23.1.2012 | 21:48
Kastljósið á það sem skiptir máli.
Það er oft gefandi að skoða blogg. Sá eitt í dag sem hreyfði verulega við mér Það er hér:http://gunnis.blog.is/blog/gunnis/entry/1218983/
Brjóstapúðar mikilvægar en 1000 manns sem detta út af framfærslu ?
"langar að minna á að það eru um 1000 manns sem duttu út af rétti til atvinnuleysisbóta þessi áramót, þó stjórnarskráin tali um að fólk eigi að vera tryggð framfræsla ef það missir vinnu eða veikist. og verandi einn af þessum hópi þá sé ég ekki að það standi mér neitt til boða, svo ég set stórt spurningarmerki við það að brjóstapúðar eigi að vera forgangsmál velferðaráðherra, og langar að byðja af fullri virðingu um að þingmaður vakni upp og reyni að átta sig á raunveruleikanum á þessu hörmungar skeri."
Þessi maður er einn af þeim. Nú er ég ekki að segja að það sé hægt að bera þetta saman og segja að eitt sé mikilvægara en annað. En samt, þessi ríkisstjórn gefur sig út fyrir að vera komin á góðan rekspöl og allt sé á uppleið, svo kemur svona frásögn manns sem stendur í þessum sporum.
Hvar er Kastljósið á þetta fólk, hvar er umræðan um ástand þess og líf? Getum við bara horft upp á svona lagað og yppt öxlum og sagt að þetta komi okkur ekki við?
Það er verið að bera einstæðar mæður út á götu, fólk sem er sett út af atvinnuleysiskrá og það á okkar litla Íslandi, þar sem allir ættu að geta haft það gott að lágmarki, átt þak yfir höfuðið og efni á næstu máltíð.
Hvenær urðum við svona hryllilega samviskulaus allt í einu að vera alveg sama um hvernig náunginn hefur það?
Og hvernig geta stjórnvöld sem kalla sig Norrænu velferðarstjórnina látið hanka sig á svona? Og sagt blákalt að þau séu að bjarga þessu öllu, bara rétt handan við hornið, bara á morgun... eða hinn.
Þetta er ríkisstjórnin sem hefur afskrifað milljarða ríka fólksins, afskrifað skuldir upp á milljarða fyrir fyrirtæki og gefið bankasýslumönnum skotleyfi á íslenskan almenning.
Og svo er verið að þrasa um hvort hengja eigi Geir Haarde eða ekki, og allt logar stafna á milli í báðum stjórnarflokkunum út af þeirri atkvæðagreiðslu.
Heiftin gengur út á það eftir því sem Þráinn Bertelsson segir að halda Sjálfstæðismönnum frá stjórnartaumunum, allt hitt skiptir ekki máli.
Hvað ætli þessu fólki finnist um það hver er við stjórn? Meðan þau eru í hrundansi við að lifa á okkar kalda landi, jafnvel bæði húsnæðislaus og eigandi ekki fyrir mat.
Ég skora á Kastljósið í útvarpi allra landsmanna að fá viðtal við Gunnar S, eða einhvern í hans sporum. Ræða við manninn á götunni sem virkilega er á götunni. Það þarf að vekja þessa þjóð og draga upp á rassgatinu til að þau skilji að þetta er ekki að ganga upp.
Þessi Norræna velferðarstjórn er ekki að gera sig á neinn hátt, og komin tími til að breyta um kúrs. Það er ekkert sjálfgefið að Sjálfstæðisflokkurinn muni hafa aðstöðú til að mynda meirihluta eftir kosningar. Ef fólk kýs líkt og það talar, þá ættu önnur framboð sem eru í farvatninu að fá góðar undirtektir. Og það er bara ekki hægt að hugsa svona bara þrauka til að hinn komist ekki að. Helv.. fokking fokk.
Það er komið nóg af falsi, lygi og fláræði fjórflokksins. Þetta er blettur á samfélaginu sem við getum ekki unað við að okkar bræður og systur þarna úti líði skort af öllum tegundum, fjölskyldur og einstaklingar.
Hér er komið alveg nóg. Hér þarf að gera eitthvað sem skiptir fólkið máli, en ekki eigingirni eða frekju þingliða. Þið eruð búin með tíman ykkar og þó fyrr hefði verið.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 2023221
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Allt betrta en ESB.
Helga Kristjánsdóttir, 23.1.2012 kl. 22:46
Já Helga mín og hér þarf að forgangsraða númer eitt tvö og þrjú.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.1.2012 kl. 23:01
Þú spyrð: "Hvenær urðum við svona hryllilega samviskulaus".
Því er fljót svarað: Þegar kommúnistarnir komust til valda sem var á vordögum 2009.
Heldur þú virkilega að þessir krakkar sem sjást í þessum sjónvarpsþætti, Kastljós í Ríkis Útvarpi Vinstrimanna (skammstafað RÚV) muni gera eitthvað sem gæti styggt þessa ónytjunga sem skipa þessa verstu ríkisstjórn sem setið hefur hér á landi?
Ef þú heldur það þá ert þú með bjartsýnni manneskjum hér á landi.
Hér mun ekkert gott gerast fyrr en þessir ónytjungar hundskast frá völdum en það mun ekki gerast fyrr en 2013. Límið sem heldur þessum skríl við völd heitir Sjálfstæðisflokkurinn.
Í næstu kosningum, hvenær sem þær verða (mjög líklega 2013), þá mun það koma í ljós hversu skelfilega lélegt kosningakerfi við búum við.
Það hefur verið rætt um að það þurfi að breyta stjórnarskránni og komið fram alls konar tillögur um breytingar í allar áttir en engin af þessum tillögum tekur á því sem raunverulega þarf að breyta; Kaflanum um kosningu til alþingis og tillögur um persónukjör er ekki lausnin. Meinið liggur annars staðar í kaflanum.
Ef breytingar nást á þessu (sem ég er ekki bjartsýnn á vegna ákveðinna hagsmuna sem valda elítan hefur af óbreyttu kerfi) þá þarf varla að breyta neinu öðru í stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.
En fyrst þarf að kjósa til alþingis áður að eitthvað geti farið að gerast til hins betra hér á landi.
Olgeir Gestsson (IP-tala skráð) 23.1.2012 kl. 23:29
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 24.1.2012 kl. 00:13
Það hefur farið virkilega í taugarnar á mér þetta dulda atvinnuleysi. Heyra talað um að það hafi fækkað á atvinnuleysisskránni eins og fólk hafi fengið vinnu. Annað hvort er fólk flutt úr landi, komið á bætur hjá sveitrfélögunum eða út á guð og gaddinn, þess vegna fækkar fólki á atvinnuleysisskránni en ekki vegna þess að um svo mörg störf sé um að ræða.
Kidda, 24.1.2012 kl. 12:08
Olgeir miðað við pistil þinn þá er ég ánægð með að vera meira bjartsýn en svartsýn. En ég er sammála þér að kosningalögin eru arfavitlaus og eiga sína sök á slímsetu úrdankaðra pólitíkusa sem eiga það eitt á sinni könnu að halda völdum og sitja sem lengst. En við sjálf eigum þarna líka mikla sök, það ætti í raun og veru að kenna fólki að kjósa í menntaskóla, kenna þeim hvað felst í því að vera ábyrg manneskja með kosningarétt. Það þarf að leggja áherslu á að kosningarétti fylgir mikil ábyrgð í að viðhalda lýðræði landsins. Að misnota atkvæði sitt sé í raun og veru eitt af því sem fólk á alls ekki að stunda. Kosningaréttur hvers manns er heilagur og honum ber að nota hann eftir sinni bestu samvisku. Kynna sér hvað flokkar hafa fram að færa, og fylgjast með loforðum og efndum. Og síðan refsa þeim sem ekki standa við loforð sín, samanber Vinstri Græna, sem lofuðu í hástert ekkert AGS, ekkert ESB, en voru þó á þeim tíma búnir að mynda bandalag um innsókn og AGS fyrir kosningar. Það er ekki hægt að lúta jafn lágt í svikum við kjósendur sína en þetta.
En fólk lætur líka glepja sig með bjór og pizzuáti til að kjósa einhverja flokka... af því bara. Þessu þarf að ráða bót á, með fram því að laga kosningakerfið. Takk fyrir innlitið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2012 kl. 13:00
Bjarni þakka þér fyrir þína vönduðu og góðu grein. Ég er búin að lesa hana yfir einu sinni og þarf að lesa aftur, því skilboðin í henni eru sterk og sláandi. Mikið rétt að við eins og svo margar aðrar þjóðir eyðum meira en við öflum. Það er ekki nóg að bara skera niður ríkisútgjöld, þegar bruðlað er á öðrum stað. Skorið niður það sem þjónar þjóðinni, en aukið í í gæluverkefnum samanber Harpa, Vaðlaheiðargöng og hátæknisjúkrakhús, sem allir vita að verður ekki mannað, því sjúkrahús sem þegar eru starfrækt geta ekki þjónað veiku fólk vegna mannfæðar og peningaleysis.
Það er von að maður spyrji; Hvar endar þetta allt?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2012 kl. 13:04
Nákvæmlega hárrétt Kidda mín. Og þeir sem flytja út er mestmegnis ung fólk með börn, og svo fólk með góða menntun. Þetta er hrikalega sorglegt og að heyra Jóhönnu og Steingrím stæra sig af hve vel þau hafa staðið sig er jafnvel enn meira óþolandi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2012 kl. 13:05
Flottur pistill hjá þér Ásthildur..Hafðu þökk fyrir,hef engvu við að bæta,nema þetta eru bölvaðir amlóðar sem sitja á þingi í dag..Hvenær heldurðu að verði kosningar??Verða þær fljótlega?Ég veit að það eru margir með Spádómsgáfu fyrir Vestan,en það engin með svoleiðis vit fyrir sunnan Breiðafjörð..
Vilhjálmur Stefánsson, 24.1.2012 kl. 13:38
Mér sýnist þessi ríkisstjórn sé að liðast í sundur vegna eigin sundurlyndis. Það eiga eftir að koma upp mál fljótlega sem skara verulega ætlun Jóhönnu og Steingríms við þá sem nú eru að sjá hvert stefnir. Ef til vill verður málið með Ástu Ragnheiði það sem sprengir ríkisstjórnina endanlega, en tæknilega er hún dauð. Hún mun ekki koma neinum málum fram, því hún hefur tæknilega ekki meirihluta lengur. En það er bara mitt mat á aðstæðum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2012 kl. 13:41
Var að lesa núna að Jóhanna var að gefa ádrátt um að láta Ástu Ragnheiði víkja, konan er komin á síðasta snúning, reka fólk fyrir að standa á sannfæringu sinni. Einræðisherrar hvað?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2012 kl. 15:35
Það var nú kanski ekki nógu vandað hjá mér að setja ekki skýrari gæsalappir um tilvitnunin í Ólaf, glöggir lesendur ættu þó að átta sig ;-)
Þetta línurit er magnað og margt hægt að lesa út úr því. T.d. að allan verðbólguáratuginn mikla, þann 8., þá var íslenskt þjóðarbú betur rekið enn áratugina eftir og fram að hruni, Þ.e. ef við tökum þetta skuldir/landsframleiðslu línurit sem táknmynd hrunsins. (Endirinn gefur vissulega tilefni til þess) Þá var ójöfnuðurinn sá að fjármagnseigendur töpuðu og verðbólguhítinn dró úr hagkvæmum fjárfestingum en þjóðarbúið var samt í jafnvægi með skuldir á móti þjóðarframleiðslu. (Ef ég man rétt þá voru bankarnir á þeim tíma alltaf reknir með tapi)
Eftir 1980 hafa fjármagnseigendur á hinn bóginn líklegast verið að hagnast á kostnað skuldara, vandanum sópað undir teppið með auknum lántökum og þjóðarbúið stefndi með auknum hraða í þrot. Frjálshyggan hans Davíðs hefur greinilega ekki lagað vandann heldur snaraukið hann, EN og það er mjög mikilvægt en, án hennar hefði nákvæmlega sama gerst bara nokkrum árum seinna að óbreittu fjármálakerfi.
Ég held að þetta línurit sýni öðru fremur hvað verðtryggingin er gjörsamlega klikkað fyrirbæri.
Ég tek það fram að ég hef ekki hundsvit á hagfræði (ekki frekar en ótrúlega margir hagfræðingar) og er hugsanlega undir full miklum áhrifum af veðurkortablogginu hjá Trausta og Einari Sveinbjörns. Held reyndar að veðurfræðingar væru miklu heppilegri til að lesa í efnahagslífið en margur annar ;-)
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 24.1.2012 kl. 16:31
Bjarni ég sá vel að þú varst að vitna í annan, en ég er þér þakklát fyrir að setja þetta hér inn til umhugsunar. Það er nefnilega sama hvaðan gott kemur. Ég er sammála þér að ef til vill eru veðurfræðingar betri hagfræðingar en þeir sem hafa setið á skólabekk og rýnt í tölur súlurit. Veðurfræðingar hafa þó þurf smáskammt af heilbrigðri skynsemi til að rýna í veðurkort og líkur á afleiðingum þess sem þar sést.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2012 kl. 16:38
Ásthildur ertu búin að lesa nýjasta bloggið mitt? þar kemur nú siðferðið okkar heldur betur við sögu. það væri gaman að heyra þitt álit á þessari hugmynd sem ég varpa fram hér http://alit.blog.is/blog/alit/entry/1217956/
Guðrún Sæmundsdóttir, 24.1.2012 kl. 16:50
hér kemur beinn hlekkur á þetta Ásthildur.
Guðrún Sæmundsdóttir, 24.1.2012 kl. 16:54
Takk fyrir þessa ábendingu Guðrún, góður pistill og ég er alveg sammála þér, setti inn svar hjá þér, set það inn hér líka:
18
Ég er algjörlega sammála þér í þessari grein Guðrún. Ég veit að maður sem ég þekki vel ætlaði að setja á stofn 7000 fm gróðurhús inn í Reykjanesi, þar sem nóg ef af heitu vatni, hann var búin að láta reikna úr arðsemna, og sparnað á innflutningi á ávöctum og grænmeti, bæði innkaup og innflutning sem verður að vera með flugi. Hann gafst upp vegna ótal regluverka og áhugaleysis þeirra sem eiga að vinna að uppbyggingu atvinnusköpunar, og þröngsýni í innflutningsgeirans sem missa spón úr aski. Það er svo vel hægt að rækta bæði grænmeti og ávexti hér með ódýrum og góðum árangri, tala nú ekki um ef rafmagn er lækkað til garðyrkjubænda, fyrir utan að um miklu hreinræktaðri voru væri að ræða. Það er grátlegt að það skuli alltaf sitja allskonar "hagsmunaaðilar" á bremsunum af því að þeirra ágóði verður ekki nægur. Hér þarf að fara að breyta um kúrs og verða meðvitaðri um að allir jarðarbúar búa saman á þessari plánetu og að okkur mun farnast best með því að vinna saman en ekki sífellt að sýna öðrum yfirgang og ofbeldi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2012 kl. 17:28
takk Ásthildur, vonandi verður breyting á þessu, við getum ekki bara beðið eftir erlendum fjárfestum, þeir eru ekki að fara að taka neina sénsa í heimskreppu sem bara á eftir að dýpka.
Guðrún Sæmundsdóttir, 24.1.2012 kl. 18:21
Nei það sem við þurfum er festa í stjórnmálum, ríkisstjórn sem leggur leikreglurnar og lætur síðan samfélagið í friði. Íslendingar eru afar færir í að bjarga sér ef þeir fá til þess frið frá yfirgangssömum stjórnvöldum, sem telja einu leiðina að hækka skatta sem aftur hrekur fólk burtu og þá þarf að hækka þá aftur því alltaf eru færri og færri sem bera skuldaklafan á bakinu. Ekki gera þessi stjórnvöld það, né eru líkleg til þess.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2012 kl. 20:18
nákvæmlega,
Guðrún Sæmundsdóttir, 24.1.2012 kl. 20:29
Leitt að heyra með gróðurhúsin. Þetta er eitthvð sem ég myndi vilja sjá hér á landi miklu frekar en margt annað. Nota orkuna til að framleiða hágæða grænmeti og ávexti.
Kidda, 25.1.2012 kl. 13:09
Já því miður búum við við miðstýringu valds, þar sem passað er vandlega upp á að Pétur og Páll geti ekki komið af stað neinu sem kemur gæðingum ríkisins illa, og þá á ég við allan fjórflokkinn, það er sami rassinn undir þeim öllum því miður.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2012 kl. 14:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.