28.3.2007 | 09:34
Til stuðnings hetju. Hér þarf hröð handtök vinir.
Kæru vinir ég ætlaði ekki að blanda saman veru minni hér og á Málefnunum. En þetta mál þolir enga bið. Þetta innlegg hennar Krissu snart mig djúpt. Og ég geri orð hennar að mínum. Hér má engan tíma missa. Hér þarf að láta verkin tala. Megi ljós og kærleikur fylgja Ástu í veikindum hennar. Ég bið ykkur að leggja þessu máli lið. Ég fékk þetta sent áðan og langar til að vekja athygli ykkar á þessu. Mörg munum við líklega eftir því fyrr í vetur er Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir, einstæð, þrítug þriggja barna móðir kom fram í Kastljósinu og sagði frá baráttu sinni við krabbamein. Áður hafði Ásta vakið athygli fyrir bloggskrif sín þar sem hún tjáði sig af einstakri bjartsýni og hreinskilni um veikindi sín. Í lok síðasta sumars greindist Ásta Lovísa með krabbamein í ristli og í kjölfar þess var ristillinn fjarlægður. Við tóku erfiðar lyfjameðferðir sem því miður skiluðu ekki tilætluðum árangri og greindist Ásta með alls 10 meinvörp í lifrinni. Síðan þá hefur Ásta farið í ótal lyfjameðferðir sem því miður hafa ekki náð þeim árangri sem til var ætlast. Læknavísindin hér heima hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til Ásta geti fengið bót meina sinna. Prófuð hafa verið ný og ný lyf en allt kemur fyrir ekki. Meinvörpin halda áfram að stækka og krabbameinið tryggir bólfestu sína í líkama Ástu Lovísu. Í dag fékk hún afar slæmar fréttir og bloggaði þá þetta: QUOTE Fréttir !!! Enn og aftur fékk ég ekki góðar fréttir... Þessi barátta ætlar að reynast mér ansi erfið . Á þessum stutta tíma eða á aðeins ca 5 vikum hefur ÖLL meinvörpin náð að stækka þrátt fyrir lyfjameðferð. Það er rosa slæmt á ekki lengri tíma. Það sem er verst við þetta allt er að ég er búin að prufa öll nýjustu lyfin á markaðnum og á aðeins þessu gömlu eftir. Við vitum það flest að nýju lyfin eru oftast betrumbæting á þeim gömlu. Ég er hætt í lyfjameðferð hér heima og næsta skrefið er að koma mér út sem fyrst. Það er bara ekki annað hægt í stöðunni... Því miður *GRÁT*. Ég fékk samt líka góðar fréttir. Góðu fréttirnar eru þær að öll önnur líffæri eru hrein. Eitlarnir sem að höfðu verið að sýna stækkun .. Hafa ekki stækkað neitt núna. Það er því ólíklegt að það sé krabbi í þeim.. því þá hefðu þeir átt að fylgja stækkuninni á öllu hinu. Þetta er rosalegt sjokk samt sem áður. Það er sárt að vita að með þessu áframhaldi og ef ekkert fer að gerast til að draga úr þessu hröðu þróðun þá er vitað mál að ég á ekki langt eftir. Mér finnst það virkilega sárt og ég er virkilega hrædd. Núna líður mér eins og ég sé að kafna og það sé ekkert sem að geti hjálpað mér að ná andanum aftur. Úffff... Ég hata stöðu mína í lífinu núna !!! Ég er ekki í góðu skapi núna... Ég gæti setið hér leeeengi og ausað út en ég ætla ekki að gera það. Ég ætla ekki að leyfa reiðinni að ná tökum á mér núna þannig að ég ætla ekki að hafa þetta neitt lengra. Enn og aftur er sorgarferlið komið í gang og nú er að syrgja þessar fréttir þar til ég sé sólarglætuna að nýju. Bið að heilsa ykkur í bili Kv Ásta Lovísa Hún talar um að næsta skrefið sé að koma henni út sem fyrst. Þar á hún við út til New York í mjög sérhæfða lyfjameðferð sem enn er að vísu ekki komin reynsla á. Þessi lyfjameðferð er hins vegar síðasta hálmstráið í von um bata fyrir þessa ungu þriggja barna móður sem berst fyrir lífi sínu. Meðferðin kostar gríðarlega fjármuni, og hefur verið talað um 4-5 milljónir í því sambandi sem sjúklingurinn þarf að greiða úr eigin vasa. Ásta Lovísa hefur ekki verið viljug að biðja um stuðning og þess vegna ætla ég kona út í bæ að senda þetta á vini og vandamenn og biðja þá vinsamlegast um að hafa Ástu Lovísu í huga, biðja fyrir henni og börnum hennar, senda fallegar hugsanir og þeir sem eru aflögufærir mega gjarnan leggja inn einhverja fjárhæð á reikning sem faðir Ástu Lovísu stofnaði henni til handa en reikningsnúmerið er: 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469 Kæra fólk! Fyrir þessa ungu hetju gæti þetta verið spurning um líf eða dauða. Stöndum saman og reynum að gera allt sem við getum til að leggja í púkk. Þið megið svo endilega senda þetta áfram til vina ykkar, vandamanna, vinnufélaga og allra sem geta veitt stuðning á einhvern hátt í hvaða formi sem er. |
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þökk fyrir ábendinguna Ásthildur, þetta er sorglegra en tárum taki.
Mér finnst það hneyksli á ríka Íslandi ef að TR borgar fyrir alla þá meðferð sem í boði er fyrir alvarlega veikt fólk. Megi hún vera í Timbúktú. Það er kominn tími á að gefa stjórnvöldum reisupassann.
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.3.2007 kl. 09:41
Ég er með. Biðjum fyrir henni líka, það virkar trúið mér...
Jón Steinar Ragnarsson, 28.3.2007 kl. 09:44
Þetta er mikil sorg ég mun biðja fyrir henni ég mun gera mitt til að að leggja í púkk.
Kristín Katla Árnadóttir, 28.3.2007 kl. 10:34
Takk vinir, ég ætla að leggja inn á reikninginn hennar í hádeginu. Og Jón Steinar bænin virkar það er alveg rétt, við skulum hafa hana með í okkar bænum, hver svo sem trú okkar er.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2007 kl. 11:36
'Asthildur meilið mitt er grettir47@visir.is Kolla Sveinbjarnar
kolla (IP-tala skráð) 28.3.2007 kl. 20:10
Geri það sem ég get til að koma þessu áfram. Bænin er sterkasta vopnið á svona tímum, hverrar trúar sem menn eru.
Katrín, 28.3.2007 kl. 20:23
Ætla að styrkja 'Astu og hún verður líka í mínum bænum.
Rannveig Höskuldsdóttir (IP-tala skráð) 28.3.2007 kl. 20:51
Við biðjum fyrir Ástu Lovísu
Halli
Hallgrímur Óli Helgason, 28.3.2007 kl. 22:44
Já við skulum öll biðja fyrir henni í kvöld kæru vinir. Og láta bænina berast um himininn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2007 kl. 23:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.