30.12.2012 | 14:38
Í Austurríki til Danmerkur.
Ferðin mín er ennþá á dagskrá. Við vorum nokkra daga í Osló hjá syni mínum og fjölskyldu.
ég kom með lambalæri að heiman, og það var eldað og etið með ánægju.
Það var líka virkilega gaman að fá þau heim um jólin. Afi saknar hennar sárt, litlu Sólveigar Huldu, en þau voru mestu mátar í Noregi. Hún er líka svo yndæl og skemmtileg, það er líka stóri bróðir Óðinn Freyr.
Og enn einn sonurinn í eldhúsinu.
Litla snúllan hennar ömmu sín
Hún verður einhverntíman leikkona sennilega, því hún hefur ótrúlega mikil svipbrigði sem hún setur upp.
Austurríki heilsaði með snjókomu.
Svona getur það verið.
Og hér er JónElli litli karl með mömmu sinni. Hann er farin að hlaupa út um allt, klifra upp á allt.
Ásthildur og Trölli.
Nú ætlar hún að baka pönnukökur.
Þá þarf að brjóta egg og svoleiðis. Hún er svaka dugleg að baka.
Afi leikur við stubbinn og stelpurnar.
Og svo fór snjórinn.
Prins í höllinni sinni.
Með varðhundinn og köttinn.
Meö ömmu.
Og mömmu.
Já komið þið bara ég er viðbúin!
Og kisurnar á heimilinu láta sig hafa ýmislegt.
Með pabba.
Ásthildarnar tvær.
Og snjórinn kom aftur og þá var gaman að fara úr.
Nammi namm.
Jamm það þarf að smakka allt.
Svo tók afi fram klarinettið.
Það þurfti að prófa það líka.
Hanna Sól er í tónlistaskóla og lærir á píanó, hún er voða dugleg.
Ásthildur á gítar sem hún semur lög á. Sólveig Hulda fékk líka gítar í jólagjöf, hún á örugglega eftir að nota hann vel. Og Evíta semur líka falleg lög og texta.
Þetta heitir örugglega samspil
Og þetta líka.
Hér er verið að búa til pizzur.
Skógarkisa.
Svo voru búnar til jólaseríur úr jógúrtdollum.
Það kom bara ljómandi vel út.
Mest gaman er auðvitað að hafa búið þetta til sjálfur.
Og ánægjan sýnir sig.
Svo eru kanínur á heimilinu, En þær verða að vera frammi í garðhýsinu.
Þessi ungi maður er að vinna hjá Bjarka, Steinn heitir hann afskaplega ljúfur og góður drengur.
En allt tekur enda og við erum hér komin til Kaupmannahafnar, þar var bara snjókoma og leiðinda veður.
Við gistum í miðbænum og fórum í Tívolí, en meira um það síðar.
Eigið góðan dag elskurnar, ég vona svo sannarlega að ég fái að fara heim í dag.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 5
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 2022157
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið ertu dugleg að ferðast,þetta segi ég af því ég er það ekki,nema hér er það ansi þægilegt.Þau blómstra litlu börnin og alltaf eitthvað að starfa. Velti fyrir mér hve marga við fáum aftur heim,af þeim sem leituðu eftir vinnu annarsstaðar. Mb.Kv.
Helga Kristjánsdóttir, 30.12.2012 kl. 15:24
Takk Helga mín, já það er spurning hversu margir snúa aftur. Það ræðst alfarið af því hvort okkur tekst að reka af höndum okkar fjórflokkinn og spillinguna. Hvort við höfum kjark til að breyta til og fá inn nýtt fólk, sem vill breyta stjórnmálunum. En jafnvel nýju flokkarnir sumir hverjir eru að gogga hvor í annan það finnst mér afar sorglegt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.12.2012 kl. 16:47
Vá, hvað þau eru fljót að vaxa og þroskast börnin . Það er gott að ylja sér við þessar myndir og minningar í því sem á hefur gengið hjá ykkur undanfarið. Vonandi farið þið að komast heim og slaka á. Það er alltaf best að vera heima, í sínu, sérstaklega þegar það er ekki eigin val að fara. Knús.
Dísa (IP-tala skráð) 31.12.2012 kl. 10:49
Ómæ, hvað litli Jón Elli er orðinn stór :) Yndislegt að fylgjast með fólkinu þínu.
Vona að þið séuð heima í kúlu núna að undirbúa áramótin.
Knús í kúlu
Kidda, 31.12.2012 kl. 11:05
Yndislegar myndir og mikið gaman að sjá hvað börnin dafna vel. Hjartanskveðja til þín og vonandi ertu komin heim.
Ásdís Sigurðardóttir, 31.12.2012 kl. 11:50
Takk allar, það er ekki svo gott að ég sé komin heim, þá á víst að vera fundur kl. 2 og þá verður endurskoðað hvort rýming verði framlengd. Ég er því ennþá hjá litlu systur og líður þokkalega vel, það er bara þetta að vera ekki heima hjá sér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.12.2012 kl. 13:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.