

5-16295391_10154183260442927_1383857760_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Umferðamenningin er svo sér kapítuli út af fyrir sig, hér koma jafnvel saman 6 eða sjö götur og enginn veit hver á réttinn.  Bílar eru ekki skoðaði árlega eins og heima, ef þá nokkurn tímann.  Og ég er ansi hrædd um að lögreglan væri búin að skipta sér af svona ferðamáta.  Mamma í stól og börnin laus á pallinum. 

8-16237029_10154183263667927_1254906493_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En krakkarnir voru í sjöunda himni, enda sennilega á leið á ströndina með pabba og mömmu.  

Hér eru svo allskonar bílar, margir Pallbílar sem eru notaðir á ýmsan hátt m.a. til að flytja fólk, þá eru sæti á pallinum, á einum bíl sá ég sófa aftan á bílnum, mjög sennilega notalegt að sitja þar, ef maður er ekki hræddur um árekstur eða slíkt. 

 

En lífið gengur sinn vanagang, það kemur  meira seinna, Elli og Kristín eru búin að hamast í patíóinu saga niður plöntur svo ég er alveg miður mín, en hér vex allt eins og arfi, svo þetta verður allt komið vel á veg aftur fljótlega. Svo erum við líka búin að kaupa falleg sumarblóm og setja í ker, svo þetta er orðið ansi blómlegt.

En eigið góðan dag og kvöld, hér er 6 eða 7 tíma munur svo þegar þið eruð að fara að sofa er ég að vakna og svo framvegis.   

 

 

........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband