Þegar óveður geysar, er gott að ylja sér við fallegar minningar.

Jæja þá er óveðrið komið hingað til Ísafjarðar.  Elli var að hringja og segja að það er búið að loka veginum undir Hafnarfjalli svo Karlakórinn Ernir kemst sennilega ekki heim í kvöld.  Þeir voru samt ánægðir með aðsóknina.

Mér var að detta í hug að setja inn nokkrar hlýlegar myndir svona mitt í vetrarhörkunni útifyrir.

IMG_2348

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í sumar komu hingað ljósmyndarar sem voru að útbúa skrímsli á ýmis hús, þeir vildu setja eitt skrímslið á kúluna og var það góðfúslega leyft, hér er verið að blása dýrið upp.

IMG_2350

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Margt sér til gamans gert, hér er hið græna skrímsli að blásast upp.

579604_10151639804154775_277302908_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svona leit það svo út.

IMG_2351

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Í kúlu gæta börnin hvors annars, og það er svo frábært. Hér eru Sigurjón Dagur og Jón Elli.

IMG_2353

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Vorum að koma af Mýrarboltanum í Tungu skógi, og Jóni Ella hafði áskotnast þessi rosa drullubolur.

IMG_2354

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stóri bróðir svo komin í hópinn.

IMG_2361

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Bræðurnir.... Nammi namm gott að fá sér Ís, hingað kemur ísbíllinn annan hvern laugardag og þá er um að gera að kaupa ís, því þetta er frábært uppátæki.  Bílstjórinn er alveg öruggur um að ég komi og kaupi, því hann bíður smástund ef ég læt ekki sjá mig strax.  Ég elska svona persónuleg viðskipti.

IMG_2366

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Bárubörn dvöldu hjá mér í viku í sumar, sem var dásamlegt.  Svo gaman að fá þau.

IMG_2369

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ólöf Dagmar, Sigurjón Dagur og Jón Elli, þarna voru stelpurnar mínar farnar aftur til Austurríkis, en mamma Jóns Ella kom í smáheimsókn með stubbinn.

IMG_2373

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En svo var komið að skírninni.  Elías Nói var skírður hér á Ísafirði.  Og stóri bróðir fékk þann heiður að halda honum undir skírn.

IMG_2374

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Falleg látlaus athöfn.

IMG_2376

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Systur Tinnu voru vottar. 

IMG_2379

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Litli maðurinn var svo sem ekkert sáttur við þessa uppákomu, og grenjaði eins og naut hehe..

IMG_2384

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hættusu séra Valdimar eða ég bít þig í puttann hehehe.

IMG_2377

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jamm maður lætur sig nú hafa ýmislegt, hjá þessu skrýtna mannfólki.

IMG_2390

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Og öryggið hjá mömmu, og snuddan á sínum stað.

 

 

IMG_2393

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

Og svo fjölskyldu myndin, afi Elli var fjarri góðu gamni, því hann var í Noregi.  En Afi Óðinn og amma Pála, amma Ásthildur og allir hinir voru þarna.

IMG_2397

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var borin fram dýrindis fiskisúpa, sem allir þágðu með þökkum.

IMG_2402

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Örverpið mitt, þessi elska, svo flottur Heart

IMG_2403

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og tertan var ekki af verri endanum.  4. ágúst er afmælisdagur langaafa hans, Þórðar Júlíussonar.

IMG_2434

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er svo yfirvökvarinn hennar ömmu sín, hann var duglegur við að vökva í garðskálanum.  Snemma beygist krókurinn.

IMG_2455

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En svo þarf lítill maður líka að sofa, og þá er nú gott að hafa eitthvað mjúkt með, eins og bangsa eða brúðu.

 

IMG_2399

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Að þessari visku þarf að huga líka. 

En svona er lífið, og veðrið enn að versna hér fyrir utan kúluna.  Þá er bara eitt ráð, kveikja á kertum, hafa það huggulegt og vona að rafmagnið haldist inni.

Eigið gott kvöld elskurnar.Heart

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nýjasta af Karlakórnum Erni, það er búið að loka veginum við Hafnarfjall, svo þeir koma ekki í kvöld, en munu leggja af stað í fyrramálið kl. 6.  Stund milli stríða.  Veturinn er víst komin með öllum sínum þunga.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2013 kl. 18:23

2 identicon

Fallegar og hlýlegar myndir hjá þér, munur eða veðrið í dag . Njóttu kósý kertaljósa. Búin að lesa og líst vel á .

Dísa (IP-tala skráð) 10.11.2013 kl. 20:46

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Dísa mín, þú ert mikið dómbær á allt svona. 

Ég er að kósa mig og er að fara í háttinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2013 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2021768

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband