1.2.2011 | 22:46
Smáhugleiðing ekki í kristilegum anda, því viðkomandi er ásatrúar.
Var að panta mér flugfar heim, þann 14 febrúar, fékk farið fyrir tæpar 18 þúsund krónur með SAS, þetta er svipað verð og ég myndi greiða fyrir fullt gjald Ísafjörður Reykjavík. Af hverju þarf allt að vera svona dýrt?
En það er margt sem leitar á hugann, ég var að hugsa í dag hvernig fólki liði, þá er ég að tala um fólk sem hefur átt eitthvað undir sér og otað sínum tota, og komið sjálfu sér til góða með aðstöðu sem það hefur haft til að hygla sér og sínum, þegar flett er ofan af framferði þeirra. Ætli það sé ekki dálítið erfitt að horfa í spegilinn á morgnana vitandi að það sem stendur í blöðunum, öllum til aflestrar sé það sem leynt átti að fara og ekki átti að tala um?
Það eru sífellt fleiri tilfelli að koma upp, og þar hefur DV verið iðnast við að koma upplýsingum á framfæri um svona tilvik, hafi þeir þökk fyrir það, þó stundum hafi þeir barkað upp við röng tré.
Við fólkið í landinu sem erum bara venjulegt fólk skiljum ekki af hverju þetta getur gerst, eins og sparisjóðsstjórar geti bara upp á sitt einsdæmi afskrifað fleiri milljóna skuldi sona sinna eins og ekkert sé, eða slíkir geti bara sest niður við tölvuna og samið starfslokasamning sjálfum sér til handa upp á milljónir og komist upp með það. Þessi sparisjóður ætlaði sér að bjóða mig upp, og vildi fá 25 milljónir fyrir ónýtt hús. Það var ekki hægt að koma neinni vitrænni skynsemi þar að og þó væri fenginn óhlutdrægur tæknimaður til að meta húsið, sem kostaði okkur nokkra tugi þúsunda, sem við þurftum að greiða helming á móti bankanum, létu þeir sér ekki segjast heldur buðu upp húsið, þeim var slegið það á átta milljónir, sem þeir reiknuðu sér að væri skuld okkar við íbúðarlánasjóð og svo áhvílandi veð sonar okkar. Sem reyndar var í skilum með allt sitt. Komust svo að þeirri niðurstöðu sem við höfðum reynt að segja þeim að húsið var ekki þess virði sem þeir töldu og gengu þar af leiðandi frá tilboðinu.
Svo eftir allt þetta les maður að bankastjórinn hafði óvart hyglað syni sínum með að afskrifa ekki bara einhverjar átta milljónir, heldur fimmhundruð eða meira. Mér býður við svona fólki.
Eins er með Húsasmiðjuna, þetta fyrirtæki sem nú er í ríkiseign, það var 700 hundruð þús. króna skuld sem hvíldi á mér vegna fyrirtækis sem sonur minn átti. Í dag eru þetta orðnar 5 milljónir, og Húsasmiðjan bauð upp húsið mitt, en enginn frá þeim mætti á uppboðið, og þegar sparisjóðurinn hafði farið sína feigðarbraut með sitt uppboð, kom Húsasmiðjan, sem ég veit ekki betur en sé ríkiseign og höfðaði aftur uppboðsmál. Svona er okkur haldið í spennitreyju sem við ætlum okkur ekki að láta hanka okkur á. Ef fram fer sem horfir þá förum við frekar út og leyfum þessu húsi okkar að fara til andskotans, því það er nokkuð víst að miðað við ástandið á því og úttektina er það tæknilega ónýtt, og ef enginn býr í því um skeið, þarf ekki að spyrja að endalokunum.
Og meðan á þessu stendur er Húsasmiðjan og Blómaval að gera allt sitt til að drepa niður garðplöntusöluna sem ég hef verið með í um 30ár
Er þetta ekki ríkiseign eða hvað. Og mér er spurn hvað eru stjórnvöld að hugsa að gefa veiðileyfi á fyrirtæki á landabyggðinni til að koma ríkisreknum fyrirtækjum þar inn. Væri nú ekki heillavænlegra að leyfa þeim fáu fyrirtækjum sem eru rekinn af heimamönnum að njóta vafans. Ókey það má alveg tala um samkeppni, en það er bara ekki þannig. Því með aðstoð ríkisins fyrir þessi risafyrirtæki er nákvæmlega enginn réttlát samkeppni. Húsasmiðjan og Blómaval geta alltaf undirboðið alla sem eru að reyna að halda sínum litlu heimareknu fyrirtækjum á floti.
En ég byrjaði á að ræða um þessa forkólfa sem hafa milljónir til að eyða og leika sér með, og sífellt dregur nær að þjóðin verði upplýst um sporslur þeirra og forgang, í því sambandi langar mig að nefna öldusundlaug í kjallara eins slíks. Hvernig líður þessu fólki, þegar öll þeirra forréttindi eru borin upp á torg, og þau hljóta að finna fyrirlitninguna og andstyggðina sem fólk hefur á þeim. Með réttu því gróði þeirra hefur áunnist með því að vinna öðrum tjón. Hvernig líður þessu fólki að lesa fréttir um langar biðraðir fólks eftir mat, þegar það gæti auðveldlega satt allt fólkið um langa tíð.
Þetta er alveg ömurlegt og ömurlegast af öllu er að ríkisstjórnin, sem lofaði öllu fögru og var kosin út á skjaldborg og ekkert Icesave ekki alþjóðlega gjaldeyrissjóðinn og ekki ESB að hluta til skuli sitja áfram og þverskallast við að segja af sér og biðja forsetann um að koma á utanþingsstjórn. Þjóðin er búin að segja sitt álit, hún vill ekki fjórflokkinn. Þjóðin að því er virðist er búin að fá alveg nóg af núverandi alþingi eins og það leggur sig, og vill nýtt og betra Ísland.
Ef þið ágætu stjórnmálamenn sem nú sitjið á þingi hafið snefil af sómakennd þá vinsamlegast farið frá og gefið borðið laust fyrir nýtt fólk, nýjar hugmyndir og nýtt Ísland.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú kemur með það eins og það er, en er mest hrædd um að þetta eigi eftir að versna.
Burtu með ríkisstjórnina, þeir eru ekki að gera neitt af viti.
Vertu svo velkomin heim dúllan mín
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.2.2011 kl. 22:56
Milla mín eins og sagt er lengi getur vont versnað? En vona ekki. Nú er eiginlega komið nóg.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.2.2011 kl. 23:18
Þetta eru dapurlegar sögur. Sparisjóðsstjórinn ku hafa verið með næstum 1,5 millur í mánaðarlaun auk ríflegra fríðinda. En græðgin kann sér hvergi hóf. Þessir sem fóru fremstir í græðgisvæðingunni og rændu öllu sem hægt var að ræna af dæmalausri ósvífni eru það siðblindir að þeir finna ekki sök hjá sér. Þeir kenna eftirlitsleysi um hrunið. Þeir sem áttu að passa upp á þeir færu að lögum veittu ekki nauðsynlegt aðhald. Aðrir telja sig hafa farið að lögum en það hafi bara verið þessar gloppur í kerfinu.
Og þessir aðilar eru hvergi nærri hættir að sprikla. Einn kvartaði undan því í blaðaviðtali að það versta við þetta væri að hann gæti ekki farið með konunni út að borða vegna þess að þau yrðu fyrir aðkasti. Það er þó gott að þessir menn verði varir við að almenningur er ósáttur vegna framgöngu þeirra.
Fyrir rösku ári fór ég út að borða með Óla Sig (í Ásatrúarfélaginu og fleirum). Úti á götu rákumst við á einn af bankahrunsmönnunum. Óli hóf myndavél á loft. Hinn var snöggur að hnipra sig saman fyrir aftan félaga sinn til að ekki næðist af honum mynd á meðan þeir forðuðu sér.
Erpur Eyvindarson (P. Eiríkssonar) sagði frá því í útvarpi þegar hann var á matsölustað. Þá vatt sér að honum einn af bankahrunsmönnunum og spurði hvar eitthvað væri (mig minnir hnífapör). Erpur sagðist ekki hafa haft geð í sér til að virða hann viðlits.
Það hafa birst í fjölmiðlum frásagnir af því að tilteknum bankaræningjum hafi verið neitað um afgreiðslu á veitingastöðum með þeim orðum að þeir væru ekki velkomnir þar.
Jens Guð, 1.2.2011 kl. 23:57
Jenas þó ég sé þannig manneskja að vilja virða hverja manneskju á sinn hátt, þá er mér fyrirmunað að skilja þetta fólk, og að okkar samfélagsmenn skuli taka sig saman og úthýsa þessu pakki finnst mér bara vera góð viðbrögð okkar almennings til að sýna þeim sama puttann upp og .þeir hafa sýnt okkur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2011 kl. 00:10
Heyr, heyr...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.2.2011 kl. 00:28
Sæl! Þetta er ekki geðslegt ,eða má segja ógeðslegt.Var 24/1 í afmæli sonar míns,hann hefur ekki sagt mér það fyrr,að hringt var í hann 3 dögum fyrir hrun,frá banka einum, ráku auðvitað augun í alm.reikning hans. Spurðu hvort hann vilji ekki ávaxta þennan pening (var engin ósköp) með góðum vöxtum. minn sagð nei,sem betur fer. Mér hefur fundist loða við okkur að,ef við viljum laga ehv, þá förum við oftast yfir strikið. Eins og stendur er mér slétt sama um "strikið" núna meðan við lögum til. Við verðum að hópa okkur saman sem erum á móti ESB og Icesave,alveg er mér sama í hvaða flokki sá er.Þarna gætu vinstri,hægri og miðfl. náð vel saman. Ekki dugar að segja nei,þessi tilheyrir flokki hvers formaður framseldi kvótann. Ekki er hægt að gera ungu fólki það sem aðhyllist fullveldi Íslands. Ég er ekkert að leyna því að krakkarnir 3-4 í Framsókn eru að standa sig geysilega vel. Sjálfstæðismenn á þingi standa ekki í lappirnar,en tek það aftur ef ég fer með fleypur. Fyrirgefðu ´´Asthildur mín.það er eins og ég hafi tekið af þér síðuna líka.Af því þú ert Ásatrúar,þá var systir mín að segja mér frá skemmtilegu brúðkaupi Ásatrúar, sem hún var boðin í.Minnir að athöfnin hafi farið fram undir berum himni,síðan var farið í hús að matast og skemmta sér. Jæja,lætur ekki Steingr. ykkur fá húsið? Annað eins hefur hann gert. Góða nótt.
Helga Kristjánsdóttir, 2.2.2011 kl. 03:18
Illt að heyra með sonin Helga mín. Það er búið að gefa veiðileyfi á okkur almenning í þessu landi af norrænu velferðarstjórninni. Eitthvað þurfum við að gera til mótleiks. Þetta getur einfaldlega ekki gengið svona lengur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2011 kl. 11:16
Heil og sæl, vinkona. Alltaf gaman að lesa frá þér hugleiðingarnar þótt stundum séu þær dapurlegar en alltaf uppbyggilegar. þegar þú setur á prent að eitthvað sé ekki kristilegt, þá er það nú samt ástæða þess að ég, fyrir nokkrum árum, yfirgaf kristnina sem trú og skráði mig Ásatrúar. Mér fannst vera komið nóg af hræsninni hjá kirkjunar mönnum með byskupinn í broddi fylkingar. Vissulega er margt gott fólk þarna innandyra en fronturinn er ekki glæsilegur. Með Ásatrúarfólki hef ég fundið heilbrigða siðfræði sem mér finnst skemmtileg og heilbrigð, en það getur svosem verið að það breyttist við ofvöxt eins og við þekkjum úr okkar flokksstarfi þegar ofvöxtur hljóp í EFFIÐ. En eins og áður sendi ég þér og þínu fólki góðar óskir. Með bestu kveðjum, nú frá Selfossi. Steini Árna
Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 17:45
Nú erum við heppin Ásthildur, því Mubarak er að verða atvinnulaus svo við getum fengið þennan reynda múslíma til að taka við af hinni skrækjandi ESB ofsatrúar Jóhönnu.
Því miður veit ég ekki um neinn ásatrúar þrælahaldara, og því verðum við að sætta okkur við annarrar trúar hótunarfólk fyrst þjóðin vill endilega velja sér svoleiðis.
Við hér á landsbyggðinni erum auðvita gamaldags og íhaldssöm og það varð mér til bjargar, því nóg voru gylliboðin og hvatningarnar frá KB banka til að stampa tilveru minni og fjölskyldu ásamt starfsmönnum, með þeirra einstöku þjónustu.
Það var ekki einu sinni hægt að fara út að skemmta sér hér við Grundarfjörð öðruvísi en að KB maður væri komin á herðarnar á manni. Ég veit að til eru þeir sem létu undan gaspri, lygum og glamúrorðum þeirra KB manna, en ég skammast mín ekkert fyrir að vera sveitó.
En handbremsur Steingríms og Jóhönnu eru nú að ná að stöðva rafala landsbyggðarinnar sem er undirstaða þjóðarhags og heldur uppi kæruleysi Reykjavíkur trúðanna.
Með ósk um allan mögulegan velfarnað Hrólfur.
Hrólfur Þ Hraundal, 2.2.2011 kl. 17:47
Takk Þorsteinn minn, já svona er lífið. Og meira að segja lögrfræðingur sparisjóðsins, sagði við Ella, þegar hann hafði neitað þeim flotta díl að við keyptum (húsið okkar ónýtt) á 12 milónir sem síðasta tilboð, hvort hann vildi ekki ræða þetta við konuna. Bjóst ef til vill við því að "konan" hefði svo miklar taugar til hússins að hún léti sig hafa það á gamals aldri að gerast þræll bankans. En nei aldrei í lífinu. Ef svo fer að þeim takist að komast yfir þetta hús, þá verður þeim ekkert úr því, það er ljóst, það sem verra er að við getum ekkert gert til að laga húsið, það míglekur vegna þess að dúkur á þakinu er ónýtur, og allar innréttingar í niðurníðslu, og það er ekki vit í að reyna að fara að laga neitt fyrr en þessi mál skírast. Þeir skulu aldrei fá neitt úr út þessu sem við höfum eytt langri ævi í að búa okkur í haginn.
Hrólfur nákvæmlega við megum éta það sem úti frýs. Fyrst var tekinn af okkur rétturinn til að sækja fiskimiðin sem höfðu jú byggt upp samfélögin í sjávarbyggðum um landið. Sá réttur var afhentur glæpamönnum sem hafa arðrænt okkur og rúið inn að skinni, ekki bara gert húsiin okkar verðlaus heldur líka svipt okkur tilverunni og atvinnutækifærunum og öllu því sem tengdist vinnu við útgerðirnar, fyrirtækin sem unnu fyrir útgerðirnar, rafþjónustan, málararnir, löndunargenginn og svo má telja endalaust.
Þessu höfum við mátt una í yfir 20 ár. Síðan hafa undanfarnar ríkisstjórnir tekið burtu opinberar stofnanir, selt aðrar, svo þjónustan er mestmegnis rekinn frá Reykjavík. Fólkið úti á landi sem skaffaði 101 Reykjavík þá uppbyggingu sem átti sér stað í Kringlum og Smáralindum.
Ég er til dæmis ákafur talsmaður þess að Vestfirðir lýsi yfir sjálfstæði og skeri sig frá landinu. Við værum betur komin sem sjálfstætt smáríki með okkar auðlindir og gætum vel fjölgar íbúum um a.m.k. helming ef ekki meira.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2011 kl. 19:07
Gleymdi og svo vilja þeir líka taka flugvöllinn í Reykjavík og flyta flugið til Keflavíkur. Þá fyrst fer að kólna í Helvíti.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2011 kl. 19:09
Já flugvellir eiga að vera velgerðir handa þeim skoffínum R,víkingum sem bara fljúga á sólarströnd frá Keflavík og til sælunnar hjá ESB Carlos hinum spánska fiskimanni við hlið Tjallans sem að endingu fær aftur fiskimiðin sem andskotans Íslendingarnir stálu frá þeim.
Við þessi kjánalegu megum svo bara labba þetta milli byggðarlaga svo sem gert hefur verið um aldir af lífsbjargar mönnum, og úthýstum gamalmennum sem og þunguðum konum til að krókna eða blóðrenna frá barni sínu á öræfum.
Ósk mín er að allir góðir vættir fylgja þér Ásthildur Cesil.
Hrólfur Þ Hraundal, 2.2.2011 kl. 21:31
Takk fyrir góðar óskir Hrólfur og sömuleiðis. Ætli við landsbyggðalýðurinn þurfum ekki að standa saman.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2011 kl. 21:49
Hey! Hef áður heyrt þetta Vestfirðir lýsi yfir sjálfstæði,já kanski Vestmannaeyjar líka og Grímsey,tökum upp stjórnmálasamband við þau.
Helga Kristjánsdóttir, 3.2.2011 kl. 00:41
Takk Steini minn, já mér líkar vel sá félagsskapur sem Ásatrúarmenn eru.
Hrólfur sérst varla munur á kúk og skít. Allir vilja þessir ráðamenn hanga á völdum sínum og þar er meira stigsmunur ern eðlismunur. Bankamenn eru svo sér kapítuli út af fyrir sig. Sammála þér með stjórnvöld og hömlun þeirra á viðhaldi, segi ekki lengur uppbyggingu landsbyggðarinnar, því það er nokkuð ljóst að á því hafa þeir engan áhuga. Takk fyrir innlitið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.2.2011 kl. 11:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.