21.12.2012 | 19:44
Heill þér Óðinn, Heill þér Freyja. - Vetrarsólstöður.
Ég lagði leið mína á Silfurtorg í kvöld klukkan sex, þar sem félagar mínir út Ásatrúarfélaginu blótuðu vetrarsólstöðum.
Frá upphafi voru vetrarsólstöður einn af heilögustu tímum ársins, þegar sól byrjar að hækka á lofti. Á þeim tíma var siður að gefa gjafir, vera með sínum nánustu og fagna sólstöðum. Litur Ásatrúar á þessum tíma var grænn og rauður, þeir fluttu inn í hýbýli sín greni eða annað sígrænangróður til að vernda verur, þeir skreyttu með rauðum lit til dæmis eplum.
Það má líka syndga aðeins, eins og að fá sér að reykja áður en athöfn byrjar, þó það sé... já synd eða þannig.
Þessi athöfn var látlaus en samt mikil helgi yfir henni. Helgi landsins, helgi vætta, fánu og flóru og alls þess sem lifir. Hringurinn eini og sanni. Blót til ása og gyðja og landvætta.
Það var nefnilega ekki bara Trölli sem stal jólunum, heldur gerðu hinir kristnu það líka. Til að reyna að fá heiðna menn til fylgilags völdu þeir heilögustu tíma heiðinnar trúar til að vera kristnar og hafa reynt að útmá þá siði sem heiðninni fylgja. Það hefur aldrei heppnast almennilega og nú færist fjör í bæ.
Á þessum sama tíma var blótað víða um land af Ásatrúarfólki.
Verð að viðurkenna af ýmsum ástæðum er ég frekar hrærð á þessum tíma, en það hefur líka haft sín áhrif að ég var inn í kirkjugarði að setja ljósakross á leiði sonar míns. Og hitti aðra móður í svipuðum kringumstæðum. Það á ekkert foreldri að þurfa að grafa börnin sín. við eigum að fá að fara á undan þeim sem við bárum í þennan heim. Það á að vera lögmálið.
Blaðaljósmyndarinn Halldór vinur minn á staðnum. En ég vil láta grafa mig að Ásatrúarsið. Hér gefur Anska fólki piparkökur. Síðan vorum við leyst út með mandarínum að sið Ása að leysa fólk út með gjöfum á þessum tíma.
Þetta var yndisleg stund og háheilög full af kærleika sem nær langt út fyrir mannheima. Svífur yfir allri náttúru landsins og alls þess sem þar býr.
Yndisleg stund og nú fer sól að hækka á lofti, og það er merki kærleikans og ljóssins fyrir okkur öll.
Mig langar að fá mér svona flottan búning, því hann er svo vel við hæfi. Ég var aftur á móti með jólasveinahúfu... eða þannig.
Goðin okkar hún Laufey og Annska báru hitan og þungan af þessari fallegu athöfn. Heill þér Óðinn, heill þér Freyja, heill þér Freyr. Heill öllum ásum og ásynjum, gyðjum og öðrum vættum, heill landi voru og þjóð og heill öllu því sem lifir, heill þér sól og heill þér máni.
Athöfnin endað svo á því að lesið var upp úr Hávamálum, enda eru þau ríkulega notuð í þeirri trú sem kallast Ásatrú, en er í raun og veru trú á allt það góða, bjarta og fallega sem er með umburðarlyndi til allra að leiðarljósi.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 9
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 2022161
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ásthildur. Gaman að heyra og sjá frá þessu.
Valdimar Samúelsson, 21.12.2012 kl. 20:54
Takk fyrir Valdimar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.12.2012 kl. 21:11
Gaman að sjá þetta.
Ég ætlaði í Öskjuhlíðina í dag en hafði hreinlega ekki efni á því.
Jack Daniel's, 21.12.2012 kl. 21:52
Keli þetta var frábær friðarstund með góðu fólki. Slæmt að þú skyldir ekki hafa efni á að njóta þess.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.12.2012 kl. 00:39
Held að ég sé að hluta til ásatrúar ;) ásamt ýmsum fleirum trúarbrögðum :)
Kidda, 22.12.2012 kl. 10:01
cool
Tollstjóri, 22.12.2012 kl. 10:07
Já það heitir víðsýni Kidda mín
Takk fyrir innlitið Tollstjóri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.12.2012 kl. 11:19
Þetta hefur greinilega verið frábær stund, besti dagurinn finnst mér alltaf.
Ásdís Sigurðardóttir, 22.12.2012 kl. 11:51
Já og við skulum ekki gleyma þætti Skírnis og jötuneyarinnar fögru, Gerðar Gyminsdóttur, sem naut ásta með Frey í níu daga og níu nætur undir feldi til þess að innsigla jólin og tryggja snúning jarðar um sólu.
Gleðileg jól Ásthildur mín.
Sigurður Þórðarson, 22.12.2012 kl. 14:33
Já þetta var frábær stund Ásdís mín.
Nei við skulum ekki gleyma því að Skýrnir fór og sótti meyjuna fyrir Frey, sem var veikur af ást.
Ævintýri sem er ekkert verra en ævintýrið í stóru Bbókinni.
Gleðileg jól til þín líka Siggi minn. knús.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.12.2012 kl. 18:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.