4.2.2014 | 13:59
Volda.
Nokkrir fróðleiksmolar um Noreg.
Hér um bil helmingur landsins liggur 500 metra yfir sjó. Hæstu fjöllin eru Galdöpiggen og Glirtetindur bæði um 2500 metra há. Strynefjallið er um 1500 metra yfir sjávarmáli.
Stærsta vatnið er Mjörsvatn um 360 km. Það er í Uppsölum.
Dýpsta vatnið er Hornidalsvatn um 514 m djúpt. Það er í Gråtos, rétt hjá þar sem Ingi Þór býr.
Næstum fjórðungur landsins er skógivaxið eða um 74.000 km2. Tveir þriðju hlutar skógarins eru barrskógur.
Lauftré vaxa mest á láglendi austafjalls, eins og eik, beyki, linditré, ösp, askur, álmur, hlynur og hesli.
Birki vex mest ofan við barrskógana, sem eru aðallega tvennsskonar, greni og fura. Barrtré vaxa í suðurNoregi allt upp í 1000 m. hæð. En í norður Noregi í 300 - 400 m. hæð.
Framan af var Ósló ekki stjórnsetur, því að konungarnir sátu í Niðarósi eða Björgvin. Um 1300 varð hún höfuðborg landsins, því að Hákon Magnús-son háleggur settist þá að þar. Er gizkað á, að íbúar borgarinnar hafi þá verið um 3000. Nokkrum áratugum síðar hætti hún að vera konungssetur, því að Danakonungar náðu þá Noregi undir sig. Borginni hrakaði þá mjög og íbúum fækkaði. Um 1550 er talið að þeir hafi ekki verið nema 1500. Um 1600 tók hún að eflast á ný, en 1624 brann mestur hluti hennar. Kristján IV lét reisa borgina á ný og var hún kennd við hann, Christiania, og hét hún svo til 1924, þegar Óslóarnafnið var tekið upp á ný. Á 17. og 18. öld óx borgin fremur hægt. Um 1800 munu íbúarnir hafa verið tæp 10.000. Árið 1814 varð borgin stjórnarsetur sjálfstæðs ríkis á ný, þótt konungarnir sætu að jafnaði í Stokkhólmi. Þá tók hún að vaxa og um 1880 bjuggu þar um 110.000 manns.
Deilur héldu áfram milli Norðmanna og Svía og í nóvember 1905 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla í Noregi um framtíðarstjórnarform ríkisins. Tæplega 260.000 manns greiddu atkvæði með stofnun konungsríkis en tæplega 70.000 með stofnun lýðveldis. til konungs var tekinn Carl prins, sonarsonur Kristjáns IX Danakonungs og tengdasonur Játvarðar VI Bretakonungs. Hann tók sér konungsnafnið Hákon VII og var krýndur í Niðarósi árið eftir.
Í Volda kommune bjuggu 1. Janúar 2013, 8827 íbúar. Það er sem sagt bærinn Volda og svo bændasamfélagið í kring. Komúnan skiptist í þrennt, Fyrde, Folkestad og Lauvstad/Dravlaus. Flugsamgöngur eru bæði til Oslóar og Berger gegnum flughöfnina í Örsta. Svo er það expressen, sem gengur frá Osló. Sú ferð tekur um 9. Klst.
En við erum sem sagt komin til Inga Þórs.
Svona til gamans fann ég þessa mynd frá Strynefjalli, það var ekki svona mikill snjór þegar við fórum yfir, en þetta minnir óneitanlega á snjóavetur hér heima.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 2022149
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vegna kvikmyndagerðar minnar erum við hjónin búin að fara í 9 Noregsferðir síðustu 15 árin allt frá syðsta odda landsins norður til Alta. Þeir sem halda að þeir hafi séð Noreg með því að koma til Oslóar fara villur vegar. Landið er stórkostlegt og okkar land og Noregur bera af Norðurlöndunum hvað stórfengleik varðar.
Enda eru í merku riti um 100 undur veraldar, þar af rúmlega 40 náttúruundur, aðeins sjö í Evrópu og aðeins tvö á Norðurlöndum: Norsku firðirnir og hinn eldvirki hluti Íslands.
Af því þú minnist á Strynefjallið vil ég benda þér á að gamla malarveginum er haldið það vel við, að hann er vinsæl ferðamannaleið á sumrin.
Ómar Ragnarsson, 5.2.2014 kl. 03:34
Já Ómar hann er merktur inn við fyrstu göngin. Ég kem að því síðar. Og sammála þér að fegurðin er mögnuð þarna, djúpir firðir, hrikaleg fjöll, dalir og vötn. Takk fyrir innlitið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2014 kl. 12:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.