Grasrótarstarf er ekki aðeins mikilvægt í lýðræðislegu samhengi heldur er grasrótarstarf lífsmarkið með lýðræðinu.

Það er eitthvað gott að gerast, og við skulum hlú að því og vernda svo það vaxi og dafni. 

Það er grasrótarstarfið sem ég bind svo miklar vonir við.  Ég set hér inn blogg Rakelar Sigurgeirsdóttur, hún er ein af mörgum sem hefur unnið ötullega að því að vekja okkur til umhugsunar og hvetja okkur til dáða. http://raksig.blog.is/blog/raksig/entry/1203833/

Þarna er um að ræða kynningarfund í grasrótarsamtökunum sem hafa fundið sér samastað í Brautarholti 4.  En það eru eftirtaldir aðilar: Alda: Félag um lýðræði og sjálfbærni, Borgarahreyfingin, Bót: Aðgerðarhópur um bætt samfélag, Frjálslyndi flokkurinn, Húmanistaflokkurinn, Hreyfingin, IFRI-hópurinn, Samtök fullveldissinna og Þjóðarflokkurinn.

Einnig komu þarna fram nokkrir fleiri aðilar eins og:  Zeitgeist-hópinn, Occupy Reykjavík, Íbúahreyfinguna, Stjórnarskrárfélagið og Gagnauga.

Forsetanum og frú var boðið og þágðu þau boðið og sátu þennan fund með fólkinu.  Hann hélt góða ræðu sem er í bloggfærslu Rakelar, þar sagði hann:  „grasrótarstarf er ekki aðeins mikilvægt í lýðræðislegu samfélagi heldur er grasrótarstarf lífsmarkið með lýðræðinu.“

Þetta er sá vettvangur sem ég vil hlú að og vinna með.  Þarna er eitthvað gott að gerast þvert á pólitíska flokka, þarna er unnið af heiðarleika og óþreytandi dugnaði við að safna saman því fólki sem hefur lagt sig við að vinna að betra samfélagi fyrir okkur öll. Ég vildi óska að ég gæti verið meira með.  En vegna fjarlægðar vil ég þó gera mitt til að vekja athygli á þessari grósku lýðræðisins. 

Það kom fram að Grikkir áttu sinn fulltrúa þarna.

Vilt þú leggja þitt af mörkum til að breyta þjóðfélaginu til batnaðar?

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981[1]

Áfram íslenska þjóð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Sendi þennan pistil á Fesið hjá mer- ef þer er sama. kv. Erla M

Erla Magna Alexandersdóttir, 10.11.2011 kl. 15:25

2 Smámynd: Kidda

Vonand kemur eitthvað gott út úr þessu.

Kidda, 10.11.2011 kl. 16:46

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín er ánægjan Erla mín.

Kidda það vona ég svo sannarlega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2011 kl. 18:33

4 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Þetta káf í Brautarhilti 4 er ekkert nema káf og gefur ekkart af sér. Sorrý

Eyjólfur Jónsson, 10.11.2011 kl. 19:03

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei EYjólfur þannig lít ég ekki á málið. Þetta "káf" mun leiða af sér góða hluti.  Það er ég viss um.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2011 kl. 19:36

6 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Satt Ásthildur, þetta er vist að koma núna, hann Gunnar Páll er loksins kominn í "réttan" gír og allt í botni. Ég kem þá á næsta fund á laugardag og svo var ég búinn að borga 1500 í kaffipottinn og það verð ég að sötra í mig.Áfram með smjörið Ásthildur

Eyjólfur Jónsson, 10.11.2011 kl. 23:44

7 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ég var á þessum ágæta fundi Ásthildur. Flott að fá alla linkana á samtökin sem voru á fundinum hér inn hjá þér!

Ef ég má ný atriði komin inn á sjálfbærnisíðuna mína. Eins og "Tilgangur" og "Nálgun"

Kær kveðja,

Guðni Karl

Guðni Karl Harðarson, 11.11.2011 kl. 00:58

8 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Takk fyrir að vekja athygli á þessu. Það er ljóst að það eru ekki allir jafn hrifnir af áhuga og velþóknun forsetans á grasrótarstarfinu og/eða sjá heimsókn hans á þennan fund ekki í því ljósi.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 11.11.2011 kl. 06:15

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að vita Eyjólfur minn.   Var kaffið annars ekki gott?

Gott mál Guðni karl, Tilgangur og Nálgun eru gefandi orð. 

Það er nú það minnsta sem ég get gert Rakel mín.  Já það fer örugglega um ýmsa sem EKKI eru í grasrótinni að sjá hve forsetinn getur verið alþýðlegur og hve vel hann kemst að þjóðarsálinni.  Ég er afskaplega ánægð  með ykkur öll, og vænti mikils af ykkur hverju og einu sem að þessu standið.  Innilega takk.  Ég hugsa að þetta fari í sögubækur sem sólskynsblettur sem mun vonandi stækka uns hann nær um alla jörðina.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.11.2011 kl. 08:45

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Langar að segja þér að ég fór á opinn fund með Hönnu Birnu í gærkvöldi, hún er frábær í nærmynd  ég hafði mjög gaman af því að spjalla við hana.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.11.2011 kl. 12:11

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott mál. Vonandi hefur hún getað skýrt sín stefnumál fyrir gestum kvöldsins. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.11.2011 kl. 12:48

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, töluvert en ekki nóg.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.11.2011 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2021759

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband