Huggun að handan.

Fólk er að spyrja mig hvernig ég hafi það.  Ég verð að viðurkenna að ég hef það ekki mjög gott.  Ég er þó að reyna að halda hugarró minni, og reyna að gleyma því að verið er að rústa 3o ára ræktunarstarfi hér fyrir ofan mig.  Ég er að reyna aða vera ekki reið.   Þó mér finnist að þessi varnargarður sé tóm vitleysa og einungis fenginn af stað til að fá tímabundna vinnu verktaka inn í bæinn.  Gott fyrir stórverktaka að sunnan að fá svona auka verk úti á landi vonandi gera þeir ekki eins og svo oft er gert, að sækja alla þjónustu suður, svo lítið sem ekkert komi inn í bæjarkassann.  En hætt er við því, ef að líkum lætur.

Ég vona að sá dagur komi að ráðamenn fari að hugsa meira um fólkið í bænum sínum, en peninga og upphefðir. 

Ofan á allt þetta er svo sjúkrahúsið okkar læknislaust fyrir utan forstjórann, sem aðrir læknar hafa dæmt óvinnufæran.  Málinu hefur verið skotið til landlæknisembættisins, honum finnst sennilega ekkert liggja á að leysa málið, enda örugglega snúið, bæði pólitískt og vináttulegt, eins og við vitum.

Vona samt að þetta erfiða mál leysist á bestan hátt fyrir bæinn okkar og íbúana sem mega þola þessa baráttu um heilsu eða stolt. 

Vegna þess hvernig mér líður var ég glöð að finna bréf, þegar ég var að taka til.  Bréfið er til elsku sonar míns heitins, þegar áfall hefur riðið yfir líf hans, það er skrifað af konunni sem seinna varð eiginkona hans og barnsmóðir. 

Þetta bréf er einstaklega fallegt og fullt að meðlíðan konu sem þekkir sorgina sjálf.  Þau eru nú bæði dáin og voru ekki hátt skrifuð hjá "kerfinu".

Þess vegna datt mér í hug, það skína margar perlur í sorpinu, og með sorpinu meina ég það fólk sem telur sig hafið yfir fólkið mitt og aðra slíka. 

En bréfið er hér og dæmi hver fyrir sig:

Á tímum erfiðleika.

Tilgangslaust er að ætla sér að skilgreina ástæðurnar fyrir sálarkvöl. Ekki verður aftur snúið. Engir töfrar fá breytt því sem gerst hefur, ekki heldur ásakanir af neinu tagi. Hvenær sem áhyggjur þjaka þig skaltu einbeita huganum að því sem getur veitt þér ánægju á líðandi stund.  Þó í litlu sé.  Gefðu þér tíma til að læknast haltu ró þinni.

Missir skilur eftir sig tómarúm – en þú verður að varast að heilgreipar sorgar læsi sig um hug þinn og hjarta.  Sæktu kjark í lífið sjálft.  Það virðist óhugansandi þegar áföllinn dynja yfir, en nýtt ánægjuefni bíður þess að fylla tómið.

Ég óska þér þeirrar hamingju að geta sleppt tökum á því liðna og byrja nýtt líf.

Ég óska þess að geta forðað þér frá hverri sorg, hverri hörmung, hverju því sem mistekst. En þá yrðir þú frábrugðin öllum öðrum tilverum jarðar.  Það er ekki síður hjartakvöl okkar en hamingja sem byggir upp hjónaband eða vináttu.

 

Ef ég gæti gefið þér eitthvað. Mundi ég kjósa þér frið og kyrrð við innstu hjartarætur, svo þú megir vera öruggur og rólegur hvað sem á dynur.

Farðu mjúkum höndum dum hamingjuna.

Hún er að láni.

Kveðja þín vinkona Jóhanna Rut.

Takk Jóhanna mín, þessi huggunarorð koma á góðum tíma fyrir mig. Ég er stolt af að hafa fengið að kynnast perlum eins og þér og Júlla mínum. Ég er ríkari fyrir vikið.

Jóhanna mynd 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Áshildur mín. Hjálp að handan virkar betur en opinbert kerfi peninga-aflanna siðblindu. Það er mín reynsla, þegar ég bið um þá hjálp. Sendum þeim hlýjar hugsanir, sem ekki skilja sína eigin, né okkar reiði. Og biðjum fyrir þeim sem okkur er ætlað að telja óvini okkar.

Enginn jarðneskur þekkir alveg hvernig hver og einn lendir í erfiðri stöðu í lífsskólanum. Kærleikurinn er öflugasta afl alheimsins.

Þetta er bara það sem ég hef að segja, en er enginn heilagur sannleikur.

Almættið algóða hjálpi þér Áshildur mín, í þessum erfiðu prófraunum lífsins.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.10.2013 kl. 16:37

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessi orð Anna mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.10.2013 kl. 18:07

3 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Ótrúlega fallegt bréf og áreiðanlega engin tilviljun að þú skulir finna það þegar þú þarfnast þess mest.

Margrét Birna Auðunsdóttir, 4.10.2013 kl. 22:42

4 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Það er mikill sannleikur í þessu bréfi. Líklegast erum við aldrei ein, það er alltaf einhver sem heldur í höndina á okkur á erfiðum tímum. Í þínu tilfelli bæði sonur og tengdadóttir. Það hlýtur að vísa á gott þegar fram í sækir.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 4.10.2013 kl. 22:42

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Margrét, já ég er sannfærð um að það er engin tilviljun, og ég er þakklát fyrir að finna það einmitt núna.

Sigrún mín, já það er mikil viska í þessum orðum fyrrverandi tengdadóttur minnar.  Þau hafa sífellt komið mér meira og meira á óvart þessir krakkar mínir, og þeirra vinir, sem skína oft eins og gull í öllu moldviðrinu og dimmunni, bara að fólk færi að átta sig á því að þau eru með erfiðan sjúkdóm en ekki glæpamenn, svo langt í frá.  Gefum þessu unga fólki tækifæri til að sýna hvað í þeim býr án fordóma.  Þar er fyrst og fremst að eiga við yfirvöld sem eiga að vernda þau, en draga þau niður á lægsta plan í sínum fordómum og asnaskap.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.10.2013 kl. 23:09

6 identicon

Yndislegt að þú skulir hafa fundið þetta bréf akkúrat núna. Þér hefur örugglega verið stýrt að því og þar hafa verið sonur þinn og fyrrverandi kona hans að verki, því vil ég trúa.

Það er alveg öruggt að það er fylgst með okkur að handan af ástvinum okkar sem farnir eru.

Hafðu það gott Ásthildur mín og passaðu uppá þig og þína <3

Kveðja úr Trékyllisvíkinni.

Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 6.10.2013 kl. 15:38

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jóhanna mín, já ég er alveg viss um að þetta var enginn tilviljun, og að þau voru þarna að verki þessar elskur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.10.2013 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband