8.5.2012 | 16:20
Ríkisstjórnarfundir út um landið.
Margir hafa velt því fyrir sér í sambandi við ríkisstjórnarfund nú á austfjörðum hvernig til hafi tekist á öðrum stöðum sem ríkisstjórnin hefur lagt sína leið.
Ég get bara sagt það sem viðkemur mér í því sambandi.
Hér segir svo í frumskýrslu um ofanflóðavarnir ofan Geliðarhjalla.
Áhrif á samfélagið.
Ríkisstjornin ákvað á þessu ári að til margþættra aðgerða á Vestfjörðum væri þörf og um einn þáttinn segir:" I. Aðgerðir vegna efnahagslegs samdráttar og efling innviða. Markmið aðgerðarinnar er að hafa jákvæð skammtímaáhrif með tímabundinni fjölgun starfa auk áhrifa af umsvifum verktaka, en jafnframt jákvæð langtímaáhrif með bættum samkeppnisskilyrðum efnahagslífs og samfélaga á Vestfjörðum". (48) Gerð ofanflóðavarna undir Gleiðarhjalla mun skapa störf tímabundið og skapar öruggari skilyrði til búsetu á því svæði.
Svo segir: Talsverð hætta er á ausrkriðum og grjóthruni úr Gleiðarhjalla. Einnig er snjóflóðahætta. Þetta eru forsendur fyrir byggingu ofanflóðavarna og þar með tryggja öryggi íbúa og eigna fyrir neðan hjallann. Eftir að framkvæmdum lýkur má vænta að eignir á þessu svæði hækki í verði og selsjist betur en reynslan sýnir það við svipaðar aðstæður.
Aurskriður, grjóthrun og snjóflóð getga valdið tjóni á húseignum, lóðum, bílum og sv. frv. Ofanflóðavarnirnar munu því veita íbúum meira fjárhagslegt öryggi en var fyrir.
Fyrir það fyrsta þá hef ég sem íbúi alla mína ævi hef búið undir Gleiðarhjallanum aldrei fundist mér ógnað. Ekki hef ég heldur orðið vör við að fólk víli fyrir sér að kaupa eða byggja hús á þessu svæði. Þetta er því heimatilbúin afsökun, eins og reyndar öll skýrslan er að mínu mati. Gengið út frá einum punkti sem sagt: AÐ RÉTTLÆTA GERÐ SNJÓFLÓÐAVARNARGARÐS, VEGNA TÍMABUNDINNAR FJÖLGUNAR Á STÖRFUM OG SKAMMTÍMAÁHRIFA.
Öll skýrslan er svo þessu marki brennd.
Á bls. 2 segir svo: Stór snjóflóð hafa aldrei fallið úr hlíðinni neðan Gleiðarhjalla svo vitað sé. Eftir að snjóathugunarmaður tók til starfa hafa fimm lítil flóð verið skráð á svæðinu en þrjú þeirra eru innan við framkvæmdarsvæðið.
Svo mátti ég lesa í bæjarins besta að það ætti að kaupa upp húsið mitt og næsta við hliðina. Þetta setti mitt líf tímabundið með skammtíma og langtímaáhrifum á hvolf, þar sem ég þurfti að leita mér læknis og fá róandi lyf til að jafna mig, enda nýbúin að jafna mig eftir lát sonar míns.
Það stendur til að rekak mig úr út húsinu, taka af mér hluta af lóðinni sem garðplöntustöðin stendur á og stærri hlutann af skógi sem við hjónin höfum gróðursett s.l. 30 ár.
Og ég fullyrði að þetta er ekki gert af hættuástandi undir Gleiðarhjalla, heldur til að gera eitthvað, til að geta sagt að þetta hafi jú verið gert.
Svo las ég í BB að ríkisstjórnin væri búin að fresta öllum fyrirhuguðum ofanflóða og skriðuvarna næstu þrjú árin og láta peninginn í að rannsaka eldgos.
Það hefur nefnilega runnið upp fyrir þeim að meðan þeir hafa verið að troða snjóflóðavarnarhryggjum út um allar trissur, þá hefur aldrei verið unnið að því hvernig á að bjarga fólki á höfuðborgarsvæðinu ef til eldgosa kæmi. Það hefur nefnilega hingað til verið tabú. Mál sem ekki má vekja upp. Það gæti nefnilega verið að þar þyrfti að ýta einhverjum út.
Ég hef reyndar hvergi fengið þessa frétt staðfesta og ekki hefur mér verið tjáð neitt um slíkt. Og nú sit ég með lögfræðing mér til aðstoðar og veit ekki hvort áfram á að halda með málið. Eða hvor þetta bara dagar uppi.
Og ég segi nú bara hefði ekki verið nær að koma með nokkur hundruð milljónir færandi hendi og hreinlega segja við okkur hér: gjörið svo vel reynið að byggja upp samfélagið með langtíma sjónarmiði og gera sem mest úr þessu fyrir samfélagið á Ísafirði. En ekki bara hugsa í smáskömmtum um verktaka sem flestir eru farnir á hausinn hér. En eflaust einhverjir á lausu í öðrum landshlutum eða bara í Portúgal eða Kína.
Mér skilst að lítið hafi komið úr heimsókn ríkisstjórnarinnar til Suðurnesja, veit ekki um Akureyri.
En þetta litla dæmi sýnir mér bara hversu veruleikafyrrt fólk er. Til að hagsæld geti orðið þarf að framkvæma eitthvað, láta peninga í að framleiða og fá meiri pening. Svona ævintýri eru bara ævintýri eða eins og sagt er að pissa í skóinn sinn.
Vonandi fá austfirðingar eitthvað bitastæðar út úr heimsókninni, nema þetta sér bara svona sýndarmennska til að fá umfjöllun og láta fólk halda að það sé eitthvað verið að gera fyrir landsbyggðina. O jæja það þarf eitthvað meira til. Við viljum bara fá að ráða því meira sjálf hvernig við eyðum þeim peningum sem við öflum. Að það verði meira eftir heima í héraði og það sé okkar að ráðstafa þeim skynsamlega.
Ég fyrir mína parta vona bara að þau láti ekki sjá sig hér aftur með svona lausnir.
Ríkisstjórnin á Egilsstöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
það kemur aldrei neitt bitastætt frá þessari Ríkistjórn...
Vilhjálmur Stefánsson, 8.5.2012 kl. 17:37
Það er ekki mikið sem stendur þar upp úr allavega svei mér þá.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.5.2012 kl. 19:00
Hvenær hefur skammtímalausn verið betri en framtíðarlausn.
Svei þeim ef haldið verður áfram með þessa áætlun, hún er rugl. Vonandi fara þessir peningar frekar í að athuga hvað myndi ske ef til eldgoss kæmi sem ógnaði höfuðborgarsvæðinu. Ansi hrædd um að illa gengi að koma fólki af svæðinu.
Sú vinna sem færi í það verkefni væri vinna til framtíðar en ekki skammtímalausn. Það hlýtur að vera hægt að efla atvinnu fyrir vestan með öðrum aðferðum en að gera óþarfa snjóflóðagarða.
Knús í kúlu <3
Kidda, 9.5.2012 kl. 10:18
Svo sannarlega eru til aðrar aðferðir til að bjarga byggð á Vestfjörðum, að gefa krókaveiðar frjálsar er ein leiðin, og jafna vörugjöld, taka upp eldneytisstyrki og svo framvegis. Það yrði allt til betri framtíðar fyrir okkur hér og landsbyggðina í heild.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2012 kl. 10:22
Komdu sæl,teta er natturulega bara enn eitt dæmid um hversu vonlaus tessi Rikisstjorn er.Nu vilja teir fara ad reisa HJUKRUNARHEIMILI fyrir austan til hvers svo teir geti lokad tvi eftir kosningar,bunir ad skera nidur alt sem hægt er ad skera nidur a Landsbyginni en nu a ad reina ad blekkja folk af tvi tad eru 5 min i kosningar,Eitt gott dæmi er tegar reint var a Seydisfirdi ad koma af stad kapalverksmidju sem atti ad fa hraefni fra alverinu a Reydarfirdi,synt var fram a ardsemi verkefnisins,en hvad skedi Fjarfestingarsjodurinn hoppadi fra af tvi ad postnumerid ekki var rett (101 RVK)ta var leitad til Rikisstjornarinnar,en nei eingir peninga a sama tima var hægt ad kasta tugum miljarda i Mynnismerki um hrunid,mynnismerki tar sem rekstrakostnadur og afborgun a lanum er lagmark 3 miljardar a ari(mydad vi 2,5% verdbolgu og eingar vakstahækkanir)tetta er ju einmitt landsbygdastefna aumustu Rikisstjornar sem setid hefur eftir stofnun Lidrædis her a landi,leggjum landsbygdina i eidi virdist adal mottoid
Þorsteinn J Þorsteinsson, 9.5.2012 kl. 13:03
Mikið er þetta rett ! Þetta fólk ( Ríkisstjórnin ) er aðeins að hugsa um sinn lifaldur - ekki framtíð þessa lands .
kv. Erla Magna
Erla Magna Alexandersdóttir, 9.5.2012 kl. 16:59
Þorsteinn sammála þetta er einn blekkingarleikur frá A til Ö.
Erla mín nákvæmlega það sem þau eru að pæla í.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2012 kl. 20:01
Þakka þér vinkona góðan og sannan pistil !!!og segi og meina hann er frábær!!!!!
Haraldur Haraldsson, 10.5.2012 kl. 00:17
Allt sem þau gera ,er til að vera. Flæði seðlabankinn yfir bakka sína,þarf að reysa seðlaflóðsvarnir á Arnarhrauni. svona til að geggja ruglið almennilega.Kv.
Helga Kristjánsdóttir, 10.5.2012 kl. 00:43
Arnarhrauni,elsku Ásthildur.
Helga Kristjánsdóttir, 10.5.2012 kl. 00:58
Arnarhóli ,afhverju er ég eeki þarna til að toppa ruglið,hver veit elsku Ásthildur.
Helga Kristjánsdóttir, 10.5.2012 kl. 01:00
Ertu nokkuð hætt með mér?
Helga Kristjánsdóttir, 10.5.2012 kl. 01:01
Nei Helga mín alls ekki. Takk fyrir innlitið og kommentin.
Takk fyrir mig Haraldur minn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.5.2012 kl. 09:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.