16.3.2007 | 21:01
Minnig um hetju.
Elskuleg vinkona mín Bergþóra Árnadóttir er látinn. Hún bjó síðustu æviárin í Dúkkuhúsinu sínu í Danmörku, með sambýlismanni sínum dönskum og kettinum sínum.
Ég vil minnast þessarar kjarnakonu í nokkrum orðum. Ég kynntist henni fyrst þegar ég var að vinna að plötunni minni. Það var einmitt hún sem kom því öllu af stað, þekkti alla sem til þurfti og kom mér í samband.
Hún bjó þá á Bergþórugötunni upp í hanabjálka sem henni þótti svo vænt um með þáverandi maka sínum Þorvaldi Inga Jónssyni. Það var oft glaumur og gaman í eldhúsinu hjá henni og mannmargt. Oft var það líka í heimsókn Anna Pálína Árnadóttir sem nú er látinn einnig.
Bergþóra var hjartahlý og góð manneskja, sem stundum virtist hrjúf, en svo sannarlega var hún vinur vina sinna.
Lögin hennar munu lifa áfram því hún var besti kventrúbator sem við áttum. Og sennilega verður langt þangað til henni verður skákað.
Ég man fyrst eftir henni í Vísnavinum. Hún var oft í sviðsljósinu og vakti mikla athygli fyrir lögin sem hún samdi við ljóð listaskálda. Hún samdi þó sjálf marga góða söngtexta.
Þegar fyrrverandi eiginmaður hennar og faðir barnanna Jón minn sem hún kallaði oftast fór skyndilega úr þessum heimi, varð það henni mikið áfall. Henni þótti alltaf vænt um þann mann þó þau ættu ef til vill ekki samleið.
Bergþóra var einstök manneskja, og þegar hún greindist með krabbamein, þá vildi hún ekki fara í geislameðferð, heldur kaus að taka hákarlalýsi. Hún var sannfærð um að það gerði henni gott.
Það má segja að þannig hafi allt líf hennar verið, áföllin í lífi hennar voru mörg. Hún slasaðist illa í bílslysi, náði aldrei fullri heilsu á ný eftir það, en hún lét það ekki aftra sér frá að spila og syngja, það var hennar líf. Meðan ég get haldið á gítarnum, syng ég og spila sagði hún og hló.
Bergþóra stóð líka fyrir ýmsum uppákomum, greiddi götu erlendra trúbatora hingað til lands, og túraði með þeim um landið og vann mikið í Skandinavíu.
Einnig ferðaðist hún líka með félögum sínum í Vísnavinum.
Einu sinni kom hún akandi vestur á trabant sem hún hafði málað með allskonar blómamyndum. Þannig var Berþóra uppfull af lífi og allskonar uppátækjum.
Ég vil minnast hennar sem frábærrar konu, sem af þvílíku æðruleysi tókst alltaf á við það sem varð á vegi hennar. Hún mátti þola allskonar mótlæti og sorgir. En öllu tók hún af þeirri reisn sem alltaf fylgdi henni.
Þeir deyja ungir sem Guðirnir elska. Bergþóra er farin, Guð tók hana til sín, því hann þurfti að fá hana yfir til að gleðja englana.
Mín kæra vinkona, þú verður alltaf í huga mér. Og ég veit að þú ert ánægð þar sem þú ert. Þú varst alltaf tilbúin til að taka breytingum og því sem lífið gaf þér. Það er einstakur eiginleiki og ég hef alltaf dáðst að þér sem manneskju, og sérstaklega hvernig þú tókst alltaf á við erfiðleikana eins og þeir væru bara smámál.
Þú varst ákveðin í að vinna þennan óvin. En stundum tekst manni ekki það sem lagt er upp með. Óvinurinn verður sterkari. En ég er viss um að þú fórst sátt við allt og alla. Þannig var þín lífsins saga. Þú lést aldrei bilbug á þér finna. Hnarreist hefur þú lagt á hið hinsta haf. En þú hefur örugglega tekið gítarin með.
Það verða aðrir sem rifja upp söngferil hennar. En ég er hér með diskinn hennar lífsbókin Og læt hér fylgja með það sem þar stendur á baksíðu.
Bergþóra Árnadóttir ólst upp við söng og hljóðfæraslátt frá blautu barnsbeini. Hún byrjaði ung að semja lög við ljóð íslenskra skálda, en fystu hljóðritanir með henni komu út á safnplötuna Eintak og á níunda áratugnum kom síðan hver platan á eftir annari. Samtímis var Berþóra jafnan á ferð og flugi, starfaði með ýmsum tónlistarmönnumog hélt fjölda tónleika innan lands og utan. Árið 1987 kom úr platan í seinna lagi en skömmu síðar fluttist Bergþóra búferlum til Danmerkur og hefur starfað það síðan. Eftir alvarlegt umferðaslys varð hún að snúa sér að öðrum viðfangsefnum, en lög og ljóð hefur hún engu að síður haldið áfram að semja þótt ekki hafi orðið af úrgáfu þeirra enn sem komið er.
Helstu hljóðritanir Bergþóru eru:
Eintak(1977) Almannarómur, með hljómsveitinni Hálft í hvoru (1982) Bergmál (1982) Afturhvarf (1983) Ævintýri úr Nykurtjörn, ásamt Aðalsteini Ásberg (1984) Það vorar, ásamt Grahan Smith (1985), Skólaljóð 1 (1986) og í
Í seinna lagi (1987).
Einnig eru einstök lög eftir Bergþóru á allmörgum hljómplötum, bæði í flutningi hennar og annara listamanna. Samtals er hér umað ræða hátt í 100 hl´joðritanir.
Lífsbókin geymir úrvalslög Bergþóru frá árunum 1977 1987. Útgáfan er tileinkuð 50 ára afmæli hennar 15. febrúar 1998. Gamlir vinir og velunnarar hrintu verkinu í framkvæmd.
Inn í umslaginu um plötuna eru árituð orð frá henni;
Elsku Íja mín. Ég kom kl. 13.20 og hitti fuglana, gerði mig heimakomna og tók myndir, sem ég sendi þér við tækifæri. Húsið er æðislegt eins og fólkið sem í því býr. Við sjáumst síðar, þín vinkona Bergþóra.
Nú set ég Lífsbókina á fóninn og ætla mér að hlusta á þig ljósið mitt. Megi allir góðir vættir vaka með þér og vernda. Þú varst hetja.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 61
- Frá upphafi: 2023214
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku bloggvinkona Ásthildur, þú ert að gera minningu vinkonu þinnar afar hátt til höfuðs með þessum minningarorðum, og ég er sannfærð um að hún á þau öll skilið! Ég votta þér samúð mína.
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 16.3.2007 kl. 21:10
Takk Anna mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2007 kl. 21:17
Æ nú brá mér. Man vel eftir Bergþóru, baráttukona og sjálfri sér samkvæm, það er ekki auðveldasta leiðin í gegnum lífið en sú sem gefur mest. Hlustaði oft á söng hennar og texta sem margir eru afar góðir. Samhryggist þér og öllum sem stóðu henni nærri.
Katrín, 16.3.2007 kl. 21:46
Vel skrifað og fallega. Samúðarkveðjur.
Ragnar Bjarnason, 16.3.2007 kl. 22:14
Ég samhryggist þér elsku vina. Ég naut þess að kynnast þessari hjartnæmu listakonu lítillega á meðan hún dvaldi fyrir vestan og kenndi síðar dóttur hennar henni Birgittu Bergþórudóttur skáldkonu eitt misseri á Núpi. Bergþóra var ekki metin að verðleikum fannst mér þótt hún hafi vakið mikla athygli sína fyrir hugljúf og næmleg lög og jafnan baráttusöngva. Sérstaklega á tímabilinu með Aðalsteini Ásberg, sem nú er formaður rithöfundasambandsins að mig minnir. Kannski lifði tónlistin hennar ekki vegna þess að hún var vinstriisinnuð og kvennréttindakona mikil. Kynsystur hennar mættu gera henni hærra undir höfði. Það fór lítið fyrir henni eftir bílslysið en kannski var það þessi óverulega fjarlægð, sem myndaði þessa þögn. Eitt lag man ég ætíð, sem hún samdi við ljóð Laxness, sem væri viðeigandi að setja á fóninn í minningu hennar. Það er: Frændi þegar fiðlan þegir. Læt ég ljóðið fylgja hér með. Blessuð sé minning hennar.
Frændi, þegar fiðlan þegir,
fuglinn krýpur lágt að skjóli,
þegar kaldir vetrarvegir
villa sýn á borg og hóli,
sé ég oft í óskahöllum,
ilmanskógum betri landa,
ljúflíng minn sem ofar öllum
íslendíngum kunni að standa,
hann sem eitt sinn undi hjá mér
einsog tónn á fiðlustreingnum,
eilíft honum fylgja frá mér
friðarkveðjur brottu geingnum.
Þó að brotni þorn í sylgju,
þó að hrökkvi fiðlustreingur,
eg hef sæmt hann einni fylgju:
óskum mínum hvar hann geingur.
Jón Steinar Ragnarsson, 16.3.2007 kl. 22:17
Ég vil bara þakka fyrir að hafa kynnst Bergþóru og hún kenndi mér margt, mest þó þetta æðruleysi og kjark sem alla tíð einkenndi hana. Hún lenti oft í því að lífið var erfitt. En alltaf tók hún öllu af þeim kjarki og ég segi glettni. Hún hló að erfiðleikum og gaf skít í áhyggjur og slíkt. Ég hef aldrei kynnst þvílíkri manneskju. Já ég vil að fólk minnist þessarar konu. Hún var einmitt sterk kona sem gerði hlutina á sínum forsendum. Hún bara var stór.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2007 kl. 23:02
Ég þekkti Bergþóru ekki mikið. Ég var töluvert að skrifa um poppmúsík fyrir hin ýmsu tímarit og poppblöð þegar hún kom fram á sjónarsviðið. Hún passaði upp á að ég fengi eintök af fyrstu plötum hennar til umsagnar og lét mig vita þegar hún var að troða upp á hljómleikum. Ég kunni vel við músíkstíl hennar. Einhverntímann tók ég þokkalega langt viðtal við hana fyrir tímaritið Nýtt líf. Fyrir nokkrum árum hitti ég hana, ásamt dönskum sambýlismanni hennar, á Dubliners. Þar var ég staddur ásamt kanadískum útvarpsmanni hún ætlaði að senda plötur með sér. Ég veit ekki hvert framhald varð á því. En við spjölluðum allt kvöldið og hún tjáði mér hún hafi verið rosalega ánægð með stuttan texta sem ég skrifaði um hana í bók sem ég skrifaði 1983, Poppbókina. Þar gaf ég fyrstu plötu hennar, Eintaki, 3 stjörnur (af 5) og tvær næstu, Bergmáli og Afturhvarfi 4 stjörnur. Hér fyrir neðan endurbirti ég umsögnina:
"Stundum er Bergþóra Árnadóttir kölluð íslensk Joan Baez. Ekki vegna þess að Berþóra syngi háan og skæran sópran. Það gerir hún ekki. Þvert á móti hefur hún lága og hása reykingarröd. Hinsvegar er músík Bergþóru hliðstæð tónlist Joan Baez. Þetta er þægilegt og átakalaust þjóðlagapopp. Textarnir tjá margir hverjir milda verkalýðspólitík. Þeir eru flestir sóttir í smiðju gömlu meistaranna. Hjá Bergþóru er Steinn Steinarr efstur á vilsældalistanum, Á hæla hans koma Tómas Guðmundsson, Laxness, Hannes Pétursson o.fl.
Bergþóra hefur lag á að semja viðeigandi lög við góða texta. Sá hæfileiki skipar henni í hóp okkar bestu lagasmiða."
Jens Guð, 17.3.2007 kl. 02:15
Takk Elena mín.
Þetta er falleg umsögn Jens Guð minn. Þetta er alveg satt og rétt. Bergþóra var mjög sérstök sem listamaður.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2007 kl. 11:43
Ég man vel eftir henni Bergþóru hún var dásamleg kona ég votta þér samúð mín Ásthildur mín .
Kristín Katla Árnadóttir, 17.3.2007 kl. 13:02
Ég man aðeins eftir Bergþóru í gamla daga í Hveragerði, systir mín og hún voru saman í bekk og oft saman utan skóla. Mamma hennar var mjög virk í skátahreyfingunni og gerði frekar misheppnaða tilraun til að búa til úr mér ljósálf, eins og ungliðar í skátahreyfingunni voru kallaðir (veit ekki hvort það tíðkast enn?). Ég stóð mig illa í mætingum, svo ég var aldrei mjög góður ljósálfur (samt enginn svartálfur, bara værukær) og gaf þá hugmynd upp á bátinn að lokum.
Bergþóra var mjög lífleg og skemmtileg stelpa, sem byrjaði mjög fljótt að syngja og tralla og spila á gítar. Til dæmis tóku þær sig til eitt árið, hún og systir mín og æfðu prógramm til að söngs á jólaskemmtun í barnaskólanum. Ekki varð þó af flutningnum, þar sem söngurinn þótti lítið jólalegur og textarnir heldur "fullorðins", hvort sem stelphnokkarnir hafa nú nokkuð botnað í því.
Bergþóra Árnadóttir var frábær listakona með sérstæða framsetningu og tjáningu. Samúðarkveðjur til allra sem henni unnu.
Greta Björg Úlfsdóttir, 17.3.2007 kl. 13:24
Takk fyrir fallega grein um vinkonu þína. Yndislegt að lesa og skynja kærleikann sem´þú berð til hennar.
Smútsj
og ég samhryggist þér innilega, svo og öllu hennar fólki.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.3.2007 kl. 22:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.