21.4.2013 | 10:29
Nýju framboðin.
Það er alveg með ólíkindum að lesa hér pistil eftir pistil, þar sem mörg nýju framboðin eru rökkuð niður, allt týnt til, að sýna þau í eins neikvæðu ljósi og hægt er.
Ég fagna því hve mörg ný framboð hafa litið dagsins ljós. Það sýnir svo ekki verður um villst að almenningur, fólkið í landinu er búið að fá nóg af þeim valdastrúktúr sem verið hefur undanfarna áratugi.
Loksins er komið fram fólk sem vill virkilega breyta þessu valdakerfi sem verið hefur. Og ég fullyrði að öll þessi nýju framboð eru að vinna að því af heilum hug, að laga og betrum bæta ástandið í landinu okkar, enda er þetta flest venjulegt fólk almennir borgarar sem hafa fengið nóg af meðhöndlunina á almenningi landsins.
Þó þau hafi ekki borið gæfu til að leiða saman hesta sína, þá eru þau að reyna hvert á sinn máta að fá fram breytingar.
Allur þessi fjöldi framboða sýnir einfaldlega að það er þörf fyrir breytingar í þjóðfélaginu. Þarna eru einstaklingar flestir bara eins og ég og þú, sem vilja breyta, en það er erfitt, því þeir flokkar sem lengst hafa setið að völdum kæra sig ekkert um breytingar, fólkið þar innanborðs er ágætis fólk eins og allir, en þau eru löngu hætt að hugsa sem einstaklingar, þau eru löngu farin að hugsa sem flokkur sem þarf að vinna að, að halda völdum, um það geta þeir sameinast með því að reyna að þegja ný framboð í hel. Og það hefur tekist ansi vel lengi, þangað til núna, því fjölmiðlar hafa ekki getað hunsað allt það sem er að gerast. Og ég verð að segja að til dæmis ríkisútvarpið hefur staðið sig vel á margan hátt að kynna framboðin.
Vinnufundur hjá Dögun 13. mars s.l.
Hvað varðar upphaf flestra framboðanna, þá er ég hér með tölvupósta um hvernig svokölluð Breiðfylking var byrjuð að vinna fyrir rúmu ári síðan og reyndi að fá alla aðra með sér:
Þetta bréf var sent m.a. Birgittu Jónsdóttur, Margréti Tryggva, Þór Saari, Lýð Árnasyni, Þorvaldi Gylfasyni, Helgu Þórðar, Sigurjóni Þórðarssyni og mörgum fleiri.
Frá skipuleggjendum:
Við erum sammála um að skipulag breiðfylkingarinnar grundvallist á
opnum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Við erum sammála um að sérstakur málefnahópur útfæri reglur og skipulag og hafi þar, meðal annars, tillögur Öldu, félags um sjálfbærni og lýðræði, til hliðsjónar. Lögð
er áhersla á mikla vald- og verkefnadreifingu, höfnun
leiðtogastjórnmála, mikið vægi málefnahópa og fleira
Stofnfundur:
Við erum sammála um að stofnfundur verði haldinn sem fyrst og um að
bjóða til þátttöku öllum þeim sem fallast á ofangreindan stefnuramma,
með fyrirvara um nánari útfærslu málaflokka innan hans og annarra
stefnumála af hálfu málefnahópa sem komið verði á legg hið allra
fyrsta.
Og svo hér:
Líta verður svo á að dyrnar hafi verið opnaðar fyrir það, að mótívera
félagsmenn einstakra félaga og aðra áhugasama einstaklinga til að mæta
til leiks, þ.e. innbyrðis hvatningar, en ekki er hugmyndin að efna til
fjölmiðla-umfjöllunar fyrr en eftir fyrri stofnfund.
Af þessu sést að Breyðfylkingin sem varð að lokum Dögun, reyndi að fá sem flesta að borðinu. Nokkrir unnu áfram með okkur, en það var ljóst nokkuð snemma að Birgitta hafði áhuga á að vinna að Pírataverkefninu sínu. Hún var alveg hrein og bein með það.
Ýmislegt varð svo til að aðrir helltust úr lestinni, Lýður og Þorvaldur vildu ekki afnema verðtrygginguna, og voru líka ósammála því að það væru málefnin sem skiptu mestu máli, þeir vildu leggja meiri áherslu á frambjóðendur. Það var líka þeirra lýðræðislega ákvörðun. Ég veit að það var rætt við Séra Sigurð, á meðan á þessu ferli stóð, veit ég að það var margrætt við Lilju Mósesdóttur, það sagði mér vinur minn sem hafði sjálfur rætt við hana, en það gekk ekki heldur. Og algjörlega ekkert við því að segja.
Ég held að forsvarsmenn Dögunar hafi rætt við allflest nýju framboðin þegar þau
voru að koma fram, en svona er þetta bara. Málið er að við nýju framboðin, erum ekki að rakka hvort annað niður, í því skítkasti standa aðrir. Fólk sem ekki hefur fundið sig þarna neinstaðar og er í einhverri afneitun sem er sorgleg. Og alltaf eru einhverjir til að taka undir svona neikvæðni því miður.
Frá þorrablóti hjá Frjálslynda flokknum, en við kjarninn í honum höfum haldið saman, og erum góðir vinir og félagar, þó flokkurinn okkar hafi orðið undir í baráttunni, þá lifir eldurinn áfram í Dögun.
Eftir tæpa viku göngum við til kosninga. Atkvæðaréttur okkar er einn af hornsteinum lýðræðisins okkur ber að nýta hann skynsamlega og vel. Til að lýðræðisþróun geti vaxið og dafnað hjá okkar litlu þjóð, þá verðum við að hugsa vel um hvernig samfélag við viljum sjá í framtíðinni. Viljum við gleypa sömu gömlu frasana frá fjórflokknum? Þeir hafa fengið áratugi til að sanna sig, og það hefur sáralítið þokast í átt til betra lífs fyrir okkur almenna borgara, eða ætlum við að þora að leggja nýjum framboðum lið. Það er nefnilega bara vitleysa að við séum að kasta atkvæði okkar á glæ með því að kjósa þá sem við helst viljum sá. Ef allir gerðu það, þá gætu úrslitinn orðið allt öðru vísi en nú lítur út fyrir.
Það þarf ákveðin kjark til að breyta og hugsa málin upp á nýtt, en ég held að það þurfi ennþá meiri kjark til að viðhalda þessu ástandi óbreyttu og láta endalaust ljúga að okkur í kosningaloforðum sem standast svo enga skoðun þegar að er gáð.
Við skulum þora að kjósa með hjartanu þann 27. apríl n.k. Og hugsa frekar um hvað vil ég fá að sjá, frekar en hverjir lofa mestu.
Eigið góðan dag elskurnar, hér er sól og yndislegt veður.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 2022149
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er sammála þér Ásthildur varðandi þessa neikvæðni, mér finnst þetta fáránleg leið til þess að "berjast" í þessu kosningastríði sem þetta virðist vera orðið. Þetta verður þannig að maður fær alveg ógeð á því að lesa sumar greinarnar, þó svo að annað sé málefnalegra.
Mér finnst sjálfri að það hefði verið miklu sterkara fyrir vinstri flokkana að halda saman eins og þú lýsir hér að ofan að hafi verið reynt, ég held því miður að það að það eru svo margir flokkar verði ekki til að styrkja stöðu þeirra gagnvart stærri flokkunum.
Mér finnst sjálfri að það sé verið að vinna gott starf í landinu þó svo að margt megi breytast líka. 4 ár eru að mínu mati of lítill tími til að gera það sem svona flokkasamstarf þarf til þess að klára málin almennilega.
Annars er reyndar skoðun mín að þó stjórnmál verði alltaf til þá eigi að ráða faglega í stöður þær sem þarf að fylla til að stjórna landinu. Mér finnst pólitíkin vera búin að eitra þetta góða land og þjóð og búa til sjálfeyðandi andrúmsloft sem er ekki til þess fallið að gera okkur sterkari sem einingu.
Maður sá þetta afar vel við að búa í litlu bæjarfélagi og mörg mál sem hefði átt að vera einfalt að klára urðu að pólítísku bitbeini sem leiddi til þess að þau fengu ekki almennilega afgreiðslu og bæjarfélagið þjáðist fyrir vikið.
Annars vil ég segja að margt af því sem þið eruð að gera er mjög gott og ég er sammála mörgu hjá þínum flokki. Og takk fyrir jákvæða afstöðu og uppbyggilega umræðu í stað þess að rífa niður endalaust.
Hulda Þórey Garðarsdóttir, 21.4.2013 kl. 13:08
Takk Hulda mín. Já ég er alveg sammála því að það þarf að ráða faglega í til dæmis ráðherrastöður, þangar ratar oft fólk sem hefur ekki nægilega þekkingu á verkefninu og jafnvel veit ekki betur, þó það hafi ráðgjafa, sem oftar en ekki eru heldur ekki starfinu vaxnir, því þeir eru líka pólitískt ráðnir.
Það þarf allavega eitthvað að breytast svo við getum gengið hnarrreist fram á veginn og staðið betur saman sem þjóð. Þar þarf fyrst og fremst traust, heiðarleika og sanngirni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.4.2013 kl. 13:41
Einhver brögð eru að því að tapsárir einstaklingar sem ekki náðu hljómgrunni í eigin fjórflokki fari í nýtt framboð. Píratar eru samt raunveruleg nýjung og Alþýðuflokkurinn gamli virðist afturgenginn með sama listabókstaf og þá er sameiningarferlið á vinstrivæng komið í hring, enda rökrænt að hafa einn vinstri miðjuflokk og einn vinstriflokk. Samfylkingin er þá að missa réttlætinguna enda þá "sameining um hvað?" eðlileg spurning.
Píratar virðast boða svissnesk stjórnmál, með hjálp internetsins. Þá væri hægt að kjósa án mikils kostnaðar og nota rafrænar undirskriftir eins og gert er með skattskýrslunni. Það myndi þá hafa áhrif á stjórnarskrá, ef þær hugmyndir kæmust að í framtíðinni. Stjórnarskráendurskoðun er til bóta, en varla réttlæting fyrir nýjum flokki og hrunið stafaði af lélegri löggjöf og lélegri framkvæmt laga, sem fjölluðu um viðskipti. Með núverandi reglum, sem eru að stofni til ESB reglur, er nýtt hrun á leiðinni, ásamt spillingu og sjálftöku af almannafé, með beinum eða óbeinum hætti.
Sigurður Gunnarsson, 21.4.2013 kl. 17:05
Sæl mín kæra.
Mikið var gaman að fá þig í heimsókn í dag á bloggið mitt.
Þetta er vægast sagt skondið. Nú tölum við bloggvinirnir algerlega í kross í pólitíkinni og allt í góðu með það.
Merkilegra er, að í dag var ég ásamt Línu minni í heimsókn hjá múttu gömlu og þá barst þú til tals. Lína hafði orð á öllum þínum skemmtilegu og fróðlegu skrifunum og óborganlega kósi kúluhúsinu þínu.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Karl Tómasson, 21.4.2013 kl. 20:59
Já, þetta er vondur siður að níða skóinn af náunganum vegna þess að ólíkar stjórnmálaskoðanir skilur fólk að. En hefur þú ekki sjálf verið þátttakandi í þessari neikvæðni, Ásthildur? Ég tek t.d. eftir því hjá sumu mínu vinafólki, að þegar persónuníð beinist t.d. að formanni Sjálfstæðisflokksins, þá er eins og verið sé að ræða um veðrið. Fólk bliknar ekki einu sinni - svo sjálfsagt er það í hugum margra að ræða á þeim nótum um þann flokk og þá sem eiga að leiða hann. Þetta á við um fleira fólk og fleiri flokka.
Ólafur Als, 22.4.2013 kl. 08:13
Sigurður ég er ánægð með það úrval sem fólk hefur í dag. Og menn eiga að kjósa með hjartanu en ekki hræðslu við að atkvæðið þeirra detti niður dautt. Það er bara einfaldlega ekki rétt. Ef margir hugsa á þennan veg þá hefur óréttlætið sigrað. Því það er nú einu sinni svo að skoðanakannanir eru ekki alltaf áreiðanlegar og stundum hreinlega skoðanamyndandi því miður, því það er fullt af fólki sem vill bara fylgja "sigurvegaranum" en gleymir að spá í afleiðingarnar.
Þú segir að ný stjórnarskrá sé til bóta en varla tilefni til að stofna nýjan flokk um, það má alveg vera rétt. En lýðræðið er nú einu sinni þannig. Við hjá Dögun leggjum mikla áherslu á skuldavanda heimilanna, og það er okkar fyrsta mál í kjarnastefnunni. Við höfum auk þess marga forystumenn úr HH og slíkum samtökum innan okkar raða, sem hafa lengi barist fyrir því réttlætismáli, einnig viljum við afnema verðtrygginguna, það var eitthvað sem lýðræðisvaktinn vill ekki, og því skyldu þær leiðir, Píratar hafa það líka á sinni dagskrá minnir mig.
Karl, takk fyrir þessi hlýju orð. Já það er bara einhvernveginn þannig með fullt af fólki sem ég hef lært að þykja vænt um að stefnur og skoðanir hafa ekkert með það að gera
Ólafur ekki ætla ég að þræta fyrir að ég hafi misst mig, en það er venjulega af því að það er einhver grundvöllur til staðar, eins og að mér hefur fundist fólk svíkja land og þjóð, þannig hef ég stundum skammast í Jóhönnu og Steingrími, ég hef líka rætt um Bjarna Benediktsson eins og til dæmis þegar hann viðhafði sitt ískalda mat á Icesave. Ég er ekki að tala um gagnrýni, ég er að tala um tilhæfulausar ásakanir um meintan illvilja, sem er allt annar hlutur.
Eftir því sem þú talar þá má enginn segja neitt, af því að sá hinn sami hafi sjálfur sagt eitthvað álíka. Svona einfalt er lífið bara ekki því miður.
Takk öll fyrir innlitið og eigið góðan dag.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2013 kl. 09:15
Ásthildur, varstu ekki að tala um róg - eða öllu heldur að allt sé tínt til til þess að sýna þau í neikvæðu ljósi? Ef við sleppum níðinu og rógnum er af nægu öðru að taka sem varðar pólitíkina. Svona einfalt er það nú í mínum huga.
Ólafur Als, 22.4.2013 kl. 09:33
Já Ólafur, rógur er ekki það sama og að týna til það sem hægt er að sýna í neikvæðu ljósi. Rógur hefur ekki neina undirstöðu bara tilbúning um ÆTLAÐAR GJÖRÐIR. Að gefnu tilefni tal er ekki sama og rógur. Þannig er það bara. Og ég held að það sé ekkert einfalt í pólitík því miður.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2013 kl. 09:43
Áshildur mín. Það sem ég er enn að velta fyrir mér er, hverjum af nýju framboðunum er best treystandi, og á hverju traust mitt byggist.
Landsbankinn auglýsti fyrir hrun:
"Eyddu í sparnað"!
Það hjálpar mér mikið í útilokunar-aðferðinni að muna eftir þessari auglýsingu fram að hruni, og fram af hrun-bjargbrúninni!
Sá sem kýs Sjálfstæðisflokkinn og hans systur/dótturflokka, hefur misst minnið og orðið fyrir alvarlegri kúgun og/eða heilastarfsemi-árás!
Nú þurfum við öll að fá upplýsingar um það hvaða flokkar eru viðhengi og afleggjarar?
Ég hætti aldrei að gagnrýna, og ég gagnrýni til að rýna til gagns, en ekki til að rífa niður það sem gott er. Réttlát og sanngjörn gagnrýni gerir engum neitt nema gott. Vinur er sá er til vamms segir.
Það er ekki auðvelt að sjá í gegnum RÚV-klíkufjölmiðla-framkölluðu þokuna. Þess vegna verðum við öll að vera vel vakandi og á varðbergi, alltaf.
Lýðræði og réttlæti fæst aldrei án heiðarlegrar og óeigingjarnar baráttu kjarkmikils hugsjónafólks.
Ég ætla ekki að kenna öðrum en mér sjálfri og RÚV-hirðfífla-fjölmiðlinum um, ef ég hef ekki staðið mig í gagnrýninni. Siðferðisleg sjálfsábyrgð, er orð sem mætti nota meira á Íslandi, heldur en gert hefur verið hingað til. Það er ekki alltaf allt hinum að kenna, heldur okkar eigin meðvirkni, óheiðarleika, blindni og trúgirni að kenna.
Kjósendur eru sjálfir ábyrgir fyrir sínum gjörðum í kosninga-klefanum, og afleiðingum kosninga-gjörða sinna eftir kosningar!!!
Ef fólk kýs fjölmiðla-banka-glæpaklíku, þá fær það fjölmiðla-banka-glæpastjórn!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.4.2013 kl. 12:13
Þetta er alveg hárrétt hjá þér Anna Sigríður mín, og síðasta setningin er bæði ógnvekjandi en samt svo sönn, við fáum yfir okkur það sem við kjósum okkur næst komandi laugardag.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2013 kl. 13:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.