Maður er nefndur Högni Jóhann Sigurjónsson

Það er ábyrðarhluti að taka þátt í því að fella ríkisstjórn.

Ég hef verið á þeirri skoðun frá fyrsta degi þessarar ríkisstjórnar að hún þyrfti að fara frá, en afhverju? jú ég er á móti því að við göngum í ESB, en er það nóg ástæða til þess að þessi ríkisstjórn ætti að fara frá?
Nei kannski ekki svo að ég gaf henni sjens og vildi hafa trú á því að vinstri ríkisstjórn mundi nú gera eitthvað af viti fyrir fólkið í landinu, til dæmis datt mér í huga þegar ráðherrar fóru að tala um skjaldborg að við myndum ekki sjá að fólk stæði í biðröðum eftir matargjöfum og mér datt í hug að vinstri velferðarstjórn myndi með öllum ráðum sjá til þess að fólk sem væri að gefast upp myndi ekki falla í þá vondu gryfju að sjá ekkert annað framundan en að deyja bara og ég bara trúði því að þessi vinstri ríkisstjórn myndi sjá til þess að atvinnulífið myndi lifa og að hún myndi standa saman um að framleiðslugreinar myndu dafna og að einstaklingar hefðu atvinnu og að ríkissjóður myndi hafa gjaldeyristekjur, ég bara hafði ekki hugmyndarflug til þess að ímynda mér að eina leið ungs fólks til að komast af væri annaðhvort að flýja land eða vinna eingöngu svarta vinnu en sú er reyndin í dag.

 Nú er svo komið að þessi ríkisstjórn hefur lifað þrjú ár og það liggur nánast ekkert eftir hana skjaldborgin var fyrir fjármagnseigendur allskonar bætur og styrkir eru hugarfóstur vinstri ríkisstjórna og eru eingöngu til þess að láta heimilin í landinu greiða niður vexti fjármagnseigenda og að halda stórum útgerðum lifandi en saman eru þessir hópar að miklu leiti sami hópurinn og hafa í gegnum tíðina einfaldlega rænt þjóðina, en næstum allar ákvarðanir þessarar ríkisstjórnar hafa verið settar á ís þegar komið hefur verið að framkvæmdum, hún hefur farið um landið með hugmyndir eins og að flytja Landhelgisgæsluna og byggja snjóflóðavarnagarða sem hvorugt tekur inn gjaldeyristekjur hvorugt sparar einu sinni gjaldeyri en hugmyndir um framleiðslu þar sem verðmæti eru sköpuð eru ekki hafðar í hávegum og ég tel að það eigi að nota vosbúð þá sem er verið að koma þjóðinni í til þess að fá hana til þess að trú því að við þessir fáu eyjaskeggjar sem byggjum þessa eyju eigum samleið með milljóna borgum, við höfum ekki einu sinni efni á að halda uppi heilbrigðiskerfi hvað þá að ætla að fara að uppfylla allar þær tilskipanr sem myndu yfir okkur dynja og nóg hafa þær nú kostað hingað til.

 Ég tel að það eina sem sé í stöðunni núna sé að koma þessari ríkisstjórn frá og það með öllum tiltækum ráðum og trúa því að það sem gera þarf verði gert eftir kosningar, nei nei ég trúi því ekki að Sjálfstæðisflokkur geri það og ekki heldur Framsóknarflokkurinn ég trúi því að til sé fólk sem geti og vilji fara á þing og breyta því sem þarf að breyta, ég trúi því að það sé til fólk sem getur farið á þing og séð til þess að heimilisfólk í landinu fái tækifæri til þess að sjá Fram úr sínum skuldum og geta lifað sem gildir þegnar og sjálfstæðir foreldrar og ég trúi því að það sé hægt án þess að nokkur stofnun fái högg á sig og ég trúi því að til sé fólk sem getur komið nýrri stjórnarskrá í það far sem þarf og að eftir henni sé svo farið, ég trúi því að til sé fólk sem getur séð til þess að opinberar stofnanir verði til gagns en ekki eingöngu til fyrir sjálfar sig og að opinberir starfsmenn séu ekki svo margir að það sligi ríkissjóð heldur að þeir fari út á vinnumarkaðinn og skili ríkissjóði tekjum, ég trúi því að til sé fólk sem getur farið inn á þing og séð til þess að ákvarðanir verði framkvæmdar, ég trúi því að til sé fólk sem þorir að hreifa við hefðum þeim sem gera fjármagnseigendum kleift að lifa á heimilunum í landinu og að hreifa við því að forstjórar, deildarstjórar, skrifstofustjórar, ráðuneytisstjórar, þingmenn og ráðherrar séu ekki að vasat í eigin rekstri með skelfilegum afleiðingum fyrir heimilin í landinu og eða ríkissjóð, ég trúi því að til sé fólk sem getur gert samninga við jöklabréfaeigendur og aðra sem halda þjóðinni í gjaldeyrishöftum og ég trúi því að til sé fólk sem er til í að fara á þing fyrir fólk og eða hreifingar og vinna að framgangi þeirra stefnuskráa sem þau taka að sér að framfylgja og ég trúi því að til sé fólk sem þorir að fara þarna inn og sturta úr skúffum fortíðar í öllum ráðuneytum og ég trúi því að til sé fólk sem getur séð til þess að Íslensaka þjóðin geti lifað saman í sátt og samlyndi í sanngjörnu samfélagi og fallegu umhverfi eftir skynsamlegt uppgjör, en ég trúi því líka að við getum sjálf haldið í auðlindir okkar og lifað góðu lífi og án þess að standa í stöðugum erjum um þær eða út af þeim.

 Ég vil að þessi ríkisstjórn fari hið fyrsta frá en ekki til þess eins að Sjálfstæðisflokkurinn eða Framsóknarflokkurinn fái tækifæri til þess að halda áfram að nauðga þjóðinni, Íslenska þjóðin hefur lent undir valtara fjórflokksins og ekki síður völturum lögfræðinga og kirkjunnar í aldir og nú er komið að því að við höldum þeim utan við stjórn valtara og annara stórvirkra vinnuvéla eða ríkissjóðs og annara opinberra stofnana og að við ráðum fólk til þingstarfa sem þorir að sækja hart að bankaræningjum og kvótaræningjum eða þeim öðrum sem hafa rænt og nauðgað þjóðinni á annan hátt og sækji peningana hvar sem þeir eru og áttum okkur á því að fjórflokkurinn stendur fyrir fjármagnseigendur og stofnanafólk sem lifir á því einu að kom sér og sínum á góða staði og er í stríði við okkur sem öflum tekna og greiðum vexti og skatta um leið og þau ræna okkur, áttum okkur á því að einu peningarnir sem til eru eru launin og þau fara í að greiða skatta og vexti annað eru teiknaðar millifærslur.
Það er ábyrðarhluti að taka þátt í því að fella ríkisstjórn en það er ekki minni ábyrð fólgin í því að gera það ekki þegar séð er að hún gerir meira ógagn en gagn.

 

 


Þegar maður les svona hógværa grein, fyllist maður bjartsýni.  Við verðum að trúa því að þarna úti leynist fólk sem vill og getur leitt okkur út úr þeim hremmingum sem við erum í í dag. 
Hafði þökk fyrir þessa grein Högni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Þetta er alveg mögnuð lesning,það væri gott að fleiri hugsuðu á þessum nótum.

Þórarinn Baldursson, 28.4.2012 kl. 15:14

2 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Fjórflokkurinn virðist í máli skrifara samanstanda af tveimur flokkum. Það er skondin tillitssemi við núverandi stjórnarflokka að nefna þá aldrei á nafn þegar menn skamma fjórflokkinn

Flosi Kristjánsson, 28.4.2012 kl. 15:34

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir innlitið drengir.  Ég er sammála þér Þórarinn mögnuð grein.  Flosi ég held nú að enginn velkist í vafa um hverjar er átt við í greininni, þ.e. Samfylkinguna og Vinstri græna. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2012 kl. 15:37

4 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

Meiriháttar flottur pistill hjá Högna!!! - takk fyrir að vekja athygli á honum Ásthildur :))

Vilborg Eggertsdóttir, 28.4.2012 kl. 20:36

5 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Hafðu þökk fyrir að koma með þessa grein..

Vilhjálmur Stefánsson, 28.4.2012 kl. 21:08

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín er ánægjan Vilborg og Vilhjálmur.  Þessi skrif eru virkilega þess virði að vekja athygli á þeim.  Eiginlega eins og talað út úr mínu eigin hjarta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2012 kl. 21:39

7 identicon

"Það er ábyrðarhluti að taka þátt í því að fella ríkisstjórn en það er ekki minni ábyrð fólgin í því að gera það ekki þegar séð er að hún gerir meira ógagn en gagn".

Þessi lokaorð summa upp alla þessa frábæru grein Högna.

Þjóðin getur ekki beðið í lygum og sviknum kosningaloforðum eitt ár enn.

Burt með ríkisstjórnina og alla aðra hrunamafíu 4flokksins.

Það er nóg af nýju fólki til sem hafði ekkert með hrunið og samspillingu þingmanna og ráðherra í gegnum hrunð að gera.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 28.4.2012 kl. 22:31

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega Arnór.  Þetta er kjarninn í öllu sem er í dag. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2012 kl. 22:39

9 Smámynd: Björn Emilsson

Já svo mörg voru þau orð. Til þess að koma þessum breytingum á vantar ekkert minna en nýjan ´Jörund Hundadagakóng´. Semsagt einræðisherra í nokkur ár. Hver nennir að standa í því?

Björn Emilsson, 29.4.2012 kl. 11:03

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er ekki svo svartsýn Björn.  Það er örugglega fólk þarna úti sem er að vinna að því að ná saman um að bjóða sig fram og setja hendur fram úr ermum.  Akurinn ætti að vera plægður, og þá er bara að þora að breyta til.  Kjósa eitthvað annað en sama gamla flokkinn, ekki gleyma því sem þeir hafa gert, þegar þeir byrja söngin fyrir kösningar um ágæti sitt.   Þá er gott að muna hvernig þeir hafa hagað sér þegar þeir höfðu til þess afl og fylgi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2012 kl. 11:33

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við berum nefnilega heilmikla ábyrgð á því hvernig er komið fyrir okkur.  Því við höfum aldrei refsað stjórnvöldum sem segja eitt og gera svo annað.  Þess vegna hafa menn orðið kærulausir og vita að það er alveg sama hvað þeir gera, þeir eru kosnir aftur og aftur.   Þessu þarf að breyta, það verður til þess að setja menn upp á tærnar og láta þá vita að þeir fá bara tækifæri og ef þeir klúðra því, þá verma þeir varamannabekkinn kosningarnar á eftir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2012 kl. 11:35

12 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég þakka hlý orð í minn garð hér að ofan, varðandi fjórflokkinn þá á ég við 4flokkinn ég á við það gamla lélega vinaogvandamannakerfi og vil róttækar breytingar þar sem manngildi eru ofar græðgi.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 29.4.2012 kl. 12:04

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þakka þér fyrir frábæra grein Högni og innlitið á síðuna mína.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2012 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2021757

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband