16.1.2011 | 19:44
Ýmislegt frá Forchteinstein
Það er smávandamál fyrir mig að komast í tölvuna mína, því ég á tvær litlar prinsessur sem vilja endalaust fá að horfa á myndir, og það er eiginlega best að horfa á þær í ömmutölvu. Og vitaskuld geri ég allt fyrir þessar elskur.
En nú tókst mér að hertaka tölvuna mína þegar þær áttu að fara í svefnin. Og þá fæst smá næði til að heimsækja bloggheima
Við höfum átt góðá helgi. Við mæðgurnar ákváðum að lita á okkur hárið saman, gerðum það á föstudagskvöldinu þegar þær litlu voru farnar í svefninn og strákarnir í hesthúsinu. Settumst með rauðvín inn á bað og Bára mín sá um litunina á okkur báðum, ég var mjög ánægð með útkomuna. Áttum yndislegt stelpukvöld inn á baði við að gera okkur sætar, líka með að lita augnabrúnir.
Á fimmtudaginn hafði mamma stelpanna líka lofað þeim að ef þær yrðu góðar, myndi hún fara með þær og láta gera göt í eyrun. Það hafði verið lengi á döfinni. Ég lét gera göt í mín eyru þegar ég var um tvítugt, vinkona mín Ranný Páls gerði þetta með stoppinál. Svo það var ferkar óhefðbundið, enda ekki mikið um val við svona aðgerðir í þá daga. En semsagt ég hef verið frekar löt við að setja í mig eyrnalokka undanfarin ár, svo það var að mestu gróið fyrir götin hjá mér, og þegar við komum til læknisins, já það er gert hér hjá lækni, ákvað ég að láta slag standa og láta gera aftur göt í eyrun mín. Við vorum sem sagt þrjár ég Hanna Sól og Ásthildur sem fengum göt í eyrun þennan dag, og þessa líka fínu eyrnarlokka.
Við vorum ekkert smá ánægðar stelpurnar þegar við komum heim með þessa fínu eyrnarlokka.
Það þurfti heilmikið að skoða í spegli og svona.
En þær voru rosalega duglegar því þetta var sárt í byrjun, Ásthildur fékk tár í augun, en lét sig hafa að fá í hitt eyrað líka, sama með Hönnu Sól, mamma hennar bauð henni hvort hún vildi setja í hitt eyrað líka, já stundi hún. Ég var rosalega hreykinn af þeim báðum. Þetta er sennilega sama og með barnsfæðingar, þess vegna eru strákar líka bara með eitt gat fyrir eyrnalokk
Ásthildur hreykin að sýna pabba eyrnalokkinn sinn.
Hér eru Púbbsý og Carlos, þeim gæti ekki verið meira sama um eyrnalokka
En þeir elska stelpurnar okkar.
Ásthildur hefur haldið nokkra konserta og hún er frábær. Hér hlusta þær á hljómdiska sem innihalda um 100 barnalög frá Íslandi, og um daginn ákvað hún sækja gítarinn og reyna að spila með, en fann strax að það var ekki samhljómur svo hún hætti við. Þetta er því lík næmni og eyra fyrir músik af svona litlu barni að ég varð hálf klumsa. en ég er ákveðin í að reyna að taka upp konsert til að sanna þetta. Hún verður rosalegal flott þegar hún fer að læra af alvöru.
En hún er ekki bara músikant heldur líka algjör prímadonna, flott og æðisleg.
Sjá þetta litla dýr, hvernig hún notar líkaman sinn.
En hér er vorið komið, mánuði of snemma segir fólkið hér. Íkornarnir komnir á kreik og blómin farin að spretta, akrarnir orðnir grænir, en fólkið segir það á eftir að bæði kólna og snjóa, hér byrjar vorið ekki fyrr en í endaðan febrúar, svo þetta er allt of snemmt.
En það er ósköp nota legt að fá svona forvor fyrir mig. komin úr dimmunni heima og upplifi vor númer eitt.
Stelpurnar mínar þrjár að skoða bloggið hennar ömmu
Og hér er Hanna Sól að leika sér á Leikjaneti og amma að lesa bloggið.
Á morgun ætla ég að setja inn myndir af heimsókn vinkonu minnar hingað frá Vín Christínu Gobbi og ýmislegt fleira. En nú er komið að svefntíma. því ég þarf að vakna afar snemma í fyrramálið, því mín bíður að vekja litlar yndislegar stelpur, koma þeim í skóla og leikskóla og fara síðan í hestamennskuna. En þá gefst líka tími þar á eftir til að sinna netinu. Egið góðar stundir þangað til
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023333
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Dattí hug lagið hans Bjartmars,sem var nú svolítið annað efni,en hægt að herma eftir því; Barnapían (amma) er með litað hár,og yngist upp um 18 ár á nóinu. Kveðja
Helga Kristjánsdóttir, 16.1.2011 kl. 21:30
Skvísur með göt í eyrum :)
Gott þér líður vel Cesil mín
Hrönn Sigurðardóttir, 16.1.2011 kl. 21:49
Jamm hehehe skvísur með göt í eyrum og yngjast upp um átján ár, nema það er bara sú gamla sem getur yngst upp um þessi ár, hinar yrðu bara að eggjum og sæði
Knús
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.1.2011 kl. 22:00
Heldur betur gelluhelgi
. Yndislegt að sjá hvað þú nýtur þín
Dísa (IP-tala skráð) 17.1.2011 kl. 12:49
Skemmtilegar svona stelpuhelgar
Mér datt í hug þegar ég sá hvað Ásthildur litla er músíkölsk að ég á svona músíkalskan 3 ára ömmustrák og foreldrar hans gáfu honum Ukulele í jólagjöf. Það er mátuleg stærð á gítar fyrir svona litla búka og hann er alsæll með það.
Dagný, 17.1.2011 kl. 14:27
Já Ukulele er flott fyrir litla krakka. Já ég nýt mín afar vel, þarf allt í einu að fara að gera eitthvað sem ég er hálf smeyk við í byrjun og finna svo að ég get gert það, þetta gerir manni heilmikið gott og styrkir sjálfsímyndina, ég var orðin og værukær og löt, það sé ég núna.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.1.2011 kl. 16:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.