Afmæli.

Það var ökladjúpur snjór þegar við vöknuðum í morgun, ég mun síðar setja inn myndir af snjónum í Forchteinstein. En í gær átti lítil dama afmæli, og við héldum upp á það.  Svo á að vera afmælisveisla í leikskólanum núna, hún fór því í fína prinsessukjólnum sínum í snjónum í morgun.

IMG_8952

Pabbi keypti fína kjóla handa stelpunum sínum.  Þær fengu sjálfar að velja.

IMG_8953

Svo þarf aðeins að laga sig til og sona.

IMG_8956

Þær vilja heilmikið vera í tölvunni hennar ömmu, þar geta þær horft á myndir, klædd dúkkur í föt og teiknað eða spilað kapal.  Margt hægt að gera í svona tæki

IMG_8957

Er ég ekki fín???

IMG_8964

 Kórónan var nú samt ekki lengi alveg heilLoL eða krónan eins og hún kallar hana.

IMG_8966

Einhverra hluta vegna vaxa börnin alltof fljótt upp úr barnaskapnum.  Frown

IMG_8971

 

En nú stendur eitthvað til???

IMG_8974

Hvað á ég að gera ?

IMG_8977

Já það er nefnilega verið að setja upp trampolín og allir hjálpast að.

IMG_8980

Svo dagurinn í gær fór að mestu í að hoppa og skoppa á Trambólíni, þær voru úti eiginlega allan daginn.

IMG_8988

Eða hefðu orðið það ef það hefði ekki staðið til fjögurra ára afmæli.  Hér er verið að skreyta tertuna.

IMG_8996

Og áhuginn leynir sér ekki.

IMG_9004

Svona á að gera þetta, aldeilis flott.

IMG_9008

Afmælisbarnið fallegaHeart

IMG_9014

Og svo er gestum boðið,  afmælissöngurinn var sunginn á íslensku, ensku og þýsku, vegna Poul sem kemur frá Köln.

IMG_9018

Allir nutu þess að borða þessa flottu köku.

IMG_9020

Ásthildur Cesil segir gjörið svo vel.

IMG_9026

Svo var blásið á kerti og teknar upp gjafirnar.

IMG_9028

Minna mús.  Poul hafði keypt handa henni Minnu mús.

IMG_9030

Æ svo góð.  Ég hafði ekki verið búin að kaupa gjöfina en ég ætla að gefa henni barbie sem syngur klassisk lög, það er á óskalistanum.

IMG_9031

Og svo var hoppað.

IMG_9039

Og hoppað....

IMG_9042

og hoppað hehehehe...

IMG_9043

og hoppað

IMG_9046

Brandur.... nei Carlos varð líka aðeins að prófa.

IMG_9047

Svo er gott að koma inn fá mynd og borða ávexti og grænmeti.

IMG_9048

Og leika við kisurnar.

IMG_9056

murrrrr.......

IMG_9072

Hanna Sólin.

IMG_9075

Pússla með mömmu þegar hún kemur heim úr skólanum.

IMG_9078

Hafið þið séð annan eins kött.  Púbbsý er ótrúlegur.

En þá þarf að fara að ösla snjóinn og svona.  Ætli það sé ekki bara meiri snjór hér en heima.  Og ég tók eftir að í morgun voru fáar konur við stýrið, og óvenju margir pabbar sem komu með börnin í skólann.  LoL Wonder WHY.

Eigið góðan dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kidda

Til hamingju með ömmusnúlluna  

Ja, hver skyldi vera ástæðan fyrir óvenjumikinn fjölda pabba?  

Vonandi áttu góðann dag

Kidda, 24.1.2011 kl. 12:04

2 identicon

Til hamingju með hana. Alltaf flottastar þegar þær hafa dressað sig upp. Rosaflott að fá trampólín þær eiga örugglega eftir að una vel þar. Líklega telja pabbarnir sig betri bílstjóra, spurning hvort mömmurnar hafa fengið að prófa.

Dísa (IP-tala skráð) 24.1.2011 kl. 12:10

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Góðan dag og hjartanlega til hamingju með afmæli ömmu stelpunnar þinnar.

Helga Kristjánsdóttir, 24.1.2011 kl. 13:27

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hugsa að svona miðað við konurnar hér, þá eru flestar þeirra dálitlar prinsessur, mest heimavinnandi og svona, ekki samt allar.  Og það er örugglega ekki lagt að þeim að aka í snjó.  Enda sá ég að fólkið sem er að moka heimkeyrslurnar sína hér upp alla götu gláptu á litlu pútuna sem ég ek, þegar ég fór upp brekkurnar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2011 kl. 13:37

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með afmælið

Hrönn Sigurðardóttir, 24.1.2011 kl. 15:14

6 Smámynd: Jens Guð

Til hamingju með afmæli litlu dömunnar!

Jens Guð, 25.1.2011 kl. 00:34

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jens og Hrönn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2011 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband