Hugleiðingar um lífið úr litlu þorpi og skúlptúrsnjóamyndir.

Einu sinni enn er komin föstudagur.   Hér líður tímin ótrúlega hratt, en samt svo friðsællega.  Hér í þorpinu og sérstaklega upp í brekkunni sem við búum er maður farin að heilsa öllum og fólk ræðir sín á milli um þessa íslendinga sem eru hér.

Ég fór ekki í hesthúsið í gær, vegna þess að það var ekki nóg bensín á bílnum, svo ég fór þess í stað í göngutúr með Trölla.  Í göngutúrnum hitti ég franska konu sem býr hér.  Hún vildi heilmikið spjalla.  Bjó áður í Vín og er sjálfs sín herra stundar þýðingar úr frönsku í þýsku eða öfugt.  Hún hefur líka verið með námskeið. Og eftir að hún flutti hingað, fór hún og lærði um villiplönturnar sem hér vaxa.  Svo heldur hún námskeið um notkun þeirra.

Þessi ágæta kona bauð mér í heimsókn ef ég mætti vera að, hún heitir Cloudine Andrea.  Hún ætlar að halda fyrirlestur um plönturnar í leikskólanum og skólanum hennar Hönnu Sólar, það á nú við þær.

Já þú ert íslenska konan sem ert hérna fyrir neðan sagði hún, ég hef heyrt talað um það.  Já eru ekki litlu þorpin allstaðar eins.

En nú er kominn föstudagur aftur, ég er búin að fara í hesthúsið.  Hrossin eru farin að þekkja mig og jafnvel fagna mér þegar ég kem, reka til mín snoppuna og bíða svo eftir að komi að þeim. 'Eg er farin að kemba þeim fyrst og tala við þau, ég er að prófa að mantra á þau, meðan ég kembi þeim, mantra á hvert hross fyrir sig eftir því hvað er hjá þeim sem betur má fara.  Birta með lendarnar sínar, Strútur með orkuleysi, Hnota þarf að fá meiri ró, Vigdís þarf að komast yfir hræðslu við rafmagnsgirðingarnar sem umlykja þær og Björt þarf ég að hæna að mér og vera vinur.  Þetta er allt að koma.  gaman að prófa hvort svona virkar í alvöru. 

Nú sit ég heima búin að fara í göngutúr með Trölla og sækja stelpurnar.  Ég horfi út um gluggan og það er hvítt um allt, mystur yfir sem er sennilega hitabreytingar, því nú er frostlaust, en hrím á trjánum, sem gerir þau falleg eins og skúlptúra.  Allt er rólegt og þögult úti, því hér eru ekki margir á ferli.

IMG_9114

Prinsessa, maríubjalla og ballerína, ekki slæmur félagsskapur þar. 

IMG_9120

Þetta eru sennilega álfkonur sem hafa komið inn úr kuldanum.

IMG_9117

Og svo þegar mamma kemur heim, þá er margt að gera.  Bára mín er í erfiðu prófi í dag, hún var líka í prófi í gær og náði því, hún hefur náð öllum þeim prófum sem hún hefur farið í núna, síðasta prófið verður svo á mánudaginn.  Það gengur allt vel hjá henni.

IMG_9123

 

Við reynum að láta tíman líða á meðan, hér eru klippimyndir sem fást í Spar og Billa, þær hafa gaman af að raða þessu saman og líma á blöð.  Þær hafa mjög gaman af að föndra.

IMG_9125

Þessi mynd var tekin í gær, þá féll lóðrétt snjókorn í rólegheitum niður af himninum og allt var svo friðsælt.

IMG_9128

Kisurnar eru þeim óendanleg uppspretta gleði og umhyggju.

IMG_9129

Enda eru þessar kisur skemmtilegar og góðar.  Börn hafa afskapleg gott af því að alast upp með dýrum, hvort sem það eru hundar, kettir, hestar eða bara hvaða dýr sem er. Þau læra að taka tillit til annara um leið og þau þurfa að læra að umgangast dýrin sín.

IMG_9130

Svona lítur staðurinn út í dag, trén eru hrímuð og mynda fallega skúlptúra.

IMG_9133

Held að þetta sé trollhettan, skemmtilegur runni.

IMG_9135

Hér er svo skógurinn, dularfullur og mystik yfir öllu.

IMG_9136

Já það er töluverður snjór á Evrópskan mælikvarða.

IMG_9139

Vetrarmyndir.

IMG_9140

Hér er ekki skylda að nota dagljós, og bílar því ekki útbúnir með sjálfkveikiútbúnaði.

Ég gleymi því alloft að kveikja á ljósunum, er á hvítum bíl og sennilega ekki gott að koma auga á mig í mystrinu.  En svona er það þegar maður venst á eitthvað, þá er erfitt að brjóta það upp.

IMG_9144

Ég er afskaplega hrifin af þessu útsýni.

IMG_9145

IMG_9147

Greinar svigna undan snjó og ísingu.

IMG_9148

Smá stund mátti greina þorpið hinumeginn við dalinn, en nú sést ekki neitt  nema næsta hús.

IMG_9150

Hér er þetta fallega fjall sem eir eins og risahús.  IMG_9151

Já þetta er fallegt.

IMG_9152

Hæðirnar er hér allstaðar.

IMG_9153

Höllinn alltaf jafn flott.

IMG_9154

Ég er viss um að hér býr einhver tröllkarl, hann lætur samt ekkert á sér kræla ennþá allavega.

En með þessu kveðjum við héðan frá Forchtenstein og vonum að þið eigið góðan dag heima á fróni.  Ég sakna reyndar mest þorramatsins.  Hann verður að bíða enn um sinn.

Eigið góðan dag.Heart

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það verður alltaf allt svo hreint og tært þegar snjóað hefur yfir, ekki síst trén eins og sést á flottu myndunum þínum. Það er líka alltaf svo gaman að sjá fallegu prinsessurnar þínar og hvað þær eru að bralla þá stundina.

Bestu kveðjur og ósk um áframhaldandi velgengni í prófunum til Báru

Dísa (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 13:44

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Dísa mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2011 kl. 15:15

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Flottar myndir kveðja.

Helga Kristjánsdóttir, 28.1.2011 kl. 18:21

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sjá þetta kattarassgat. Liggur hann á bæn?

Hrönn Sigurðardóttir, 28.1.2011 kl. 18:46

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm Hrönn hef grun um að hann sé leyni múslími. svona Músí kúsi... eða þannig og liggur á bæn í átt til Mekka

Takk Helga mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2011 kl. 19:52

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Kisur eru æðislegar...

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.1.2011 kl. 01:45

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Takk fyrir þetta. Þetta er bara eins og að vera í Jólakorti þarna hjá þér.  Kastalinn er flottur. Veistu eitthvað frekar um sögu hans og hvað hann heitir?

Jón Steinar Ragnarsson, 29.1.2011 kl. 02:06

8 Smámynd: Jens Guð

  Ljósmyndirnar eru augnakonfekt.  Ekki síst þessi númer 5 ofan frá.  Rosalega flott.  Ég er alveg klár á því að við Jón Steinar náðum aldrei svona flottri mynd í ljósmyndaönn okkar í Myndlista- og handíðaskóla Íslands á okkar námsárum þar.  Hehehe!

Jens Guð, 29.1.2011 kl. 02:20

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sælir Jón Steinar og Jens takk fyrir hrósið.

Hér er smá samantekt sem ég skrifaði um kastalann í haust.

En við erum búin að dvelja ansi lengi í Forthenstein.  Við erum þar í u.þ.b. 500 metra hæð, og horfum niður í djúpan dal, þar sem miðbær þorpsins er, verslanir, skólar og cetra.  En á hæðinni beint á móti er höllinn, Burg Fortchenstein, þegar Austurríki var sundrað í þessi níu smáríki sem ég nefndi áður, bjó kóngurinn yfir Burgenland þar.  Og við ætlum að kíkja í heimsókn til hans í dag.

myndir_fra_fortenstein_187_1046194.jpg

Hér má sjá hana sveipaða dulúð, en þarna gerðust hræðilegir atburðir fyrir löngu síðan, ég mun segja ykkur frá því síðar.

myndir_fra_fortenstein_247.jpg

Hér sést vel hvernig hæðarmismunurinn er, þetta er afskaplega fallegur staður, en ég myndi ekki vilja aka hér um í hálku. 

myndir_fra_fortenstein_252.jpg

Hér er inngangurinn, fyrir neðan er hyldýpi.  

myndir_fra_fortenstein_254.jpg

Jamm hér bjuggu stríðsherrar. 

myndir_fra_fortenstein_255.jpg

Og útsýnið frá höllinni ekkert slor. 

myndir_fra_fortenstein_258.jpg

Eins gott að vera ekki mjög lofthræddur að búa svona hátt.

myndir_fra_fortenstein_261_1046201.jpg

Byggingar í mið Evrópu voru mikið skreyttar á þessum tíma, og nostrað við allt.

myndir_fra_fortenstein_263.jpg

Stúlkan sem tók á móti okkur sagði að við mættum ekki nota flash hér inni, því hér væru allir hlutir upprunalegir og ekta. 

myndir_fra_fortenstein_265.jpg

 Það er greinilegt að kirkjan og valdið hafa haldist í hendur alla tíð.

myndir_fra_fortenstein_266.jpg

Skrautlegar brynjur, það hefur verið aldeilis flott að týna lífinu af manni klæddum í svona fínerí.

myndir_fra_fortenstein_267.jpg

Pelli og purpuri hafa alltaf verið manneskjunnar ær og kýr. 

myndir_fra_fortenstein_268.jpg

Hver myndi svo sem vilja eta af svona diski?

myndir_fra_fortenstein_269.jpg

Nýjasta tískan hehehe...  en varla mjög þægilegur klæðnaður.

myndir_fra_fortenstein_270.jpg

Hér sést Hanna Sól skoða sig um í höllinni, sjáið gólfin fyrsta parketið sennilega.

myndir_fra_fortenstein_271.jpg

Úbbs sagði ykkur að hér hafi verið íburður mikill.

myndir_fra_fortenstein_272_1046212.jpg

Það er ekki sama fíll og Fíll. 

myndir_fra_fortenstein_273.jpg

Ef til vill skrýnið drottningarinnar.

myndir_fra_fortenstein_274.jpg

 Hún hefur allavega getað speglað sig frúin hér.  Skemmtilegast við þessa mynd er Hanna Sólin sem speglast þarna inn í eins og prinsessa frá löngu liðnum tíma. Reyndar á sumrin þá eru allskonar uppákomu hér, krakkar fá að klæða sig upp í prinsessubúninga og hermannabúninga og svo er slegist og leikið sér.  Það er örugglega skemmtilegt en við vorum of seint á ferð til að fá svoleiðis trakkteringar.

myndir_fra_fortenstein_275.jpg

Ætli maður fengi ekki leið á svona flottheitum eftir smátíma?

myndir_fra_fortenstein_276.jpg

Þetta eru kertastandar, ekki neinir grútarlampar hér.

myndir_fra_fortenstein_278.jpg

 Það er sagt að sækist sér um líkir.  Annars hefur villisvínið verið aðalveiðidýrið á þessum tímum og er aflaust enn, ásamt dádýrum og hjörtum. 

myndir_fra_fortenstein_280_1046222.jpg

 Ekki hefur nú skort vopnin á þessum bænum.

myndir_fra_fortenstein_281.jpg

Og skopskynið hefur verið í góðu lagi. 

myndir_fra_fortenstein_282.jpg

 Liturinn á þessum myndum sýnir að ekki var notað flash heldur stórt ljósop.  En þessi gaur dvaldi í Indlandi eins og sjá má. Man ekki lengur hvað hann hét.

myndir_fra_fortenstein_284.jpg

Og veiðidýrin hafa verið að ýmsum stærðum og gerðum.

myndir_fra_fortenstein_285.jpg

Hér er svo besti ferðafélaginn sennilega

myndir_fra_fortenstein_286_1046228.jpg

Þessi hefur örugglega aldrei verið langt undan.

myndir_fra_fortenstein_287.jpg

Hanna Sól er samt ekkert hrædd við gamminn.

myndir_fra_fortenstein_289.jpg

Ásthildur litla var aftur á móti smeyk og gott að fá að vera í fanginu á afa.

myndir_fra_fortenstein_290.jpg

Hið konunglega veiðitjald. 

myndir_fra_fortenstein_292.jpg

Hesturinn hans var nú ekkert slor heldur. 

myndir_fra_fortenstein_298.jpg

Þessa hollningu þekkir amma vel

myndir_fra_fortenstein_300.jpg

Svo var hægt að búa til pening.

myndir_fra_fortenstein_302.jpg

Stóri frændi svo klár.

myndir_fra_fortenstein_304.jpg

Þetta var brattasta brekkann á svæðinu, ég skil ekki hvernig er hægt að aka svona vegi í hálku, ef það kemur á hálka. 

myndir_fra_fortenstein_305.jpg

Allar uppkeyrslurnar í bænum voru meira og minna afar brattar. 

En við erum komin heim til stelpnanna, og búin að skoða það sem höllin hefur upp á að bjóða. 

Eigið góðan dag elskurnar. 

Því er svo við að bæta að drottninginn réði ríkjum meðan maður hennar og ráðgjafi voru í stríðsferðum.  Hún þótti fara illa með þegnana og var vond kona.  Lét drepa þá sem henni fannst ekki sýna sér næga hollustu á hroðalegan hátt, batt þá niður í brunn og lét þá hanga þar und þeir dóu.  Það var mikil fátækt því hún hirti alla peninga borgaranna í skatta og allskyns álögur, miklar pestir og fár gengu yfir.  Þegar konungurinn og ráðgjafinn komu heim og sáu hvers kyns var, kölluðu þeir drottninguna fyrir sig og spurðu hvað ætti að gera við þann sem hefði farið svona með þegna ríkisins.  Drepan hann svarað drottninginn, já við erum að tala um þig, svaraði þá konungurinn.

Svo var frúin bundinn í brunninn og látin hanga þar uns hún dó, en af því hún var svo vel haldinn tók það hana þrjár vikur að kveljast.  Það heyrðust ópin í henni um langan veg.  Og löngu eftir að hún dó heyrðust ópin í henni.   Það varð síðan ekki vært í höllinni fyrir draugagangi.   Þá var ákveðið að reisa henni kapellu upp á hæstu hæðinni hér rétt hjá, það var gert og bein hennar flutt þangað. Síðan hefur ekki heyrst í henni, en kapellan stendur enn og trekkir að túrista.  Þetta er sagan af Rosalie.  Kapellann ber nafn hennar Rosaliekapell. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2011 kl. 08:11

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta klúður er ekki bara mér að kenna, heldur er ritvinnslan á blogginu alveg herfileg.  En vonandi skilst þetta samt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2011 kl. 08:13

11 Smámynd: Kidda

Kötturinn er alveg magnaður Hálka og brekkurnar, veit ekki betur en að ákveðin frú keyri þær núna upp og niður eins og ekkert sé

Kidda, 29.1.2011 kl. 10:36

12 Smámynd: Karl Tómasson

Sæl kæra Ásthildur, það er unun að lesa þinn texta og sjá myndirnar þínar. Ég er sammála Jens Guð, mynd númer fimm er hreint mögnuð, ekki það að mér finnst allar hinar einnig mjög fínar og skemmtilegar.

 Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 29.1.2011 kl. 18:23

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm Kidda mín, þessi kerling ekur eins og Bjössi á mjólkurbílnum, á hljóðkútlausum bíl niður allar þessar brekkur og upp líka

Takk Kalli minn, mín er ánægjan.   Bestu kveðjur til þín líka. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2011 kl. 19:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband