Hvar erum við stödd í baráttunni?

Könnun í Mannlífi

Ríkisstjórnin rambar í Mannlífskönnun

Úrslit þingkosninganna í maí verða mjög tvísýn ef marka má nýja könnun Mannlífs sem birt er í nýjasta tölublaði tímaritsins sem kemur út á morgun. Könnunin nær til alls landsins og samkvæmt henni fengi Sjálfstæðisflokkur 36 prósent atkvæða og 24 þingmenn og Framsóknarflokkurinn fengi 10,2 prósent og sjö þingmenn. Frjálslyndi flokkurinn fær 5,8 prósent og nær inn fjórum jöfnunarþingmönnum. Samfylkingin 23,4 prósent og 16 þingmenn. Vinstri hreyfingin-grænt framboð mælist með 17,9 prósent eða 12 þingmenn. Íslandshreyfingin næði ekki inn manni fari úrslit kosninganna á sama veg. Gangi þessi úrslit eftir eru ríkisstjórnarflokkarnir samtals með 31 þingmann og stjórnarandstaðan með 32

Sjá hér. http://www.visir.is/article/20070502/FRETTIR01/70502120/1213

Mér finnst þetta athyglivert að mörgu leyti.  Fyrsta lagi þá er það staðreynd að Frjálslyndir fá yfir leitt meira upp úr kössum en í könnunum.  En það er annað sem hefur gerst undanfarið.  Formenn stjórnmálaflokkanna hafa tekið Frjálslynda flokkinn aftur inn í myndina um Kaffibandalagið. 

Þegar lagt var upp með kosningarnar þá töluðu menn um slíkt, en svo fóru menn að draga í land, og um leið hélt stjórnin velli.  Þegar menn fara svo aftur að tala um Kaffibandalagið, þá fer stjórnarandstaðan upp fyrir aftur.  Hvað þýðir þetta ?

Jú það þýðir, það sem fólkið er að segja við okkur er, að það vill breytingar.  En það vill ekki bara einhverjar breytingar, það vill endurnýjun.  Það var lagt upp með velferðarmálin, að sú ríkistjórn sem væri mynduð af Kaffibandalaginu svokallaða væri velferðarstjórn.  Formenn flokkanna hittust og ræddu saman um sameiginleg málefni.  Það eru þau málefni sem hæst ber í kosningaslagnum, aðbúnaður aldraðra og öryrkja, biðlistar  á sjúkrastofnunum og íbúðum aldraðra, meiri áhersla á vistvernd og græna náttúru. Fólk hlustaði á þetta og fann að menn voru einlægir í að standa við þetta. 

Um leið og foringjarnir fóru að draga í land og tala um þetta "óbundnir til kosnsinga" breyttist allt.  Stjórnin hélt samkvæmt könnunum.  Fólkið er að segja við stjórnarandstöðuna; gefið okkur skýrt val, og standið við það.  Það er bara svo einfalt.  Og við eigum að hlusta á þessa kröfu.

IMG_3886

Fólk er orðið dauðleitt á sífelldum svikum og brotnum loforðum þessarar ríkisstjórnar.  Þetta tal um að nú eigi að gera hlutina, þetta hafi verið í undirbúningi, öldruðum hafi fjölgað svo mikið að ekki hafi verið hægt að halda í við þróunina, gengur ekki í Jón og Gunnu.  Málið er að íslendingar eru sæmilega upplýst þjóð.  Hún veit ýmislegt og fylgist með.  Hún er seinþreytt til vandræða, en þegar fram af gengur, þá er aldrei að vita hvað hún gerir.

Það sýndi sig í fjölmiðlamálinu, þar sem ég tel að ísinn hafi verið brotinn.  Síðan ganga Ómars niður laugaveginn.  Í fjölmiðlamálinu upplifði almenningur að hann hafði eitthvað að segja.  Að hann gat haft áhrif, auðvitað með afstöðu forsetans okkar.  Þá tel ég að brostið hafi ákveðin stífla.  Upp að þeim punkti var fólk dofið flaut bara með straumnum.  Var einhvernveginn fullvisst um að mótþrói væri vonlaus. Stundum þarf ekki mikið til að stífla bresti.

En fólk sér líka í gegnum málefnafátækt stjórnarinnar.  Barátta þeirra er rekinn með því að segja sem minnst, hræðsluáróður um að vinstristjórnir hafi verið vondar.  Það var pöntuð hingað til lands einhvert forláta innhringiapparat leigt í nokkra mánuði, til hvers ? Jú nú á að hringja í alla Jónana og Gunnurnar, sem menn eru hræddir um að ætli að hlaupast undan merkjum.  Maður verður að halda völdum hvað sem tautar og raular.  En ekki af því að það sé verið að hugsa vel um litlu Gunnu og litla Jón.  Nei þau skipta voða litlu máli nema sem akvæði í kjörkassann.  Það hefur þessi ríkisstjórn sýnt svo ekki verður um villst.  Með 12 (16) ára vanrækslu.  Auðvitað hefur heilmikið verið gert.  En það sem ekki hefur verið gert æpir á mann.  Og við sjáum það vel, ræðum saman um það á götuhornum, á barnum, í búðinni.

Umræðan er þreytt, kosningabaráttan er lömuð.  Ekkert fútt í þessu segir fólk.  Ég veit ekki hvort það er af hinu góða.  En eitt er víst að ef menn virkilega vilja breytingar sjá aðra sýn, meiri mýkt og umhyggju fyrir þeim sem minna mega sín.  Þá verða menn að þora að stíga skrefið og kjósa eitthvað annað en stjórnarflokkana.

Spillingarmálin er kafli út af fyrir sig.  Mál um ríkisborgararétt tengdadóttur umhverfisráðherra er borðleggjandi spilling.  Það lýsir af því langar leiðir.  Að fólk sem vill láta taka mark á sér, alþingismenn og ráðherrar skuli bera svona vitleysu á borð fyrir okkur, sýnir bara að þeir halda í raun og veru að við séum fífl. 

Það er bara komin tími á að breyta um kúrs.  Við vitum það í raun og veru öll sömul.  Það þarf bara að hafa kjark til að brjótast út úr viðjum vanans, og þora að kjósa eitthvað annað en það sem maður hefur gert fá aldaöðli.  það er ekki lýðræði, það er þýðræði.  AÐ þýðast sitjandi stjórnvöld.  Láta allt yfir sig ganga og kyssa á vöndinn.  Og við sem þykjumst á góðum stundum vera víkingar.

Eitt í viðbót, Frjálslyndi flokkurinn þarf að komast vel út úr þessum kosningum, ekki síst vegna Sjávarútvegsstefnu hans.  Við höfum skýrt afmarkaða stefnu í hvernig á að vinda ofan af kvótakerfinu illræmda, sem hefur svift marga útgerðabæi lifibrauði sínu. 

En líka vegna þeirra sem hér eiga erfiðast en það eru erlendir verkamenn sem eru fluttir hingað inn liggur við í gámavís til að keyra áfram hagkerfi forréttindastéttanna.  Halda niðri launum þeirra sem hér eru fyrir.  Nútíma þrælasala.  Við eigum að taka á móti fólki hingað eins og við viljum láta taka á móti okkur þegar við flytjum erlendis.  Það er lágmarkskrafa.

Þegar ég held upp á afmælið mitt, þá geri ég mér grein fyrir hve mörgum ég vil bjóða, og miða veitingar við það.  En ég býð ekki öllum bænum, og á svo ekki mat fyrir nema helminginn.  Þar skilur að gestrisni og bjánagangur. 

IMG_4392

Jamm þá er bara að halda kúrs og skoða, hlusta og velja.  Ég held að valið ætti að vera auðvelt þann 12 maí. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svei mér þá Ásthildur ég flyt úr landi ef ríkisstjórnin situr áfram. En ég held að ég þurfi ekki að hafa áhyggjur, fólk er búið að fá nóg. Þe hinn almenna manneskja. Flottur pistill hjá þér kona.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 11:08

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jenný mín.  Ég vona að þú hafir rétt fyrir þér.  Það er allavega þetta sem ég skynja í kring um mig.  Við verðum að komast út úr þessum vítahring. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2007 kl. 11:09

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Það verður auðvelt kæra bloggvinkona!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 3.5.2007 kl. 18:13

4 Smámynd: Saumakonan

ónei.. það verður alls ekki auðvelt!!!   Á ég að gera það sem mér er í blóð borið og kjósa "minn" flokk.... eða á ég að breyta algerlega um stíl og kjósa þvert á móti?????   Ja stórt er spurt en því miður hefur flokkurinn "minn" ekki staðið sig sem skyldi á undanförnum árum og þótt ég vilji sjá nýtt blóð í þann flokk er mjög svo óvíst að þær persónur nái inn þar sem þessir "gömlu" sitja sem fastast!  Urrdan bíttann.... af hverju er þetta svo erfitt???? Fjölskyldan treystir á mann að kjósa "rétt".... góð vinkona mín er í framboði og var ég fyrir löngu búin að lofa henni mínu atkvæði...  EF ég kýs annað... þá finnst mér ég vera að svíkja lit!    Samt er ég svo óákveðin því hvað hefur þessi flokkur gert fyrir MIG í rauninni??? Pistillinn hans Guðmundar bloggara (gjonson) fékk mig til að virkilega fara að hugsa minn gang.   Ég gat séð sjálfa mig í mörgu af þessu sem hann sagði þar og var svo hjartanlega sammála honum um að þetta "velferðarkerfi" svokallað er gersamlega í molum.   Ekki fæ ég fríkort fyrir lyfin mín sem ég þarf að taka ævilangt... útséð um að ég geti nokkurn tíma unnið aftur úti... þarf að berjast við verki og kvalir alla liðlanga daga og veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér.  Hvað hefur verið gert fyrir okkur???  Akkúrat ekki neitt!   Bara svikin loforð undanfarin ár og það er eiginlega bara kominn tími til að setja stopp á þetta!!

ARG.. held að þetta komment sé að verða jafn langt og og pistillinn þinn!   djös pikkræpa í manni

Er ENN óákveðin þrátt fyrir pikkræpuna

Saumakonan, 3.5.2007 kl. 20:21

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þakka þér fyrir góðan pistil  Ásthildur mín ég er alveg sammála saumakonuni sambandi við hann Guðmund .

Kristín Katla Árnadóttir, 3.5.2007 kl. 21:22

6 identicon

Ásthildur. Ég held að Mannlífskönnunin muni reynast sú sem komst næst úrslitunum þegar 13. maí rennur upp og þá er ríkisstjórnin fallin. Og það er alveg ljóst líka að þessir tveir flokkar fara ekki heldur saman í stjórn með mjög nauman meirihluta, þeir vita að hún mun ekki lifa nema nokkra mánuði ef þeir gera það. Þannig lít ég allavega á málið

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 21:34

7 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sæl Ásthildur,ég á eftir að skrifa pistil um kosningarnar frá minni hlið og hvet ég ykkur sem þetta lesið  að fylgjast með því.

Framsóknarflokkurinn lést í dag,dánarosök líklega spilling,jarðarförin fer fram í kyrþey að ósk hins látna þann 12 mai n.k,blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans er bent á Kárahnjúkavirkjun.

Magnús Paul Korntop, 3.5.2007 kl. 23:02

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Magnús minn ég mun lesa hann. 

Vonandi verður meiri munur á stjórn og stjórnarandstöðu eftir kosningar.  Vitiði mínar elskulegu að þið skuldið engum neitt.  Það Á enginn ykkar atkvæði nema þið sjálfar.  Og það eitt er víst að það sem þið gerið í kjörklefanum þann 12 maí er alfarið ykkar ákvörðun, og það á ekki og má ekki nota eitthvað jafndýrmætt og atkvæðið sitt, sem maður fær að nota einungis á 4 ára fresti, og bara eitt á mann, til að þóknast einhverjum öðrum.  Og það er bara dónaskapur, eða einfeldningsháttur að ætlast til þess af nokkurri manneskju að hún gefi manni þetta atkvæði af því að mér datt í hug að fara í framboð. 

Nei og aftur nei.  Maður verður að hugsa um hvað manni sjálfum er fyrir bestu, og líka muna að það er fullt af öðru fólki í svipaðri stöðu.  Loksins núna hillir undir að hægt sé að gera leiðréttingu.  Og þá verðum við að hugsa að því hvort við viljum standa með öðrum í því, eða viðhalda því ástandi sem nú er.  Því það verður að muna, að þessir ágætu flokkar sem hafa verið við völd í 12 ár, ætla sér ekki að breyta neinu.  Það getur vel verið að þeir hafi fengið með sér gott fólk, sem vill vel.  En í báðum þessum flokkum er ríkjandi flokksræði og hinn einstaki frambjóðandi og félagsmaður hafa ekkert um það að segja hvað verður gert.  Þess vegna verðum við að treysta því að nýjir vendir sópi best.  Þá má þá skipta þeim út aftur ef þeir standa sig ekki.  Þannig virkar lýðræðið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2007 kl. 23:43

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

No komment 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.5.2007 kl. 00:11

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég held að þessi glæsilegi árangur þeirra í öllu sé einhverskonar Pr hönnuð úr Valhöll.  Bæði hjá Framsókn og Sjöllum.  Sumir eru minni leikarar en aðrir, og maður sér í gegnum suma, meira en aðrra.  Þetta er svona fyrirfram skipulagðir frasar til að koma sér hjá að svara óþægilegum spurningum.  Því vissulega er margt mjög óþægilegt sem brennur á stjórnarflokkunum.

Og Smjúts til þín Ásdís mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2007 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2022948

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband