Afmæli og ýmislegt fleira skemmtilegt.

Í dag héldum við upp á afmæli Ásthildar Cesil, þegar hún átti afmælið var mamma hennar í prófum og enginn tími til neins, svo varð hún lasin svo enn var frestað.  En í dag var sem sagt haldið upp á afmælið hennar.

Ég morgun fer ég með Báru minni til Gras að hitta Leó frænda minn og Ericu eiginkonu hans, en þau eru bæði listamenn, ljósmyndarar, málarar, grafík og skúlptúrlistamenn. 
Leó frændi bjó lengi á Ísafirðí og var það með ljópsmyndastofu, en þegar Erica kom til Ísafjarðar á námskeið í myndlist, ef ég man rétt var þá kennarinn Sigurður Th.  Man ekki alveg nafnið hans, en hann er látinn.  En þá kviknaði ástin sem enn brennur hjá þessum tveimur.

Eftir Gras fer ég svo til Vínar og gisti hjá vinkonu minni Christinu Gobbi, við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman, og á sunnudaginn förum við svo í Katakomburnar og síðan er partý hjá Christine, svona sixties sem kallast með hár undir höndum hehehe...
Síðan verður farið á myndlistasýningu Ericu í Vín, svo það verður nóg að gera hjá mér um helgina. 

IMG_9354

Þetta byrjaði allt mjög sakleysislega.  Mamma þeirra keypti handa þeim svona handarmálningu, og þær áttu svona teiknisspjöld hehe....

Og svo vildu þær fá að prófa, mamma og pabbi farin í partý!!!

IMG_9355

Aldrei að vanmeta svona uppákomur.  En ég var að passa litlu dömurnar mínar.  Mamma þeirra og pabbi fóru í útskriftarpartý með skólafélögum Báru.

IMG_9356

Svo smám saman æstist leikurin, rétt si svona, ég var ekki alveg sátt við framvinduna, en hvað er hægt að gera?

IMG_9358

Annað en að slá þessu upp í kæruleysi?

IMG_9359

Því þó það sé ár og dagur síðan ég var svona lítil, þá man ég hvað það gat verið gaman að gleyma sér í allskonar.... þó svona væri ekki til þá.

IMG_9362

Lengi vel reyndi ég samt að halda andlitinu, en ég bara gat ekki annað en hlegið...

IMG_9364

Þetta var nefnilega ósvikin gleði, sem við ættum stundum að leyfa okkur líka fullorðna fólkið.

IMG_9365

En Palli heimalningur var heima, þeir voru reyndar að fara í partý líka drengirnir, Reinhard hinn heimagangurinn og skólafélagi þeirra.  Reinhard hvíslaði r eyndar út um annað munnvikið að svona ætti bara að gera á sumrin út í garði LoL

IMG_9366

Anyway... þá leit dæmið svona út...

IMG_9367

Eða jafnvel svona hehehe...

IMG_9369

En svo tók Palli af skarið, lét renna í bað og bar bæði villidýrin þangað og setti í bað.

IMG_9370

Og þá var eftir að þrýfa heheheLoL

IMG_9371

Jamm duglegir strákar ekki satt!!! Tounge

IMG_9372

Einhver þurfti jú að baða stelpurnar og koma þeim í náttföt og í rúmið ekki satt!!!

IMG_9373

En strákagreyin voru sem sagt á leið í partý, voru búnir að kaupa þessa flottu körfu og setja allskonar ofan í hana bjór, osta og snakk til að gleðja einn skólafélagan sem átti afmæli, svo ég sagði rétt si sona hvort það væri ekki tilhlýðilegt að setja kort með.  Það var auðvitað ekki til neitt kort, svo ég sagði þið getið bara teiknað kort, og lét þá hafa blað.   Og já Palli fór að teikna, og hér er fyrirmyndin.

IMG_9374

Félagarnir horfuð áhugasamir á...

IMG_9375

Og ég hafði gaman af öllu saman.

IMG_9376

Já þetta gengur bara vel hjá stráksa.

IMG_9377

Hver segir að Helló Kittý geti ekki heillað jafn unga pilta sem litlar stúlkurLoL+

IMG_9380

Og karfan tilbúin og strákarnir til í tuskið.

IMG_9382

Hér eru svo partýljóninn tilbúinn líka, búin að opna freyðivín og alles.

IMG_9384

Svo sæt samanHeart

IMG_9385

BINGÓ!!!!

IMG_9390

En barnapían var dálítið slöpp og reyndar ætlaði að leggja sig aðeins hjá stelpunum, sem hún hafði plantað upp í ömmuholu með ávaxtaskál og mynd, og sofnaði á undan pæjunum InLove Það gerði samt ekki til , því ég á svo dugleg barnabörn.

IMG_9393

En það var sum sé haldið upp á afmæli Ásthildar í dag, og nágrannabörnunum boðið, þessi tvö eru alveg rosalega stillt... heima hjá sér, en bæta það upp þegar þau koma annarsstaðar LoL Get sagt þetta því enginn skilur.

IMG_9394

Mín auðvitað búin að klæða sig uppá og svona.

IMG_9396

Svo var sest inn í stofu, og hér eru pakkarnir.

IMG_9398

´Það var eftirvænting í loftinu hjá krílunum.

IMG_9399

Setja upp kórónuna sem við Hanna Sól útbjuggum um daginn.

IMG_9401

Svo var sunginn afmælissöngurinn á ensku í þetta skipti og Ásthildur varð svolítið feiminn.

IMG_9404

Og þá var farið í að opna pakka, hér er gjöfin frá ömmu í kúlu, syngjandi Barbie, ég sver það, það var ekki mín hugmynd, heldur vissi ég að það var einmitt svona sem hún vildi.  Barbie syngur samt klassik en ekki dægurflugur. LoL

IMG_9406

Það er alltaf gaman að taka upp pakka.

IMG_9412

Hún fékk líka þennan flotta prinsessukjól frá pabba og mömmu.

IMG_9420

Aldeilis fín lítil stúlka.

IMG_9422

Svo var farið í að skreyta kökuna, jamm það var ákveðið vegna tímaskorts að það væri bara sniðugt að börnin fengju öll að hjálpast að við að skreyta, og þau voru alsæl.  Ég bakaði skúffuköku og pönnukökur.

IMG_9423

Ég er alveg klár á að þessi blessuð börn með allar fyrirmyndarmömmurnar hafa aldrei fengið að skreyta kökurnar í afmælinu sínu, hvað þá annara krakka kökur, enda leyndi áhuginn sér ekki.

IMG_9425

Já og bara svona rosalega flott.

IMG_9427

Og það er gott að hjálpast að.

IMG_9429

Þetta er allt að koma.

IMG_9438

Svo var farið út að hoppa á trampólíninu.

IMG_9440

Og hver segir að álfaprinsessur geti ekki flogið.

IMG_9443

Jamm flottar systurHeart

IMG_9448

Flott og fín.

IMG_9450

Litla prinessan mín

IMG_9456

Og þá var kakan klár og allir inn að fá sér í gogginn.

IMG_9460

Og það var tekið hraustlega til matarins.

IMG_9462

Svo var hægt að halda áfram að leika sér.  Það voru öll börnin himinlifandi og skemmtu sér mjög vel.

IMG_9463

Hver á sinn hátt.

IMG_9471

Meira að segja Tölli átti sín móment.

En þessu er lokið í bili, ég fer eins og ég sagði til Vínar á morgun, tek ekki tölvuna með, en örugglega myndavélina.  ´Ég hlakka til að sjá katakomburnar og hitta Leó elskulegan frænda minn.

En ég býð ykkur góða nótt. Heart

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki ónýtt að eiga góða að til aðstoðar, að ég tali nú ekki um álfameyjarnar sem flögra um við kökuskreytingarnar. Þessi veisla verður áreiðanlega lengi í minnum höfð.

Dísa (IP-tala skráð) 4.2.2011 kl. 23:56

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm Dísa mín, fólkið mitt hér gerir ýmislegt til að vekja sofandi sauði hér, íslenska framkvæmdasemin er nefnilega dálítið sérstök.  Til dæmis vildi Ásthildur fá að fara með barbiedúkkur í leikskólann, og það var leyft, og síðan koma allar litlar prinsessur með barbiedúkkurnar sínar og strákarnir með eitthvað sem þeim finnst gaman að leika með, svo íslenska ákveðin er að hafa áhrif hér sem örugglega annarsstaðar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2011 kl. 00:35

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Svo halda þær upp á græna litinn,vg nei. Það er alltaf fjör til hamingju. komum svo að reka ríkisstjórnina.

Helga Kristjánsdóttir, 5.2.2011 kl. 00:48

4 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Það er alltaf sama fjörið hjá ykkur Kúlufólki þó langt séuð þið að heiman.

Hnaut um setninguna: "gjöfin frá ömmu í Kúlu, syngjandi Barbie" sem minnti mig á það þegar dótturdóttir mín fæddist fyrir rúmum tveimur árum.

Mamma hennar var mjög svo ákveðin að stelpan yrði sko engin barbídúkka og mér varð um og ó þegar sængurgjafirnar komu upp úr pökkunum allflestar í litum fjarri því sem maður klæðir ungabörn í (hver setur nýfædda stúlku í svartan kjól með hauskúpumynstri?). Hahaha, það kom svo vel á vondan, því núna vill sú stutta ráða sjálf þó ung sé og velur bleikt og blúndur og barbí. Innst inni er ég mjög sátt og þakklát fyrir að svörtum, brúnum og gráum fötum er alfarið hafnað af þeirri stuttu.

Til hamingju með prinsessuna ykkar.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 5.2.2011 kl. 00:54

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Helga mín grænn er líka minn uppáhalds, en það er ekkert út af  VG heldur garðyrkjunni elskuleg mín. Já ég skal koma mér þér í þann leik.

Hahaha Sigrún mín má mér þá frekar biðja um bleikt heldur en svart og sykurlaust.  Víð eigum nefnileg að fá að velja sjálfar hvað við viljum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2011 kl. 00:59

6 Smámynd: Ragnheiður

Haha svo hlæ ég að orðum Sigrúnar, það er gott að fá að ráða sjálfur.

Mikið er gaman að skoða myndirnar, skotturnar sem öllum á blogginu þínu þykir svo hjartanlega vænt um, orðnar svo stórar ....

takk fyrir að deila, njóttu helgarinnar ....

Ragnheiður , 5.2.2011 kl. 02:27

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þvílíkt ævintýri sem þetta hefur verið fyrir litlu prinsessuna, þessi dagur mun seint gleymast.  TIL HAMINGJU!!!!!!!!!!!!  

Jóhann Elíasson, 5.2.2011 kl. 02:44

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já einmitt Ragnheiður mín, það er gott að fá að ráða sjálfur, annars fer maður í einhvern annan gír og hefur áhyggjur.  Takk mín kæra. 

Ég er alveg sammála þér Jóhann, þessi dagur mun lifa, meira held ég hjá gestunum, sem eru ekki vanir svona óformlegheitum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2011 kl. 07:50

9 Smámynd: Kidda

Þetta hefur verið hin flottasta veisla. Hefði maður ekki þegið þegar maður var á þeirra aldri að eignast svona prinsessukjóla eða álfakjóla, en í þá daga var ekkert svona.

Þetta er rétt hjá Röggu, við þekkjum orðið skotturnar vel. Það hefur verið gaman að fylgjast með þeim í gegn um árin.

Hver gefur ungabarni í sængurgjöf svört föt og í þokkabót með hauskúpum, gott að barnið vill ekki sjá svleiðis hörmung.

Vona að þú skemmtir þér frábærlega vel í þessarri helgarferð þinni

Kidda, 5.2.2011 kl. 09:21

10 identicon

Lífið er yndislegt

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 5.2.2011 kl. 09:48

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hefði sko verið til í að drullumalla í malningunni með þeim, það er svo gaman að sleppa fram af sér öllum höftum

Æðislegar myndir elskan

Knús kveðjur

Milla:):):)

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.2.2011 kl. 15:31

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með dýralækninn :) og afmælisveisluna

Hrönn Sigurðardóttir, 6.2.2011 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband