2.4.2015 | 17:18
Píratar og stjórnmálamenn framtíðarinnar.
Ég tek alveg undir þessi orð Helga Hrafns. Það gerðist eitthvað í þjóðarsálinni loksins. Og það er afar ánægjulegt. Og vissulega er krafan um lýðræðisumbætur sterk, en það er ekki bara það, heldur er fólk farið að fá upp í háls atferli fólksins sem valið hefur verið valið til að stjórna landinu mörg mörg undanfarin ár. Lygarnar óheilindin og klíkuskapurinn er orðin yfirþyrmandi, en það er líka annað sem sennilega vegur þyngra og það er spillingin sem er farin að vera ansi grímulaus. Hér áður gátu menn falið hana og þaggað niður, það er ekki hægt lengur vegna netsins. Og ekki síður vegna blaðamanna sem standa undir nafni.
Hyglun stjórnvalda til nokkurra útvaldra vina og vandamanna, og ég er ekki bara að tala um núverandi stjórnvöld heldur nær þetta langt aftur.
Ég held meira að segja að ég viti hvenær vakningin byrjaði, það var þegar Ómar Ragnarsson labbaði með 12 þúsund manns niður Laugaveginn. Það vakti fólk til umhugsunar um hvað hægt er að gera í krafti fjöldans. Þó ekki tækist að koma í veg fyrir Kárahnjúkavirkjun er ég viss um að fólk hugsaði sig tvisvar um áður en lagt var í álíka eyðileggingu á landinu okkar fagra.
Svo þegar farið var að koma saman á Austurvelli þá var það eiginlega beint framhald af þessari göngu. Það er mín sýn allavega. Bókin hennar Margrétar Tryggva og Hreyfingin sem opnaði glugga út úr Alþingishúsinu hvar líka sterkur leikur.
Ég vona að að þessi þróun haldi áfram og styrkist. Það sem vantar hjá okkur er að leyfa öllu fólki á landinu að njóta gæða landsins, en ekki bara fáeinum útvöldum sem komast áfram á á kostnað hinna. Þar má til dæmis nefna sjávarútveginn, þar sem blygðunarlaust örfáir aðilar sópa til sín þjóðarauðnum. Bankaforstjórar sem hafa meiri mánaðarlaun en verkamaður hefur á ári. Við erum of fá fyrir svona mikla spillingu endalaust. Enda er fólk að flýja umvörpum til annara landa vegna þess að það er búið að fá nóg.
Þess vegna verðum við að snúa þessari þróun við. Og við getum það í krafti fjöldans, bara ef við stöndum saman og sýnum að okkur er fyllsta alvara.
Við viljum börnin okkar heim aftur sem flúið hafa land eða telja sig ekki eiga framtíð hér lengur. Við verðum að gera þetta núna því nú er lag, ekki í gær ogekki á morgun.
Eigið góðan dag.
Lýðræðisumbætur vega þungt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 2022149
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er lítil hætta á að breyting verði á þegar kemur að kosningum. Þá kjósa Íslendingar enn og aftur sömu fjórflokkaspillinguna yfir sig vegna þess að þeir hafa ekki kjark til að prófa eitthvað nýtt með því að kjósa ný framboð sem ekki hefur reynt á áður. Bara það að núverandi ríkisstjórn skuli ekki vera hrakin frá völdum sýnir og sannar að þjóðin þorir ekki að standa upp. Smáborgaraháttur íslensks almennings er nefnilega svo rótgróinn í þjóðarsálina að maður lætur ekki sjá sig í mótmælum "með hverjum sem er" eins og einhver sagði svo sannlega.
corvus corax, 3.4.2015 kl. 01:01
Æ Corvus, megum við ekki einu sinni láta okkur dreyma um betri tíð?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2015 kl. 10:34
Ég held að vandamálið liggi í kosningakerfinu en ekki fólkinu sem velst á þing. Það þarf að sprengja upp þessar blokkir sem felast í stjórnmálaflokkunum. Kannski orðinn svolítið leiðinlegur í endurtekningunum en ég fer fram að hætti Cato gamla þegar ég segi enn og aftur: Það þarf að opna fyrir einstaklingsframboð utan flokksmaskína.
Jósef Smári Ásmundsson, 5.4.2015 kl. 09:17
Jósef, já ég held að það væri ef til vill besta og kannske eina ráðið til að losna við þessar risaeðlur sem telja sig vera í fararbroddi til að hygla sjálfum sér og öðrum. En við þurfum að gera okkur grein fyrir hvað við viljum og styrkja þau öfl sem okkur lýst best á að brjóti upp þetta kerfi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.4.2015 kl. 11:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.