24.6.2014 | 16:19
Dólómítafjöllin- Ítalíuferð framhald.
Við fórum frá Bolzano upp Eggenthal- dalinn og upp að Karersee-vatni, svo gegnum Karerpass-skarðið og yfir pordoijoch-skarðið, þaðan er svo farið með kláfi upp á Sass Pordoi - fjallið sem erí 2.950 metra hæð.

Það er afskaplega fallegt í sveitunum kring um Bolzano.

Vatnið þeirra er drykkjarhæft sem er kostur.

Við stefnum á þessi háu fjöll sem þarna blasa við.

Hér sjáið þið skíðabrekkurnar von að margir fari á skíði í Alpafjöllin.

Og upp er klifrað hærra og hærra, Þau eru sérstök á litin Dolomitafjöllin.

Og vegirnir eru nú ekki alltaf jafn breiðis, hér munaði minnir mig 5 cm á milli bílanna, en bílstjórarnir okkar voru eldklárir og þekktu sínar rútur út og inn.

Bergir gnæfir hátt yfir. Það fer um mann smá hrollur að hugsa til að eiga að fara að klifra þarna upp í kláf. Elli fararstjóri sagði að stundum mætti sjá ljós í klettaskorum, það væru fjallgöngumenn, sem hengdu hengirúm í klettunum og svæfu svo þar yfir nóttina.

Og nú erum við komin upp í snjólínu.

Já komin upp í snjó, og lítill gróður.

Hrikalega falleg fjallasýn.

Ekkert smáflott.


Svo var smástopp svo við gætum tekið myndir.

Þetta er svona stopp fyrir skíðamenn, svo þeir bruni ekki út í ógöngur.

Kláfur á ferð.

Jæja þá er komið að því.

Nokkrir lögðu ekki í uppförina.

Þessi heilsaði okkur þegar við komum upp í kláfaðstöðuna.

Þá er að draga andann djúpt og fleygja sér í dúpu laugina.


Ekki myndi ég fara þarna upp þó mér væri borgað fyrir það

Eins og maður sé í flugvél.

Vona að þið séuð ekki leið á fjallamyndum, en þetta er bara svo stórkostlegt, til dæmis verða Ernirinn og Eyrarfjall eins og litlir fjólubláir draumar í samlíkingunni.

Jamm hrikalegt en fallegt.

Komin upp og hér fengum við okkur hádegismat, og áttum góða stund í frábæru veðri.

Mynd af okkur Ella í ítölsku ölpunum í 2950 metra hæð yfir sjávarmáli.

Já þetta er lofthrædda konan, og ég þorði meira að segja að kíkja fram af brúninni.

Já sumir eru lofthræddari en aðrir.

Þessi vakti athygli gesta, múrmeldýrið.

Þessir kappar eru að undirbúa klettaklifur.


Þá er að fara niður.

Einhverjir að klifra upp á klettinn.

Og svo koma fleiri Ótrúlegt að sjá.

Alveg að komast niður.

Komin niður og getum slakað á.

Þá erum við búin að skoða það. En eins og þið sjáið er töluð jöfnum höndum ítalska og þýska í Suður Tíról, og allar merkingar bæði á þýsku og ítölsku, sagt er að nú eigi að afnema styrki til að halda þessum sið, og að þá verði margir hér sem vilja segja sig út ESB.

Ef þið haldið að þetta sé brú, þá er það misskilningur, þetta er nefnilega skíðabraut. Þeir gera skíðabrautir yfir vegi og aðrar ójöfnur.

Hér er Karersee- vatnið, það var hægt að ganga kring um það, á góðum degi speglast fjöllinn í því, en þetta sérstaka svæði heitir rósagarðurinn. Sagan segir að dvergur einn lagði ást á prinsessu, en þegar hún giftist öðum varð hann reiður og lagði á að enginn skyldi sjá fallega rósagarðinn hans, sem var þarna upp í fjöllunum hvorki að degi né nóttu. En hann gleymsi sólarlagi og sólarupprás, og þá má sjá rósagarðinn bleikan og uppljómaðan.
En ég vona að þið hafið notið Dólómítafjallanna eins vel og ég og ekki sakar að þið hafið orðið örlítið lofthrædd. 'Eg hef verið að hugas um ferðalanginn sem ég tók upp í á leiðinni suður, sem kom frá Mont Blanc til að skoða vestfirsku fjöllinn.
Eigið góðan dag.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svo má nefna það að hitinn hér á Íbisafirði hefur verið þægilegri og betri en hitinn í Suður Tíról, júní hefur farið vel með okkur flest hér á landi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.6.2014 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.