15.4.2011 | 12:03
Ævintýrið mitt í ár.
Nú er næstum vika í Aldrei fór ég suður hátíðina. Við höfum komið saman Eygló (gítar) Bryndís (trommur) Og ég nokkrum sinnum, og það er búið að vera virkilega gaman. Ég er mest hissa á hve fljótt allt rifjast upp þó 29 ár séu liðin. Fyrst þegar ég sótti bassann niður í kjallara og hélt honum í fanginu, varð ég alveg í sjokki, ég mundi ekkert. Hugsaði með mér hvern andskotan ertu nú búin að koma þér í Ásthildur. en svo fórum við að hittast og æfa bæði saman og sitt í hvoru lagi. Við erum bara þrjár hér, svo koma þær hver af annari fljótlega Oddý (gítar) Rannveig ( söngur) Ásdís (Söngur) og Björk (hljómborð). Svo höfum við fengið til liðs við okkur unga stúlku með saxofón hana Miriam Maeekalle. Við munum syngja 4 lög tvö sem ég samdi og tvö frá Oddný.
Þetta verður rosalega gaman.
Baldur Páll Hólmgeirsson tók þessar myndir.
Og sama og síðast við komnar í blöðin
http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=162849
Facebooksíðu eigum við líka.
http://www.facebook.com/pages/Sokkabandi%C3%B0/206229712738682?sk=wall
Mest er þó gaman að hitta allar stelpurnar aftur sem komast. Mér skilst að Fjóla sé í Noregi, Ingunn kemst ekki því miður. En við ætlum að hafa þær í huganum og Báru Elíasdóttur frænku mína en ekki dóttur. Bára mín söng samt með okkur frumsamið eigið lag um hann Fidda feita, þá um 10 ára gömul.
http://www.aldrei.is/listamenn/ Hér er vefsíða Aldrei fór ég suður.
Við vorum líka fyrsta hljómsveitin til að stíga á stokk í Músiktilraunum árið 1982.
Það er skemmtileg staðreynd að fyrsta hljómsveit til að stíga á stokk í Músíktilraunum 1982, var kvennahljómsveitin Sokkabandið, en oft hefur verið fjallað um skort á þátttöku stúlkna í þessum tilraunum. Það hafa þó nokkuð oft verið stúlknasveitir sem hafa komist í úrslit, eða unnið, sbr.Dúkkulísurnar, Kolrassa Krókríðandi, Á Túr ,Mammút, Spelgur o.fl.
Og hér er svo tvö myndbönd síðan þá.
http://www.youtube.com/watch?v=SMMn-s6OwFg
http://www.youtube.com/watch?v=qHndptuFPJ0
Og mér finnst dálítið eins og ég sé að brjóta ís fyrir okkur kerlingarnar. Að það er aldrei of seint að gera eitthvað skemmtilegt og öðruvísi. Aldurinn skiptir ekki máli heldur bara að þora að taka skrefin. Það er nefnilega miklu skemmtilegra í minningunni að hafa tekið skrefið, en að sakna þess að hafa ekki þorað að taka átt.
En eigið góðan dag elskurnar.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 58
- Frá upphafi: 2023222
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hárrétt hjá þér, það er miklu betra að stökkva en eyða jafnvel mörgum árum í "ef ég bara hefði". Jafnvel þó eitthvað mistakist á leiðinni.
Ég óska ykkur góðs gengis og umfram allt góðrar skemmtunar á tónleikunum

Dísa (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 12:33
Þetta er bara snild hlakka til að hlusta og horfa
Elfar Logi Hannesson, 15.4.2011 kl. 12:36
Takk Elvar Logi minn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2011 kl. 12:42
Vá það tekur tímana tvo,að fara yfir þetta,maður verður að gefa sér tíma að dvelja við það. Það er aldeilis gaman hjá þér,enda veitir ekki af eftir ,,boxið,, V/Icesave.
Helga Kristjánsdóttir, 15.4.2011 kl. 15:08
Mikið væri ég til að koma vestur og hlusta og horfa með eigin augum og eyrum
Knús í bassakúluna
Kidda, 15.4.2011 kl. 15:20
Takk, já það væri gaman. Þetta er glæsileg skemmtun ásamt skíðavikunni.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2011 kl. 16:33
Meira um Sokkabandið:
http://aldrei.is/frettir/Sokkabandsarin/
http://aldrei.is/frettir/Sokkabandid_vid_aefingar
G
Gústi (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 17:18
FRÁBÆRT!
Jóhanna Magnúsdóttir, 15.4.2011 kl. 19:00
Það verður gaman að koma og hlusta, hlakka til.
Bára Elíasdóttir frænka (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 20:34
Rosalega held ég að verði gaman. Það er nefnilega þannig að ef maður fer með því hugarfari að maður ÆTLAR að skemmta sér þá VERÐUR gaman. Ég treysti því Ásthildur mín að þú látir einhvern taka "combackið" upp og setjir það inn hérna fyrir okkur hin sem ekki komumst...............
Jóhann Elíasson, 15.4.2011 kl. 20:37
Takk fyrir þetta Gústi minn.
Takk Jóhanna mín.
Bára komdu og vertu með okkur á laugardaginn hér upp í kúlu og fáðu stemninguna við verðum hér að æfa og láta sjæna okkur til.
Jóhann minn þetta verður allt tekið upp og sýnt í beinni held ég á www.aldrei.is, Þar eru allar upplýsingar allavega. Og jú þetta verður tekið upp og sýnt líka.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2011 kl. 22:49
Ég hlakka til þess að sjá og heyra í ykkur
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 16.4.2011 kl. 00:17
Kraftakerlingar þið
Flott hjá ykkur 

Dagný, 16.4.2011 kl. 10:27
Takk stelpur þetta er allt að koma hjá okkur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.4.2011 kl. 19:26
Gangi ykkur vel! Rosalega hlakka ég til að sjá ykkur á netinu. Þú verður að gefa upp tíma
Hrönn Sigurðardóttir, 17.4.2011 kl. 00:48
Frábært hjá þér/ykkur
Þú ert snillingur kona

Jónína Dúadóttir, 17.4.2011 kl. 10:32
Takk elskurnar. ég er á fullu núna að undibúa fermingu á fimmtudag, tónleikana á laugardag, og dreyfplöntun sem ég þarf að ljúka við áður en það gerist
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2011 kl. 10:52
Gangi þér vel í öllum önnunum. Þú klárar þetta eins og allt annað

Dísa (IP-tala skráð) 17.4.2011 kl. 11:29
Takk Dísa mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2011 kl. 15:21
Þetta er frábært hjá ykkur dömur.
Gangi ykkur vel og góða skemmtun
Valdís Skúladóttir, 19.4.2011 kl. 12:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.