Lítil færsla um ungviði.

Það er rigning og frekar hráslagalegt í dag, en á morgun spáir vel, ég held að loksins sé sumarið að koma.  Það hefur tekið vel af snjó úr fjöllum, og með þessari rigningu mun úthaginn fara að grænka.  HEstakona sagði mér í gær að hún hefði fyrst núna sleppt hestunum á beit í haga og það er nánast komin júlí. Ég man ekki eftir öðru eins veðurfari. 

Við fengum ánægjulega heimsókn um daginn af Margréti Frímanns og Jóni Gunnari Óttarssyni, við gengum saman um lóðina, en Margrét hefur alltaf haft mikinn áhuga á garðyrkju.  Hún kenndi mér samfélgsfræði í Garðyrkjuskólanum.  Það var gaman að hitta hana svona á heimaslóðum.

En ég lofaði smá færslu um ungviði.

IMG_2212-1

Mamma er góð, en hvað er hún með?

IMG_2213-1

Já mamma er best og skjótt skipast veður í lofti.

IMG_2214-1

Ég er pínkusmeyk við þetta.

IMG_2215-1

Og það eru auðvitað Pípí sem um er að ræða.

IMG_2216-1

Vá hann situr hjá mér alveg rólegur.

IMG_2217-1

Amma sjáðu!!! ég er ekkert hrædd.

IMG_2219-1

Og ég þori alveg sjálf....

IMG_2221-1

Sona sona litli minn ég skal gæta þín.

IMG_2222-1

Þú mátt nú líka fara eitthvað annað ...

IMG_2225-1

Vá!!!! þú ert búin að kúka á gólfið...

IMG_2228-1

Og þá er komið að því að kveðja, litla skottan mín á leið til  Noregsi.

IMG_2229-1

Bless amma í kúlu. 

IMG_2230-1

Það er alltaf erfitt að kveðja.

IMG_2232-1

En kærleikurinn lifir þó leiðir skilji að.

IMG_2234-1

Bless Alejandra.

IMG_2235-1

Bless afi Heart

IMG_2237-1

Afi og pípí fá sér kaffisopa í grasinu.

IMG_2239-1

Pípí finnst gaman að vera úti í grasinu.  Þar eru bara stundum stórir ljótir kettir sem geta reynst honum hættulegir meðan hann er svona lítill. Ég held að krummi myndi láta hann vera, af því krummi er svo klár fugl og veit að ég gef honum oft og hann myndi ekki gera mér það að borða ungann okkar. Heart Kettir aftur á móti hafa ekkert svona lojalty. 

IMG_2240-1

Heimsókn, smá kaffi og spjall, hvað er skemmtilegra en það?

IMG_2242-1

eins og sjá má á myndum sem voru teknar núna áðan, þá hefur snjóinn tekið heimmikið upp.

IMG_2243-1

Ég held samt að gömlum ísfirðingum finnist ótrúlega mikið eftir af snjó í fjöllunum miðað við árstíma.

En eigið góðan dag elskurnar. Og núna í þessum rituðu orðum brýst sólin fram.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kidda

Vonandi kemur rigningin svo á höfuðborgarsvæðið þegar hún er búin að vökva vel fyrir vestan Gott að sólin er að koma til þín, hún er svo mikill gleðigjafi þessi elska.

Knús í andakúluna

Kidda, 29.6.2011 kl. 11:58

2 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín.

Alveg dásamlegar myndir hjá þér Það er ógeðslega kalt hjá okkur hérna í Reykjavík í dag.  Alveg hætt að botna í þessu veðri.  Það eru 5°C    Bestu kveðjur til þín og þinna. Knús í hús.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 29.6.2011 kl. 11:59

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín sendi þér rigninguna strax

Takk Margrét mín, já vonandi hlýnar á okkar kalda fagra landi fljótlega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.6.2011 kl. 12:12

4 identicon

Ungar af kyni manna og fugla passa vel saman þegar maður sér að þeir eru meinlausir. Alveg er ég viss um að þetta tollir lengi í minni hennar, perla í minningasjóðinn hjá ömmu og afa.

Dísa (IP-tala skráð) 29.6.2011 kl. 17:02

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég vona það Dísa mín, já ungviðið er svo sem allt voða svipað, saklaust forvitið og vilja að stutt sé í mömmu sína.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.6.2011 kl. 20:39

6 identicon

Sæll Ásthildur

Þarna  hafa verið teknar yndislegar myndir af samspili manns og dýra í samspili náttúrunnar og brosið á barninu leyndir sér ekki við að virða ungann fyrir sér.   Okkur vantar meira af svona yndislegri brjóstbirtu

Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 30.6.2011 kl. 09:00

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir innlitið og hlý orð Þór.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.6.2011 kl. 10:31

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Góðan dag! Gott að sjá þig ,,áðan,,   Ég held maður gleymi seint þessu sumri,nái maður að tóra eitthvað,kalt í veðri,kalt í Stjórnarráðinu. Síðan ylja myndir af hlýju fólki upp, ég meina það, takk fyrir .

Helga Kristjánsdóttir, 30.6.2011 kl. 11:30

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Dásamlegar myndir, takk fyrir mig :)

Ásdís Sigurðardóttir, 30.6.2011 kl. 11:59

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk stelpur mínar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.6.2011 kl. 12:01

11 Smámynd: Ragnheiður

Vá en frábær myndasería, alveg heilandi fyrir þreyttar sálir.

Takk mín kæra fyrir að deila þessu með okkur sem njótum

Ragnheiður , 30.6.2011 kl. 20:05

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

 Mín er ánægjan elsku Ragnheiður mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.6.2011 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2023284

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband