Fréttir um daglegt líf frá Austurríki

Sunnudagur hér er sól og stilla en frost.  Við erum hér stelpurnar mínar og ég, Bára mín að læra einhversstaðar og bóndinn að hvíla sig.  Hér komu gestir í gærkveldi, tveir menn frá Þýskalandi með hesta sem verða í hesthúsinu.  'Eg þarf að líta á þá og vona að þeir taki leiðsögn eins og hin hrossinn.

Annars líður mér mjög vel, er í góðu jafnvægi og ljósið inn í mér hefur kviknað aftur sem er gott, því aðeins þannig getur maður látið sé líða vel.  Ég veit eiginlega ekki af hverju, sennilega eru það margir þættir sem spila inn í.  Fyrst að kúvenda lífinu þannig að ákveða að hætta í vinnunni sem ég hef verið í yfir 30 ár.  Síðan að fara í annað umhverfi og þurfa að takast á við gjörbreyttar aðstæður, eins og að hugsa um barnabörnin mín, hestana, kisurnar og hundinn.  Eiga tíma fyrir sjálfa mig þess á milli, og síðan að fá leiðsögn um hvernig ég get gert vel við minn gamla skrokk og hjálpað sjálfri mér til að takast á við þau innanmein sem alltaf fylgja því að eldast. Ég er ákveðín í að halda áfram þessu striki og sjá hvert það leiðir mig. 

IMG_9155

Hér pússla sú minnsta og stærsta.

IMG_9156

Það er gaman og sú stutta er ótrúlega dugleg við pússlið. Hanna Sól er meira fyrir að reyna við spil, bæði í tölvu og með spilum, ótrúlega lunkinn stelpan sú.

IMG_9157

Poul er hjálplegur hann kemur frá ótrúlega stórri fjölskyldu í Köln, þau eru 8 systkinin og öll spila þau á hljóðfæri, hann segir að stundum hafi nágrannar kvartað yfir hávaða þegar þau voru öll að spila hvort á sitt hljóðfærið, svo hlær hann að öllu saman.

IMG_9159

Tvær kisur, þau Carlos og Lille fee eru örugglega mað þak yfir höfuðið. LoL

IMG_9160

Svona var veðrið í gær og er líka í dag. Við köllum þetta gluggaveður heima.  

IMG_9161

Við dunduðum okkur í gær þrjár saman.  Mamma að lesa undir próf og pabbi og Poul upp í Gras að járna hesta. Efnið sem notað er er leir og kattamatur Smile

IMG_9162

Við fórum til að gefa Kanínunum í næsta húsi, við geymum afganga af ávöxtum og grænmeti, þær voru mjög ánægðar með að fá matinn frá stelpunum í gær.

IMG_9166

Hér koma kanínurnar og eru alsælar með matinn.

IMG_9172

Hér er einn kanínuunginn. 

IMG_9178

En við vorum á leið í bæinn að kaupa inn fyrir helgina.  Fyrst fórum við í Hoffer til að kaupa í matinn, bæðí fyrir mannfólkið, ketti og hund.  Það er svona einskonar Bónus í Mattersburg.

IMG_9179

Svo fórum við í OBI sem er einskonar Bauhaus með garðyrkjudeild og allskonar vörum.

IMG_9180

Það keyptum við eldivið í kamínuna, sem er notuð til að kynda húsið til að spara olíu eða gas, sem er mjög dýrt hér.

Við keyptum líka rós fyrir mömmuna og blómafræ, við stóðumst ekki mátið.

IMG_9183

Hér eru svo nýju hestarnir, annar heitir Sleipnir, man ekki hvað hinn heitir,  vona bara að þeir séu vanir við skipanir.  Það kemur í ljós.

IMG_9192

Þeir verða auvitað dálítið ráðvilltir fyrst, nýkomnir úr löngu ferðalagi, en ég hlakka til að kynnast þeim.

IMG_9202

Bjarki með drengjunum sem fluttu hrossin hingað frá Köln.  Þeir gistu svo hér í nótt.

IMG_9204

Og Ásthildur Cesil hélt tónleika, hún er frábær.

IMG_9205

Það var samt öruggara að sitja í fanginu á pabba, þegar svona ókunnir menn voru viðstaddir.

IMG_9206

Svo fengu menn sér bjór og smá viskýlögg eins og gengur.

IMG_9207

Og hér er prinsessa og stóra systir að hjálpa til.

IMG_9208

Þeir gerðu sér gott af pizzunum sem ég bjó til í gær, ég gerði þrjár stórar og það kom sér vel í gær, enda voru þær gjörsamlega kláraðar.

IMG_9210

Hér heldur svo Hanna Sól tónleika, en hún er að læra á píanó í skólanum, og er ansi dugleg.

IMG_9217

Gaman er á góðri stund, gleði lífs að njóta.

IMG_9220

En nú er sunnudagur og sól inni og sól úti.  Ég er ákveðin í að kíkja í hesthúsið í dag og heilsa upp á hrossin.

Sendi ykkur öllum góðar kveðjur héðan frá Austurríki.  Ef það er eitthvað sem ég sakna, fyrir utan Ella minn og Úlf þá er það þorramatur, ég fæ vatn í munninn að hugsa um súrsaða hrútspunga, svið hangikjöt og bara allt sem heitir þorramatur.  Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Mikið er gott að heyra þetta með ljósið innra með þér Ásthildur,  ég skil vel sorgina við að kveðja ævistarf - eða starf sem hefur skipt mann miklu máli. Þó ég hafi aðeins verið 6 ár í mínu starfi lagði ég hjartað mitt í það, svo það var sárt að þurfa að slíta sig burt. En eins og stendur í klysjunni - þá opnast nýjar dyr þegar aðrar lokast.  Ég hef svo margreynt það. Hef fengið hurðina beint í andltið - orðið foxill og allt það. En séð seinna að það var leiðin mín.

Stundum skilur maður hreinlega ekkert hvað lífið er að fara með mann. Ef þú kemst yfir bókina "Women Food and God" þá mæli ég sterklega með henni. Engin bók hefur haft svona mikil áhrif á mig sl. ár, og hef ég lesið þær margar.  Hún vakti mig til meðvitundar um svo margt.  Hún hefur í raun ekkert sérstaklega með konur, mat eða Guð að gera, bara hvernig við tökumst á við lífið og okkur sjálf.  

Hún hlýtur að koma út á Íslensku bráðlega. 

Jæja, skemmtilegar myndir frá þér eins og venjulega - ég sakna þess gífurlega að hafa fólk í kringum mig en íhuga einmitt stundum að flytja út til Danmerkur þar sem ég veit að mín er þörf.  En á móti togar að sonur minn og tengdadóttir vilja hafa mig hér - og mér finnst líka vont að flytja frá sonardótturinni.  Þetta eru "öflin" sem toga. Ég hef reynt að fara út reglulega til Danmerkur, en maður verður a hafa tíma og peninga til þess. 

Fyrst og síðast þarf maður að vera börnunum sínum fyrirmynd og það gerir maður helst með að vera sterkur og standa sig sem manneskja.

Þú ert frábær fyrirmynd! 

Jóhanna Magnúsdóttir, 30.1.2011 kl. 11:15

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessi hlýju orð Jóhanna mín.  Það er gott að lesa svona.  Já ég skil það vel með að toga í, börnin mín og barnabörnin toga í mig, þessar í Austuríki og svo hin í Noregi.  Við verðum víst bara að hugsa að hver er sjálfum sér næstur, og það er líka gott að vita að kærleikurinn milli fjölskyldumeðlima er og verður alltaf sá sami þó höf og fjöll skilji að. 

Ég ætla að hafa augun opin fyrir þessari bók sem þú talar um þarna.  takk fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2011 kl. 12:28

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Ertu flutt allaleið til Austuríkis??? Svona er þegar maður er svona lengi frá blogginu. Gott að heyra um innra ljósið. gott að gefa sér tíma til að hlusta, ef engin er þög, þá er ekki möguleiki að hlusta!

Gangi þér vel fallega kona. Ég þekki þetta með líkamann, ég tók minn í gegn fyrir tveimur og hálfu ári og lífið er ekki það sama!

Kærleikur og Ljós 

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 30.1.2011 kl. 14:55

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

     Halló,maður skreppur bara til Austurríkis 1,2og 3.í boði þínu. Sendi þér bestu óskir.

Helga Kristjánsdóttir, 30.1.2011 kl. 15:19

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takka Helga mín, ég er hér aðeins í langri heimsókn til að gæta elsku telpnanna minna Hönnu Sólar og Ásthildar meðan mamma þeirra þreytir erfið lokapróf.  Það fer að styttast í heimsókninni.  Gott að heyra frá þér.  Þú hefur verið í huga mér undanfarið.

Mín er ánægjan Helga mín.  Það er svo gaman að geta miðlað gleðinni og nýrri veröld.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2011 kl. 15:25

6 identicon

Knús ljúfan.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 15:44

7 identicon

Gott með ljósið, það er erfitt að vera lengi myrkrinu, en ljósgeislarnir þínir eru örugglega eitt besta meðalið. En það er gott þegar maður hefur tekið ákvörðun um að nú sé nóg komið og eftirleikurinn auðveldari. Alltaf gaman að fylgjast með hjá þér og skoða yfir öxlina á þér.

Dísa (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 16:31

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ragna mín.

Takk Dísa mín, já það er notalegt að vita af fólki fyrir aftan öxlina á sér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2011 kl. 18:01

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Síðasta prófið hjá Báru minni er á morgun, eftir það vona ég að við munum gera eitthvað skemmtilegt saman,  Christína hringdi í kvöld en við ætlum saman niður í katakomburnar í Vín, ykkur verður auðvitað boðið með, því ég mun taka myndavélina með og alles. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2011 kl. 21:23

10 Smámynd: Ásta Björk Solis

FALLEGAR MYNDIR

Ásta Björk Solis, 30.1.2011 kl. 21:41

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hæ Ásta mín langt síðan ég hef heyrt frá þér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2011 kl. 21:45

12 Smámynd: Kidda

Hlakka til að fara með þér til Vínar

Þú hefur haft virkilega gott að því að fara til Báru og stelpnanna. En þín er örugglega sárt saknað heima á Ísafirði. Þú munt finna einhverjar opnar dyr af nýjum tækifærum þegar þú kemur heim.

Kidda, 31.1.2011 kl. 09:38

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín, já ég hef haft virkilega gott af þessu ævintýri mínu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.1.2011 kl. 10:43

14 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Það er alltaf jafn notalegt að skoða myndirnar þínar. Ég og Eydís erum búnar að fletta þeim fram og aftur, hún talar um skotturnar þínar eins og þær séu vinkonur hennar.  

Gott að heyra að þú sért farin að finna þitt innra Ljós elsku Ásthildur. Knús í þitt hús.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 31.1.2011 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband