13.5.2016 | 16:43
Júróvisjón.
Já nú er mikið rætt um keppnina framundan. Ég hef ekki hlustað mikið á lög og keppendur þetta árið. Hef alltaf fylgst með af meiri áhuga en nú.
Sá fyrri undankeppnina á þriðjudaginn, og fannst Gréta Salome standa sig afar vel, þó það dyggði henni ekki til að komast áfram. En það komast ekki allir á sigurpallinn. Þannig er lífið. Mér finnst gaman að sjá framþróunina sem orðið hefur.
Mitt fyrsta Júróvision var 1963, þegar danir unnu með laginu sínu Dansevísu. Það var parið Grethe og Jörgen Ingmann sem fengu heil 42 atkvæði, sem dugði þeim til sigurs.
Ég horfði á þessa keppni í Svíþjóð, fékk að sitja í stofunni hjá Husmor, ég var þá í lýðháskóla, og fannst þetta heilmikil uppákoma.
Næsta sem ég gat horft á söngvakeppnina var í Glasgow minnir 1965. Lúxemburgh vann þá, France Call, með Vaxbrúðuna sína.
https://www.youtube.com/watch?v=OqnCl3NltaU
Svo var ég svo heppinn að komast í dómnefndina man bara ekki alveg hvaða ár það var. Það var skemmtilegt Við vorum lokuð inní í dómsalnum og máttum ekki fara út. Fengum að horfa á rennslið fyrir keppnina og svo keppnina og lista upp þau lög sem við vildum koma áfram. Svo fengum við ekki að sjá útsendinguna fyrr en Ísland var búið að keppa. Ævintýri sem ég hefði ekki viljað missa af. Man að við gáfum Frakklandi 12 poin.
Heyrði í Óla Palla, Palla Óskari og Helgu Möller í dag, Helga var að tala um að það þyrfti að fara að skipta keppninni í tvennt. Austur og vestur hluta. En ég held að það gangi ekki upp. Frekar þarf að breyta kosningarferlinu, þannig að öll lönd sem keppa megi senda inn atkvæði bæði undanúrslitakvöldin. Þannig myndu atkvæðin dreyfast meira. En ég er sammála Páli Óskari núna að austantjaldslöginn voru mjög góð og vel flutt.
Það væri nú gaman ef Belgía myndi vinna í ár, þegar 30 ár eru liðin frá því að Sandra Kim sigraði með lagið sitt J´amie la vie. Lora Tesoro er ekker ósvipuð Söndru, flott stelpa, lagið fjörugt þó það sitji ef til vill ekki mikið eftir verður þetta sumarsmellur í ár, það er ég viss um. En væri það ekki bara skemmtilegt?
https://www.youtube.com/watch?v=iP3USrYpr5w
Svo segi ég bara skemmtilega Júróvisjónhelgi. 'EG ætla allavega að njóta mín, er að passa englabossana mína í Reykjanesbæ yfir helgina. Yndislegt að vera með þeim.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lag Grétu hékk á sjóvinu, lag verður einfaldlega að gera meira.
Flutningur og framkoma var hinsvegar frábær.
Einlægni hennar gagnvart niðurstöðum atkvæðagreiðslunar sýnir hversu fallega persónu hún geymir og kæmi ekki á óvart að við ættum von á nokkuð ansi góðu lagi frá þessari fallegu dömu ...
Tveimur kvöldum er eytt í ólýðræðisleg undanúrslit.
Afhverju ekki að leyfa öllum að vera með ...
Og sleppa ...
Ástralía og Ísrael sem eiga einfaldlega ekki heima í þessari keppni ...
L. (IP-tala skráð) 13.5.2016 kl. 22:38
Sammála þér með að það er eiginlega óskiljanlegt af hverju ekki fengu allir að kjósa í undanúrslitunum. Já Gréta Salome er einstök stúlka. Ég hef aldrei skilið af hverju Ísrael er með í þessu, en fyrst svo er, er svo sem allt í lagi að bæta Ástralíu við, ætli BNA verði svo ekki með næst?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.5.2016 kl. 22:41
Sjálfsagt hafa evrópuþjóðir gaman af að minna sig á gömul þjóðarmorð með því að halda söngvakeppnir.
Með þátttöku A-evrópu þá þurfti einhverja útsláttarkeppni.
Eurovision er einfaldlega vanskapað fyrirbæri.
L. (IP-tala skráð) 13.5.2016 kl. 23:24
Þetta er samt hin besta skemmtun.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.5.2016 kl. 09:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.