Á páskum er alltaf fjör á Ísafirði.

Ég ætlaði aðeins að ræða um páskana. Hér var margt um manninn.  Það var sannarlega gleðilegt að fá Bjössa og Marijönu í heimsókn með drengina Arnar Milos og Davíð Elías, sannkallaðir gullmolar báðir tveir. Rosemary vinkona mín dvaldi hér líkaHún var að selja fallega muni frá Kenýa, þar sem þau hjónin eru að byggja skóla, búin að opna leikskóla og stefna bæði að framhaldsskóla og heilbrigðismiðstöð. Þau uxu bæði upp í örbyrgð í Nairobi og þekkja vel til vandans sem þar er  verið að glíma við.  Þau þekkja líka vel til erfiðleika fólks til að komast hingað og fá dvalarleyfi.  Svo sannarlega er það að auðga mannlífi hér að fá svona  yndislegt fólk til okkar, við verðum bara ríkari af mannkostum.

Fyrrverandi tengdadóttir mín kom líka í heimsókn með nýja kærastan, það vill svo einkennilega til að hann er fæddur nákvæmlega sama dag og Júlli minn.  Skemmtileg tilviljun. 

Vinkona mín sem ég kynntist núna í baráttunni í Dögun, sem leiðir listann hér fyrir vestan Guðrún Dadda kom hér við og ég bauð henni og fjölskyldunni í mat.  Svo það má segja að kúlan hafi iðað af lífi yfir páskana, enda eru við staðsett rétt hjá Aldrei fór ég suður, það er bara svona fimm mínútna gangur þangað.

IMG_9849

Bjössi með Davíð Elías.

IMG_9854

Rosemary á góðri stund.

IMG_9858

Smá grín í gangi hjá fjölskyldunni LoL

IMG_9860

Það var oft þröngt setinn bekkurinn í eldhúsinu og margt spjallað.

IMG_9863

Skemmtileg mynd, Arnar er alveg þrælklár á allt sem hann tekur sér fyrir hendur, og fljótur að finna út úr erfiðustu leikjum, hinn lætur sér nægja að horfa á Latabæ. Heart

IMG_9864

Sigga mín og Alli að hlýja sér frá Aldrei fór ég suður tónleikunum.

IMG_9867

Stelpurnar voru duglegar í eldhúsinu.

IMG_9868

Svona eins og gengur og strákarnir spjölluðu um heima og geyma hehehe..

IMG_9869

Prinsessan hennar Döddu, svo flott.

IMG_9872

Sigurjón og vinur hans, þeim líkar vel við hvorn annan.

IMG_9875

Stelpurnar mínar í eldhúsinu, önnur frá Kenýa og hin frá Serbíu/Króatíu, svo frábærar báðar tvær.

IMG_9877

Maturinn smakkaðist vel, það komu fleiri en við var búist svo það var bara útbúin súpa í snatri, ekkert mál. Það er bara svo gaman að fá fólkið manns í heimsókn.

IMG_9878

Já hvað er skemmtilegra en að hafa gott fólk í kring um sig. Vini og vandamenn?

IMG_9880

Hér sjáum við Rosemary og fallegu munina sem hún er að selja til að safna fyrir skólum í Kenýja.

IMG_9882

Það er svo margt fallegt þarna, hér eru skrín úr sápusteini, algjörlega tilvaldar fermingargjafir fyrir stúlkur sem skartgripaskrín.

IMG_9883

FLottar skálar ýmist úr steini eða timbri með þessum fallega máluðu listaverkum í, allt unnið af ekkjum í Kenýja sem eru að njóta góðs af starfssemi Pauls og Rosemary.

IMG_9886

En Dadda blessunin og hennar fjölskylda var hér um páskana til að hitta fólk og við höfðum svo súpufund í Edinborg, hittumst og ræddum málin hér er hann Arngrímur, einn af víkingunum sem hefur unnið við Ósvör og er glæsilegur með sitt skegg.

IMG_9888

Rútan var með í för, og elsku karlinn hann Friggi Jóh, sem ekur rútunni hvert á land sem er.

IMG_9891

En svo var kominn tími til að bjóða minni góðu El Salvador fjölskyldu í mat. Það var á laugardaginn.

IMG_9896

Þau vaxa svo fljótt þessar elskur, litlu börnin eiga stutt í að verða táningar.

IMG_9898

Bjössi er fyrrverandi tengdasonur Pablo og Ísobel, og sá vinskapur helst þrátt fyrir að það samband sé búið. Þetta er bara yndislegt fólk og hefur auðgað íslenskan veruleika.

IMG_9899

Alejandra og Úlfur næstum systkini.

IMG_9901

Fallega Isabel Díaz.

IMG_9902

Og Ísaac Logi svo flott.

IMG_9904

Rosemary og Marijana að skipuleggja flutning á söluvörum Rosemary, þær náðu vel saman.

IMG_9905

Já ég er rík að eiga allt þetta yndislega fólk að, svona fyrir utan nærfjölskylduna systur mínar og bræður. Það er ríkidómur sem aldrei verður frá mannin tekinn, auður sem ryð og mölur fá ekki grandað.

IMG_9936

Afgarnir mínu flottu og elskulegu.

IMG_9938

Og veðrið er áfram yndislegt.

Eigið góðan dag elskurnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir skemmtilega myndasýningu . Þetta er mikið rétt hjá þér, ekkert jafnast á við fólkið okkar, hlutir og peningar fara forgörðum en fólkið og samband við það skiptir mestu. Maður gerir sér æ betur grein fyrir því þegar árin líða

Dísa (IP-tala skráð) 7.4.2013 kl. 21:40

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einmitt elsku Dísa mín, eftir því sem maður eldist því betur gerir maður sér grein fyrir því hvað við eigum sem skiptir máli og það eru ekki peningar, upphefð eða völd.  Það er návkæmlega fjölskyldan, vinirnir og þeir sem í kring um okkur eru dagsdaglega, líka jákvæðnin og umhyggjan sem svo aftur laðar að sér það sem í kring um mann er

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.4.2013 kl. 22:51

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Alltaf jafn gaman að heimsækja síðuna þína

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.4.2013 kl. 01:16

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jóna Kolbrún mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.4.2013 kl. 07:52

5 Smámynd: Kidda

Já, þú ert sko rík :) Alltaf gaman að sjá fólkið þitt <3

Kidda, 8.4.2013 kl. 11:29

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Kidda mín er er svoooo rík

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.4.2013 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 2022152

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband