Olíuhreinsunarstöð ... og vísa til BNA fyrir innflytjanda.

Strákurinn minn frá El Salvador hefur búið hér í 6 ár.  Hann á hér kærustu og tvö börn, og hefur tekið að sér með kærustunni tvö önnur, sem sé fjögurra barna faðir. Hann á hús og er í góðri vinnu.  Honum var boðið til Bandaríkjanna í vor, af fyrrverandi atvinnurekanda sem ætlaði að fá hann með sér í smá business.  Nema hvað, hann fór suður fyrir skemmstu til að reyna að fá Visa til Bandaríkjanna.  En ónei, hann gat ekki fengið neitt slíkt, því hann er .... bara hvergi.  Hann er ekki neitt.  Hann er ÞETTA FÓLK eins og konan sagði í fréttunum í kvöld.  Nema bara að hann er það á vegum íslensku ríkisstjórnarinnar en ekki í boði Frjálslynda flokksins.  Samt hefur hann búið hér og starfað í 6 ár..... Persona non grada.  Er þetta hægt Matthías ? Spyr sú sem ekki veit.

Jamm enginn mun hneykslast á þessu, af því að það eru ekki réttu aðilarnir sem þar eiga sök.  Eða er ef til vill bara hægt að hengja bakara fyrir smið.  Er ekki einhversstaðar í öllu systeminu hægt að kenna Frjalslynda flokknum um þetta ? Þeir eru jú sökudólgarnir með stóru ESSI NOT ?

Svo er annað.  Þýskur vinur minn sem hefur mikið unnið að orkusparandi húsnæði ásamt sinni ektakvinnu sem er arkitekt, sagði við mig.  Þið hér á Íslandi eruð algjörlega háð olíu.  Ha sagði ég, við erum með allt heita vatnið og vatnsorkuna.

Já sagði hann, en hér myndi ekki einu sinni þrífast álver ef það væri ekki olía.  Hingað kæmu enginn skip, engar flugvélar og þið væruð algjörlega skorin frá öllu ef það væri ekki olía.

Vá hugsaði ég.  Öll þessi umhverfisvæna orka sem við höfum og við erum alveg stökk ef olía er ekki fyrir hendi.  Og nákvæmlega það er eins og hann sagði.  Ef það væri ekki olía, þá myndi ekki berast hingað skip með hráefni, við myndum ekki koma afurðunum frá okkur, og við gætum ekki gert út á fisk.  Hvar værum við stödd þá. Og hversu mikils virði er þá öll orkan okkar hreina og .... ódýra..  ef við hefðum ekki menguðu olíuna til að bera okkur allt sem við þurfum við að eta ? Þegar stórt er spurt .... þá verður stundum lítið um svör.

En þetta er allt í lagi með mig.  Pirringurinn er ennþá oní tjörninni vafinn inn í laufblaðið.  Bara svona hugleiðingar vegna frétta um vestfirska olíuhreinsunarstöð og mengunina sem af henni verður. Cool

IMG_2100


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jú ég hneykslast á þessu að sjálfsögðu.  Mér er slétt sama hver á í hlut af okkar nýju Íslendingum.  Þeir eiga allir að njóta sömu réttinda og við.  Vandinn liggur ekki þeirra megin heldur hjá ríkinu, hjá stjórnvöldum sem eru eins og verstu járntjaldslöndin voru í skriffinsku.  Ekki hægt að breyta neinu.  Vantar viljan bara.

Takk fyrir pistilinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.4.2007 kl. 00:27

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er þarfur punktur með olíuna.  Hversu örvænt erum við í byggðarmálum, ef við ætlum að fara að kalla yfir okkur olíuhreinsunarstöðvar?  Eigum við ekki bara að bjóðast til að geyma kjarorkuúrganginn líka?  Ég tek annars undir hvert orð hjá þér elsku vina.  Walk Tall!

Jón Steinar Ragnarsson, 17.4.2007 kl. 01:18

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jón Steinar vinur minn. 

Já ég hef orðið vör við þessar stjórnvaldsaðgerðir.  Það þarf heldur betur að fara yfir útlendingalögin og leiðrétta ýmislegt þar.  M.a. aðgang annara þjóða að landinu, svo sem eins og Asíubúa og annara fyrir utan Evrópusambandið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2007 kl. 08:42

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir þetta Ásthildur mín það þarf leiðrétta  ýmisleg í þessu landi okkar.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.4.2007 kl. 14:08

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já einmitt, það er nokkuð ljóst. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2007 kl. 14:31

6 Smámynd: Rannveig H

Númer 1 2og 3 þarf þessi stjórn frá þá getum við farið að taka öðruvísi á málum held ég allavega.'Eg held það sosem ekki ég trúi því .

Rannveig H, 17.4.2007 kl. 14:41

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég segi sama Rannveig mín.  Hér þarf stórátak. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2007 kl. 14:56

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gefið mér dæmi um hvað hægt er að gera þegar þið takið við stjórn landsins sem lagar þetta í hvelli, allavega fljótlega, þetta er brot á mannréttindum svona eins og það er núna og vildi ég gjarnan heyra hvernig hægt er að bæta þetta svo fólk njóti sammælis hvernig Íslendingar sem það er. kv.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.4.2007 kl. 15:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2023232

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband