Stormur í vatnsglasi - og aumingja væl.

Auðvitað þeir kunna þetta Ísraelarnir að drepa niður smáþjóðis sem geta varla borið hönd fyrir höfuð sér.  Ekkert nema því sem við varð að búast.  Vona að einhverntímann opni fólk augun fyrir því hverslags hryðuverkamenn þessir ráðamenn eru. 

Tek það fram að það er fullt af góðu fólki í Ísrael, ég á vinkonu sem bjó þar í 11 ár, og var hressilega heilaþvegin um ómerkilegheit araba, hún á yndislega dóttur þar sem er hálfur íslendingur.  

Ég á ættingja sem fór þarna til að heimsækja dóttur sína, og lenti í því í fyrsta lagi að verða að standa í biðröð meðan ísraelar voru teknir fram yfir hana, og lenda síðan í 3°yfirheyrslu m.e. um hvaða amælisdaga börnin hennar eiga. 

Ég þekki líka Ísraela sem er borin og barnfæddur í Telaviv en þurfti að hrekjast úr landi vegna afstöðu sinnar til Palestínumanna, sem hann vildi að ættu jafnræði við aðra íbúa. 

Að kalla þetta land lýðræðisríki er hlægilegt í ljósi framgöngu þeirra gagnvart Palestínu og hvernig þeir meðhöndla það fólk.  

Mér finnst bara gott hjá borgarstjórn að taka þessa afstöðu, og það þyrfti að koma miklu harðari og meira afgerandi höfnun á athöfnum þeirra.  Þessir ráðamenn hafa brotið öll alþjóðalög og svífast enskis gagnvart herteknu landsvæði sem þeir hafa "eignað" sér.  

Samt verð ég að segja að Björk Vilhelmsdóttir er ansi kjörkuð að taka þessa afstöðu og er á leiðinni til Palestíu, því hefnigarnari þjóð er varla hægt að finna en einmitt Ísraelska ráðamenn. Hún má aldeilis eiga von á góðu.  

Og að tala um guðsútvalda þjóð og vitna í biblíuna segi ég nú bara, verið áfram úti á túni og étið gras með kúnum, þið eruð best geymd þar.  Segi og skrifa. Bið kýrnar afsökunar á þessum ummælum mínum, því þær eru velgefin og verðmæt dýr. 

Hér er ekkert gyðingahatur, heldur blákaldar staðreyndir um menn sem svívirða réttlætið, jafnréttlætið og miskunsemina.  

Og svo að lokum segir í þessari ævintýrabók sem svo margir hafa fyrir sína lífsstefnu; það sem þér gjörið mínum minnsta bróður, það gjörið þið mér.  Og HANA NÚ. 


mbl.is Íslenskar vörur teknar úr hillum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gunnar Bragi og Björk með stjörnustæla. Ömurlegt leikrit sem almenningur þarf að fjármagna.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 18.9.2015 kl. 16:38

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Fyrir hverjum hefur þessi blessaða þjóð Israelar verið frá öndverðu. Fra því Gyðingar stofnuðu ríkið hafa þeir aldrei haft frið fyrir öfga múslimum. Hvert einasta ríki á rétt á að verjast. Nú er forsætisráðherra að koma í viðtal í útv. ég ætla ekki að missa af því.Þú vitnar í Biblíuna Ásthildur og akkurat áminningu Krists. Hún er ekki í Kóraninum og þess vegna hafa áhangendur þess einskis svifist til að hrekja þessa litlu þjóð af landareign sinni. KV. 

Helga Kristjánsdóttir, 18.9.2015 kl. 17:10

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þessi litla þjóð, er vegna þeirra stjórna sem hún hefur valið krabbamein á Gasa.  Þú takar um kóranin, hefurðu ef til vill lesið biblíuna?  Ég hef lesi nóg til að vita að þar eru svipuð ummæli, og jafnvel margir öfgakristnir eru alveg tilbúnir til að ganga alla leið í að ganga á vegum biblíunnar.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.9.2015 kl. 18:21

4 identicon

Gyðingar lesa ekki nýjatestamentið, en hvers vegna opna Egyptar ekki  landamæri sín inn í Gaza. Sama fólk og sömu ósiðir. Tilheyrir ekki Gaza Egyptalandi? Hvers vegna eru Egyptar að sprengja upp göng á landamærunum?Það væri gaman ef einhver Palestínumaður ( ég hef einn ákveðinn í huga) svaraði því og þá, hvers vegna eru landamærin lokuð?

Það er aldrei minna en tvær hliðar á öllum málum.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 18.9.2015 kl. 19:14

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ásthildur. Ég flaug oft þarna inn með túrista og það var allt tekið af okkur í áhöfninni s.s. myndavélar og passar svo var fylgdar lögregla yfir okkur þar til við fórum aftur. Sérðu okkur fannst þetta ekkert skrítið. Lögreglan var falleg stúlka og virkaði eins og fararstjóri.

Það vita allir að Ísraelar svara bara í sömu minnt en ekki eins og við sem bjóðum hina kinnina.

Múslímar þekkja kristna nýta sér það í ystu æsar. Þú veist að Gyðingar hafa terrorista sem næstu nágranna svo þeir hafa landamæri sem voru ekki alltaf, Egiptaland lokar líka á Palestínumenn og Jórdanar. Það eru öll landamæri lokuð á þá.Hvernig svarar þú því.

Það eru bara heimskar þjóðir sem ráðast á það sem þeir ráða ekki við.

Ég veit um tvær heimskar þjóðir þ.e. Palestína og nú elítan á Íslandi sem er nú ekkert ólík Arabaþjóð enda alltaf að þrátta/rífast um öll mál. Ég treysti Gyðingum en ég treysti ekki Aröbum eftir árin mín í sandinum. 

Valdimar Samúelsson, 18.9.2015 kl. 21:32

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Valdimar nákæmlega það eru tvær hliðar á öllum málum, líka þeirra í Ísrael. En þaðan berst bara einhliða áróður rétt eins og annarstaðarfrá.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.9.2015 kl. 21:32

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ásthildur það eitt er víst með biblíuna að Múslímar kunna hana utanaf. Þeir geta gert allt í nafni Kóransins og þar með eiga þeir að vanvirða kristnar konur og ég sá líka hvernig þeir grýttu evrópskar konur í Saudi Arabíu.Ég sá margt sem ég vil ekki tala um hér... 

Valdimar Samúelsson, 18.9.2015 kl. 21:37

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þessi samþykkt borgarstjórnar R.Víkur skaðar engan nema íslendinga.Hún virðist sprottin af stórmennskubrjálæði og virðist ólögleg.Hlegið er að þessu um allan heim,þegar höfuðborg örríkis sendir frá sér svona bull og þykist geta stjórnað.Þegar borgarstjórnin neyðist til að draga bullið til baka eru ísraelar betur settir en áður.Það er engu líkara en að meirihlutinn í R.Vík séu bara fífl.

Sigurgeir Jónsson, 18.9.2015 kl. 21:44

9 identicon

Menn eru eitthvað óþjálir við þig í athugasemdum Ásthildur mín. 

Ég hef marg rekið mig á að þú ert með hjartað á réttum stað og gott ef ekki hausinn líka svo ég teka bara undir með þér þarna!

En ég tek líka undir spurningu þína Valdimar, hef raunar velt þessu fyrir mér líka.

Árétta svo spurningu mína til þín varðandi "bréfið" frá egyptsku konunni sem hafði búið við ógnir íslamista síðustu 30 ár. Hvað er nýtt í islam sem er svona slæmt og er þá þetta gamla ekki svo slæmt?

Til dæmis má skoða yazminitana þessa sem flýðu upp í fjöllin undan ofsóknum ISIS. Þeir höfðu þó fengið að vera nokkurn vegin í friði fram til þess eða allar aldirnar sem islam var ríkjandi á svæðinu.

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 18.9.2015 kl. 22:02

10 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Að kalla þetta land lýðræðisríki er hlægilegt í ljósi framgöngu þeirra gagnvart Palestínu og hvernig þeir meðhöndla það fólk. "

Lýðræði snýst allt um að almenningur kjósi sér forystu, og/eða um hin og þessi almenn málefni.  Það hefur ekkert með framgöngu gagnvart öðrum þjóðum að gera utan þess.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.9.2015 kl. 22:35

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæl Ásthildur! Ég viðurkenni að hafa rubbað færslunni af,maður notar allar stundir þegar eitthvað er í boði,eins og núna er ég að koma af "Framsóknarvist" 

Ég er að vitna í þína seinustu
málsgrein,sem er meiðandi er þú kallar Biblíuna "ævintýrabók"sem margir hafa fyrir sína lífsstefnu; og spyrð hvort ég hafi lesið Kóraninn. Nei en veit að áminningar eru þar ekki hafðar eftir Jésú kristi.

Helga Kristjánsdóttir, 18.9.2015 kl. 23:00

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll fyrir innlitið og skrifin.  Bjarni minn ég geri mér alveg grein fyrir að ræða þessi mál er að stinga hausnum í gin ljónsins. 

Helga það er mín innsta sannfæring að biblían sé ævintýrabók, sem hafi sáralítið með sannleikann að gera, skrifuð mörg hundruð árum eftir að ætlaðir atburðir áttu sér stað, og síðan þá munnmælasögur mann fram af manni mótaðað hana eftir tímans rás.  

Og ég held í alvöru að sagan um dauða krists sé eitt mesta blöff sem framkvæmt hefur verið.  Mín tilfinning er að hann hafi aldrei dáið á krossinum, það var samkomulag presta og manna jésú að koma honum burt á þann hátt að allir væru sáttir.  Það er í raun og verum miklu meira sem bendir til þess en sagan af dauða og upprisu Jésú.  

En það er bara mín tilfinnig, þið hin megið halda í ykkar sögu eins og hún kemur fram í biblíunni, ég hef bara mína hlið og vil fá að hafa hana fyrir mig.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.9.2015 kl. 23:13

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kristnir stálu í reynd öllum heilögu dögum Ásatrúarmanna og gerðu þá að sínum, til að drapa niður það sem þeir kölluðu villutrú og heiðni.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.9.2015 kl. 23:15

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Og eftir því sem ég eldist, þroskast og fer nær grafarbakkanum, því meira styrkist sú trú mín að ég hafi rétt fyrir mér.  Þannig er það nú bara.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.9.2015 kl. 23:16

15 Smámynd: Már Elíson

Ég verð nú að sagja Ásthildur, að "Ævintýrabók" er eitt besta orðið sem ég hef heyrt/séð í langan tíma yfir þetta rit sem þú minntist á. - Ég kalla þessi ósköp "Markaðsrit"..því betur heppnuð langtíma markaðssetning á 90% bulli, lygum og áróðri, ofstæki og hræðsluáróðri til ungra barna (sjá "Sögur bíblíunnar"), hefur ekki verið framleidd (og lagfærð/staðfærð) reglulegar en einmitt þessi "Markaðsbók". Ég lærði : Trúðu á tvennt í heimi / tign sem æðsta ber. "Guð" í alheimsgeimi / "guð" í sjálfum þér. - Því orðið "guð" er þýðing á orðinu "good" og fyrir mér er þá málið að vera góður, framkalla "guðið" í sjálfum sér...og því þarf ekki kirkjur eða klerka til að segja okkur að vera góð. - Eða er það ?  -  Frábær hugvekja hjá þér.

Már Elíson, 18.9.2015 kl. 23:51

16 identicon

Er það ekki dálítið merkilegt Ásthildur hvernig afstaða manna til araba og ísraela virðist skiftast milli hægri og vinstri þannig að vinstrimenn á Íslandi eru talsmenn Palestínubúa en hægrimennn telja sig nauðsynlega þurfa að verja sósíalistaríkið Ísrael?

Ég sé ekki alveg hægri vinstri vinkilinn í þessu!

Líklega er hluti ástæðunnar að vegna trúaröfga í Bandaríkjunum þá styðja þarlendir zionista ríkið Ísrael í kúgun þess á Palestínuaröbum.  En vegna pólitískrar vanafestu þá fylgja íslenskir hægrimenn alltaf Bandaríkjunum að máli.  (Féllu reyndar í fúlan pytt varðandi stuðning USA við ISIS.)

Það má segja (ef maður bregður fyrir sig boxaramáli þeirra Ómars og Bubba) að Björk Vilhelmsdóttir hafi komið með hægri krók þegar hún talaði um aumingjavæðinguna í Reykjavík og heillaði þar margan hægri manninn upp úr skónum, en síðan kom vinstra "rothöggið" að í stað þess að rakka hana niður fyrir að hafa ranga skoðun (þ.e. "góða fólkið" hennar) þá var hún bökkuð upp í gagnrýninni á Ísrael.

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 18.9.2015 kl. 23:52

17 identicon

Ég veit ekki hverskonar ísraela þú þekkir Ásthildur sem hafa hrakist í burtu frá Ísrael vegna framferði þeirra (gyðinga) til palestínumanna? Þetta er mjög skrýtið? En þeir ísraelar sem ég þekki hafa samúð með palestínumönnum og vilja þeim vel en því miður þá hefur Gaza hamas og Vesturbakkinn Abbas sem ætla sér ekki að semja um frið og ´það eru þeir sem eru að slátra sínu eigin fólki.

Ég veit um palestínumenn sem búa á Gaza og Vesturbakkanum sem myndu vilja búa í Ísrael og ástæðan hjá þeim er sú að þar er frelsi og sá  lífstíll sem þeim vilja lifa en eins og þú veist Ásthildur þá er erfitt fyrir þá að fara vegna þess að þá getur fjölskyldunni verið refsað.Ég veit um eina sem var glöð yfir að 1 barnið hennar komst yfir til Ísrael.

Það er bara ekki allt sem sýnist.Og þú ættir að lesa þér aðeins til um hjálparstarf gyðinga bæði í Ísrael og Gaza og já í Afríku líka.

Og þú veist væntanlega að á Gaza eru engir gyðingar en þeir fóru þaðan árið 2005.

Þetta var heimskulegt og kjánalegt af Björk og borgarstjórninni að gera þetta og maður spyr sig hvort að algjör flumbrugangur sé alsráðandi þarna?

Og hvað með það þó svo að Björk sé að fara til Palestínu og verði henni bara að góðu og ætlum við komum ekki til með að heyra þegar hún er komin til Ísrael hve þeir (gyðingarnir) hafi verið erfiðir á flugvellinum og annað.....algjört leikrit í gangi alltaf.

Hvernig stendur á því að þegar þau sem eru að fara í svokallað " hjálparstarf " til Palestínu þá kemur alltaf rosa frétt í blöðunum um framkomu ísraela og þeim úthúðað.Sem er alveg fáránlegt því að þegar ég og fólk sem ég þekki eru að fara þá lendir engin í neinu þarna og allir eru almennilegir.

Ég er búin að mig fullsadda af lygum um ísraela þetta er gott fólk og almennilegt.

En fyrir nokkrum árum þá voru ísraelsk hjón og að mig minnir 4 eða 5 börn þeirra stungin til bana á heimili þeirra.Þetta ódæði frömdu 2 ungir palestínumenn en ég gleymi aldrei þegar ég las smá pistil frá íslendingi sem taldi að ísraelar hefðu sjálfir myrt þessi hjón og börn þeirra til að fá samúð heimsins.Þetta er skrytin hugsanaháttur að geta sagt svona og ég vona að íslendingar láti af þessu hatri til íbúa Ísraels.

Með bestu kveðjum og með von um alheimsfrið, Ásthildur.smile

Rósa (IP-tala skráð) 19.9.2015 kl. 00:52

18 identicon

Hér eru nokkrir "gyðingahatarar"? að gagnrýna framferði Ísraels gagnvart Palestínu.

Að vísu vill svo til að þetta eru gyðingar sem lifðu af helförnina og ofbýður framferði Ísraels (framferði sem er að sumu leiti réttlætt með helförinni).

http://www.alternet.org/world/6-holocaust-survivors-who-fight-against-israels-treatment-palestinians

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 19.9.2015 kl. 01:43

19 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Árið 2005 þvingaði Bush yngri Sharon forsætisráðherra Ísraels að láta rýma Gaza af þeim Ísraelsmönnum sem þar bjuggu.  Það var gert með valdi, nokkur þúsundir Ísraelsmanna voru fluttir burt af hermönnum að fyrirmælum ríkisstjórnar Ísraels.  Bush taldi Sharon trú um að þetta myndi liðka fyrir samningum við "Palestínumenn" um varanlegan frið.  Sagan segir okkur hins vegar að svo vað ekki.  "Palestínumenn" héldu sínum hryðjuverkum áfram og hefur ekki orðið lát á.

Í nokkur skipti hafa Ísraelsk yfirvöld verið tilbúin að gefa verulega eftir í "samningum" við "Palestínumenn" og jafnvel verið tilbúnir að láta af hendi allt að 90% landsvæðis, en alltaf verið hafnað jafn óðum af "Palestínumönnum".

Ég hvet þig Ásthildur og aðrir lesendur hér að lesa grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag, lagardaginn 19.september 2015 bls.20.  Þú yrðir margs vísari, en er það ekki einmitt það sem við þurfum öll að vita hver sannleikurinn er, eða er bara nóg að hafa ákveðna yfirlýsta skoðun sem kemur raunveruleikanum ekkert við?

Tómas Ibsen Halldórsson, 19.9.2015 kl. 12:24

20 identicon

Mér finnst alltaf nokkuð forvitnilegt að lesa gagnrýni gyðinga sjálfra á ástandið í Ísrael, þeirra sem ekki eru bundnir af öfgum zionismans eða trúaröfgum sumra kristinna manna sem einnig hafa verið nátengdir zionismanum frá upphafi.    

Þeir eru þá allavega ekki knúnir áfram af gyðingahatri og þekkja væntanlega nokkuð vel til átandsins.

sjá t.d. hér: http://www.ifamericansknew.org/history/origin.html

Zionisminn virðist knúin áfram af rasisma og trúaröfgum, ekki er það nú góð blanda.

Varðandi greinina í fréttablaðinu þá kemur manni í hug að lengi er hægt að misbjóða fólki og níðast á því án þess að drepa það, ef mælikvarðinn "drepnir einstaklingar" á að ráða för þá er stjórn Assads mun hættulegri en ISIS. 

En ISIS byggir á kúgun fjöldans með því að drepa og misþyrma tiltölulega litlum hluta hans. Svo þegar öfgamennirnir hafa náð fullum völdum þá verður auðvitað bætt í.

Ísrael sem er stutt af vestrænum öflum aðalega bandarískum sem og budnið af sögunni,  á  óhægt um vik að útrýma palestínumönnum beint. En virðast gera svona flest annað sem þeim er mögulegt í að lítilsvirða og svívirða þetta fólk. Landtakan heldur stöðugt áfram og eftir að fólk hefur verið svift öllu þá komast öfgahreyfingarnar til valda. 

Slíkt gerist í Palestínu og slíkt gerist í Sýrlandi og Írak.

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 19.9.2015 kl. 13:38

21 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Mér finnst alltaf nokkuð forvitnilegt að lesa gagnrýni fáfróðra þegar þeir reyna að fjalla um það sem þeir hafa enga þekkingu á, sérstaklega þegar kemur að umræðunni um Ísrael.

Ísraelar leggja sig fram við að búa í sátt og samlindi við "Palestínumenn".  Þeir veita þeim oft hjálparhönd, sem ekki er fjallað um í vestrænum fjölmiðlum.  Margir "Palestínumenn" vinna hjá Ísraelskum fyrirtækjum þar sem "Palestínumenn" og Gyðingar vinna hlið við hlið án þess að nokkur óvild sé í gangi þeirra í milli.  Yfir ein og hálf milljón araba búa í Ísrael með Ísraelskt ríkisfang, fólk sem tekur þátt í þjóðfélagi Ísraels á allan hátt, hvort heldur þeir séu kristnir eða múslímar.  Þetta fólk vill hvergi annarsstaðar vera.

Það er besta falli vanþekking að halda því fram að Ísrael kúgi "Palestínumenn", það eru "Palestínsk" stjórnvöld og önnur hryðjuverkasamtök þeirra á meðal sem kúga "Palestínumenn", þá sem vilja lifa í friði við nágranna sína Ísraelsmenn.

"Palestínumenn" leita sér læknisaðstoðar í Ísrael, af hverju?  Það er vegna þess að sjúkrahús eru fá og illa búin, þrátt fyrir þá staðreynd að hundruð milljarða dollara hafi farið til "Palestínskra" stjórnvalda sem átti að fara í að byggja upp innviði "Palestínu", en hefur farið beint í vara ráðamanna s.s. Arafat, Abbas o.fl.

"Palestínskum" stjórnvöldum er alveg sama um almenning, þeirra eina hugsun er að drepa Gyðinga og yfirtaka land þeirra.

Ísraelskt landsvæði er innan við 0,01% alls landsvæðis í miðaustur löndum, en allir vilja afmá þessa litlu þjóð, sem er eina lýðræðisríkið á svæðinu og þó víðar væri leitað.

Að halda því fram að Ísrael sé rasískt ríki er alger firra.  Í Ísrael búa utan Gyðinga fólk allsstaðar að úr heiminum, af öllum litarhætti og þjóðerni, fólk sem kýs að búa í Ísrael vegna þess að þeim líður vel þar, það nýtur sömu gæða og Gyðingar í Ísrael.  Öll trúarbrögð hafa sama rétt í Ísrael og er fullyrðing um annað jafn vitlaust og aðrar yfirlýsingar út í loftið sem á enga stoð í raunveruleikanum.

Bjarni,þú bullar svo mikið um hluti sem þú hefur enga þekkingu á.  Þú ættir að kynna þér hlutina betur og hætta að hlusta á RUV áróðurinn.  Ég hvet þig til að fara og heimsækja Ísrael og sjá af eigin raun, hvernig lífið er í þessu landi sem er frábrugðið því sem Mark Twain upplifði 1867, hann sagði:

Mark Twain visited Israel in 1867, and published his impressions in Innocents Abroad.  He described a desolate country – devoid of both vegetation and human population:

“….. A desolate country whose soil is rich enough, but is given over wholly to weeds… a silent mournful expanse…. a desolation…. we never saw a human being on the whole route…. hardly a tree or shrub anywhere. Even the olive tree and the cactus, those fast friends of a worthless soil, had almost deserted the country.”

Gyðingar hafa byggt upp þetta land upp á sýnar eigin spýtur.  Arabar hófu að koma til að vinna hjá og með Gyðingum vegna þess að þeir sáu hversu vel þeim vegnaði.  Þeir þráðu að upplifa það sem Gyðingar höfðu, sjálfum sér og sínum til framdráttar.  En þá komu öfga múslímarnir til að eyðileggja allt fyrir Gyðingum og þeim sem unnu með þeim.

Tómas Ibsen Halldórsson, 19.9.2015 kl. 14:16

22 identicon

Alveg rétt Tómas, ég gleymdi í fáfræði minni að minnast á enn einn hlutann í 19. aldar kokteilnum sem zionisminn var gerður úr, en það er nýlendustefnan, (rasismi,trúaröfgar og nýlendustefna það er eiginlega bara eftir að bæta kommúnismanum við til að fullkomna ógeðsdrykkinn, en hann kom jú seinna) sbr þetta úr greininni sem ég vitna í að ofan:

"In short, Zionism was based on a faulty, colonialist world view that the rights of the indigenous inhabitants didn’t matter. The Arabs’ opposition to Zionism wasn’t based on anti-Semitism but rather on a totally reasonable fear of the dispossession of their people.

One further point: being Jewish ourselves, the position we present here is critical of Zionism but is in no way anti-Semitic. We do not believe that the Jews acted worse than any other group might have acted in their situation. The Zionists (who were a distinct minority of the Jewish people until after WWII) had an understandable desire to establish a place where Jews could be masters of their own fate, given the bleak history of Jewish oppression. Especially as the danger to European Jewry crystalized in the late 1930’s and after, the actions of the Zionists were propelled by real desperation.

But so were the actions of the Arabs. The mythic “land without people for a people without land” was already home to 700,000 Palestinians in 1919. This is the root of the problem, as we shall see."

 

Ætli þessir 700.000 Palestínubúar hafi lifað á loftinu Tómas?

Varðandi það að heimsækja Ísrael í smá heilaþvott og sjá hvað þar er allt gott þá minnir slíkt þekkingaryfirlæti á gömlu kommana, meistara Þórberg sem heimsótti Sovét og síðar þá sem fóru til Kúbu og janfvel N-Kóreu og töldu þar allt í himna lagi. 

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 19.9.2015 kl. 14:46

23 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Svona byrjar þetta svo fá ísraels men skammir frá Alþjóðasamfélaginu. Fréttir í dag frá Palestínu/Israel.: 

Two Palestinians were shot and wounded while throwing firebombs at Rachel’s Tomb in Bethlehem, police said. Palestinians also clashed with Israeli forces in Hebron, Qalandia and elsewhere. 

Ég er ekki hliðhollur terrorisma neinna þjóða. Ísraelar stunda ekki terrorisma.  

Valdimar Samúelsson, 19.9.2015 kl. 14:50

24 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það voru engir 700þúsund sem bjuggu þarna, fullyrðingar um annað er bara rangar.  Það voru þarna hirðingjar, arabar voru þarna líka og einnig Gyðingar, en ekki sá fjöldi sem þú nefndir.  Mark Twain rakst á ferðalagi sínu um þetta svæði allt aðeins örfáa hirðingja, það voru öll ósköpin.  Zionistar hafa aldrei verið með neina nýlendustefnu eins og haldið er fram hér að ofan, þeir vildu bara landsvæði þar sem þeir gætu byggt upp sitt eigið ríki eftir að vera ofsóttir um gjörvalla Evrópu.  Þeim var úthlutað að landsvæði sem nú heitir Ísrael og hét Ísrael áður en Rómverjar flæmdu þá um alla heimsbyggðina.  Rómverjar breyttu síðan nafninu á landsvæðinu til að niðurlægja Gyðinga og útkoman í dag er orðið "Palestína", en nafnið er upprunnið í nafninu Filistea, en Filistear bjuggu á Gaza á fyrri tímum Ísraelsríkis.

Það voru Sameinuðu þjóðirnar sem að lokum þetta landsvæði, vegna þess að það tilheyrði þeim áður fyrr og vegna þess að landsvæðið var nánast óbyggt, enda bara auðn svo langt sem augað eygði.

Það er kraftaverk að Ísraelsríki hafi orðið til með tilliti til þess að Gyðingum hafði verið dreift út um alla heimsbyggðina og ekki átt sitt eigið land í hart nær 2000 ár.  Að sama skapi er það kraftaverk að þeim hafi tekist að rækta upp landið sem var auðn.

Hugvit og þekking Gyðinga er einnig kraftaverk.  Þrátt fyrir að vera aðeins um 7 milljónir, þar af 1,5 milljónir araba auk annarra, sem byggja Ísrael samanborið við hundruð milljóna múslíma, araba, persa o.fl., þá leggur Ísrael fram margfalt meira til á sviði lækninga, lyfja, tölvutækni o.m.fl. heldur en allur múslímaheimurinn til samans.  Ef það er ekki kraftaverk þá veit ég ekki hvað.

Helstu leiðtogar múslíma hafa heitið því að útrýma Ísrael og öllum Gyðingum.  Þeir ætla sér einnig að eyða öllum kristnum.  Það er þeirra yfirlýsta stefna og þeir fara ekki leynt með það.  Abbas hefur aldrei viljað viðurkenna Ísrael sem ríki frekar en Arafat, en hann ætlast til þess að Ísrael viðurkenni "Palestínu" og leggi þeim til land. Ísrael yrði berskjaldað fyrir árásum hryðjuverkamanna ef þeir létu þeim eftir það landsvæði sem þeir krefjast.  Ísraelskum stjórnvöldum er hins vegar meira annt um íbúa landsins en svo að þeir láti "Palestínumönnum " það í té, lái þeim hver sem vill.

Tómas Ibsen Halldórsson, 19.9.2015 kl. 16:55

25 identicon

Sæl Ásthildur
Það eru greinilega ekki til nein svör hjá stuðningsmönnum Ísraels við öllu þessu skipulagða- og stöðuga her- og landnámi, svo og morðum á yfir 1000 saklausum borgurum á Gaza, það ætti ekki bara að setja viðskiptabann á Ísrael, heldur slíta stjórnmálasambandi við þetta Zionista-Rasista-Terrorista ríki.

Það er EKKI hægt að segja að þetta Zíonista- Rasista-Ísrael hafi einhvern tímann verið friðsamt eða hvað þá einhverjir friðarsinnar, þar sem að hryðjuverk þeirra byrjuðu löngu fyrir stofnun Zíonista Rasista Terrorista ríkið Ísraels 1948, eða þar sem að þetta Zíonista Ísrael fæddist í gegn Zíonista hryðjuverk og djöfulskap Zíonista hryðjuverkahópanna Stern, Irgun og Hangan er voru í því að drepa og sprengja Palestínumenn upp (A Summary of Zionist Terrorism in the Near East — 1944-1948). 

Nú þetta Zíonista -Rasista -Terrorist ríki Ísrael er sennilega eina ríkið sem fæddist svona með hryðjuverkum og djöfulskap. Zíonistar hófu sexdaga stríðið með djöfulgangi og látum með ráðast á Egypska flugvelli og svo á aðra nágranna sína (Six-Day War began on June 5, 1967, when Israel launched surprise bombing raids against Egyptian air-fields.), og Zíonistar hafa verið tregir til þess gefa landsvæði eftir er þeir hafa hernumið gegn öllum alþjóðalögum, svo og öllum í samningaviðræðum. Að reyna núna að segja að þetta Zíonista Ísrael séu einhverjir friðarsinnar er algjör lygi, þar sem að þetta Zíonista lið þarna eru og hafa verið ekkert annað en ófriðarsinnar. Zíonistar hófu stríð gegn Líbanon 1982 og hófu svo aftur stríð gegn Líbanon 2006, og fyrir utan það hefur ekkert ríki í heiminum brotið fleiri samþykktir Sameinuðu þjóðanna en Zíonista Ísrael.

Þegar að Jesús Kristur sagði "Sælir eru hógværir því að þeir munu jörðina erfa." þá átti hann örugglega ekki við þetta Zíonista Rasista Terrorista lið þarna í Zíonista Ísrael.

Israeli and Palestinian Children Killed
September 29, 2000 - Present

133 Israeli children have been killed by Palestinians and 2,061 Palestinian children have been killed by Israelis since September 29, 2000. (View Sources & More Information)

Chart showing that approximately 12 times more Palestinian children have been killed than Israeli children

Israelis and Palestinians Killed
September 29, 2000 - Present

Chart showing that 6 times more Palestinians have been killed than Israelis.

1,198 Israelis and at least 9,139 Palestinians have been killed since September 29, 2000. (View Sources & More Information)

Israelis and Palestinians Injured
September 29, 2000 - Present

11,446 Israelis and 73,158 Palestinians have been injured since September 29, 2000. (View Sources & More Information.)

Chart showing that Palestinians are injured at least six times more often than Israelis.

Daily U.S. Military Aid to Israel and the Palestinians
Fiscal Year 2013

Chart showing that the United States gives Israel $10.2 million per day in military aid and no military aid to the Palestinians.

During Fiscal Year 2014, the U.S. is providing Israel with at least $10.2 million per day in military aid and $0 in military aid to the Palestinians. (View Sources & More Information)

UN Resolutions Targeting Israel and the Palestinians
1955 - 1992

Israel has been targeted by at least 77 UN resolutions and the Palestinians have been targeted by 1. (View Sources & More Information)

Chart showing that Israel has been targeted by 77 UN resolutions, while the Palestinians have been targeted by 1.

Current Number of Political Prisoners and Detainees

Chart showing that Israel is holding 5,750 Palestinians prisoner.

0 Israelis are being held prisoner by Palestinians, while 5,700 Palestinians are currently imprisoned by Israel. (View Sources & More Information)

Demolitions of Israeli and Palestinian Homes
1967 - Present

0 Israeli homes have been demolished by Palestinians and at least 28,000 Palestinian homes have been demolished by Israel since 1967. (View Sources & More Information)

Chart showing that more than 28,000 Palestinian homes have been demolished, compared to no Israeli homes.

Israeli and Palestinian Unemployment Rates

Chart depicting the fact that the Palestinian unemployment is around 4 times the Israeli unemployment rate.

The Israeli unemployment rate is 6%, while the Palestinian unemployment in the West Bank is 16% and 45% in Gaza. (View Sources & More Information)

Current Illegal Settlements on the Other’s Land

Israel currently has 261 Jewish-only settlements and ‘outposts’ built on confiscated Palestinian land. Palestinians do not have any settlements on Israeli land. (View Sources & More Information)

Chart showing that Israel has 227 Jewish-only settlements on Palestinian land.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 19.9.2015 kl. 17:25

26 identicon

Hér koma upplýsingar um mannfjölda í palestínu úr annari átt en greinin sem ég vitnaði í áðan.

Svo sem ekkert stórkostleg heimild en kemur strax upp í gúgli.

Mér sýnist hægt að rekja sig áfram að upprunalegri heimildum ef maður nennir, geisp.

Þetta er nú ósköp öfgakent hjá þér Tómas.

Heldurðu í alvöru að gyðingarnir sem ég vitnaði í að ofan, bæði þeir sem lifðu af helförina og gagnrýna Ísrael sem og þessir í seinni heimildinni, séu einfaldlega að ljúga en trúir svo bara einhverjum fullyrðingum út í loftið?

Hefurðu einhverjar heimildir um mannfjölda í Palestínu aðrar en tilvitnun í Mark Twain?

Bara smá gúgl og í ljós kemur að þessi tilvitnun í Mark Twain er hluti af áróðursbulli.  Eftir sömu rökum bjó enginn í Grikklandi á sama tíma.  http://www.palestineremembered.com/Acre/Articles/Story845.html

Ég er fjarri því að telja mig einhvern sérfræðing í þessum málum en bara einfaldasta athugun leiðir í ljós að þú og fleiri sem tala á svipuðum nótum, eruð einfaldlega fullir af bulli! 

Ég skil ykkur einfaldlega ekki þessa litlu hægri kalla hér upp á Íslandi að aftaníossast svona í Ísrael. 

Það sem verra er að ég held að þið skiljið ekkert í þessu sjálfir. 

Eigiði þó sumir góða spretti inn á milli eins og t.d. Jón Valur en þarna held ég að andúðin á vinstrimönnum í bland við einhverja gamla kaldastríðsfylgni við USA, hafi svift einhverja þá litlu skynsemi sem þeir þó áttu nú að búa yfir. 

http://palestineisraelpopulation.blogspot.is/

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 19.9.2015 kl. 17:47

27 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll fyrir innlitið og svörin ykkar. 

Takk Már, ég get ekki kallað þetta rit annað en ævintýrabók, ég var bara krakki þegar ég þegar ég sat undir ræðum presta sem staðhæfðu að guð hefði skapað heimin á átta dögum og hvílt sig á sunnudegi.  Eða voru það sjö dagar?  Að barnið ég hugsaði með mér, skyldu þeir trúa þessu sjálfir?  Og svo sagan um dauða Jesú, sem ég held að sé eitt mesta töfrabragð sem hefur verið framið í heimi hér.  smile En fólk verður að fá að trúa því sem það vill, þó ég trúi því ekki. 

Trúðu mér Rósa mín ég þekki Ísraela og það vel sem hafa þurft að flýja frá landinu sínu vegna þess að þeir vildu hafa jafnrétti milli ísraela og palestínumanna.  Móðir eins þeirra þurfti að bíða í nokkur ár til að geta selt húsið sitt svo hún gæti fylgt honum eftir.  Það getur vel verið og er bara gott mál ef íbúar landsins eru að hjálpa Palestínu mönnum, en hvernig sem það nú er, þá eru þeir hundeltir og ísraelar meðhöndla þá lítið skár en þeir voru sjálfir meðhöndlaðir í Þýskalandi á stríðsárunum, þeir hafa því ekkert lært um mannúð og náungakærleika.  Þá er ég að tala um kerfið og ráðamenn.

"Það er besta falli vanþekking að halda því fram að Ísrael kúgi "Palestínumenn", það eru "Palestínsk" stjórnvöld og önnur hryðjuverkasamtök þeirra á meðal sem kúga "Palestínumenn", þá sem vilja lifa í friði við nágranna sína Ísraelsmenn.

"Palestínumenn" leita sér læknisaðstoðar í Ísrael, af hverju?  Það er vegna þess að sjúkrahús eru fá og illa búin, þrátt fyrir þá staðreynd að hundruð milljarða dollara hafi farið til "Palestínskra" stjórnvalda sem átti að fara í að byggja upp innviði "Palestínu", en hefur farið beint í vara ráðamanna s.s. Arafat, Abbas o.fl.

"Palestínskum" stjórnvöldum er alveg sama um almenning, þeirra eina hugsun er að drepa Gyðinga og yfirtaka land þeirra."

Tómar ertu ekki að fullyrða hér of mikið?  Þetta rímar ekki við þær fréttir sem berast af samskiptum Ísraela og Palestínumanna, og rímar heldur ekki við það fólk sem hefur dvalið þarna til aðstoðar Palestínumönnum.  Ég held að flestir þar vilji bara frið og leyfi til að geta lifað í sínu landi.  

Takk fyrir þitt innlegg Thorsteinn: 

Þegar að Jesús Kristur sagði "Sælir eru hógværir því að þeir munu jörðina erfa." þá átti hann örugglega ekki við þetta Zíonista Rasista Terrorista lið þarna í Zíonista Ísrael.

Þetta getur alveg örugglega rímað við það sem við höfum heyrt í fréttum af atferli Ísraels manna, og þó bara helmingurinn af því væri sannur, þá er nóg eftir.  Og þessi harkalegur viðbrögð þeirra við samþykkt Borgarinnar sýnir bara við hvaða öfl er að ræða, kúgun er þeirra millinafn.

Takk Bjarni líka fyrir þín góðu innleg. 

 

 

 

 

 

 

 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.9.2015 kl. 19:06

28 Smámynd: Hörður Þórðarson

Tómas og aðrir ættu að reyna að fræða sig og hlusta á það sem þessi ísraelsmaður hefur að segja:

https://www.youtube.com/watch?v=etXAm-OylQQ

Hörður Þórðarson, 19.9.2015 kl. 19:15

29 Smámynd: Hörður Þórðarson

Það verður enginn friður í Ísrael þangað til það verður gert að einu landi þar sem allir eru jafnir fyrir lögum og fólki ekki mismunað eftir trú og uppruna. Þeir sem styðja Ísrael í núverandi mynd styðja rasisma og kúgun.

Er fólki ekki mismunað í ísrael? Ef einvher kæmi heim til þín, tæki húsið þitt og vísaði þér á brott í valdi þess að hann hefði önnur trúarbrögð en þú, hvað fyndist þér? Alveg sjálfsagt? Taktu bara húsið mitt og lóðina kallinn minn, ég er kristinn en þú ert blablablatrúar svo þú hefur fullan rétt á þessu öllu. Ég sé Tómas í anda...

Hefur fólk í Ísrael allt jafnan rétt? Styðja allir gyðingar zíonisma? Er það gyðingahatur að vilja koma á réttlátu þjóðfélagi í Ísrael? NEI, NEI, NEI.

https://www.youtube.com/watch?v=etXAm-OylQQ

Hörður Þórðarson, 19.9.2015 kl. 19:24

30 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einmitt Hörður, það er nú málið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.9.2015 kl. 19:41

31 Smámynd: Mofi

Hörður, þú veist vonandi að margir gyðingar hafa lent í því sama er það ekki?  Þá á ég við af Ísraelsstjórn, gott dæmi er t.d. Gaza en þar bjuggu gyðingar sem voru fjarlægðir með valdi af því að Palestínumenn vilja ekki sjá neina gyðinga nálægt sér. Vina hjón mín fóru til Ísraels og þeim fannst forvitnilegt hvernig múslímar gátu farið hvert sem þeir vildu en gyðingar gátu engan veginn farið í hverfi sem voru múslíma hverfi. Ég á vini sem eru Aðventistar en konan er frá Ísrael og hún getur ekki ferðast til Arabalandanna en af einhverjum ástæðum þá mega þeir hata gyðinga, það er eins og að mismuna gyðingm er í lagi. Hvað með alla gyðingana sem bjuggu í arabalöndunum en var hent út, er einhver að heimta viðskiptabann á þær múslíma þjóðir fyrir að gera það?

Mofi, 21.9.2015 kl. 09:18

32 Smámynd: Salmann Tamimi

Veit fólk ekki að Gaza er hernumið land? veit fólk ekki að Egyptar eru bannaðir að hafa sina 13 km lanmæri þeirra við Gaza opna . Veit fólk ekki að Israel var stofnað á landið sem heit Palestina. Veit fólk ekki að með hryðjuverk og ófbeldi Israel var stönuð. Veit folk ekki að gyðingar sem voru í Gaza voru landtökumenn sem fluttir voru til Gaza eftir hernámið. Veit fólkii ekki að Palestinumennn fá ekkert að ákveða hvar eða hvenær þeir ferðast. Veit folk ekki að Palestinumenn má ekki nota sina akrar að vild. Veit folkk ekki að við megum ekki drekka eða baða okkar nema irael leyfi .. Þess sem veit ekki á að lesa sig til og þessu sem veit ofg fela sannleikan er að taka þátt í glæp israelsmanna. Og ekki nota það að Guð gaf þeim landið. Engin Guð er svona óréttlátur

Salmann Tamimi, 21.9.2015 kl. 17:03

33 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Salman takk fyrir þitt innlegg, jú ég veit afskaplega vel hvernig Ísraelsmenn hafa farið með Palestínu menn, hvernig þeir hafa eyðilagt kefisbundið akuryrkju þeirra og eyðilagt ólifuræktun, hvernig þeir hafa markvisst reist múra til enn frekar að hrekja burt palestínumenn.  Þeir meira að segja á tímabili hugleiddu að brennimerkja fólk, rétt eins og gert var við gyðinga á nasistatímabilinu.  Ég fyrirlít ráðamenn Ísraels, og ég tel kominn tími til að heimurinn þori að refsa þeim eins og þeir eiga skilið.  Þannig er það bara.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2015 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband