20.3.2013 | 23:01
Þetta er bara mín sýn á málin.
Lýðræðsvaktin er að skora flott þessa dagana og bara gott mál. En svona blasir þetta víð mér, þó ég ætti ekki að tjá mig um það þannig séð, þegar ég hef ákveðið að fara í framboð fyrir Dögun. En ég hef samt sem áður málfrelsi, þar sem ég tala bara fyrir mig og engan annann. Lýðræðisvaktin reis upp í gegnum stjórnarskrármálið, fyrst í stað vildu sumir þarna fara fram með Dögun, en eftir því sem ég skil það og er þó frekar involveruð í það framboð, þá þóknaðist ekki þeim félögum okkar þau vinnubrögð sem þar voru. Þeir vildu svona frekar fara í menn en ekki málefni. Og það er núna að skila sér stórt í þeirra framboði, sem eru að líta dagsins ljós. Ekki þannig að ég hafi neitt á móti því góða fólki sem þar má sjá á framboðslistum. En svona þar fyrir utan sýnist mér að hér sé framboð fræga fólksins, sem mun væntanlega erfa landið, hversu vel þau skynja almenning í landinu, svona burt séð frá því að vera fræg og vinsæl veit ég ekki. það getur vel verið að þau geti sett sig í spor Jóns og Gunnu og samsamað sig þeirra kjörum. Hvað veit ég.
Ég er búin að brosa smá yfir kandidötum Bjartrar Framtíðar sem flagga elsta og yngsta frambjóðenda á sínum lista, og svona algjörlega gert að flagga flottu og frægu fólki, til að vekja athygli á málstaðnum, sem er reyndar afskaplega bara rétt eins og hjá Samfylkingunni svo ekki sker þar á milli.
Og svo að horfa á það sem er að birtast hjá Lýðræðisvaktinni að gera nákvæmega það sama, nema að flagga ennþá frægara fólki, og enn þá meiri elítu til að fá nautheimskan almenning til að klappa saman lófum og hrópa húrra og amen þá get ég bara ekki þagað. Þetta sem ég segi hér er bara hreint frá mínu brjósti og ég veit að það á ekki al ræða svona mál þegar maður sjálfur er í baráttu, en samt sem áður ég væri ekki sú sem ég er, með kjaftin opin ef ég segði ekki meiningu mína.
Og svo eru öll hin nýju framboðin sem bara vilja leiðrétta mál íslendinga á þeirar forsendum, vilja vinna þjóðinni gagn og vilja breyta málunum, með venjulegu fólki, jóni og gunnu, þó sum þeirra hafi sýnt að þau hafi unnið að þjóðarhag með vinnu á hinum ýmsu verkefnum til þjóðarhags.
Ég segi nú bara mín kæru, hvort viljið þið leggja fjöreggið í hendur fólks sem fer á lista vegna frægðar sinnar, til að tryggja framgang manna eins og Þorvaldar Gylfa og Guðmundar Steingríms, eða spá í framboð eins og til dæmis Dögun eða annara framboða eins og Pírata, humanista, eða bara annara framboða sem eru ekki að flagga stjörnum, þurfa þess ekki því að það eru málefnin sem skipta máli en ekki frægð viðkomandi frambjóðenda.
Viljum við virkilega leggja fjöreggið í hendur þess ágæta fólks sem við elskum til að skemmta okkur, eða viljum við heldur leggja það sama fjöregg í hendur fólks sem hefur í heilt ár unnið að því að skoða og skipuleggja velferð landans í þeim málum sem brenna á? Erum við virkilega svo grunnhygginn að halda að velferð komi með frægðinni einni saman?
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 2022151
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ágæt grein hjá þer vinkona segir margt gott(Kveðja
Haraldur Haraldsson, 20.3.2013 kl. 23:50
Takk fyrir það Haraldur minn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2013 kl. 09:31
Alveg ljómandi grein og ég get verið sammála um margt, Þorvaldur Gylfa er nú ekki maður að mínu skapi, verð alltaf jafn pirruð að hlusta á hann eins og Jóhönnu og hennr lið. Guðmundur er náttl. í besta falli hlægilegur, skil ekki hvað fólk er að gapa upp í hann. En annars líst mér bara ekki á neitt eins og er.
Ásdís Sigurðardóttir, 21.3.2013 kl. 10:22
Takk Ásdís mín. Það er ennþá tími til að mynda sér skoðun á flokkunum Ásdís mín, það fer að hrúgast inn kynningar á nýjum framboðum, og væntanlega stefnuskrár þeirra. Ég held að þau nýju framboð sem eru að koma fram eins og Dögun, Píratar, Hægri græn Alþýðufylkingin séu heil í því sem þau eru að gera. Alla vega nýju framboðin, er ekki alveg viss með gömlu refina.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2013 kl. 12:21
Já, ég mun skoða þetta vel.
Ásdís Sigurðardóttir, 22.3.2013 kl. 11:58
Það er vegna þess að þú ert skynsöm stúlka Ásdís mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.3.2013 kl. 12:22
Takk maður reynir
Ásdís Sigurðardóttir, 23.3.2013 kl. 14:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.