Tvö bréf.

Var búin að skrifa minningargrein um Jóhönnu mína en hef ekki birt hana enn.

En ég hef ákveðið að nota sorgarsögu barnanna minna til að vekja fólk til umhugsunar um hvernig kerfið hefur malað þau undir sér, meðan hægt hefði verið að bjarga þeim. 

Á morgun á ég von á blaðamanni til mín til að ræða um þessi mál.  

En ég ætla að birta eitt tiltekið mál hér núna, en ég hef hugsað mér að skrifa sögu þeirra og vonandi gefa út, til að fólk átti sig á því hvað er í raun og veru í gangi með þessi öðruvísi börn okkar.

Sumt af þessu er trúnaðarmál, en þar sem þau eru bæði dáin, ætla ég einfaldlega ekki að huga að því frekar.  Reyndar er lögfræðingurinn einni dáinn.

Lögfræðingur minn á þessum tíma, sem hjálpaði mér ótrúlega mikið Jón Oddsson sótti um að hún yrði ekki sett í fangelsi heldur fengi að afplána sína refsingu á annan hátt.  Hér er bréf frá Heilsugæslustöðinni á Ísafirði um þetta mál.

2.júní skrifaði Jón Oddsson bréf fyrir mína hönd um frest á refsingu Jóhönnu.  Svarbréf fangelsismálastofnunar er hér eftir bréf sem við sendum frá sálfræðingi sem við fengum til að gera úttekt á ástandinu. 

Ísafjörður 13.08.97

Jóhanna Rut Birgisdóttir kom á stofu til undirritaðs í tengslum við fyrirhugaða afplánun 15. mánaðar fangelsisdóms sem hefst föstudaginn 15. ágúst n.k. Jóhanna kemur ásamt tengdamóður sinni Ásthildi Cesil Þórðardóttir kt. 110944 4469, sem jafnframt er ábyrgðaraðili gagnvart Barnaverndarnefnd Ísafjarðarbæjar um að Jóhanna og eiginmaður hennar, Júlíus Kristján Thomassen, sonur Ásthildar, sinni foresldraskyldum sínum gagnvart 6 mánaða gömlu barni þeirra, Þórði Alexander Úlfi Júlíussyni en þau búa á heimili Ásthildar.

Jóhanna Rut lýsir skoðun sinni á fyrirhugaðri afplánun á þá leið að ef af verður bitni hún aðallega á nokkra mánaða gömlum syni hennar, Þórði Alexander Úlfi og jafnframt á hjónabandi hennar og Júlíusar K. Thomassen.

Rökin eru einkum sú að það rask sem fylgir fangelsisvist og hugsanlegri fjarveru barnsins við móður vegna fangelsisvistunar, geti haft óæskileg áhrif á þroska barnsins og á eðlileg tengslamyndun barnsins við foreldra.  Enn fremur að það góða samband og samvinna sem myndast hefur milli foreldra barnsins um barnauppeldið, sé stefnt í hættu og að líkur aukist verulega á því að fíkniefnaneysla hjá föður geti fylgt í kjölfarið vegna þeirrar röskunar sem fangelsisvist móður fylgir, ef af verður, en undanfarna 10 mánuði hefur Júlísus ekki neytt fíkniefna og helgað sig uppeldisstörfunum og að rækta gott samband við eiginkonuna.  Jóhanna Rut hefur ekki neytt fíkniefna síðan í fyrra sumar og er staðráðin í að standa undir þeim foreldraskyldum sem á hana eru lagðar. Ábyrgðaraðili votta þessa frásögn.

Undirritaður lýsir sig sammála því sem að ofan greinir og telur að sú röskun sem fangelsisvist móður hefði óhjákvæmilega í för með sér, geti haft óæskileg áhrif á þroska barnsins og dregið úr eðlilegri tengslamyndun við foreldra.  Í þessu sambandi telur undirritaður að heppilegast sé að hið góða samband móður, föður og barns sem skapast hefur, sé ekki stefnt í hættu með einhliða fangelsisvistun móður.  SLíkt myndi óhjákvæmilega mest bitna á saklausu barninu.

Undirritað af sálfræðingi.

3. júlí 1997.

Með bréfi, dags. 20. júní 2997, fóruð þér þess á leit fyrir hönd skjólstæðings yðar Jóhönnu Rutar Birgisdóttur, að fyrirhugaðri afplánun hennar á 15 mán. tildæmdri refsingu með dómi Hæstaréttar uppkveðnum 29. maí 1997, sem hefjast átti þann 28. júlí sl. yrði frestað til 1. óktóber 1997.  Vísið þér í þessu sambandi til brýnna aðstæðna hennar vegna umönnunar sveinbarns hennar.

Samkvæmt 3. grein reglugerðar nr. 29/1993 um fullnustu refsidóma er fangelsismálastofnun heimilt ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi, að veita frest á að hefja afplánun.  Hér er um að ræða undantekningu frá þeirri meginreglu að afplánun hefjist streax er dómur verður fullnustuhæfur.

Í verklagsreglum fangelsismálastofnunar segir að í þeim tilvikum er frestur á afplánun er veittur skuli aðeins veita dómþolu skamma fresti og er þá átt við viku eða hálfan mánuð í senn.  Mánaðarfrestir sem tíðkuðust hér áður fyrr eru aflagðir.  Er þetta liður í þeirri stefnumörknu fangelsismálastofnunar að hraða allri refsifullnustu.

Í 2. gr. 3. gr. reglugerðar um fullnustu refsidóma nr. 29/1993 segir að við ákvörðun á því hvort að veita skuli frest á afplánun skuli m.a. taka mið af alvarleika afbrots dómþola, sakarferli og öðru sem máli skiptir.  Skjólstæðingur yðar hefu alls 5. sinnum frá árinu 1990 verið dæmd til refsivistar fyrir auðgunarbrot.  Hún hefur þrívegis afplánað refsivist, nú síðast frá 25. október 1994 til 22. desember 1995, en þá var henni veitt skilorðsbundin reynslulausn í 2 ár.  Með ofangreindum dómi Hæstarréttar voru þessar eftirstöðvar dæmdar upp og var skjólstæðingur yðar dæmd í 15 mánaða fangelsi fyrir auðgunarbrot.

Eins og fram kemur í bréfi yðar fæddi skjólstæðingur yðar barn 8. mars 1997 og nýtur hún aðstoðar tengdamóður sinnar og væntanlega einnig barnsföður við umönnun barnsins.  Fullkunnugt er um gildi samvista milli móður og ungabarns en engu að síður er eigi unnt að fallast á umbeðin frest með vísan til framkvæmdar.  Vegna aðstæðna skjólstæðings yðar er hins vegart veittur frestur til 1. ágúst 1997 en þá skal afplánun hefjast.

Þessari úttekt var ekki svarað frekar.  Fangelsismálastofnun var búin að gera sitt..... eða þannig.

Sem sagt ekki tekið tillit til neins nema lagabókstafsins.  Á þessum tíma voru þau bæði hætt afbrotum og fannst þau eiga framtíðina fyrir sér með lítið barn, ástina og vonina um betri tíma.  En ónei, ekkert tilliti tekið til þess.  Það skyldi ganga fyrir að lagabókstafnum yrði fullnustað.

Hér vantar eitthvað inn í.  Eitthvað mannlegt sem segði þessu hjartalausa lagabókstafsfólki að ef til vill væri mikilvægara að bjarga mannslífi en að hengja sig í þurra lagabókstafi. 

Þess vegna ágætu lagabókstafsverðir er dauði þessa fólks bein afleiðing af ykkar og yfirvalda hjartalausu ákvarðana.  Þið getið ekki veitt mínu fólki lífið aftur, en þið getið ef þið hafið einhverjar hjartataug, breytt þessu kerfi þannig að það sé tekið tillit til aðstæðna og skoðað hvort það sé ef til vill affarasælla að sjá í gegnum fingur við fíkla, ef það má verða til þess að þau verði nýtir þjóðfélagsþegnar, þegar þau hafa sýnt að þau eru á réttri leið.  Að það sé ef til vill einhver ástæða til að hugsa að það sé ef til vill betra að taka hjartað á þetta og gefa smá sjens.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er fjandi sárt að rifja þetta upp, og ennþá sárara að vita að nákvæmlega þarna hefi verið hægt að bjarga tveimur villuráfandi góðum sálum frá glötun.  Það sem á eftir kom var allt í þessu sama anda, veggir á veggi ofan, ískalt mat eins og einn formaður stjórnmálaflokks sagði um ESB umsókn.  Þarna voru þau tilbúin til að leggja það á sig að lifa heiðarlegu góðu lífi full af vonum og hamingju.  Sem var svo drepinn niður smátt og smátt með svona aumkunarverðri afstöðu möppudýra.  Ég hef ekki getað fyrirgefið þetta og burðast með það ennþá, og þegar ég rifja þetta upp þá finn ég hvernig reiðin ólgar í mér út í kerfi sem ekkert skilur fólk sem bara þiggur kaupið sitt og situr þarna og dæmir eftir köldum bókstaf.  Vona að þeim líði bara ekki allof vel þegar þau lesa um fólkið sem þau hafa hafnað á þennan hátt og ættu að vita að afstaða þeirra hefur valdið tjóni ekki bara fíklanna, heldur líka okkar hinna sem höfum reynt að berjast fyrir því að börnin okkar fengju að vera til í samfélaginu. 

Skömmin er kerfisins og þeirra sem setja lögin og ættu að vernda alla, ekki bara suma.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.5.2012 kl. 00:32

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er einfaldlega komin tími til að fólk fari að endurskipuleggja baráttuna gegn fíkniefnadjöflinum.  Skilja á milli fórnarlamba og sölumanna dauðans. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.5.2012 kl. 00:34

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eins og ég sagði, ekkert getur gefið mér þessa einstaklinga aftur, en það er ef til vill hægt að bjarga öðrum sem eru í sömu sporum.  Það er einfaldlega komið nóg.  Og ég lýsi ábyrgð á hendur þeirra sem um þessi málefni fjalla við hvert einasta dauðsfall hér eftir.  Ykkar er skömmin og sökin. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.5.2012 kl. 00:36

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Kæra Áshildur.  Mikið styð ég þig innilega í þessu baráttumáli, sem varðar allt samfélagið. Ábyrgðin er stjórnvalda og samfélagsins alls, að nota vald sitt til að koma á einhverju mannúðlegu kerfi sem bjargar en ekki drepur.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.5.2012 kl. 00:58

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Anna Sigríður mín, það á meira eftir að koma, ég ætla ekki lengur að bera þetta ein.  Nú þegar þau eru bæði farin, marin til dauða af kerfi sem engu eirir, þá er ekkert eftir nema að segja söguna eins og hún er öðrum til viðvörunar og von um að þetta kerfi verði brotið á bak aftur.  Það verður sárt og einnig erfitt vegna barnanna og aðstandenda.  En þetta er saga sem verður að segja til að bjarga öðrum frá sömu örlögum.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.5.2012 kl. 01:10

6 Smámynd: Kidda

Það er kominn tími til að opna þessa umræðu og löngu tímabær. Þú ert hetja að stíga fram og segja sögu Júlla og Jóhönnu. Það eru ansi margir sem hafa sína sögu að segja í sambandi við baráttuna gegn vonlausu kerfi möppudýra.

Var búin að heyra af því að það kostaði orðið fyrir fíkla að fara í meðferð á Vogi, minn hefur samt ekki verið rukkaður fyrir dvölina sína þar. Heyrði í gær að dvölin á Staðarfelli gæti kostað 60-70þús. HVernig í ósköpunum eiga fíklar að hafa efni á því að fara í meðferð ef þeir þurfa að borga stórar upphæðir til að komast í meðferð.

Það hlýtur alltaf að vera ódýrara að hjálpa fíklum að komast á beinu brautina heldur en að vera í neyslu. Fangelsisvist er ekki besta leiðin til að halda þeim á beinu brautinni ef þau hafa náð að vera edrú í einhvern tíma. Það er svo mikils virði ef þeim tekst að halda sér edrú að það má ekki á þeim tíma setja þau í fangelsi nema þá ef brotin eru þeim mun alvarlegri. Fangelsisvist hefur, er og verður aldrei uppbyggileg.

Styð þig heilshugar í þessu.

Knús í kærleikskúluna.

Kidda, 28.5.2012 kl. 09:57

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Málið er að hér þarf að breyta áherslum.  Það gengur ekki að rífa fólk upp úr nýjum aðstæðum þegar það er búið að taka sig á og er ákveðið í að standa sig.  Þá er ekki rétta leiðin að rífa það út úr þeim aðstæðum til að setja í fangelsi niður í sama hjólfarið.  Þessi mál verða alltaf að vera sveigjanleg, en ekki harður kaldur bókstafur.   Á þessum tímapunkti gátu þau bæði haldið út á rétta braut, þau voru mótiveruð og það sorglega er að sjá þau rifinn upp úr þeim aðstæðum og slengt aftur til fyrra lífs. 

Það hefði líka örugglega sparast mikill peningur að hlú að þeim þarna, þau hefðu getað fengið að fara í samfélagsþjónustu, það á ekki að binda slíkt við 6 mán. dóma.  Heldur þarf að skoða hvert einstakt tilfelli fyrir sig og skoða á hvaða leið viðkomandi er.  Vonandi hefur eitthvað lagast á þessum tíma.  En betur má ef duga skal.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.5.2012 kl. 10:35

8 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

http://spegill.is/is/grein/2012/05/08/kerfi_sem_brytur_vidkvaemar_salir_1._hluti

Kerfið er allstaðar í lamasessi þegar kemur að einstaklingum - börnum sem fullorðnum. Í svo ótrúlega skammarlega mörgum málaflokkum.

Þú ert hetja!

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 28.5.2012 kl. 16:51

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Lísa mín þetta er svo sannarlega frábær grein og eins og talað út úr mínu hjarta.  Mér mikil hvatning reyndar.  Takk fyrir að benda mér á þetta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.5.2012 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 2022152

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband