4.5.2015 | 10:50
Miklir menn erum vér!
Já miklir menn erum við Hreiðar minn. Hvað ætli margir hafi þurft að vera innilokaðir í Hegningarhúsinu tímabundið? Ég skal segja þér svona í trúnaði að minn sonur reyndi að fremja sjálfsvíg þar inni. Hann var ekki spurður, hann var bara dottin ofan í lífsbaráttu sem hann komst ekki uppúr fyrr en seinna, og fékk nokkur góð ár.
En þið auðmennirnir tilheyrið víst ekki þessari þjóð nema að því að vera fæddir hér og uppaldir, en er það afsökun fyrir því að skilja allt samfélagið eftir í rúst?
Í hvert skipti sem þið sláið um ykkur og segist vera "saklausir" með her lögfræðina á hælunum til að verja ykkar aumu sjálfmynd þá sláið þið blautri tusku framan í fullt af foreldrum og ættingjum ólánsmanna sem kerfið hefur malað undir sér, þangað til eina lausnin var að hverfa héðan og ekki til Noregs, því þeir voru gerðir að glæpamönnum fyrir að ánetjast fíkn og verða veikir.
Ég skal bara segja þér að ég vorkenni þér ekki rassgat, og vona að menn beri gæfu til að láta þig ganga sama veg og aðra í dómskerfinu, því samkvæmt stjórnarskránni eiga allir menn að vera jafnir gagnvar réttarríkinu, þó það sé svo langt langt langt frá því að vera virt, því miður. Þetta er svona enn einn naglinn í kistu sem verið er að smíða, svona örk sem við hljótum að vera að smíða með því að þráast við og sýna samstöðu í því sem verið er að arðræna okkur endalaust. Bankar, sjávarútvegur og orkuver, allt reynt til að troða í ykkar vasa. En við erum búin að fá nóg, allavega ég og mér sýnist á ástandinu í þjóðfélaginu í dag að ég sé ekki ein um það, eigðu samt góðan dag, og mundu að hafa með þér góða og uppbyggilega bók í Hegningarhúsið og svo krossgátur. Gætir til dæmis byrjað á Falið Vald :)
Neitað um flutninga í dómsal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 2022150
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Satt segir þú. Mér hefur nú alltaf fundist þessi Hreiðar vera hálfgert fífl, enda hefur mér líka fundist til þessa hann hafa hagað sér alveg eins og fífl og kemur þannig fyrir alltaf, þegar maður sér hann í sjónvarpinu og hann fer að opna munn til að segja eitthvað. Ég hef aldrei skilið manninn. Hann hefði gott af því að dúsa einhvers staðar í einangrun og hugleiða málin af einhverju viti, ef hann getur það þá. Honum er ekki vandara um en öðrum, sem fyrr og síðar hafa þurft að dúsa þarna inni á Skólavörðustígnum, hvort sem þeim hefur líkað það betur eða verr. Ég hef nú ekki lesið þessar nýútkomnu bækur um Andrersensskjölin og bókina hans Eggerts Skúlasonar, en þessi Hreiðar hefði kannske gott af því að lesa þær. Að öðrum kosti ætti hann að hafa með sér myndasögublöð og Andrés Önd. Það væri mátulegur lestur fyrir mann eins og hann!
Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 4.5.2015 kl. 12:53
Myndasögublöð og Andrés Önd, Guðbjörg þú ert frábær
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2015 kl. 16:16
Þú meinar, Guðbjörg..Lesa Bjornebanden og rifja upp gömlu góðu tímana....Sniðug ertu !!
Már Elíson, 4.5.2015 kl. 19:38
þetta er bara fyndið kvikindi. Klefarnir hæfa ekki þessu stórmenni, finnst bara ekkert gaman að vera lokaður inni, og fá bakkamat úr Múlakaffi..;o) Öruglega hvorki hægt að fá raut eða hvít með matnum heldur. Hrokafulli ógeðslegi manndjöfull. Vonandi þarftu að dúsa þarna sem lengst. Ættir að hafa vit á því að halda kjafti og þakka fyrir að fá að éta á minn kosnað vesalingurinn þinn.
ólafur (IP-tala skráð) 4.5.2015 kl. 20:18
Ég held að við mörg höfum lítil efni til að hæðast að dæmdum. Mann þennan þekki ég þó ekki neitt svo broslaus sem hann er og augnatómur, en fyrir Því geta verið margar ástæður.
Ekkert réttlætir þjófnað, hvorki veraldlegan né andlegan. En bros skaðar ekki , nema það sé smíðað af stjórnar formanninum augnalausa eða hrokafullum andlegum leiðtoga arabahöfðingjanna.
Hrólfur Þ Hraundal, 4.5.2015 kl. 21:31
Ég þekkti Júlla.Við vorum saman í kópavogi og svo síðar á níunni.
Elías Rúnar Ingvarsson (IP-tala skráð) 4.5.2015 kl. 21:46
Góður pistill. Helsta hremmingin fyrir bankaræningja er að á Skólavörðustíg er engin aðstaða til að spila golf. Bara körfubolta.
Jens Guð, 4.5.2015 kl. 21:53
Jens og enginn bar
Elías gaman að heyra, já hann var allstaðar ljúflingur þessi elska. Takk annars öll fyrir innlitið. Hann á bara að una því að vera vistaður í hegningarhúsinu meðan mál hans eru tekin fyrir, honum er enginn vorkunn frekar en öðrum að sitja þar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2015 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.