1.7.2012 | 22:20
Já að mínu mati sigraði lýðræðið í gær.
Jamm nú er þessi kosningabarátta búin og niðurstaða komin. Þegar Ólafur Ragnar var kjörin í fyrsta skiptið var ég jafn brjáluð og ég sé ýmsa vera núna. Ég svo sannarlega viðhafði öll þau ljótu orð sem ég les núna er alveg jafn sek um það og aðrir. Mér fannst hann... já þarf ekki að segja meir. Minnir að ég hafi kosið Pétur Hafstein sem var hér sýslumaður og ágætis vinur minn á margan hátt, þar sem hann treysti mér mannabest til að sjá um lóðina kring um Sýslumannsbústaðinn, auk þess kenndi konan hans dóttur minni á píanó. Ég hafði ætlað mér að kjósa Guðrúnu Pétursdóttur því mér fannst hún bera af en þvi miður dró hún framboð sitt til baka.
Ég er að segja frá þessu vegna þess að ég vil að það sé dagljóst að í þá daga var Ólafur ekki minn óska forseti, svo langt í frá.
En svo breytast tímarnir og eftir fyrstu neitun hans um að samþykkja fjölmiðlalögin fór ég í fyrsta skipti að hugsa um að eitthvað væri nú samt sem áður í hann spunnið. Þetta leiddi svo af sér að ég sagði upp morgunblaðinu. Vegna fyrirsagnarinnar daginn eftir þetta. Þar sem ég hafði keypt moggann í yfir 35 ár, hringdi Styrmir í mig og ræddi þetta við mig í svo sem eins og hálftíma. Ég einfaldlega sagði honum að mér væri stórlega misboðið af hálfu blaðsins af fréttum af þessum atburði og ég sæi mér þess vegna ekki fært að kaupa blaðið aftur. Þar sem Styrmir er einstaklega ljúfur og klár karl skildi hann þetta loksins.
Þetta var stórt skref því Morgunblaðið var stór þáttur í mínu lífi að lesa og fylgjast með þessum miðli, en ákvörðun var tekin og hún hefur staðið síðan.
Þegar Icesave málið kom upp, og forsetinn hafnaði Icesave tvö, fór ég aftur að hlusta, og þegar hann hafnaði Icesave þrjú, var ég svo spennt að ég slökkti á útvarpinu og hreinlega treysti mér ekki til að hlusta á hvað hann myndi gera. En svo smátt og smátt heyrði ég á máli manna að hann hefði aktiualli neitað aftur að skrifa undir.
Þar með fyrirgaf ég Ólafi Ragnari allt sem ég hafði á hann, svo sannarlega.
Síðan þá hef ég veitt honum mitt atkvæði.
Ég tek líka undir málflutning hans um að hér er verið að skerpa á lýðræðinu. Með höfnun Icesave, gerðist hann talsmaður alþýðu landsins og í gær sigraði lýðræðið.
Því miður var yndælis kona kramin milli skers og báru. Henni var att út í þetta og atburðirnir tóku einhverja stefnu sem hún réði ekki við. Það er augljóst af því hvernig hún talar núna að henni var ofboðið. En sýnir hve í raun og veru samviskusöm og góð manneskja hún er. Hún má samt vel við una, og vonandi kemur hún aftur til sjónvarpsins, því þar hefur hún svo sannarlega verið frábær. Falleg og flott kona.
http://www.visir.is/thora-ihugar-ad-senda-svavar-a-sjoinn---ari-trausti-sattur/article/2012120709918
Því miður þá liðu aðrir frambjóðendur fyrir þetta tveggja turna tal og náðu aldrei vopnum sínum. Af þeim sem þar buðu sig fram þótti mér mest til Andreu koma og Herdísar. Einhvernveginn náðu Ari Trausti og Hannes aldrei að heilla mig. En þær tvær voru svo sannarlega flottar og vonandi bjóða þær sig báðar fram aftur eftir fjögur ár.
Þeir sem raunverulega töpuðu þessum kosningum voru fjölmiðlar, sérstaklega Rúv og Stöð2. Þar var allt reynt til að hafa áhrif á niðurstöður og tjalda öllu til, með því að þegja um það sem kom öðrum frambjóðendum vel og lyfta öllu upp sem koma þeirra manneskju vel. Þetta reiknast ekki á Þóru, enda held ég að hún hafi í raun og veru verið fórnarlamb aðstæðna.
En málið er að í gær sigraði lýðræðið. Hvað sem má segja um Ólaf Ragnar, þá hefur hann gefið línuna og við fólkið tekið undir hana. Héðan af hlýtur hann að fylgja því sem hann lofaði okkur, hann hefur engu að tapa, því þetta er hans síðasta kjörtímabil. Og hann hefur svo sannarlega sýnt að í erfiðum málum stendur hann með þjóðinni, ekki bara hér heima, heldur líka í því að tala upp þjóðina á alþjóðavettvangi.
Það var einmitt það sem gerðist, við fólkið í landinu vorum að þakka honum fyrir það sem hann gerði til að tala kjarkinn í okkur upp aftur, þegar það var komið niður fyrir frostmark.
Ég get alveg skilið vonbrigðin og reiðina í stjórnarliðum. Þau sjá sína sæng útbreidda ekki bara að Ólafur hafi unnið kosningarnar, heldur miklu frekar að þau skynja að þeirra málflutningur hefur beðið skipsbrot. Það sem þau hafa lagt allt kapp á steytti á skeri, fyrst og fremst ESB umsóknin. Hún mun vonandi verða dreginn til baka í kjölfarið.
http://www.malefnin.com/ib/index.php?showtopic=129251&st=40
Við ættum að hlusta á það sem fólk segir í útlöndum, því það er yfirleitt skynsamlega mælt og af umhyggju fyrir íslenskri þjóðarsál, miklu meira en okkur grunar.
Nú vona ég að meiri þrýstingur verði settur á áskorun til forsetans um að koma þessari ríkisstjórn frá og hvetja til þess að sett verði á utanþingsstjórn sérfræðinga sem þekkja og vita hvað er best fyrir þjóðina, ekki seinna vænna.
En ég vil óska íslenskri þjóð til hamingju með nýja lýðræðið sem sigraði í gær.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 2022151
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það eru örugglega margir sem hafa upplifað eitthvað í líkingu við það sem þú lýsir hérna. Ég aftur á móti fór á nokkra framboðsfundi hjá forsetaframbjóðendunum 1996 og þar bar Ólafur höfuð og herðar yfir aðra og síðan á hefur maðurinn bara vaxið í mínum huga og ég reikna með því að hann eigi eftir að vaxa enn meira af verkum sínum næstu fjögur árin...................
Jóhann Elíasson, 1.7.2012 kl. 22:58
Já þar er ég sammála þér Jóhann, hann hefur allavega vaxið af verkum sínum hingað til.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.7.2012 kl. 23:07
Sammála
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.7.2012 kl. 02:59
Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 2.7.2012 kl. 09:07
Takk fyrir innlitið stúlkur mínar
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.7.2012 kl. 10:29
Ég kaus rétt :)
Kidda, 2.7.2012 kl. 14:58
Ánægð að heyra það Kidda mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.7.2012 kl. 15:57
Mikið blessun var í að Hannibals og Sólveigar Ættin komust ekki á Túnið á Bessastöðum.
Vilhjálmur Stefánsson, 2.7.2012 kl. 16:43
Já það reyndist sannleikanum samkvæmt sem talið var að Samfylking og VG væru að reyna að koma sínum manni að. Og nú er henni legið á hálsi að vera ekki nógu grimm. Skrípaleikurinn er algjör af hendi stjórnarliða.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.7.2012 kl. 17:03
Þetta er allt eins og ég uppifði það,nema ég var aldrei á móti stráknum. Sonur minn sagði er hann kom í dag,að tvær úr stuðningsliði Þóru,hefðu eiðilagt heilmikið fyrir henni með stöðugum ádeilum og skítkasti á Ólaf á Facebook. Ég sá það líka en reyndi að forða mér því þær eru/voru tengdar mér.Nær var þeim að mæra Þóru,vildu þær gera henni og sér gott.
Helga Kristjánsdóttir, 2.7.2012 kl. 23:33
Helga mín það er nefnilega málið að enginn upphefur sjálfan sig með því að niðurlægja aðra, það er málið.
<<<<<<<<<<<<helg
Helga mín það er nefnilega staðreynd að em
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.7.2012 kl. 23:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.