Ýmislegt úr Austurvegi.

Í dag er hér glaða sólskin en frekar kalt, á helginni er spáð 17 ° hita. Frændi minn Leó Jóhannsson og eiginkona hans Erica Johannsson eru að fara að setja upp sýningu í Vín, en þau eru bæði listamenn, þau búa í Gras, ég ætla að  reyna að heimsækja þau áður en ég fer heim, ætla líka á sýninguna og hitti þau þá þar.  Ef einhver er hér í nágrenninu þá er auglýsingin hér;

http://www.leolab.at/folder/

Annars höfum við mæðgurnar gott, Bára mín er auðvitað eftir sig eftir átökin við prófin, og þarf að hvílast eins og hægt er. 'Asthildur litla hefur verið lasin í gær og í dag vonandi verður hún frísk á morgun til að fara í leikskólann sinn. 

IMG_9224

Hér er svo fyrsta embættisverkið sem hún vinnur eftir að hún er orðin doktor.  LoL

IMG_9225

Og ekki er nú verra að hafa hjálparkokk við saumaskapinn. 

IMG_9226

Segi ykkur það satt, þetta er alveg týpisk ég, er að tala við Ella minn og rauðvínsglasið ómissandi.  Tounge

IMG_9231

Litli tónlistarmaðurinn. 

IMG_9257

Mömmukoss. Heart

IMG_9259

Auðvitað erum við rosa sætar saman. LoL

IMG_9234

Hér eru kostgangararnir okkar, einn bættist í hópinn í gær, en það er bara tímabundið, það er Haraldur hann er ljósmyndari, tónlistarmaður og eiginlega allt múligmann eins og það heitir upp á hreina íslensku.  Svo er Reinhard og Poul.  Þetta eru allt prýðisdrengir og finnst grjónagrautur góður.  H'er eru þeir að skoða ljósmyndabók frá Íslandi.

IMG_9262

Hér er svo Poul að tefla við Hönnu Sól.  Den hún ætlar að verða glúrin skákmanneskja.

IMG_9263

KJúlli upp á Íslensku, meira að segja með frönskum og kocktailsósu.  Strákarnir voru ánægðir með kocktailsósuna.

IMG_9266

Hér fær maður svo hárgreiðslu, voða notalegt.

IMG_9267

Já Sunna mín þetta hefur hún örugglega frá þér. Heart

IMG_9268

Þegar maður er heima veikur, þá er maður að dunda sér við eitthvað, hér eru lesgleraugun hennar ömmu.

IMG_9270

Það átti að halda upp á afmælið hennar í dag, bjóða nágrannakrökkunum og svoleiðis, en var hætt við vegna þess að hún var lasin.  Þær voru samt búnar að finna dress fyrir morgundaginn og við Hanna Sól bjuggum til þessa fínu kórónu, því kórónulaus getur prinsessa ekki verið í veislu.

IMG_9273

Ég fór í göngutúr með Trölla í góða veðrinu í dag. 

IMG_9274

Svona lítur gilið út á veturna, á vorin er þetta allt grænt með blómum líka.

IMG_9275

Hér er svo skólabíllinn, krakkarnir voru að koma heim úr skólanum.

IMG_9276

Hér má sjá húsin lengst niður í dalnum, og ávaxtatrén í forgrunni.

IMG_9277

Hér má sjá þau standa í beinum og fallegum röðum sennilega eplatré.

IMG_9278

Ef maður stækkar sjónarhornið má sjá byggðina hinu meginn.

IMG_9279

H'er eru allstaðar snarbrattar brekkur bæði upp og niður. 

IMG_9280

Alveg í stíl tréð og húsið, sennilega ávaxtatré sem er klipp svona til að auðveldara sér að týna ávextina.

IMG_9282

Sum húsin eru virkilega falleg og nostrað við skreytingar á þeim.

IMG_9284

Önnur gnæfa yfir eins og risar.

IMG_9285

Grunnurinn er líka gerður á ýmsan máta, eins og þessi hér, eins og grjótvarnirnar á Óshlíðinni.

Neðra húsið er svona týpiskt fyrir fjölskyldurnar hér, þegar börnin fara að búa, þá er einfaldlega byggð hæð ofan á húsið.  Og pabbi og mamma búa áfram í húsinu, sem er þá orðin kjallari.

 

Já svona er þetta hér.

 

´

IMG_9286

Veit ekki alveg hvað íslenskir iðnaðarmenn myndu segja um svona frágang.  Ég veit bara að minn maður myndi aldrei láta sjá svona eftir sig.

 

 IMG_9288

 

Það´sést ekki nógu vel á myndum hve brattinn er í raun og veru mikill.

 

 IMG_9287

Vonandi fer eitthvað af þessum snjó á helginni þegar hitin fer yfir 17 °

IMG_9289

Sumar innkeyrslunar eru hrikalega brattar.

IMG_9290

Ekki vanamál að útbúa svalir fyrir frúna.....

IMG_9291

Ég þyrfti samt ofan í hálfa rauðvín til að njóta þess að sóla mig á svona svölum. LoL

IMG_9292

Ekki svalir fyrir mig.

IMG_9294

Sum húsin gnæfa við himinn.

IMG_9295

Loksins sést Trölli.

IMG_9298

Hér sést þetta flotta hús betur.

IMG_9299

Byggðin hinu megin.

IMG_9301

Hér er Trölli með mömmu sinni og systur.

IMG_9303

Hér er verið að kenna honum að gelta og þegja.

IMG_9308

Koma svo Trölli.

IMG_9310

Og leika sér......

IMG_9314

 

Duglegur strákur.

IMG_9317

Og með þessum fjörugu myndur af Heimilishundinum og flottasta hundinum Trölla kveð ég í bráð.  Eigið gott kvöld. Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Kristrún Einarsdóttir

Ásthildur, þú ert hetja. Ég fylgist alltaf með blogginu þínu. Var verulega brugðið þegar þú bloggaðir ekkert í mánuð í haust sl. En svo kom skýringin að þið voruð erlendis. En bestu kveðjur frá Ingu.

Ingibjörg Kristrún Einarsdóttir, 2.2.2011 kl. 16:56

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ingibjörg mín, gleður mig að heyra.  Bestu kveðjur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2011 kl. 17:06

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Yndislegt að fylgjast með "Ásthildi í Austurríki"   Verður ekki gefin út bók fyrir næstu jól....viss um að hún myndi rokseljast

Sigrún Jónsdóttir, 2.2.2011 kl. 17:26

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Yndislegt mannlíf þarna hjá ykkur og svo er afar fallegt,
Knús til ykkar allra
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.2.2011 kl. 20:58

5 identicon

Alltaf jafngaman að fylgjast með þér frænka. kær kveðja til ykkar og knúsaðu sýningarfólkið í Vín frá mér þegar þú ferð þangað.

Gréta (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 22:24

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha Sigrún bók .... aldrei að vita hvað mér dettur í hug. 

Takk Milla mín.  knús á móti.

Gréta mín ég skal knúsa Leó og Ericu frá ykkur öllum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2011 kl. 22:56

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki vildi ég keyra þessar brekkur í hálku................

Jóhann Elíasson, 2.2.2011 kl. 23:11

8 identicon

Ef þú tækir saman ferðasögurnar þínar á blogginu með myndum yrðu það margar bækur, ég væri til í að kaupa

Dísa (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 23:59

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er sammála með bókarútgáfuna......

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 3.2.2011 kl. 01:03

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eruð þið að tala í alvöru?  'Eg er að gera þetta mér og ykkur til gamans. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.2.2011 kl. 05:53

11 Smámynd: Sigríður Inga Sigurjónsdóttir

Kærar kveðjur til ykkar og knúsaðu Báru frá mér, innilega til hamingju með titilinn. Frábærara myndir og meiriháttar ferðasaga.

Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, 3.2.2011 kl. 08:02

12 Smámynd: Kidda

Ég myndi kaupa bókina og líka ef það yrði bók með ævintýrum málverja Það er meiriháttar gaman að ferðast með þér og lesa ævintýrin þín.

Knús til Austurríkis

Kidda, 3.2.2011 kl. 10:49

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skal skila því Sigga mín. Og takk vonandi hafið þið það öll gott þarna heima.

Kidda mín gaman að heyra þetta. Knús til þín líka og gangi þér vel með flutningana.

Nú koma engir broskallar hjá mér eins og er.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.2.2011 kl. 10:58

14 identicon

Takk fyrir bloggið, ég les og skoða myndir mjög reglulega og hef gaman að.

Aðalheiður Anna Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 14:42

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að heyra Aðalheiður.  Takk fyrir innlitið  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.2.2011 kl. 15:37

16 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Takk fyrir bloggið og frábærar myndir.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 4.2.2011 kl. 10:30

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín er ánægjan Anna Ragna mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2011 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband