Myndir og aðeins frá sjálfri mér.

 

Ég var bún að skrifa heilmikið og setja inn myndir en svo hvarf það allt í óminni himingeimsins, svo ég þarf að byrja upp á nýtt.

IMG_8923

Já skjótt svipast verður í lofti og nú ríkir vetrarkuldi enn á ný hér.  Dæmigerðar íslenskar umhleypingar.

IMG_8924

Hér erum við í miðbæ Forthenstein beint á móti skólanum og leikskólanum.  Við vorum í seinasta lagi, því bíllinn fer ekki í gang og ég þurfti að ýta honum á götuna og láta hann svo renna í gang, sem er ekki mikið mál í þessum brekkum hér.

IMG_8925

Hér erum við svo komið í hesthúsið, og sólin komin fram.  Það gekk allt vel með hrossin, þau eru farin að þekkja mig og flest ánægð með prógrammið og vilja vinna með mér.  Þá er alltaf einhver með óþekkt, en ég læt þau ekki komast upp með neitt múður.  Það þarf að taka allt svona föstum tökum og það kann ég með alla mína reynslu.

IMG_8926

Skuggamynd af mér og hrossin búin með sitt og við getum öll verið sátt við morguninn.

IMG_8927

Vonandi hafa ekki orðið miklar kalskemmdir á ökrum, en auðvitað eru flestar framleiðsluvörurnar ekki komnar í moldina. Svona er bara lífið.

IMG_8928

Hér er akur vendilega stúkaður af með rafmagnsgirðingu held að þetta sé jarðaberja akur.

IMG_8929

Dularfull trjágöng og vegur í gegn.

IMG_8934

Í gær komu svo góðir vinir okkar frá þorpinu Maria Ellend. Hér má sjá Hönnu Sól, Miriam, Ásthildi kettina og Goldie og Trölla

IMG_8937

Heidi og Samúel eru Búddatrúar, og yndislegar manneskjur.  Þau komu m.a. til að mantra með Báru minni og konu sem býr hér í þorpinu.   En það er mikil aukning á Búddatrú hér í kring.

IMG_8938

Hér er Yoko komin til að eiga þessa stund með fólkinu, og ég ætla mér að taka þátt líka.

IMG_8939

Hér erum Heidi, Hanna Sól og Miriam dóttir þeirra Heidi og Samúels.

IMG_8940

 

Miriam, Goldie og Púbbsi góð saman, allir geta nefnilega orðið vinir.

IMG_8950

Og Ásthildur hélt konsert.

IMG_8951

Hún gerði það með svona Poul Mc Cartney stæl, hún verður einhverntíman góð.

En við möntruðum í tuttugu mínútur, ég segi ekki að ég hafi fengið mikið út úr því, en ég ætla samt að halda þessu áfram orðin sem fólkið segir er svona;: Nam Yoho Renge Kyo, og hefur mikla merkingu um duld lótusblómsins og fæðingu og dauða rétt eins og hringur Ásatrúarinnar.

Það má líka segja að hluta til hafi örlög mín ráðist hér á síðasta ári, þegar ég var að velta fyrir mér framtíðinni, og Samúel sagði mér að hann væri að hætta í vinnunni sinni sem aðstoðaraðili aldraðs og vangefins fólk, þar sem hann bæði var þeim til halds og trausts og sótti fyrir þau allar nauðynjar.  Hann var að fara að læra inn á svið sem ég kann ekki að nefna en er að vinna með einstaklingum og þeirra undirmeðvitund.  Það hafði verið ákveðið af dóttur minni og honum að hann tæki mig í tíma hér við þessa heimsókn.

Ég er alltaf til í svoleiðis.  Og ég verð að segja að ég varð fyrir stórkostlegri upplifun.  En það er auðvitað bara fyrir mig.  En hann sagð mér að það sem kæmi fram væri eingöngu samtal milli míns innra sjálfs og mín, hann væri eingöngu milligöngumaður sem kæmi skilaboðunum á framfæri.  Og það sem okkur fór á milli var frábær og mér mikil upplifun.   Hann kom mér á óvart, þar sem þrátt fyrir mína næmni og skynjanir er ég alltaf jafn skeptisk, En svo sannarlega átti ég þarna upplifelsi sem ég mun ekki gleyma heldur geyma í huga mér og vinna áfram með.  Og allt sem kom þarna fram voru hlutir sem ég í raun vissi og þegar hann sagði mér þá, fann ég að ég er á réttri leið.   Það er yndislegt þegar maður kemst á flug í andlegum málum sem tengjast manns innri vitund. 

Ég finn að það breyttist eitthvað, og nú þarf ég bara að vinna við sjálfa mig, til að gera það sem þarf fyrir mig sjálfa.  Ég hef fengið leiðsögn, reyndar frá sjálfri mér gegnum túlk, og nú er bara að fara að bretta upp ermar, ég er reyndar aðeins byrjuð með því sem ég er að gera í dag, hætta í vinnunni, fara sem aupair til dóttur minnar og ekki bara það, heldur vinna með hrossunum, sem hafa gert mér gott líka, því ekkert er betra fyrir brotna sál en umgangast dýr og finna sjálfan sig í því að komast inn í hugarheim þeirra og finna samsömun og vilja til að vinna með manni.  Það er yndisleg tilfinning, þegar maður segir þeim bara með einu orði að brokka og þau hlýða, eða segja þeim að galoppa og þau stökkva eða bara segja á ákveðin hátt sto og þau stoppa.  Og svo finnur maður að dýrin vilja virkileg og hafa jafn gaman af þessu og ég. 

Já elskurnar ég segi bara, við erum miklu sterkari en við höldum.  Ef við bara hlustum á náttúruna og það sem er í kring um okkur, og förum þá leið sem okkar æðri máttur leiðbeinir okkur til, þá getur ekkert klikkað.

Eigið góða nótt. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

       Þá vil ég segja, taktu nú gítarinn og syngdu með krökkunum;Bjartar vonir vakna í vorsins ljúfa blæ,,,, það gerir maður heldur ekki á hverjum degi.Kveðja af Fróni.

Helga Kristjánsdóttir, 23.1.2011 kl. 00:13

2 Smámynd: Kidda

Mjög svo áhugavert, alltaf gaman að vinna í andlegu málunum. Það gerir okkur öllum gott að leita aðeins inn á við. Ég þarf að taka skurk í því eftir að við erum búin að koma okkur fyrir á nýja staðnum.

Knús handa innra sjálfinu þínu

Kidda, 23.1.2011 kl. 09:28

3 identicon

Frábært hjá þér að vinna í sjálfri þér. Örugglega best ef maður getur gert hlutina sjálfur með leiðsögn og líklega ekk víða betri aðstæður með börnin og dýrin sem gefa svo af sér svo nálægt.

Dísa (IP-tala skráð) 23.1.2011 kl. 10:21

4 identicon

Ég fór á Búddasamkomu í vetur út af skólaverkefni og þetta er alveg ótrúlega magnað! 

Innilega til hamingju með litlu nöfnuna þína! Skilaðu knúsi í húsið 

Hjördís P. (IP-tala skráð) 23.1.2011 kl. 10:42

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Helga mín það er létt mál,

Bjartar vonir vakna, í vorsins ljúfa blæ,

Bjarmar yfir björgum, við bláan sæ

Viltu með mér vaka, þú veist ég elska þig

Komdu vinur kæri og kysstu mig.

Kidda já mér líður einhvernveginn miklu betur, ég er ákveðin í að halda þessu áfram og sjá hvort það hefur áhrif í raun og veru.  Ég þurfti svona púff, eftir allt það liðna.

Einmitt Dísa mín ég hef allt í kring um mig til að halda áfram, fara í nýjan betri kjól, og henda hinum.

Hjördís mín, já þetta er virkilega áhugavert.  Ég skilaði kveðjunni og þau knúsa þig á móti, það var afmælisterta og við sungum hún á afmæli í dag, á ensku, íslensku og þýsku.  Þær fengu trampólín sem mamma og pabbi settu upp í morgun og nú koma þær ekki inn þessar elskur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.1.2011 kl. 14:16

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Frábær færsla og frábærar myndir.....

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.1.2011 kl. 01:51

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kolbrún mín, sakna þér hér á blogginu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.1.2011 kl. 07:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband