26.12.2011 | 12:59
Það snjóar bara og snjóar - aðfangadagskvöld.
Það snjóar bara og snjóar, ég hef ekki farið út fyrir dyr síðan á aðfangadag, bara notið þess að vera til og hafa fjölskylduna mína í kring um mig, þau sem enn eru hér. Og svo yndisleg samtöl frá útlöndum.
En ýmislegt skrýtið er í pokahorninu eins og að ég sendi börnunum mínum frosin vakúmpökkuð lambalæri ásamt ýmsu öðru, til Norest, hafði verið stungið á vakúmpakkninguna svo blóð hafði lekið niður í pakkann, og það þó ég hafi sett auka plastpoka utan um, og hákarlskrukka hafði verið opnuð og síðan forskrúfuð, þannig að lyktin var ekki alveg nógu góð. En það bjargaðist samt sem betur fer. Til Austurríkis hafði kjötið hreinlega verið tekið upp og vakúmpakkningin tekin alveg utan af því, svo pakkinn var alblóðugur, því lærið var orðið þýtt í meðförum austurríska tollsins. En þeir sendu þetta samt allt til endastöðvar sem betur fer, þrátt fyrir allt. En sumar jólagjafirnar fóru fyrir lítið af þessum sökum.
Hélt einhvernveginn að vakúmpakkning væri besta vörnin og óþarfi að rífa hana upp.
En við áttum kyrrlátt aðfangadagskvöld fjölskyldan og nutum þess.
Við höfðum þennan klassiska hamborgarahrygg, með tómatsúpu special made ala mamma Ásthildur í forrétt, það er eiginlega eitthvað sem ég hef haft alla tíð á jólunum og börnin mín elska hana. Hér er hamborgarahryggurinn skorin.
Í eftirrétt var svo þessi frábæra kaka sem krakkarnir höfðu bakað í sameiningu.
Þá var komið að því sem er mest spennandi fyrir börnin það er að opna pakkana.
Svo lögðust bara allir í lestur og rólegheit.
Þetta var eini ærslabelgurinn á heimilin Jólakattarbarnið
Henni Lottu finnst voða gaman að týna jólakúlurnar af trénu og leika sér með þær út um allt.
Best er samt að skríða upp í fangið á "pabba" sínum og kúra.
Ég er búin að hafa það afar gott og ætla halda áfram að njóta þess að vera til alveg þangað til vísareikningurinn minn kemur inn um lúguna En það er den tíd den sorg.
Eigið góðan dag elskurnar
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 4
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 2021768
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðileg jól Ásthildur mín og kveðja í kærleikskúlu
Ragna Birgisdóttir, 26.12.2011 kl. 13:13
Gleðileg jól elsku frænka og co
jólaknús til ykkar frá okkur í Noregi
Hulda Klara frænka í Noregi (IP-tala skráð) 26.12.2011 kl. 13:17
Bestu jólakveðjur til þín og þinna kæra Ásthildur :)
Ingibjörg G guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 26.12.2011 kl. 13:34
Takk fyrir yndislegar myndir, Það er gaman að Lottu maður þekkir þetta með jólakúlurnar
Kærleikskveðjur til ykkar í Kúlu
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.12.2011 kl. 14:07
Takk allar.
Gleðileg jól sömuleiðis Ragna mín.
Vona að þú hafir það gott í Noregi Elsku Hulda Klara mín, og vonandi fáum við ykkur öll heim aftur þegar birtir upp á ný í peningamálum hér heima.
Innilegar jólakveðjur til þín lika Ingibjörg mín.
Takk Milla mín já hún er yndæl þessi litli kettlingur. Bestu kveðjur til þín líka.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2011 kl. 16:30
Jólakúlurnar, hún sonardóttir mín varð himinlifandi þegar hún sá alla "boltana" á jólatrénu og varð fyrir miklum vonbrigðum að mega ekki leika með þá. Gott að sjá að þið nutuð jólanna, en skítt að tollararnir hafi skemmt pakkninguna utanum kjötið. Skyldu þeir ekki vita að blóðið lekur um allt, eða er þeim bara sama?
Búin með Loðfílana og fannst þeir meiriháttar, Aldís fékk þá með heim í kvöld. Spennt að vita hvað henni finnst.
Dísa (IP-tala skráð) 26.12.2011 kl. 21:28
Blessað ungviðið upptekið af skrautinu og þessu fallega dóti Þeim er sennilega alveg sama annars hefðu þeir væntanlega gengið betur frá kjötinu, hvert mannsbarn komið yfir 10 ára veit að það blæðir úr hráu kjöti
Hlakka til að heyra álit fröken Aldísar á sögunni Dísa mín. Takk fyrir hrósið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.12.2011 kl. 22:35
Gleðileg jól mín kæra. Njóttu lífsins áfram.
Laufey B Waage, 26.12.2011 kl. 23:15
Gleðilega hátíð mín kæra og öll þín fjölskylda :-)
Jónína Dúadóttir, 26.12.2011 kl. 23:19
Takk elsku Laufey þakka þér jólakveðjuna
Takk Jónína mín sömuleiðis.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2011 kl. 01:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.