25.12.2012 | 17:20
Ferðin mín - Austfjorden.
Já þá var ég komin til Inga Þórs míns og fjölskyldunnar þar, þau búa í Austfjordin, sem er nálægt Örsta ekki langt frá Álaborg.
Þetta er Símon Dagur algjör töffari, hér er hann að dansa GangamStyle Wúbb Wúbb....
Yndislegt að hitta þau öll, að vísu var Sóley Ebba ekki heima, en ég hitti öll hin börnin, þau búa í gömlum bóndabæ, bóndinn sjálfur býr í næsta húsi hann er geitabóndi og bæði börnin og Ingi Þór eru dugleg við að hjálpa honum með geiturnar.
Það er svo merkilegt við Evítu Cesil og Ásthildi Cesil að það er svo margt sameiginlegt með þeim, þó þær hafi ekki þekkst nema meðan þær voru ómálga börn, báðar skapmiklar skessur, en svo blíðar og góðar, vilja hels bara vera á naríonum eða þaðan af minna. Hér spilar Evíta á Píanó eins oghún ein kann. hehhe.
Og stubbur gerir allt eins og stóra systir
Kristján Logi er orðin svaka stór og flottur strákur.
Og Aron Máni líka. Þeir eru frábærir báðir tveir. Og eru á Íslandi hjá pabba sínum yfir jólin, svo vonandi koma þeir heimsókn í Kúluna.
Það er ekkert leyndarmál en í þessari fjölskyldu eru það strákarnir sem elda besta matinn. Bjössi, Ingi Þór, Skafti, Júlli minn var líka eðalkokkur og svo Úlfur. Allir elska að elda góðan mat. Hér er verið að elda lærið sem ég druslaði með mér að heiman. En maður á ekki að kaupa lærið í fríhöfninni, þau eru löng og mjó, það er eins og það sé verið að hugsa, útlendingar vita ekki hvernig góð læri eiga að vera og henda ruslinu á völlinn, og svo eru þau þar á ofan helmingi dýrari en í Bónus.
Það er svo notalegt hjá pabba.
En eins og ég sagði þá var Sólveig Hulda mín ekki heima. Hún er frábær listamaður bæði spilar hún á allskonar hljóðfæri, mest á píanó og gítar, hún er líka farin að semja sjálf, reyndar löngu byrjuð á því, því þegar Evíta var skírð þá spilaði hún frumsamið lag á orgelið í gömlu kirkjunni í Unaðstal.
En svo teiknar hún líka svo fallega, hún hefur nú tvö síðastliðin ár tekinað forsíðumyndina á ævintýrabókunum sem ég sem fyrir börnin.
Hér eru líka nokkur sýnishorn.
Hér sjáum við Kurt Cobein
Bob Marley, hugsið ykkur þetta er 15 ára gömul stúlka og eina sem hún hefur lært í teiknun er skrautskrift hjá honum Jens okkar Guði.
Hér er mynd af Júlla mínum, í hans minningu.
Hér er föðurbróðir hennar Sverrir Karl, í hans minningu.
Þú ert svo flott Sóley Ebba mín Mig langaði virkilega að hitta þig.
Það er voða notalegt að kúra hjá pabba sínum.
Flott skotta hún Evíta Cesil.
Svo er líka notalegt að vera með mömmu. Símon á vin sem heitir Carl minnir mig, hann er kring um 12 ára og leikur oft við, Carl hjálpar honum líka oft. En það sér engin Carl nema Símon.
Í sveitinni koma bændur og banka upp á til að selja afurðir sínar.
Í þetta skipti eplabóndi að selja epli og epladjús.
Mamma meiri epladjús!
Strákarnir mínir sá elsti og sá yngsti.
Landslagið er gríðarlega fallegt hér fyrir norðan.
Fjöllin há, Elli var að segja vini sínum frá, hann sagði þeir binda baggana ferkantaða, annar myndur þeir rulla niður fjallið og alveg niður í sjó
Það er snjór á fjallatoppum.
Já hér er virkilega fallegt og þegar maður kemur heim virka háu fjöllin hér svona svipað og Himmelbjerget.
Vestfirðingar kannast vel við svona manngerð göng, en við ökum ekki lengur um þau, þar sem Óshlíðinn er ekki farin lengur. Annars er vegagerð hér svona frekar á eftir. Þó eru þeir mikið í gagnagerðum, hér hafa verið byggð 6 ný göng frá því ég var hér síðast og stóru göngin á leiðinni þau eru um 6 km löng og færa Austfjorden töluvert nær Örsta. En svo eru byggðar brýr og ferjur, mig minnir að það þurfi að fara í tvær ferjur til að komast til Ålesund og ótal göng á leiðinni og brýr. En flestir vegir eru frekar þröngir og krókóttir og ökuhraði um 60 km.
En mikið var gaman að koma og hitta blessuð barnabörnin mín.
Flestir norðmenn eiga skútur eða annarskonar fleytur, þeir eru miklir veiðimenn, og börnin eru ekki gömul þegar þau fá veiðihníf í beltið.
Svo var þessi allof stutta heimsókn á enda, og Ingi minn skutlaði mér á flugvöllinn. Hér þarf að fara gegnum öryggishlið í innanlandsflugi.
Gleðipinnar. En þar sem ég sat á flugvellinum og beið eftir flugvélinni tók ég eftir því að enginn karlmaður komst gegnum leitarhliðið nema að taka af sér beltið. Og allir karlmenn eru jú með belti. Svo ég var að hugsa hvort tæknin ætti ekki að koma hér að og spara þessar beltislosanir. Eða hanna belti sem fara gegnum leitarhlið. En svo var kveðjustund og þá að koma sér upp í flugvélina og fljúga til Oslóar.
Flogið yfir Örsta. Flogið í faðm fjölskyldunnar í Osló.
Þar var svo stoppað í tvo daga, síðan í átt að Austurríki.
Eigið góðan dag og gleðilegan jóladag.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 7
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 2022159
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðileg jól og takk fyrir skemmtilega frásögn og myndir. Alltaf gaman að fylgjast með fjölskyldunni þinni . Talandi um fjölskyldu, ég átti að skila kærri kveðju og þökk fyrir sendinguna. Ég tók kortið af og stakk henni undir allt við jólatréð og af því hún er minnst og spenntust, las hún á pakkana og afhenti og þegar líða tók á spurði hún, hver á þennan ómerkta pakka. Ég sagði henni að geyma hann þar til síðast og þegar hún tók upp þann síðasta á undan sagði hún "ég veit að hann er til mín og þetta er nýjasta bókin hennar Íju". Það sem eftir var kvölds var hún að spá í hvað hún væri heppin og að þú værir sko líka vinkona sín. Svo þú ert sko enn á toppnum og það gleymist sko ekki á næstunni að hún var sett á sama þrep og uppáhalds söguhetjurnar hennar og fékk bókina strax .
Dísa (IP-tala skráð) 25.12.2012 kl. 22:16
Dísa mín mikið er gaman að lesa þetta, knúsaðu hana frá mér, þetta er bara eitthvað svo gefandi og fallegt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2012 kl. 01:40
Gleðileg jól. Ég er ekki frá því að þær Evita Cesil og Ásthildur Cesil séu líka mjög áþekkar i útliti :)
Hrönn Sigurðardóttir, 26.12.2012 kl. 08:23
Já Hrönn mín þær eru ekki bara líkar í útliti, heldur skapferli og svo mörgu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2012 kl. 11:52
Gleðileg jól elsku Ásthildur mín og takk fyrir þetta
Jónína Dúadóttir, 26.12.2012 kl. 20:28
Mín er ánægjan svo sannarlega Jónína mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2012 kl. 22:30
Takk kærlega kæra vinkona, alltaf jafn gaman, ég er viss um að ef ég mundi mæta einhverju af fólkinu þínu út á götu þá mundi ég rjúka á þau og faðma þau, finnst ég eiga orðið pínu í þeim
Ásdís Sigurðardóttir, 27.12.2012 kl. 13:04
Já Ásdís mín, ég held að það sé alveg rétt hjá þér að bloggvinir mínir eiga alveg heilmikið í fjölskyldunni minni. Yndisleglt að vita það
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2012 kl. 13:58
Alveg rétt sem Ásdís segir, við eigum pínu í þínu fólki ;) Og þær frænkur og nöfnur eru svo sannarlega líkar.
Hlakka til að sjá meira af fjölskyldunni <3
Knús í kúlu
Kidda, 28.12.2012 kl. 10:57
ekkert smá flottar líka þessar teikningar, hvað er þetta gömul manneskja sem teiknar?
Ásdís Sigurðardóttir, 28.12.2012 kl. 11:52
Hún er fimmtán ára þessi elska.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.12.2012 kl. 12:05
Algjör snillingur segi ég nú bara. Vona að allt fari vel í vonda veðrinu hjá ykkur elskan mín, hugsa til ykkar
Ásdís Sigurðardóttir, 28.12.2012 kl. 13:12
Já okkur líður vel, að vísu rekin út úr húsinu, en við erum hjá systur minni í næsta húsi, svo það væsir ekki um okkur á þessum síðustu og verstu tímum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.12.2012 kl. 18:27
Megið þið ekki vera heima út af snjóflóðahættu? æ æ vonandi fer nú allt vel allsstaðar.
Ásdís Sigurðardóttir, 28.12.2012 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.