15.3.2007 | 16:53
Nýr dagur.....
Nýr dagur er runninn upp, dagur vonar ? nei ef til vill ekki, en hann var fallegur í morgun austurhimininn. Hann lofaði góðu, en samt var komin mugga er leið á daginn. Hann er einhvernveginn kyrrlátur. Eins og hann segi; við skulum vera hljóð og leyfa sorginni að vera kyrri enn um stund. Öll sár gróa um síðir. En það tekur sinn tíma.
Í gær hringdi í mig þýsk blaðakona, hún vildi hitta mig og ræða um álfa og huldufólk. Ég var auðvitað alveg til í það. Bauð hana velkomna í kúluhúsið. Það hafa margir slíkir komið á undanförnum árum frá nokkrum löndum, Bandaríkjunum, Hollandi, Austurríki og núna Þýskalandi. Áhugi fólks er að vakna fyrir hulduheimum. Það er ágætt. Eykur sjóndeildarhringinn.
Það var gaman að rabba við hana um allt mögulegt, hún var mjög ánægð með veru sína hér, sagði að ísfirðingar væru afskaplega vinalegt og yndislegt fólk. Hún var ákveðin í að koma aftur í sumar.
Reyndar heillaði stubburinn minn hana upp úr skónum. Hún eyddi jafnmiklum tíma í að taka við hann viðtal og taka myndir. "Ég er einmitt líka í að taka myndir af barnaberbergjum" sagði hún, tók myndir af honum við trommurnar og svo upp í sínu herbergi. Hann var hinn ánægðasti, og hún var alveg stein hissa hve hann talaði góða ensku. "Hvar lærðir þú að tala svona góða ensku?" spurði hún. "Í sjónvarpinu" svaraði hann af bragði. "Ó cool "sagði hún.
Já sagði ég hann er bara 10 ára og ekki byrjaður á tungumálum ennþá. Það er gaman að segja frá því að við fórum til Þýskalands og Austurríkis yfir jól og áramót og þar vakti einmitt góð enskumælska hans mikla athygli.
Hún ætlar að senda mér myndir og viðtölin þegar þau koma. Bíð spennt eftir að sjá það.
En dagurinn í dag líður sem sagt hljóður og mjúkur áfram áfram, í kvöld fer ég á tónleika með stórsveit sem maðurinn minn er að æfa með. Þau voru á námskeiði hjá þýskri konu sem er í Bolungarvík, yndislegri konu segir maðurinn minn. Íris Kramer. Ég hlakka auðvitað til að hlusta á þessa hljómsveit, sem mun leika mörg skemmtileg lög sem þau hafa verið að æfa undanfarið.
Hér má sjá hann máta lúðrasveitabúning, sem hann klæddist þegar þeir spiluðu með Sigurrós í fyrra. Flottur ekki satt ?
En núna er dagurinn í dag, og á morgun verður dagurinn á morgun, einhvers staðar þarna inn á milli er ég í núinu.
Eigiði góðan dag.
Hérna er álfakortið.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 2023221
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Æi Ásthildur myndirnar sjást ekki. Tók efitir þessu líka hjá Katrínu. Einhver bilun?
Jenný Anna Baldursdóttir, 15.3.2007 kl. 17:13
Minn maður stendur sig Var nú farinn að babla enskuna í 1. bekk

Elli bara birtist ekki..stækkaður
Katrín, 15.3.2007 kl. 17:25
Skil þetta ekki alveg, því þær birtust þegar ég setti þær inn. Verð að reyna aftur
Jamm Katrín minn hann er orðin svoooo stór núna 10 ára.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.3.2007 kl. 17:45
Þær virðast vera komnar inn núna.... eða hvað ?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.3.2007 kl. 17:49
Nú er allt í góðu, takk!
Jenný Anna Baldursdóttir, 15.3.2007 kl. 19:59
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 15.3.2007 kl. 20:12
Það er eitthvað fokk með myndsýstemið víðar. Ekki þér að kenna. Mér datt í hug hvort ekki væru sóknarfæri í atvinnusköpun að virkja dultrú okkar til að laða að fólk? Eins og ég hef verið að segja, hugmyndirnar eru allt um kring. Það þarf bara að koma auga á þær.
Jón Steinar Ragnarsson, 15.3.2007 kl. 20:30
Kvitt. Góð hugmynd Jón Steinar.
Ragnar Bjarnason, 15.3.2007 kl. 21:18
Fínar Myndir
Kristín Katla Árnadóttir, 15.3.2007 kl. 21:48
Það er sko heilmikill business í kringum Erlu Stefánsdóttur og álfa og hugludfólksferðir hennar með útlendinga um Hafnarfjörðinn. Hafa verið gefin út álfakort og útlendingar hreinlega elska þessar skemmtilegu og öðruvísi ferðir og fá svo íslenskar pönnukökur á eftir. Cesil væri sko tilvalin að standa fyrir svona þarna fyrir vestan.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.3.2007 kl. 22:06
Ég er með álfakort sem ég lét gera. Fékk Erlu til að gera það fyrir mig. Það er mjög flott kort, og hefur farið víða. Það er bæði á ensku og íslensku. Ég hef líka verið með álfa ferðir fyrir útlendinga hér ameríkanar eru spenntir fyrir þessu, þ.e. þeir sem koma með stóru skipunum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.3.2007 kl. 22:16
Ég vil sjá ÁLFAKORT
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 16.3.2007 kl. 00:19
Ég skal senda þér eitt ef þú segir mér hvert ég get sent það. Þú finnur mig í símaskránni eða heimilisfangið mitt, sendu mér orð og ég sendi þér álfakort elskuleg.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2007 kl. 01:26
Álfakort! Hljómar spennandi!!! Hvernig eru þau?
Hrönn Sigurðardóttir, 16.3.2007 kl. 08:15
Mitt kort er með teikningum af hýbýlum álfa, dverga og huldufólks, allt eins og Erla Stefáns sér þetta. Það eru líka vatnaandar, lýsing á hinum ýmsu verum og tívum. Það eru líka teiknaðar orkulínur og vatnslínur. Kortið er mjög handhægt og skilmerkilegt. Hannað af Kolbrúnu Þóru Oddsdóttur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2007 kl. 11:53
Setti álfakortið inn í innleggið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2007 kl. 11:59
Forvitnilegt....
...ætli ég geti fengið svona álfakort af minni sveit? Veistu það?
Hrönn Sigurðardóttir, 16.3.2007 kl. 12:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.