15.2.2007 | 11:21
Hvað er réttlæti ?
Réttlætið. Ég hef verið að velta fyrir mér þessu hugtaki. Líka réttlætiskennd og rétti mínum og annara. Þetta eru falleg orð og gefa góða mynd inn í manni. En getur verið að þessi réttlætiskennd hafi aðra hlið á sér, sem er ekki eins sýnileg ? Getur verið að til dæmis "múgæsing" jafnvel "dómstóll götunnar"sé hin hliðin á réttlætiskenndinni ? Og skyldi það geta verið að áróðursmeistarar nútímans hafi gert sér grein fyrir þessu og nýti sér réttlætiskennd okkar til að ná fram vilja sínum ? Það er til dæmis hægt að sjá þetta í víðara samhengi ef maður lítur til ríkisstjórnar BNA, hvernig byrjuðu þeir innrásina í Írak ? Jú með því að höfða til réttlætiskenndar þjóðarinnar, hve Saddam væri vondur maður, og hve hættulegur hann væri okkur sjálfum og öðrum. Alveg þangað til fólkið var komið með þetta á hreint, réttast væri að útrýma helvítinu. Þetta er saga frá annari heimsálfu. En ég held að við getum alveg séð þetta fyrir okkur allstaðar hér í okkar litla samfélagi líka. Ég kynntist Austurrískum blaðaljósmyndara í sumar. Hann var vellaunaður ljósmyndari, svo uppgötvaði hann að eigin sögn að aðeins örfáir menn áttu og ráku fjölmiðla heimsins, og þessir örfáu menn höfðu í hendi sér og nýttu sér það að hafa stjórn á því hvað við hugsuðum og hvernig við hegðuðum okkur. Þá hætti hann og hefur einbeitt sér að fyrirlestrum og líka að aðstoða fólk sem af einhverjum ástæðum lendir illa í pressunni. Fólk sem reynir að koma með óvinsælan sannleikann upp á yfirborðið, þann sannleika sem ekki fellur inn í þá mynd sem gúrúar nútímans vilja að við þekkjum. Hann segir að allir helstu atburðir heimsins séu "fake" eins og hann orðaði það. Helförin, segir að rannsóknir sýni að það standist ekki að notað hafi verið allt þetta gas sem sagt er að hafi verið gert. En það sé þaggað niður. 911 til séu myndir sem sýni svart á hvítu að arabar hafi þar hvergi komið nærri. Ferðin til tunglsins hafi aldrei verið farin. Heldur farið fram í kvikmyndaveri meistara Cubricks. Segir að það sé ljóst ef skoðaðar eru myndir frá þessum atburði að ljós og skuggar sýni að þetta geti ekki hafa farið fram á tunglinu. Allt eru þetta mál sem eru tilfinningaþrungin og mjög eldfim umræða. Auðvelt að koma inn "réttlætingu" fólks á því hvað er vont og hvað er gott í þessu. Skynsemi komist ekki að. Það sé hreinlega vel hönnuð atburðarrás búin til og matreidd ofan í okkur almúgan. Hvað vitum við svo sem. Ég hef séð þetta svolítið hér hjá okkur undanfarið. Ég er alveg viss um að það er í gangi maskína sem býr til staðlaðar ímyndir fyrir þá sem eru óþægilegir eða beinlínis hættulegir þeim sem vilja ráða. Þetta er bara svona tilfinning hjá mér, ég get lítið fest fingur á hana en ég er viss að hún er samt sem áður til staðar. Mér dettur til dæmis í hug Ingibjörg Sólrún, gott dæmi um mjög vinsæla manneskju sem andstæðingar hafa alla tíð verið hræddir við. Undanfarið hefur verið markvisst unnið að því að gera hana ótrúverðuga, umsnúa öllu sem hún segir og gera lítið úr henni. Ég er ekki samherji hennar og í byrjun fór hún í taugarnar á mér. En ég verð að segja að ég dáist að hvað hún er sterk og fylgin sér, þrátt fyrir allan kjaftaganginn og meira að segja hefur hennar eigið fólk, sumir hverjir tekið undir þetta allt saman. Þó hef ég hvergi séð neitt frá henni sem er ekki skynsamlegt og sýnir að hún vill vel. Annað dæmi er Frjálslyndi flokkurinn sem sömu aðilar hafa illan bifur á. Það gafst tækifæri til að búa til úr flokknum þjóðernissinnaðan öfgaflokk þó hvergi sé hægt að benda á neitt slíkt hvorki í málefnahandbók flokksins né orðum forystumanna hans. Áróðursmeistararnir mega vera ánægðir með árangurinn. Ég var að tala um réttlætiskennd. Hún er tvíeggja sverð. Ef við viljum raunverulegt réttlæti, þá kostar það bara heilmikið. Það kostar að við þurfum að skoða málin og kynna okkur hvað er í gangi, en hlaupa ekki eftir þeim sem hæst galar. Við getum ekki leyft okkur að láta reiðina yfirtaka réttlætiskenndina og fara sjálf ofan í þann pitt að fordæma jafn mikið eða meira þá sem um er rætt. Við skulum aðeins vara okkur á matreiðslumeisturum kjötkatlanna. Seiðurinn sem þar er bruggaður getur reynst okkur hættulegur ef við ætlum að hlaupa upp til handa og fóta með það sem við heyrum, en nennum ekki að kynna okkur til hlítar. Í æsku heyrði ég alltaf að "vinstrimenn" kæmu sér aldrei saman um neitt, þeir væru sundurleitur hópur sem gæti ekki stjórnað. Þetta með hægri og vinstri er svona orðatiltæki sem loðir við enn í dag. Og núna í merkingunni stjórn og stjórnarandstaða. Besta vopn sem við getum gefið þessari ríkistjórn er nefnilega það að við berjumst innbyrðis. Að réttlætiskennd okkar sé saumuð ofan í hvert handtak okkar sjálfra, svo að við gleymum að horfa í stærra samhengi á samfélagiðl. Hvernig væri nú að snúa þessu örlítið við. Skoða og lesa hvað fólk er að segja. Og meta sjálf hvað sagt er og gert. Ég hef grun um að þessi barátta í vor verði ansi leirug og andstyggilegt enda er mikið í húfi. Ef til vill meira en við gerum okkur grein fyrir hjá sumum allavega. Við eigum ekki að láta segja okkur hvað við hugsum. Við eigum að líta til allra átta og móta okkar eigin skoðanir. Það er hið eina og sanna lýðræði. Eina réttlætið er það að við tökum upplýsta ákvörðun byggða á því sem við höfum kynnt okkur sjálf. Jafnvel með því að spyrjast fyrir. Það er nefnilega stundum hægt að segja vont er þeirra ranglæti en verra er þeirra réttlæti. Þess vegna eigum við að vinna heimavinnuna okkar og sjá til þess að enginn plati okkur til þess að þjóna heimatilbúnum velmatreiddum "sannleika". Lýðræðið kostar nefnilega þegar til alls kemur bara alveg heilmikið. |
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 2022160
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég kvitta algerlega fyrir þetta. Frábær pæling. Ég hef gert það að prinsippi að efast og tek alla fjölmiðlum með korni af salti. Staðreyndir horfa nefnilega allt öðruvísi við, þegar grannt er skoðað. Þeir áttu ekkert á Saddam í lokin nema eiturárás fyrir 15 árum, sem við rannsókn hefur komið í ljós að var Íranskt. Þetta var óhapp í stríði þeirra á milli, sem drap 300 borgara. Skoða má Fallujah fjöldamorð kanans til samanburðar, þar sem tugþúsundir borgara féllu fyrir ólöglegum fosfórsprengjum.
O ft eru svona uppslættir í blöðum notaðir til að beina athygli frá verri málum eða þá málefnaskorti þeirra, sem sækjast eftir völdum. Aumingja eða fórnalambavæðingin er gott dæmi um þetta, þar sem gamlir harmar eru dregnir upp og reynt að benda á stjórnvöld, sem ábyrgðaraðila fyrir mannlegum harmleikjum. Slíkt er mikið inn í dag. Auðvitað eru málin slæm, en það er ekki af neinum náungakærleik, sem þau eru sett á yfirborðið.
Ég ætla nú ekki að hætta mér út í helförina, það er raunverulegur harmleikur fyrir fleiri en Gyðinga, en mér finnst oft eins og henni sé haldið á lofti til að réttlæta yfirgang Zionista og banna alla gagnrýni á ofbeldisverk þeirra. Rauninni er verið að réttlæta aðra helför gegn Palestínu með þessum hörmungum liðinna kynslóða. Ég veit að í Auswisch var minningarsteinn fram til 1989, sem fullyrti að 4 milljónir Gyðinga hefðu farist þar en Pólverjar skiptu honum út og settu stein, sem segir 1.5 milljónir. Það sýnir að ekki eru allir atburðir á hreinu á þessum hildartímum. Eðlilega, segi ég.
Ég vil benda þér á Heimildamyndina "Loose change" á Google video til glöggvunar á 911. Þar er ekki allt eins og menn vilja vera láta.http://video.google.com/videoplay?docid=7866929448192753501&q=loose+change
Sannleikur og réttlæti er sannarlega afstæð hugtök í dag.
Jón Steinar Ragnarsson, 15.2.2007 kl. 12:21
já einmitt. Takk fyrir krækjuna ætla að skoða þetta seinna. Þessi ágæti maður sagði að það er fangelsissök í Austurríki að tala illa um gyðinga og helförina. Hann segir af hverju eigum við endalaust að vera að biðjast afsökunar á því sem afar okkar og ömmur gerðu á sínum tíma. En ég ætla heldur ekki meira út í þessa sálma.
Heldur vil frekar tala um nútíðina og að við séum á verði gagnvart áróðursmaskínum. Kallast það ekki spunameistarar í dag ? Menn sem eru beinlínis ráðnir til að upphugsa og skipuleggja umfjöllunina og hvernig eigi að bera hlutina á borð fyrir okkur svo það þjóni þeim tilgangi að hafa áhrif á niðurstöðu okkar. Setja menn í litgreiningu og jafnvel hanna broskróka ef annað dugir ekki fyrir framan myndavélarnar.
Einnig kemur upp í huga minn setning eins og "nytsamir sakleysingjar"
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2007 kl. 13:41
Jamm. Nytsamir sakleysingjar. Skólakerfið miðar líka á innrætingu í stað þess að hvetja til gagnrýnnar hugsunar. Það er þessi collectíva hugsun sósíaldemókratíunnar, sem er hættuleg, þó stefnan sé að öðru leyti ágæt. Dæmi um það sagði systir mín mér, sem býr í noregi. 'I bænum hennar eru 3 feit börn í skólanum, sem börnin hennar ganga í. 'I stað þess að nálgast vanda þeirra beint, þá er efnt til átaksherferðar með ærnum tilkostnaði og auglýsingum, meðal allra barna og foreldra, um hreyfingu og útivist. Í þessum skóla eru einstaklingar ekki heldur verðlaunaðir fyrir árangur heldur meðaltal bekkjanna. Enginn skal skara fram úr. Jemteloven eru í algleymingi þar eystra.
Jón Steinar Ragnarsson, 15.2.2007 kl. 15:04
Drullupollur meðalmennskunnar sem enginn má komast uppúr. Hef svolítið lesið David Icke og hans pælingar um svona samsæriskenningar og falið vald sem öllu stjórnar. Maður spyr sig oft. Það er bara eitthvað sem passar engan veginn í öllu þessu. Hvað verður t.d um heilbrigða skynsemi í öllum stórum málum og hvernig í ósköpunum geta menn stundum komist að svona heimskulegum niðurstöðum sem eru öllum ljós nema þeim sjálfum. Og af hverju látum við það yfir okkur ganga? Skileetta bara ekki.
Takk fyrir góða hugleiðingu Frú Cesli. Mjög tímabært að vekja umræðu á þessu núna.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.2.2007 kl. 17:26
Takk Katrín mín. Það er gott að pæla stundum í lífinu þarna á bak við lífið.
Mér hefur líka fundist hér vera rekin svona miðjustefna í skólamálum. En samt hefur það lagast hérna Jón Steinar minn. Í bekknum þar sem stubburinn minn er, leggur kennarinn töluvert upp úr þroska og samfélagsgildum og ég er ánægð með það. En það má sam ekki skara mikið fram úr, eða dragast aftur úr. Þegar ég var í skóla þá voru tossabekkir og svoleiðis. En það er sennilega ekki gott heldur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2007 kl. 17:35
Nákvæmlega. Lýðræðið felst í nákvæmlega því að við skoðum málin og fylgjum því sem okkur finnst sjálfum vera það rétta.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2007 kl. 20:26
Ef þú hefur áhuga á að kafa dýpra í "lýðræðið" sem var niðurlag hjá þér þá bendi ég þér á bókina "samfélagssáttmálinn" e. JJR. Segir ákaflega vel frá lýðræðishugtakinu.
Ragnar Bjarnason, 15.2.2007 kl. 20:59
Takk fyrir það Ragnar, þarf að skoða þá bók.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2007 kl. 21:18
Já þanna vítahring væri gott að rjúfa. Við ætlum allavega að gera okkar til þess.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2007 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.