Myndir og svoleiðis.

Veðrið hér minnir óneitanlega á umhleypingarnar heima,  hér er búið að vera hlýtt og vorveður, en austurríkismenn vantrúaðir á að vorið sé komið.  Enda kom á daginn að nú hefur kólnað ískyggilega og í morgun var allt hvítt af snjó. 

En ég lét mig hafa það í gær að aka svolítið um sveitirnar og taka myndir,  það var frekar erfitt, því ég þurfti bæðí að hafa augun á landslaginu og veginum. Blush Og svo vera tilbúin að taka snöggar ákvarðanir um að stöðva ökutækið og stilla sér upp.

IMG_8883

En hér má sjá ömgurnar vera að gera heimavinnuna, Hanna Sól með skákverkefni og amman að ráða krossgátur, ég fer sjaldan eitthvað í ferðalag án þess að hafa slíkar meðferðis.

IMG_8885

Það er galsi í þessum litlu skvísum mínum Heart

IMG_8886

Og margt sér til gamans gert Heart

IMG_8890

Fallega ömmustelpan mín.

IMG_8892

Heart

IMG_8893

Mæðgurnar við matarborðið, mamma þurfti að aðstoða Hönnu Sól með skákdæmin.

IMG_8895

Svo þarf að koma þeim í skólan og leikskólan  á morgnana, þá er gott að hjálpast að.

IMG_8896

:Þessar myndir eru teknar í fyrradag.  Það var bjart og fallegt veður, en afar kalt og frost.

IMG_8897

Hér erum við komin í sveitina við hesthúsin, eins og sjá má er grasið farið að grænka og akrarnir tilbúninir til útplöntunnar.

IMG_8899

Sumt komið lengra en annað.

IMG_8900

Sem sagt bara beðið eftir vorinu.

IMG_8901

Hér verður örugglega maís.

IMG_8902

Mér finnst fólk utan Íslands ekki vera jafnmiklir fagurkerar og við þegar kemur að raflínum, þær eru miklar og skemmandi fyrir útsýnið, en það er víða um heim.

IMG_8903

Vindmyllurnar eru líka víða, þær eru auðvitað náttúrlega hagkvæm auðlind.

IMG_8905

Hér er eitt þorpið, svona kúra þau inn á milli akranna.  En þau eru saman í klösum með einni yfirstjórn, ég held að Mattersburg sé aðalþorpið í þessum klasa hér.

IMG_8906

Hér sjást vindmyllurnar betur.

IMG_8907

Ég þarf að fara yfir lestarteina á leiðinni í hesthúsið, Christína segir mér að það séu mörg dauðsföll á ári þegar fólk fer yfir á rauðu eða gulu, og tekur sjensinn.  Samt sem áður er ekki farið í að fjárfesta í slám sem opna og loka. 

Austurríkismenn eru í sumum málum á eftir okkur, þeir til dæmis reykja eins og strompar.  Í umferðinni eru þeir ekkert betri en við, aka yfir löglegum hraða og jafnvel svína á mann út af hliðarbraut. 

IMG_8908

En þeir eru afskaplega kurteisir og bjóða alltaf góðan dag við þá sem þeir hitta,  ég er líka farin að þekkja sumar konurnar og karlana sem koma með börnin á leikskólann á sama tíma og ég.   Í sveitinni eru allir miklu vingjarnlegri en í Vín, þar sem enginn horfir í áttina til þín, nema þú sért með hund.  Þú mátt líka fara með hunda inn í kaffihús, sem okkur finnst alveg út úr kú á Íslandi.

IMG_8911

Þessi húsasamstæða minnir mig alltaf á hringhúsið í Garðabænum

IMG_8912

Svona sólarmynd ala Ísafjörður.

IMG_8913

Hér má sjá eitt þorpið kúra við hlið akranna.

IMG_8914

Gaman að þessum litlu þorpum þar sem búa svona fimm þúsund manns eða svo.  Friðsæl og hlý.

IMG_8915

Ég held að ég hafi örugglega vakið eftirtekt heimamanna þegar ég stoppaði bílinn á hinum ýmsu stöðum og dró fram myndavélina. LoL

IMG_8916

Og hvert erum við nú komin? Jú til Marz hehe

IMG_8917

En ég hef aldrei farið þessa leið og varð sífellt að taka eldsnöggar ákvarðanir, þegar ég sá eitthvað sem var interesant.

IMG_8919

En svo er komið kvöld og litlu prakkararnir mínir þurfa að bursta tennur og fara að sofa því hér vakna allri snemma.

En á morgun ætla ég að segja ykkur frá mjög áhugaverðum degin sem var í dag.  Núna held ég að ég farið að halla mér.  Eigið góða nótt elskurnar.  Með kveðju frá Austurríki.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Yndislegt að fá að fylgjast svona með ferðum þínum Ásthildur mín

Sigrún Jónsdóttir, 22.1.2011 kl. 00:41

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín er ánægjan mín kæra  Það er gott að eiga svona marga skemmtilega og góða ferðafélaga.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2011 kl. 08:15

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alltaf jafn gaman og fróðlegt að skoða pistlana þína.  Rosalega sem "litlu" stelpurnar hafa stækkað og þroskast.  Hvað er mest ræktað þarna á þessu svæði?

Jóhann Elíasson, 22.1.2011 kl. 08:57

4 Smámynd: Kidda

Það er á fleiri bæjum beðið eftir vorinu sé ég. Alltaf jafn gaman að ferðast með þér um ókunn lönd

Knús til Austurríkis

Kidda, 22.1.2011 kl. 10:02

5 identicon

Meðan þú bloggar og miðlar okkur fróðleik og skemmtun ertu aldrei ein á ferð. Ekki ætti ég bágt með að trúa að stundum stoppirðu séstaklega til að taka mynd með einhvern í huga sem hefur áhuga á myndefninu. Megum við fá meira að heyra!

Dísa (IP-tala skráð) 22.1.2011 kl. 10:07

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jóhann mér sýnist það vera Maís, sólblóm, paprikur, jarðarber,kartöflur svo eru epli, perur, kirsuber. Sumir rækta blóm, og svo er líka til að fólk fái að týna blóm eða ávexti sjálft af ökrum og borgi fyrir það sem þeir taka, þá eru bændur og búalið við akurinn með lítin kofa og borð, eða hreinlega einhversstaðar kassi til að leggja peninginn í.  Og þeir virðast vera alveg heiðarlegir í því fólkið á landsbyggðinni. 

 Takk Kidda mín, já við bíðum auðvitað öll eftir vorinu. 

Dísa mín, jú það hefur nokkrum sinnum komið fyrir að ég tek myndir af fólki eða stöðum sem ég veit að lesendum mínum þykir vænt um, og líka segi ég stundum við sjálfa mig, mikið væri gaman að sýna þeim þetta eða hitt sem fyrir augun ber, en fyrst og fremst geri ég þetta mér til mikillar ánægju.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2011 kl. 12:00

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég myndi þekkja krílin hvar sem er,svo föst eru þau greypt í sjónminnið,hamingjusöm börn.Allir hér eru með handboltann á heilanum,leikur við Þjóðverja í dag,þjóð sem hefur alið marga okkar fræknustu,maður fær sína spennu í dag. Lifðu í lukku  

Helga Kristjánsdóttir, 22.1.2011 kl. 12:25

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Helga mín, já þetta með fótboltan, hjá okkur er þýskur strákur, ég vona að handboltinn fari svona nokkurnveginn jafn, svo ekki verið atgangur hjá stákunum mínum  ÉG skil annars ekki þennan barlóm um að sjá ekki leikinn, því það er hægt að sjá hann beint í tölvunni.  En það er auðvitað ekki það sama og við sjónvarpsskjáin með bjór og snakk og konuna þjónandi kring um sig og vinina  Knús heillin,

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2011 kl. 16:28

9 Smámynd: Jón Ríkharðsson

þetta eru fínar myndir og þú mátt vera virkilega stolt, af þínum fallegu afkomendum.

Jón Ríkharðsson, 22.1.2011 kl. 20:44

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þakka þér innlitið Jón og hlý orð,

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2011 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband