Jólakveðja til ykkar allra.

Kæru vinir, vandamenn og bloggvinir, ég vil senda ykkur öllum bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár.  Og þakka innilega fyrir góð samskipti, samskipti sem ég hef lært mikið af og glaðst yfir. 

Það er ómetanlegt að eignast svona marga vini og taka þátt í uppbyggilegum samræðum, skiptast á skoðunum við fólk sem maður hefur jafnvel aldrei séð, en finnst þekka alveg í gegn.

IMG_1260

Kúlan mín.

1-001

Jólabörnin mín, myndin annars tekin í Tívólíinu í Kaupmannahöfn.

Fékk svo fallega kveðju frá Hegranesgoðanum og læt hana fylgja hér með.

Gleðileg jól
Íslendingar hafa haldið jólin hátíðleg frá því að land byggðist. Eflaust hefur rauði þráðurinn í hátíð ljóssins verið sá sami frá upphafi þ.e. að fagna birtunni og þeim góðu gjöfum sem almættið gefur okkur mönnunum. Vissulega hafa siðir og formerki jólanna breyst í aldanna rás, en fögnuðurinn er sá sami og verður á meðan jörð hverfist um sólu.
Rætur jólanna liggja djúpum rótum í sið vorra Norrænna manna, en engu að síður hafa straumar og lífssýn seytlast í þúsundir ára á milli menningarheima, en þó ekki með þeim hraða og straumi sem fylgir netvæddum nútímanum. Sumir sjá skýra hliðstæðu í hinum góða ási Baldri hinum hvíta og frelsaranum frá Nasaret. Augljós eru áhrifin í hina áttina þ.e. áhrif Rómverja, sem ástunduðu keimlík trúarbrögð og vor siður er, á kristnina, sem tók sín bernskuspor í ríki Rómar. Skýrasta birtingarmynd áhrifanna er í sjálfu jólahaldinu, sem heiðrað var með því að gera hátíðina sömuleiðis að fæðingarhátíð frelsarans.
Á þarsíðustu öld varð jólatréð liður í jólahaldinu hér á landi og hefur vegur þess farið vaxandi. Það á skýra samsvörun í okkar Norræna sið sem lífsins tré, Askur Yggdrasills. Tréð stendur upp í gegnum heiminn allan og er sameiningartákn lífsins og ólíkra krafta heimsins.
Boðskapur jólanna er nýtt upphaf og tilhlökkun yfir bjartari tíð. Helgisaga jólanna er falleg ástarsaga þeirra Freys og Gerðar Gýmisdóttur. Freyr frjósemisgoð er bróðir Freyju, en þau eru af ætt Vana, en Gerður, sem fegurst er allra kvenna, er af ætt jötna. Með Brúðkaupinu, sem fram fór á jólunum náðist sátt á milli myrkursins og birtunnar, sem tryggði hringrás árstíðanna. Brúðhjónin, sem voru af gjörólíkum uppruna, náðu vel saman og elskuðust á jólunum í níu daga og níu nætur, á meðan á brúðkaupinu stóð.
Það fer því vel á því að gera vel við sig og sína á jólunum í mat og drykk og gleðjast yfir því jákvæða sem tilveran hefur upp á að bjóða. Boð og veisluhöld eru góð leið til þess að koma saman og rækta andann og efla tengslin við frændgarðinn. Að lokum er hér falleg og skýr mynd úr Völuspá, sem segir frá nýju upphafi. Ég óska lesendum ástríkra jóla og birtu og gleði á nýju ári.


Sér hún upp koma


öðru sinni


Jörð úr ægi


iðjagræna;


falla fossar,


flýgur örn yfir,


sá er á fjalli


fiska veiðir.


Sigurjón Þórðarson, Hegranesgoði

Gleðileg jól öll sömul og hjartans þakkir fyrir allt að liðna gamalt og gott.  Heart 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir og sömuleiðis mínar hlýjustu jóla og áramóta kveðjur til þín og þinna Ásthildur. Takk fyrir ánægju- og vinsamleg samskipti á árinu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 24.12.2012 kl. 14:16

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gleðileg jól mín kæra vinkona og kveðja á Ella og Úlfinn, hafið það sem allra best.  Takk fyrir yndisleg samskipti.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.12.2012 kl. 14:23

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Kæra Ásthildur, ég sendi einnig bestu jólakveðjur til þín og fjölskyldunnar þinnar sem þú hefur leyft okkur bloggvinum að kynnast með myndunum þínum.

Kolbrún Hilmars, 24.12.2012 kl. 15:01

4 Smámynd: hilmar  jónsson

Gleðileg jól og segi eins og Axel, takk fyrir netsamskiptin á árinu. Megi hið nýja verða gott og okkur farsællt.

hilmar jónsson, 24.12.2012 kl. 15:16

5 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Gleðileg Hátíð og megi Guð blessa þig og Fjölskyldu þína..

Vilhjálmur Stefánsson, 24.12.2012 kl. 15:24

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hjartans þakkir öll og GLEÐILEG JÓL, FARSÆLT KOMANDI ÁR.  Megi allar góðar vættir vaka með ykkur öllum og vernda.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.12.2012 kl. 15:45

7 identicon

Takk fyrir Ásthildur öll netsamskiptin. Segi bara eins og þú, manni finnst maður þekkja viðkomandi eftir öll þessi blogg. Hafðu það sem allra best og gott um jólin. Óska þér gleðilegra jóla og farsæls nýs bloggárs.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 24.12.2012 kl. 17:31

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sömuleiðis Sigurður minn, innilega takk fyrir öll þessi góðu samskipti. Megir þú eiga góða og gæfuríka framtíð, hve lengi sem hún verður rétt eins og hjá mér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.12.2012 kl. 19:17

9 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Gleðileg jól, farsælt nýtt ár með þökk fyrir vinsamleg, skemmtileg og uppbyggileg samskipti á blogginu.

Axel Jóhann Axelsson, 24.12.2012 kl. 23:12

10 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Gleðilega jólahátíð, Ásthildur Cesil, og megi árið 2013 verða þér og fjölskyldu þinni gæfuríkt.

Jón Baldur Lorange, 24.12.2012 kl. 23:20

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk kæru vinir, það er alltaf gott að geta skipst á skoðunum og rætt málin, eða bara tekið undir það sem manni finnst satt og rétt. Og málið er að hvort sem menn viðurkenna það eða ekki, þá er netið að breyta heiminum til hins betra. Því allt þessa upp á borðinu er einmitt hér. Þar kemur svo margt upp á borðið sem pólitíkusar vilja reyndar að fari leynt. Því skulum við halda vöku okkar og benda á það sem miður má fara, svo sannarlega okkur öllum til hagsbóta, meira en við getum ímyndað okkur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.12.2012 kl. 01:43

12 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gleðieg Jól! Farsælt nýtt ár! Sjáumst aftur á þeim stað sem ég sá þig fyrst kannski í vor.

Helga Kristjánsdóttir, 25.12.2012 kl. 01:44

13 identicon

Gleðileg jól til þín og þinna Ásthildur og takk fyrir pistlana þína. Það hefur verið áhrifaríkt, fróðlegt og skemmtilegt að lesa :)

Kær kveðja úr Trékyllisvíkinni.

Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 25.12.2012 kl. 02:16

14 identicon

Gleðileg jól Ásthildur og aðrir góðir netverjar.

Seiken (IP-tala skráð) 25.12.2012 kl. 07:47

15 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Gleðileg jól kæra vinkona og takk fyrir góð skoðanaskipti

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 25.12.2012 kl. 13:25

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

GLeðilegjól öll sömul og takk fyrir innlitið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.12.2012 kl. 14:01

17 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Takk, takk og jóla jóla til þín!!

Sigurður I B Guðmundsson, 25.12.2012 kl. 15:31

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sömuleiðis Sigurður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.12.2012 kl. 16:14

19 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Gleðileg jól ljúfa yndislega kona.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 26.12.2012 kl. 13:48

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk sömuleiðis Guðsteinn Haukur minn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2012 kl. 14:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2022159

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband