Fljótavík - ferðalok.

Hér er þvílík blíða, það rigndi í gær mikið en var komin sól og blíða aftur í dag. Það hentar mér vel því ég er að þvo af kappi eftir ferðalagið okkar. Og þurrkarinn er bilaður svo allt þarf að fara út á snúru. Ekki það að ég þurrka alltaf allt úti þegar það er hægt. Það kemur svo góð lykt í þvottinn.

77-IMG_4595

Villibörn..

78-IMG_4597

Gott að hafa slönguna þarna, en svo er auðvitað hægt að fara í sturtu inni ef manni er kalt.

79-IMG_4600

En fyrst þarf að skola sandinn burtu.

80-IMG_4624

Silungur bæði steiktur og grillaður, börnin sáu um grillið en fullorðna fólkið amma um steikinguna inni.

81-IMG_4686

Annað sem börnin elskuðu var hvönnin, hún var bæði skjól, bardagatæki og felustaður. Hér er ein flugvél á einum af þremur flugvöllum í Fljótavík.

82-IMG_4687

Og hvönnin er risavaxin eins og sjá má.

83-IMG_4693

Sullum bull....

84-IMG_4694

Þó maður sé bara fjögurra ára má maður sulla alveg sjálfur.

85-IMG_4695

Svo má veiða seiði en það þarf að skila þeim aftur. Því við viljum hafa silung áfram. Hér er komið eitthvert óargadýr sem leggst á seiðin flundra, einskonar koli, sem er nýr hér á svæðinu og ekki vinsæll.

86-IMG_4698

Svo er tuskast eins og gengur en allt í góðu.

87-IMG_4700

Þarna sést í sumarbústaðinn hennar Boggu Fljótavíkurmóru, hún er hér allt sumarið og passar upp á að allt sé samkvæmt reglum. Ómissandi þessi elska.

88-IMG_4703

Á góðri stund.

89-IMG_4711

Systkinin í eltingarleik.

90-IMG_4712-001

Gaman gaman...

91-IMG_4715

Já það má nota hvönnina í ýmislegt.

92-IMG_4718

Heart

93-IMG_4721

Strandaflug stendur fyrir flutningum til Fljótavíkur og fleiri staða, hér fara Sigga mín og börnin, þau eru á leið til Danmerkur svo þau þurftu að fara aðeins fyrr.

94-IMG_4726

Og dótið flutt á bílnum. Hvalurinn sem við sáum í fyrra er komin langt upp í vatn.

95-IMG_4732

Hér er ég að borða grafsilung Cool

96-IMG_4734

Verið að fara í göngutúr, það er hægt að ganga hér um á alla vegu og afar fallegar gönguleiðir hvert sem farið er. Eins gott að vera vel skóaður, því mýrlendi er hér mikið.

97-IMG_4735

Þessi börn eiga eftir að koma hér oft og mörgum sinnum og þess vegna er mikilvægt að þau læri að umgangast náttúruna og Fljótavíkina af virðingu og trausti.

98-IMG_4737

Yngsti stubburinn undir sér afar vel hér hjá timbrinu, það var spennandi.

99-IMG_4739

Ásthildi fannst það líka gaman.

100-IMG_4751-001

Einn af fáum stöðum sem þessum skæruliða er treyst fyrir hamriLoL

101-IMG_4760

Og þessum líka...

102-IMG_4761-001

Það rigndi einn dag, en það var samt svo hlýtt.

103-IMG_4765

Úlfur er rétt eins og pabbi hans algjör barnagæla, og hefur gott lag á börnunum.

104-IMG_4769

Heart

 105-IMG_4788

Arnar Milos og Davíð Elías eru ekki bara tvítyngdir heldur þrí, því þeir eru íslendingar, króatar og serbar. 

106-IMG_4828

Amma það þarf að flétta hárið mitt á kvöldin svo ég sé ekki alveg eins og villisvín á morgnana segir þessi unga dama og veit alveg hvað hún vill.

107-IMG_4837-001

Þvílík kyrrð og þvílíkur friður. Hér er faðir minn alinn upp, hér var hann til 17 ára aldurs. Við erum öll mótuð af þessu landi frá föður okkar rétt eins og hin frændkyn okkar eru mótuð í sama stein. Við erum hreykin af uppruna okkar.

108-IMG_4839-001

Börnin virðast ekki hafa erft áhugan, en aftur barnabörnin munu bera hefðina áfram.

109-IMG_4844

Læri á grilli og eitt í holu, frábært og ómissandi.

111-IMG_4851

Þarna var notalegt að sitja.

112-IMG_4854

Og lífið gekk sinn yndæla vana gang.

113-IMG_4862

Og það var spjallað um ýmislegt, veiði, flugur, gönguferðir og hvaðeina.

114-IMG_4864-001

Meðan sólin gekk sinn gang.

115-IMG_4866

Meðan hún gekk til viðar á friðsælum stað, sem getur samt verið svo harðneskjulegur á stundum að menn undrast í dag hvernig fólk gat lifað og starfað hér á þessum útkjálka. En ætli þeim hafi liðið nokkuð betur í meira þéttbýli?

116-IMG_4868

Já kyrrð og friður er það fyrsta sem kemur upp í hugann.

117-IMG_4871

Börnin finna þetta líka og elska þennan stað.

118-IMG_4873

Þau munu landið erfa að því er sagt er. Og þess vegna þarf að kenna þeim að umgangast svona stað með tilskiliinni virðingu. Og gæta þess að enginn óprúttinn ættingi selji einhverjum fjárfestum sinn hlut, því við viljum ekki fá neina græðgi hingað.

119-IMG_4877

Hingað eru samt allir velkomnir til að njóta með okkur bara á þann hátt að njóta þess sem þessi paradís hefur upp á að bjóða.

120-IMG_4878

Á svona tímum er það eina sem heyrist er þungt brim niður við ósinn, sem alltaf er og gaggið í tófunni, smá tíst í fugli annars algjör ró.

121-IMG_4882

Ég er afar stolt af því að vera í þeirri aðstöðu að geta boðið börnunum mínum og barnabörnum upp á svona líf. Svo þau kynnist því hvað raunveruleg hamingja er, hún er ekki fólgin í peningum, völdum eða upphefð, hún er nákvæmlega fólgin í því að finna sjálfan sig á svona stað, og læra að meta náttúruna í sinni fegurstu mynd.

122-IMG_4885

Að læra að kynda upp í kamínunni, læra að ganga vel um og passa fötin sín. Finna sig í óbyggðum.

123-IMG_4894

Læra að elska þennan stað.

124-IMG_4904-001

Marijana hnýtti henni þennan krans. Og hún fann orma í fíflunum og ákvað að safna slíkum til að fara með heim og selja í gæludýrabúðina í Austurríki.

126-IMG_4924

Og auðvitað hjálpast allir að.

127-IMG_4926

Hér er verið að skoða flugnabókina af mikilli athygli með Atla frænda.

128-IMG_4934

Alltaf nóg að borða í svona ferðalögum, því börn eru sísvöng í útilegu.

129-IMG_4936

Svo er gaman að lesa líka.

131-IMG_4954

Á svona stöðum eru draugasögur nauðsynlegar, og sérstaklega vinsæl er sagan hans Atla um pitty pittý puff puff.... en amma sagði eitt barnið taktu mynd af geimverunni.

132-IMG_4957-001

Og Atli er bara einn af öfunum, þannig er það bara.

133-IMG_4967-001

Óðinn Freyr kom alla leið frá Noregi til að fara til Fljótavíkur.

135-IMG_4969

Sólbrot.

136-IMG_4973

Og enn sitja þeir "gömlu" á rabbi.

137-IMG_4976

Allt hefur sinn tíma.

138-IMG_4996

139-IMG_5017

Þessar elskur vöskuðu upp í flestum tilfellum.Heart

140-IMG_5018

Kerti og spil kerti og spil.

141-IMG_5019

Og svo þau litlu, mega ekki vera með kerti Heart

142-IMG_5020

En stundum er maður rosa þreyttur og gildir þá einu hvar maður sefur Heart

143-IMG_5039

Afarnir þrír...

144-IMG_5040-001

Það þarf nefnilega að brenna rusli og það er gert síðasta kvöldið og er afar spennandi fyrir börnin.

145-IMG_5041

Þau hreinlega elska þessa bálför í lokin.

146-IMG_5042

En Fljótavíkin er dyntótt, og það kom í ljós að bátur kæmist ekki að næsta dag, því ölduhæð í Djúpinu var um tveir og hálfur meter, svo ekki yrði sjófært, þá var eina leiðin flug ef það væri þá flugfært.

149-IMG_5058

Fallegu börnin mín.....

150-IMG_5069 

Öll sem eitt...

151-IMG_5073

Hér er grafíkerenn Haukur að teikna listaverk í gestabókina sem við ætlum öll að skrifa í á morgun til að þakka fyrir okkur.

152-IMG_5074

Í raun leið þessi vika alltof fljótt, en góðar minningar munu geymast meðal okkar allra.

153-IMG_5075

Þá er bara að pakka saman og reyna að gera sem minnst úr öllu, því flugvélin tekur ekki sama magn og bátur.

154-IMG_5076

Og þá var bara að bíða, flugvélin kom ekki fyrr en seinni part dagsins og sumir voru orðnir dálítið óþolinmóðir, en veðrir var dásamlegt svo allt gekk þetta vel.

155-IMG_5078

Við áttum ennþá nægan mat svo enginn þurfti að vera svangur.

156-IMG_5082

Áttum meira að segja efni í pizzur, Úlfur og Júlíana sáu um að gera pizzur á grillinu.

157-IMG_5083

°Sem var vel þegið af öllum.

158-IMG_5084-001

Eins og ég sagði börn eru botnlaus í útilegum.

159-IMG_5085

Úlfur ætlar að verða kokkur, hann eldaði þessa fínu fiskisúpu hér einn daginn. Og Hrönn mín ég er ekki búin að gleyma að þú vilt fá uppskriftina hjá honum, ég á einfaldlega eftir að króa hann af úti í horni og fá hann til að gera hana upp Cool

160-IMG_5086

Three grumpy old men hehehe, þeir voru reyndar yndislegir, en gaman að hlusta á þá fóstbræður Atla og Hauk, þegar þeir tóku sig til allt í góðu samt minnti mig á myndina two grumpy old men.

161-IMG_5093

Allt tekur enda, en þegar manni líður vel skilur minningin eftir góðar tilfinningar og hjálpa manni áfram.

162-IMG_5094-001

Eina af þeim minningum tekur maður með sér frá Fljótavík þetta sumarið.

163-IMG_5102

Hahaha þarna stakk geitungur mig í handlegginn, en ég fann auðvitað sára lítið til.  Annars fórum við svo til berja þennan dag og týndum fullt af berjum, sem við átum svo daginn eftir í skyri með rjóma.

164-IMG_5107

Fengum líka gesti eins og gengur.

168-IMG_5130

Og þá var tími til að fara.

169-IMG_5131

Allir í berjamó fyrir brottför. En nú er tími til að hætta þessu, ég veit að þetta eru allof margar myndir, en ég gat ekki stillt mig. Vissi ekki hvar átti að hætta.... eða þannig. En eigið góðan dag elskurnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Allt skemmtilegar myndir, Úlfur alveg keimlíkur pabba sínum. Hef oft verið að hugsa að með því að setja myndir á netið er maður kominn með ágætis öryggisafrit af myndunum. Ef tölvan hrynur eða diskar sem maður geymir á myndir, er alltaf hægt að sækja þær aftur á netið.

Theódór Norðkvist, 13.8.2012 kl. 19:27

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Teddi minn, já hann líkist pabba sínum sífellt meira, ekki bara í útlitið, heldur kemur fram í honum þessi blíða og gott hugarfar sem Júlli minn átti.  Það er alveg rétt hjá þér, ef ekki verður lokað fyrir blogginn okkar þá erum við sæmilega örugg með að geyma myndirnar hér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.8.2012 kl. 19:34

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegar myndir, takk fyrir mig. Úlfurinn er aldeilis fallegur ungur maður, börnin safna þarna í sjóð sem aldrei tæmist úr, hamingjan skín af hverri mynd. Þú ert einstök ættmóðir.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.8.2012 kl. 19:44

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æðislegar myndir bæði af fólki og útsýni Ásthildur mín

Knús til þín og takk fyrir mig

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.8.2012 kl. 20:11

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ásdís mín, við erum líkar með það mín kæra

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.8.2012 kl. 20:11

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mundi senda þér hjarta ef ég gæti, en þessi vafri minn gefur mér ekki aðgang að slíku.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.8.2012 kl. 21:21

7 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Þakka þér fyrir að fá að sjá þessar æðislegu myndir.

þú skrifaðir>Ég er afar stolt af því að vera í þeirri aðstöðu að geta boðið börnunum mínum og barnabörnum upp á svona líf. Svo þau kynnist því hvað raunveruleg hamingja er, hún er ekki fólgin í peningum, völdum eða upphefð, hún er nákvæmlega fólgin í því að finna sjálfan sig á svona stað, og læra að meta náttúruna í sinni fegurstu mynd.>

Svo hjartanlega sammála þér Ásthildur  

Guðni Karl Harðarson, 13.8.2012 kl. 21:29

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hvort hjartað er í mynd eða orðum skiptir ekki máli Ásdís mín, það bara ER

Knús á móti Milla mín.

Takk Guðni minn, þannig er þetta bara.  svona er lífið í raun og veru

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.8.2012 kl. 21:36

9 identicon

Þetta er lífið í einni af sínum fegurstu myndum, frábært að fá að koma með ykkur og sjá allt svona ljóslifandi . Þessar myndir og minningarnar eiga eftir að lifa í hugum barnanna um ókomin ár eins og gimsteinar .

Dísa (IP-tala skráð) 13.8.2012 kl. 22:43

10 Smámynd: Laufey B Waage

Fljótavíkin mín alltaf yndisleg.

Laufey B Waage, 13.8.2012 kl. 23:03

11 Smámynd: Jón Kristján Þorvarðarson

Skemmtilegar myndir. Sjálfur er ég ættaður úr Neðri-Miðvík (Aðalvík) og hef margoft labbað yfir í Fljótavík sem svo sannarlega er unaðslegur staður. Einnig er tignarlegt að líta yfir í Fljótavík ofan af Straumnesfjalli. Ólýsandi náttúrufegurð.

Jón Kristján Þorvarðarson, 13.8.2012 kl. 23:31

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er helv.....  flundran komin í Fljótavíkina líka???????  Fyrir nokkrum árum fór maður að fá þennan fja..... í Ölfusárósnum og svo nokkru seinna í Hlíðarvatni í Selvogi.  Ég frétti af þessu í hitteðfyrra í Lísuvötnum á sunnanverðu Snæfellsnesi.  Vissulega kemur það á óvart að hún skuli vera komin svona norðarlega.  Þá er ekki langt í að þetta verði landlægur andskoti...............

Jóhann Elíasson, 14.8.2012 kl. 00:09

13 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka myndirnar þínar vinkona/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 14.8.2012 kl. 00:40

14 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Frábær saga í máli og myndum...

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.8.2012 kl. 03:00

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll.

Já Dísa mín ég veit að þessi tími lifir í huga barnanna rétt eins og í mínum.  Og mun gefa þeim sitthvað gott inn í framtíðina  Ég er viss um að Júlli minn er ánægður með að báðir drengirnir hans skuli vera farnir að fara reglulega því hann elskaði Fljótavíkina svo mikið. 

Einmitt Laufey mín, mikið rétt.

Já Jón ég hef einmitt horft á hana frá Straumnesfjalli.  Hef nokkrum sinnum gengið yfir frá Látrum.  Hrikalega falleg leið.

Jóhann já þetta er ansi leiðinleg skepna og hættuleg seiðunum.  Voða lítið hægt að gera við henni líka.

Takk fyrir innlitið Haraldur minn.

Takk Jóna Kolbrún mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2012 kl. 10:45

16 Smámynd: Kidda

Alls ekki of mikið af myndum, elska það að skoða myndirnar þínar og fylgjast með yndislegu fjölskydunni þinni <3

Það þarf að halda vel í svona paradísir og halda þeim innan fjölskyldunnar.

Knús í kúlu <3

Kidda, 14.8.2012 kl. 11:18

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín, knús á móti

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2012 kl. 11:40

18 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þegar ég sé þessar myndir kemur aðeins eitt orð upp í hugann - paradís!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.8.2012 kl. 13:22

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Axel þetta er Paradís. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2012 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband