1.10.2015 | 21:29
Garðvinna að hausti.
Það er búið að vera mjög milt veður hér í september og október heilsar líka með tiltölulega hlýju en blautu veðri. Það er svo sem ágætt að hafa regnið, þá þá er nokkuð öruggt að ekki er frost. Kartöflugrösin hjá mér eru ekki fallin ennþá, ég er með svona sjálfbæran garð, ég set ekki niður, en tek bara upp. Kartöflurnar sem ég næ ekki að taka upp á haustin, koma svo upp næsta sumar og vaxa og dafna og gefa af sér nýjar fallegar kartöflur. Þetta henta mér alveg ágætlega því mér finnst svo gott að fá nýjar kartöflur.
En í dag er fyrsti október og í dag lauk ég við að gróðursetja síðustu stjúpurnar og fjólurnar sem ég ætlaði að selja bænum. Ég einsetti mér að þau skyldu öll komast í mold fyrir veturinn. Það var ansi notalegt að vinna úti í dag. Ég er líka búin að tæma eitt beð sem á að fara í betri ræktun næsta vor. Þar voru komnar alltof stórar plöntur á stað sem ekki hentaði.
Ég færði líka lambarunna sem var að drepast af því að hann var kominn alveg á kaf, vona að hann lifið af á nýjum og betri stað.
En hér eru nokkrar myndir af afsakstrin haustsins, þó margt hafi ég gert svona þar fyrir utan.
svolítið annað að sjá en í sumar, ég hlóð sjálf þessum steinum.
Kúskeljarnar eru úr Fljótavík. En ég er afskaplega sæl með þetta allt.
Sjávarsteinarnir sem Júlli minn kom með, og þemað er fjaran. Og það er svo skrýtið að þegar ég hugsa mikið til hans þá finn ég alltaf eitthvað frá honum, í gær fann ég lítinn fisk og í dag líka. Og það veldur mér svo mikilli gleði.
Þessi kom til mín fyrir nokkrum dögum.
Þennan fann ég í gæri í moldinni.
Og þessi litli kom til mín í dag, hann er pínulítill. En engu að síður frábært listaverk sonar míns.
Tók þessar myndir í dag.
Það er svo sem hægt að brosa yfir því að setja niður stjúpur í október, en í suður Evrópu til dæmis í Austurríki setja menn niður stjúpurnar á haustinn.
Þá erum við komin inn í garðskálann minn, hann er svona aðeins að koma til.
Tjörnina þurfum við að byggja upp á nýtt og kaupa fiska, en það bíður næsta vors.
Og auðvitað vantar margar plöntur sem eyðilögðust í "hruninu"
En það verða keyptar nýjar.
En þetta kemur smám saman.
Að vísu erum við bæði krúkk eftir bygginguna, og skuldum, en ég er að bíða eftir að bærinn borgi mér fyrir eyðileggingu á gróðri fyrir ofan mig þar sem öll stærstu trén mín voru eyðilögð. Svo þá ætti að vera til peningur til að greiða skuldir. Við vorum nefnilega svo óheppin að Elli minn sagði upp tryggingunum á húsinu í nóvember og þetta gerist í desember, hversu óheppin getur maður verið.
Málið er að geta dundað sér í friði í moldinni og ráðskast með gróðurinn, er eitthvað sem gefur manni rosaleag mikið. Og loksins er ég að átta mig á því að ég hef nógan tíma, ekki eins og þegar ég var garðyrkjustjóri og var eins og útspýtt hundsskinn um allar trissur, það tekur tíma að finna rétta rythman aftur og læra að njóta hvers augnabliks. Það er ekki sjálfgefið, það þarf að læra og meta.
Jæja elskurnar þetta er nú svona smá grobb svona í blálok sumars, því vissulega finnst mér haustið hafa verið dýrðlegt og ég er viss um að það er ekki búið enn. Þó það rigni þá er það bara gott fyrir gróðurinn og varnar því að frostið komi.
Eigið gott kvöld.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skemmtilegar myndir - eins og oft áður.
Jens Guð, 1.10.2015 kl. 21:32
Takk fyrir það Jens minn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.10.2015 kl. 22:32
Góðan dag,mikið er ég sammála þér"dunda sér í moldinni"er yndislegt.
Maður gleymir sér í marga klst.
Ég legg undir mig líka oft næstu lóð (sem er bæjarlóð,)grjóthreinsa,
slæ og snyrti....því þá verður mín lóð líka fallegri.......allt vverðu fallegar í okkar umhverfi .
Kveðja frá Erlu
Erla (IP-tala skráð) 2.10.2015 kl. 08:35
Já Erla mín, það skiptir miklu máli að slá líka. Ég var einmitt að slá garðinn minn núna um daginn og Úlfur minn kláraði svo verkið fyrir ömmu sína.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.10.2015 kl. 10:20
Alltaf er nú jafn gott og gaman að koma inn á bloggið þitt. Ég hef áður hrósað þér fyrir myndirnar þínar en "góð vísa er aldrei of of kveðin". Það er gott að sjá að "gamla góða kúlan" er óðum að komast í sitt gamla horf........
Jóhann Elíasson, 2.10.2015 kl. 10:35
Takk Jóhann minn, já ég er alsæl með að hún skuli vera komin í lag.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.10.2015 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.