26.1.2011 | 14:22
Hræsni, hroki og hleypidómar.
Ég veit ekki hvort það er bara ég, eða hvort umræðan er að harðna, skilin að skerpast milli fjórflokkanna, þá er ég ekki að tala um málefnin, heldur samtök þeirra og þeirra áhangenda, í að styðja sinn hóp, með því að vera sem ruddalegastir í garð annara.
Sumar umræður eru svo fyrir neðan allar hellur að manni fallast hendur. Ég ætla að taka dæmi hér um frétt úr DV sem birt var á Eyjunni, þar sem ung kona sem aðhyllist rasisma, kvartar yfir því að hún verði fyrir allskonar áreiti. Nú tek ég skýrt fram að rasismi er viðbjóðslegur í mínum augum og með öllu óskiljanlegur. En umræðan við þessa frétt var á svo lágu plani að ég fór að skipta mér af, sem ég hefði ef til vill ekki átt að gera. En fólk getur dæmt fyrir sig ef það nennir að lesa viðbjóðin sem vellur upp úr fólki sem telursig vera að andmæla því sem þeim finnst ljótt, en fer gjörsamlega niður á sama planið sjálft.
Eins og sjá má hér: http://eyjan.is/2011/01/24/islenskir-rasistar-segjast-fa-jakvaed-vidbrogd/
Af því að ég fór að skipta mér af og benda á þá staðreynd að sumir sem þarna tjáðu sig væru ekki betri en áðurnefnd stefna, þá fékk ég yfir mig allskonar viðbjóð, meðal annars er ráðist þarna á látinn son minn. Veit ekki í hvaða tilgangi það er. Ég hefði sjálfsagt getað látið eyða þessum innsláttum, en ég ákvað að láta þá standa til að reyna að sýna á hvaða umræðugrundvelli við erum komin á í dag, sum okkar.
Eins hef ég tjáð mig á bloggi hjá þessum sjálfstæðísmanni og þvílík dómharka og upphlaup hans og félaga hans úr FLokknum á alla sem reyna að tjá sig þarna málefnalega. :http://baldher.blog.is/blog/baldher/entry/1135943/
Hörðustu sjálfstæðismennirnir eru nú farnir að hópa sig saman og standa vörð um Davíð og hirð hans. Sennilega finna þeir fyrir dalandi fylgi, þó hrokinn meini þeim að viðurkenna það. Þá eru allir hinir fífl og asnar, jafnvel rauðvínsdrekkandi fífl og asnar.
Svo er það það síðasta sem kom uppá að stjórnlagaþingið var slegið af í hæstarétti. Ég kann ekki lög og get því ekki tjáð mig um niðurstöðu dómaranna, verð þó að benda á að það hefur alltaf verið talað um að Sjálfstæðísflokkurinn "ætti" hæstarétt, vegna pólitískra ráðninga þangað meðan Sjálfstæðisflokkurinn hafði öll tögl og haldir, (hefur það sjálfsagt enn)
En að sjá glottið á alþingismönnum sjálfstæðísflokksins á þinginu, er fyrir mér andstyggilegt, því það vita allir sem vilja það að þeir eru eins og Jóhanna benti á; Skíthræddir við stjórnlagaþing, að missa sjávarútveginn úr höndum L.Í.Ú. sem elur þá grimmt í kosningabaráttum, og að missa af því að geta hyglað vinum sínum bæði með embætti, fyrirtæki og álver og annað sem þeir telja lífsnauðsynlegt að fylla allt landið með. Ég held stundum að Sjálfstæðísmenn séu ekki bara svona þjóðflokkur sem vill hafa einn sterkan foringja til að hugsa fyrir sig, græða á daginn og grilla á kvöldinn, eins og einn ágætur talsmaður þeirra segir, heldur hafi þeir afskaplega litla framtíðarsýn, og hugsi bara um að græða nákvæmlega núna, á morgunn kemur eitthvað nýtt. Sorglega komið fyrir þessum gamla flokki sem stóð í mörg ár stétt með stétt, en er nú bara hjómið eitt. Vonandi hefur fólk aðeins vaknað til vitundar með það.
Ég sá hluta af ræðunni hennar Jóhönnu í gær, ég dáðist að henni, hún var reið og það fór henni vel. Ég var henni þakklát fyrir þessa ræðu, sýnir að Jóhanna getur ennþá staðið með réttlætinu ef hún vill. Hún ætti umsvifalaust að hætta þessu ESB dekri og snúa sér að því að leiða þjóðína út úr þessari vitleysu og sameina fólkið með gagnsæi og heiðarleika og fyrst og fremst með hag fólksins að leiðarljósi. 'Eg sá það í gær að hún gæti þetta ef hún vildi.
Hún hefur kosið ásamt Steingrími J. að tvístra þjóðínni í ESB andstæðínga og ESBsinna, sem berjast á banaspjótum, og þó andstæðíngarnir séu fleiri þá hafa hinir margfalt hærra, enda er vitað mál að margir eru styrktir af Evrópusambandinu til að tala þeirra máli. En nóg um það hér.
Ég er svolítið hugsi yfir þessu öllu. Þessari hörku í fólki sem svífst enskis í athugasemdum, getur aldrei hrósað þeim sem það er á móti, ef þau gera eitthvað sem hrósa ber, og bakka allt upp sem þeirra menn segja, hversu arfa vitlaust sem það er. Við svona aðstæður getur aldrei þrifist málefnaleg og jákvæð umræða. Við þessa framkomu er öllu snúið á hvolf, öllum andstæðingum ætlað allt það versta og aldrei hróflað við sínu liði. Hvernig ætlum við að leiða inn Nýtt Ísland með svona háttarlagi?
Það er einfaldlega ekki hægt. Ef við viljum betra samfélag, þá verðum við að hugsa meira um að ræða málefni en ekki stunda svona illþyrmisleg samskipti haturs, öfundar og illvilja. Það skilar sér bara til baka endalaust aftur og aftur.
Þessi pistill er reyndar orðin alltof langur, en ég hef af þessu áhyggjur, því við gætum vel komið okkur út úr þessum vanda með sameiginlegu átaki, með því að standa saman og tala saman eins og fólk.
Ég mæli líka með því að það verði kosið aftur til stjórnlagaþings, eða fundinn lausn á hvernig hægt er að halda þessu ferli áfram.
Ég vil að lokum benda á viðtalið viðtalið við Mikael M. Karlsson prófessor, sem mér finnst vera frábær sýn á þetta allt saman. Hann segir m.a. að pólitíkinn í dag sé ekkert annað en Hagsmunasamtök stjórnmálamanna, og að þeir hafi engar hvatir til að vinna fyrir fólkið í landinu, heldur verður það þannig að þeir hugsa fyrst og fremst um að viðhalda sjálfum sér og sínum. http://www.youtube.com/watch?v=JiLFPOUsgsY&feature=player_embedded#! Ég tek hér undir hvert orð.
Eigið góðan dag.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hef nú aldrei séð aðra eins lákúru og þessar færslur. Og auðvitað koma þeir fram í nafnleynd með svona færslur, þeir eru ekki meiri menn en það.
Hafðu það gott í dag mín kæra og láttu svona vibba ekki hafa áhrif á þig
Kidda, 26.1.2011 kl. 14:51
Takk Kidda mín, nei ég tek ekki svona nærri mér, því ég veit sjálf að þarna liggur einhvað að baki sem menn verða að eiga við sjálfa sig. Ég og minn yndislegi sonur þurfum ekki að hafa áhyggjur af svona lýð.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.1.2011 kl. 18:05
Var að lesa þetta á þó eftir að lesa það sem þú bendir á baldher.is.,sem fann ekki neitt með þér á því. Bara sendi þér samstöðu,þú hefur ekki unnið til þessarar andstyggðar. Sendi þér góðar hugsanir út á meginlandið. Blessuð sé minning sonar þíns.
Helga Kristjánsdóttir, 26.1.2011 kl. 19:13
Takk Helga mín, ég var eiginleg að benda á soran sem vellur upp úr fólki í dag. Sem þykist vera að hneykslast á öðrum og er svo ekki hótinu betra sjálft.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.1.2011 kl. 19:38
Kíkti á þetta og á bara og "smekkleysa" er orðið sem mér kom i hug. Það er ótrúlegt hvað sumir láta út úr sér í skjóli nafnleysis - ÞAÐ minnir á hettuklædda KKK.
kv. Jóhanna
Jóhanna Magnúsdóttir, 26.1.2011 kl. 23:21
Það verður gaman að fylgjast með þessum þræði og sjá hvað þú færð margar til að skæla með þér.
Baldur Hermannsson, 26.1.2011 kl. 23:22
einmitt Jóhanna, nákvæmlega sem fólk heldur að það sé að mótmæla.
Baldur skæl og væl kemur hvergi nálægt þessu. Eg er einungis að benda á þróun hér sem mér finnst stefna í ranga átt. Það er mitt mat og ég stend við það.
Ég er ekki vön að skæla yfir hlutum, heldur reyni að bæta það sem mér finnst aflaga fara. Og vona bara að fleiri taki undir með mér, því ég er viss um að ég er ekki ein um að finnast umræður farnar að harðna og verða sífellt dónalegri, en ef til vill eru sumir að eðlisfari bara svona miklir dónar og ruddar í umræðum eins og stíll þinn bendir til til dæmis og sumir af þínum bloggvinum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.1.2011 kl. 06:24
Ásthildur, ég held að dónaskapurinn sé sprottinn af vanlíðan þessa fólks, það er nú yfirleitt þannig. Sorglegt að það fái ekki útrás á annan hátt. Kannski vantar það bara faðmlag. Ekki þekki ég hjartalag Baldurs, en setningin sem hann setur hér inn segir mér að það sé eitthvað í gangi sem kalli á væntumþykju. Kaldur og svartur húmorinn er brynja þess sem undir niðri grætur. Það er því, þegar upp er staðið, Baldur sem hefur þörf fyrir að gráta, en kökkurinn situr fastur í hálsinum.
Jóhanna Magnúsdóttir, 27.1.2011 kl. 08:21
Baldur - knús
Jóhanna Magnúsdóttir, 27.1.2011 kl. 08:26
Já eigum við ekki bara að senda honum hópknús

Ég held reyndar að þú sért þarna með puttan á sannleikanum eins og svo oft áður Jóhanna mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.1.2011 kl. 08:55
Hehehe ég neita því nú ekki að ég hef gaman af bullinu í ykkur. Knús á móti ..... (Chrome leyfir ekki grafískar myndir svo sem hjörtu osfrv).
Baldur Hermannsson, 27.1.2011 kl. 09:38
Hjörtu hefðu nefnilega fullkomnað dæmið.... eða þannig
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.1.2011 kl. 10:49
Eg verð að segja að mer finnst hart barið á Jóhönnu og sjálfstæðismenn virðast ætla að ganga milli bols og höfuðs á henni- raunar finnst mer allar þingkonur undir sterku eftirliti og sleggjudómum.
En eg helt að Sjálfstæðismenn væru í Ríkisstjórn til að vinna með en ekki alltaf á móti öllu- vissu þeir ekki neitt- voru þeir að grilla ???
Erla Magna Alexandersdóttir, 27.1.2011 kl. 15:24
Jamm Erla mín, þeir voru að græða á daginn og grilla á kvöldin, þá er ekki hægt að hugsa um annað á meðan.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.1.2011 kl. 16:14
Hæstiréttur hefir verið dreginn inn í þessa þjóðfélagsumræðu. Auðvitað átti hann EKKI að dæma kosninguna ógilda enda ekkert sem mælti fyrir slíkum skilningi. En hann mátti auðvitað hafa sín sjónarmið um ágallana sem þó hefðu ekki átt að nægja til þeirrar dómsniðurstöðu enda ekki verið sýnt fram á svik, blekkingar eða annað sem hefði í skilningi 120.gr. laga um þingkosningar segja til um.
Já Baldur Hermannsson hann er sérkapítuli fyrir sig. Í augum margra er hann „His master voice“ eins og stóð á gömlu 78 snúninga grammófónplötunum hérna í den. Meistari hans er auðvitað Davíð sem hann lítur á sem hinn óskeikula páfa. Mín vegna má Baldur snúast á 78 snúningum kringum sinn meistara en hversu lengi hann hefir þetta úthald skal ósagt látið.
Dómur Hæstaréttar verður til að magna ófriðarbálið milli meirihlutans á þingi og andstöðunnar. Með þessu vafasama hátterni er Hæsitréttur að taka fram fyrir hendurnar á meirihlutanum og er það honum til mikils vansa.
Við þurfum flest annað en að auka ófriðarbálið á þingi. Hæstiréttur hefir sprengt ófriðarbombu, það mætti ígrunda hvort Sjálfstæðisflokkurinn líti á Hæstarétt sem valdatæki sitt.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 27.1.2011 kl. 18:27
VIssulega hefur hæstiréttur sprengt bombu sem mun leiða til meiri upplausnar en við gerum okkur grein fyrir. Ef til vill ekki upplausnar, heldur herða saman fólk sem er ákveðið í að vilja ekki Sjálfstæðisflokkinn aftur við völd. Ég var svona að sofna á verðinum, með alla vanhæfnin núverandi stjórnvalda, en nú hefur allt rifjast upp fyrir mér aftur. Og ég vil ekki sjá þennan flokk neins staðar nálægt stórnun landsins. Það nægði mér að horfa á glottið á hinni hrokafullu Nordal og svo skrif sjálfstæðismanna hér á blogginu. Nú á að láta kné fylgja kviði til að ná völdum.
Málið er að ég held að þetta hafi verið einn líkkistunaglinn í viðbót við valdabákn sem er á fallandafæti. Ég minnist þegar SíSveldið valt um koll. Það trúði því enginn að þetta framsóknarveldi myndi hrinja svona til grunna og þó þeir hafi náð að klóra í vegginn og ná sér í allskonar bitlinga hér og þar þá er gamla sísveldið á hliðinni. Ætli maður megi þora að vona að báknið Sjálfstæðisflokkurinn, verði líka brátt á hliðinni. Því fyrr getur Ísland ekki risið upp úr sortanum, en allur fjórflokkurinn eins og hann leggur sig er allur.
Næst þarf að setja á utanþingsstjórn og síðan að kjósa nýtt stjórnlagaþing, sem mun fara yfir stjórnarskrána og fækka þingmönnum og auka vald þjóðarinnar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.1.2011 kl. 19:37
Ásthildur Cesil, ég kvitta undir hvert einasta þitt orð í þessari umræðu.
Jens Guð, 28.1.2011 kl. 01:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.